Helgarpósturinn - 14.12.1995, Qupperneq 6
6
RMMTUDAGUR14. DESEMBER1995
Fáir tónlistarmenn státa af jafnskjótum frama í bransanum og hin 18 ára Emilíana Torrini. Fyrir tveimur árum sigraði hún í söngvakeppni
framhaldsskóla, sló svo rækilega í gegn með hljómsveitinni Spoon og söng loks í Hárinu. Nýverið sendi Emilíana síðan frá sér sólóplötu sem er að
sprengja sölumúrinn. Helgarpóstinum þótti við hæfi að siga blaðamanni með félagsráðgjafamenntun á þetta undrabarn — eða kannski ofurkvendi?
Það var Hreinn Hreinsson sem ræddi við Emilíönu, hélt aftur af ráðgjafarhjalinu
og komst að því í leiðinni að frægðin er ekki alltaf tekin út með sældinni...
að ég fæ blóðnasir“
E!
Ig er átján ára, fædd í
Reykjavík 16. maí árið
11977 og er naut, sem er
besta merkið. Ég var skírð í Na-
pólí á Ítalíu af því að pabbi
minn er ítalskur. Hann heitir
Salvatore Torrini, en þessir
hálfvitar í nafnanefnd sögðu
honum að breyta nafninu sínu
og nú heitir hann Davíð Eiríks-
son. Það er fáránlegt að fólk
megi ekki heita það sem það
vill, fólk á að fá að velja sjálft
nöfn á börnin sín. Það er eitt-
hvað að, ef einhver nafnanefnd
heldur að íslensk menning bíði
skaða af að leyfa alls konar
nöfn. Horfum frekar á matar-
menninguna: hvergi er hægt
að fá kjötsúpu og grjónagraut
eða hrygg með sykruðum kart-
öflum á íslenskum veitinga-
stöðum. Útlendingar fara um
landið og fá bara grillaða kjúk-
linga eða McDonalds-ham-
borgara,“ sagði Emilíana Torr-
ini, söngkona með meiru, í
einni andstuttri bunu í upphafi
samtals við Helgarpóstinn þeg-
ar við náðum að setjast niður
með þessari uppteknustu
manneskju íslenska popp-
bransans eina kvöldstund fyrir
skemmstu. Og svo sagði Emil-
íana sitthvað fleira... Þarna fer
kona með skoðanir. Ákveðnar
skoðanir.
Eigum við að halda áfram
með œvisöguna eða viltu frekar
fara út t þjóðfélagsgagnrýni?
„Allt í lagi. —_Annars er ég
semsagt skírð á Ítalíu í höfuðið
á ömmum mínum: sú íslenska
heitir Emilía, en sú ítalska
heitir Anna. Þessum nöfnum
var skellt saman í Emilíana,
sem er ítalskt nafn. Ég hef allt-
af búið á íslandi nema ég flutti
til Þýskalands í smátíma þar
sem bróðir pabba býr og hef
verið á sumrin til skiptis í
Þýskalandi og á Ítalíu. Annars
er ég alin upp í Kópavogi og
gekk í skóla þar, fyrst í Kárs-
nesskóla og síðan í Þinghóls-
skóla og loks í MK.“
Og rúllaðirðu œskuárunum
upp?
„Ég veit það nú ekki, ég
gleymi að minnsta kosti aldrei
fyrsta deginum í skólanum,
sem var næstum búinn að
valda mér stafsetningarfóbíu
ævilangt. Af því ég hét út-
'ensku nafni var ég tekin upp
að töflu og látin skrifa nafnið.
Þurfti auðvitað að gera smá-
villu og kennarinn öskraði á
mig. Ég get svarið það að ég
fékk taugaáfall. Gleymi þessu
aldrei. Þetta var hræðilegt.
Villingsárin komu síðan þegar
ég var þrettán og fjórtán ára. Á
því tímabili gekk ég bara í
svörtum fötum, meira að segja
svörtum nærfötum, og meikaði
mig hvíta í framan og var með
eldrauðar varir. Ég var bara
ein svona og man ekkert al-
mennilega hvers vegna.“
okkur margt sem á eftir að
skipta svo miklu máli.“
En þú sagðir áðan að þú hefð-
ir verið í Söngskólanum, ertu
þarenn?
„Já, ég er komin á fjórða stig
í söng af átta stigum, klára
fimmta stigið í vor. Ég er sópr-
an, en veit ekki alveg hvers
konar; ég er ekkert rosalega
góð í að skilgreina þetta. Eg
stefni á að verða óperusöng-
kona.“
það er sem mig langar til að
syngja. Eitt lagið er japanskt
frá 1994, I með Pizzicato, og
fjallar um stelpu sem finnst
hún geta verið hundleiðinleg,
köld og frek og komist upp
með það af því hún er svo sæt
og allir elska hana.“
Líkist hún þér?
„Nei, alls ekki. Mér fannst
textinn bara fyndinn og þess
vegna fannst mér að lagið ætti
að vera með.“
Er það rétt munað hjá mér að
þú hafir fyrst sungið opinber-
lega óperusöng við morgunverð
Alþýðuflokksins í Kópavogi fyr-
ir eldri borgara sumardaginn
fyrsta 1994?
„Guð! Ekki segja mér að þú
munir það! Það var í fyrsta
skipti sem ég söng klassík op-
inberlega og ég man það eitt
að mér fannst þetta hryllilegt.
Það gekk að minnsta kosti ekki
mjög vel.“
En hvenœr steigstu þá fyrst á
svið?
„Fyrsta skiptið sem ég steig
á svið opinberlega var með
hljómsveitinni Spoon á tón-
leikum í Mosfellsbæ þegar ég
var sextán ára. Þetta var dálít-
ið fyndið, því strákarnir voru
búnir að vera að spá í að reka
mig vegna þess að ég þorði
aldrei almenniiega að sýna
hvað í mér bjó á sviði. En þetta
kvöld sprakk ég sem sagt út í
fyrsta skipti. Rosalega gaman.
Reyndar var ég fyrst í hljóm-
sveit sem heitir Tjalz Gizur, en
var rekim úr henni af því ég
þótti svo léleg, söng bara eitt-
hvað voða dimmraddað ný-
bylgjurokk. Við tókum þátt í
Músíktilraunum og urðum í
öðru sæti.“
Hvað með söngvakeppni
framhaldsskóla?
„Ég vann söngvakeppni
framhaldsskóla árið 1993. Eg?
Ég sem skráði mig ekki einu
sinni í keppnina sjálf heldur
strákur sem heitir Friðjón og
var í skólanum. Hann frétti víst
að ég væri í söngskóla. Mér
fannst ekkert sanngjart að ég
ynni þessa keppni. Við unnum
bara af því lagið var svo fjör-
ugt: / Will Survive með Gloriu
Gaynor. Ég byrjaði nú samt
eiginlega að syngja í skólakór
Kársness þegar ég var sex ára
og ég held að það skipti miklu
máli, ef ég ætla að verða
óperusöngkona, að ég byrjaði
svona snemma. Þórunn
Björnsdóttir kórstjóri kenndi
,,Köld og frek af
pví hún er svo sæt“
— Líkist mér ekki...
Ég var í partíi um helgina og
þá var nýi diskurinn þinn settur
á og þá spurði einhver hvort
þetta vœri Janis Joplin.
„Skrítið“
Já, en ertu hissa á því?
„Já mjög, en ekki á slæman
veg. Mörg lögin eru gömul
blúslög. Eitt er meira að segja
frá 1933 held ég. Þetta eru
svona alls konar lög, því ég á
svo erfitt með að ákveða hvað
Af hverju heitir platan
„Krúsídúlla"?
„Bara af því ég tók eftir því
að söngkonur sem gefa út
sólóplötur skíra oft plöturnar
sínar einhverju frönsku nafni.
Mér finnst það fyndið og ákvað
þess vegna að hafa mína líka
svoleiðis og búa til nafn sem
hljómaði mjög franskt, en væri
það ekki. Krúsídúlla var svo
flott skrifað á frönsku að það
varð fyrir valinu."
Af hverju fékkstu Jón Ólafs-
son til að aðstoða þig við plöt-
una?
„Ég treysti honum og veit
hvernig hann vinnur. Ég vann
með honum í Hárinu og það
var frábært."
Hvernig gekk að gera plöt-
una?
„Það var frábært, það gekk
ofsa vel og var ferlega
skemmtilegt. Þetta eru allt svo
flottir spilarar að það var hægt
að taka mörg lögin upp læf og
þá var rosaleg stemmning í
stúdíóinu.“
Fæ örugglega
ekkert svakalegan
pening fyrir plotuna
Verðurðu rík?
„Það held ég varla, maður
fær ekki alltaf sanngjarnan
pening fyrir það sem maður er
að gera. Stundum er allt í lagi
en stundum er ekkert í lagi.
Platan mín selst ótrúlega vel
og ég er mjög ánægð með það,
en samt fæ ég örugglega ekkert
svakalegan pening fyrir hana.
Þetta er alltaf rosaleg áhætta
en það bara ekki annað hægt.
Fólk gerir sér ekki grein fyrir
því að þetta er snubbótt vinna.
Þú græðir í þrjá til fjóra mán-
uði, en hinir mánuðirnir eru
stundum ókeypis.“
Þú hefur komist á toppinn á
íslenska listanum með Spoon
og núna áttu lag númer tvö,
finnst þér allt í lagi að vera
númer tvö eða viltu alltaf vera
númer eitt?
„Mér er alveg sama. Það er
góð viðbót að vera á lista.“
Hvernig finnst þér nýja platan
þín?
„Mér finnst hún ótrúlega góð
strax þegar maður hlustar á
hana í fyrsta skipti og hún
venst vel. Mér finnst öll lögin á
plötunni góð og ég laumast
meira að segja stundum sjálf
til þess að hlusta á hana þegar
enginn sér til.“
Kemur önnur plata?
„Kannski, ég ætla að sjá til
hvort ég þori að leyfa fólki að
heyra mín eigin lög. Ef ég þori
það ekki er alveg hægt að vera
bara söngvari. En ég ætla að
reyna.“
Mér finnst
best að syngja
— fyrir utan að borða
Þér finnst greinilega óskap-
lega gaman að syngja.
„Já, best, — fyrir utan að
borða. Oftast þegar ég syng þá
loka ég mig af. Ef það gerist
ekki þá gengur mér ekkert rosa
vel, því ég verð svo stressuð á
sviði, en það lagast yfirleitt eft-
ir fyrstu tvö lögin.“
Hvað með sjálfstraust al-
mennt?
„Ég hef rosalega mikið sjálfs-
traust meðan ég syng, en ég á
ferlega erfitt með að tala við
fólkið þegar ég er á sviði. Ég
hef alltaf eitthvað að segja og
er yfirleitt með óstöðvandi
munnræpu, en svo kemur bara
ekkert nema eitthvert rop þeg-
ar ég á að tala uppi á sviði.
Þegar ég var í Spoon sá Höski
alveg um þetta og það var frá-
bært. Núna er ég sóló og þarf
að redda þessu meira sjálf og
það er ferlega erfitt."
Er alltaf jafngaman að koma
fram?
„Nei, ekki alveg. Það er mis-
munandi. Það er alltaf rosalega
gaman að syngja á tónleikum,
því þá hlustar fólk svo vel og
maður fær góða strauma. Á
böllum er meira verið að mata
fólk og maður panikerar stund-
um af því maður er ekki viss
um að fólk fíli næsta lag nógu
vel.“
Hvernig líður þér þegar þú ert
að fara að syngja?
„Ég er oft svo stressuð þegar
ég er að fara á svið að ég fæ
blóðnasir og fæ rosalega í mag-
ann. Síðan þegar ég er byrjuð
að syngja verður allt í lagi.
Nema á útgáfutónleikunum um
daginn, þá var hjartað í mér á
fullu alla tónleikana."
_er meiri
kelling en aðrar
stelpur á mínum aldri
Skiptir máli hvort fólk er fullt
þegar það skemmtir sér?
„Ég veit það ekki. Fólk getur
alveg hugsað þótt það sé fullt
og það er ekkert léttara að
sleppa sér þegar maður er full-
ur. Fólk heldur það bara. Fólk
er alltof feimið og ekki vant því
að tjá sig. Þetta er örugglega
eitthvað í menningunni. Fólk á
íslandi þyrfti að læra að sleppa
sér og maður nennir ekki að
standa í því að stjórna fólki á
böllum — það er: Éruð þið ekki
í stuði? eða Allir að hoppa!
Fólk á bara að stjórna sér
sjálft. En ég geri þetta nú samt
stundum.“
Trúirðu því alltaf að þetta sé
raunverulegt?
„Mér finnst stundum ótrú-
legt hvað ég hef náð langt. Mér
finnst ég vera svo mikil brussa
en kannski slysaðist ég bara
inn í þetta með einmitt brussu-
„Ég er oft svo
stressuð á sviði