Helgarpósturinn - 14.03.1996, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 14.03.1996, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGUR14. MARS1996 Eftir aö hafa sagt upp samningum viö nokkra leikara og lagt til aö gerður yrði starfslokasamningur viö aðra var Viðar Eggertsson umsvifalaust rekinn úr starfi leikhússtjóra Borgarleikhússins. í viötali viö Sæmund Guövinsson segir Viöar aö ekki megi hrófla viö sumum leikurum. y Ákveðinn hópur leikara ósnertanlegur Það virðist ákveðinn hópur leikara vera ósnertanlegur. Þó er hvergi að finna stafkrók fyrir slíku. Það hefur verið spurst fyrir um það á leikhús- ráðsfundi hvort til væri bókun, samkomulag eða eitthvað sem segir að einhverjir leikarar séu á öðrum samningum en aðrir. Það fyrirfinnst ekkert slíkt,“ sagði Viðar Eggertsson í viðtali við Helgarpóstinn. Viðar segir ennfremur að venslatengsl séu svo mikil í Leikfélagi Reykjavík- ur að varla sé hægt að ræða málefni einstakra starfsmanna á fundum leikhúsráðs. Meirihluti leikhúsráðs Leikfé- lags Reykjavíkur sagði Viðari Eggertssyni fyrirvaralaust upp störfum á þriðjudaginn. Þeir sem stóðu að brottrekstrinum voru leikararnir Sigurður Karlsson, Þorsteinn Gunnars- son og Kristján Franklín Magn- ús. Fulltrúi Reykjavíkurborgar í ráðinu, Ömólfur Thorsson, greiddi atkvæði gegn uppsögn- inni. Hann segist ekki sjá nein efnisleg rök fyrir þessari ákvörðun meirihlutans. Kjartan Ragnarsson hefur sagt af sér sem formaður Leikfélagsins. Viðar hafði lagt til að samning- um við nokkra leikara yrði sagt upp og aðrir ráðnir í þeirra stað. Leikhúsráð féllst á þær til- lögur. Viðar lagði jafnframt til að gerður yrði starfslokasamn- ingur við nokkra leikara sem hafa verið á föstum samningi í meira en fimmtán ár, en enginn þeirra vildi þiggja slíkan samn- ing. Það var svo í kjölfar tveggja félagsfunda í Leikfélaginu að meirihluti leikhúsráðs ákvað að reka leikhússtjórann. Viðar Eggertsson telur að hann hafi verið svikinn. Helgar- pósturinn spurði Viðar hverjir hefðu svikið hann í þessu máli. „Það er fyrst og fremst Leikfé- lag Reykjavíkur, sem stendur ekki við þá samþykkt sem gerð var milli borgarinnar og Leikfé- lagsins um það hvernig ætti að haga málum varðandi leikhús- stjórann. Það er til skýrsla sem nefnist „Málefni Borgarleik- húss“. Þar er sérstaklega skor- að á Leikfélagið að breyta lög- um sínum þannig að leikhús- stjóri sé ekki valinn í vinsælda- kosningum á félagsfundi heldur geri leikhúsráð starfssamning við hann. I lögum Leikfélagsins segir að leikhússtjóri sé æðsti yfirmaður allra starfsmanna þess og eins og segir orðrétt í samkomulagi borgarinnar og fé- lagsins ...“ætti að sem best leikhús- og sjálf- og veita víðtækt til þeirra sem nauð- styrkja stöðu stjóra stæði honum umboð breytinga hann telur „Þegar störf mín fara að snerta einstakar persónur í Leikfélaginu þá bregst félagið mér.“ synlegar til að efla leiklistar- starfsemina og rekstur Borgar- leikhússins". Með þetta í vega- nesti fer ég síðan að starfa.“ Og hvenœr kemur í Ijðs að þú fœrð ekki að starfa samkvæmt þessu umboði? „Það er ekkert leyndarmál að það hefur verið mikil og nei- kvæð umræða um leiklistar- starfsemi í Borgarleikhúsinu síðustu misseri og ljóst að það yrði að gera einhverjar breyt- ingar og snúa dæminu við. En þegar til kastanna kemur og störf mín fara að snerta einstak- ar persónur í Leikfélaginu fer félagið að bregðast. Það leik- húsráð sem réð mig hverfur raunar af vettvangi af ýmsum ástæðum. Því er það mjög fljót- lega eftir að ég er tekinn til starfa að ég sit uppi með annað leikhúsráð en kaus mig.“ Sastu þá bara fyrir framan reiða leikara hússins ístað raun- verulegs leikhúsráðs? „Samsetning leikhúsráðs er þannig að meirihluti þess er skipaður stjórnarmönnum Leikfélagsins og leikhúsráðið því fyrst og fremst samtök þeirra sem hafa hagsmuna að gæta í leikhúsinu. Venslatengsl eru það mikil að það er varla hægt að ræða málefni einstakra starfsmanna á fundum leikhús- ráðs. Ég legg upp með það prinsipp eftir að ég hóf störf, sem ég fæ bókað í leikhúsráði, að ég hafi frjálsar hendur um svigrúm til að losa samninga við starfsmenn og gera starfs- lokasamninga við aðra. Þetta var ekki bundið nöfnum, til þess að losa þessa einstaklinga í leikhúsráði undan því að taka ákvörðun í málefnum sem væru lituð af tengslum þeirra við við- komandi einstaklinga. Þetta er ákveðið prinsipp sem ég vinn eftir. En um leið og þessar til- lögur mínar eru komnar til framkvæmda þá eru komin nöfn, andlit og kennitölur á þessar aðgerðir. Þá fer fólk að rísa upp vegna hagsmuna- tengsla." / þessu máli verður mörgum hugsað til þeirra átaka sem urðu á sínum tíma þegar Stefán Bald- ursson var ráðinn þjóðleikhús- stjóri og sagði upp samningum við nokkra starfsmenn? „Þar stóð leikhúsráð Þjóð- leikhússins með honum allan tímann en það er öðruvísi sam- sett en í Borgarleikhúsinu. Leik- félag Reykjavíkur var áhuga- mannafélag sem hefur breyst í atvinnumannafélag í áranna rás, en eðli þess er samt hið sama og áður fyrr. Leikararnir sitja nú í stóru leikhúsi sem borgin hefur byggt og veitir þeim 140 milljónir króna til rekstrarins af almannafé. Það er ekki hægt að nota þetta fé til að halda leikurum föngnum á samningum sem eru í gildi ef hæfileikar þeirra nýtast ekki.“ En menn hljóta að hafa geng- ið að þvívfsu að þú myndirgera breytingar og einhver manna- skipti yrðu í Borgarleikhúsinu? „Já, það lá í augum uppi alveg frá byrjun." Eftir þessu að dœma er hins vegar ekki sama hvaða einstak- lingum þú segir upp störfum. Eru sumir ósnertanlegir? „Það virðist ákveðinn hópur leikara vera ósnertanlegur. Þó er hvergi að finna stafkrók fyrir slíku. Spurst var fyrir um það á leikhúsráðsfundi hvort til væri bókun, samkomulag eða eitt- hvað sem segir að einhverjir leikarar séu á öðrum samning- um en aðrir. Það fyrirfinnst ekk- ert slíkt. Allir leikararnir eru á árssamningi sem er uppsegjan- legur með sex mánaða fyrir- vara. Samningarnir gilda frá 1. september og ef á að segja þeim upp þarf því að gera það fyrir 1. mars og að því verki gekk ég. Tilgangurinn er fyrst og fremst að skapa gott leikhús og ég lít svo á að sá hópur sem er í leikhúsinu sé þannig sam- settur að maður hnjóti fyrirsjá- anlega í verkefnavali. Hér er ekki endilega verið að meta list- ræna hæfileika fólks fyrst og fremst, heldur hvort hæfileikar þess nýtist í svo og svo mörg verkefni, en þeim ekki haldið föngnum þar sem hæfileikar þeirra nýtast ekki.“ Hefðir þú kannski ekki verið rekinn efþú hefðirsagt einhverj- um öðrum upp störfum en þess- um ákveðnu einstaklingum? „Ég hlýt að velta því fyrir mér. Ég gerði líka tillögur um starfslokasamning við nokkra leikara sem hafa verið á föstum samningi í meira en fimmtán ár, en greinilega gátu ekki allir un- að við það.“ Sárnar þér ekki að fá engar opinberar stuðningsyfirlýsingar frá einhverjum afleikurum húss- ins eða öðrum innan veggja þess, til dæmis frá Kjartani Ragnarssyni, sem studdi mjög ráðningu þína? „Ég hef fengið mjög góðan stuðning frá hluta þess fólks sem þarna starfar og ennfrem- ur frá öðru fólki í leikhúsheim- inum sem fylgist með því sem er að gerast. Það má segja Kjártani til afsökunar að hann var ráðinn til starfa í Svíþjóð á þessum tíma fyrir löngu. Aðrir úr leikhúsráði, sem réð mig, þurftu að hverfa þaðan vegna mjög krefjandi verka á sviðinu. Það má segja að það hafi verið óheppilegt undir þessum kring- umstæðum þegar sá leikhús- stjóri, sem það réð, er að hefja störf," sagði Viðar Eggertsson, en hann er nú að kanna réttar- stöðu sína í þessu máli. Þær sögur ganga nú fjöllunum hærra aö Sigurður Hróarsson verði endurráöinn leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur. Sam- kvæmt heimildum Helgarpóstsins mun hann ekki hafa hug á því, en hann vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið í viðtali við Eirík Bergmann Einarsson. „Starfsemin í uppnámi“ Eftir að Viðari Eggertssyni var sagt upp störfum sem leikhússtjóra Leikfélags Reykja- víkur hafa menn velt vöngum yfir hver yrði eftirmaður hans og hefur nafn Sigurðar Hróars- sonar heyrst í því sambandi. Sigurður, sem gegnt hefur stöðu leikhússtjóra Leikfélags- ins, sagði upp störfum á síðasta ári í kjölfar neikvæðrar um- ræðu um störf hans. Hann hef- ur þó starfað áfram sem leik- hússtjóri meðan Viðar Eggerts- son var að komast inn í starfið. Helgarpósturinn sló á þráðinn til Sigurðar og spurði hvort hann myndi halda áfram sem leik- hússtjóri og jafnvel taka við af Viðari? „Ég er leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur, þannig að ég þarf ekki að taka við af neinum. Við- ar Eggertsson átti að taka við af mér fyrsta september næst- komandi, þegar ráðningartíma- bili mínu lýkur, og á því hefur ekki orðið nein breyting. Ég verð hér þar til ráðningartíman- um lýkur. Samkvæmt lögum Leikfélags Reykjavíkur hef ég, sem fráfarandi leikhússtjóri, einvörðungu umsjón með því leikári sem nú stendur yfir. Hins vegar á verðandi leikhús- stjóri að hafa umsjón með kom- andi leikári, en nú er enginn til að sinna því verkefni og ég er ekkert inni í þeim málum. Stjórn leikfélagsins hefur verið á þrotlausum fundum síðustu daga til að ræða þessi mál og um leið og ljóst varð hvert stefndi hafði stjórnin óformlegt samband við mig um starf leik- hússtjóra og framtíðarstörf mín við leikhúsið. Ég hef einnig, óformlega, látið stjórnina vita hver afstaða mín er, en ég get ekki upplýst hver hún er á þessu stigi málsins." Sigurður Hróarsson var ófá- anlegur til að greina blaða- manni frá því hvort hann hefði hug á endurráðningu sem leik- Sigurður: Ekki áfram. hússtjóri Leikfélags Reykjavík- ur, en samkvæmt áreiðanlegum heimildum Helgarpóstsins mun svo ekki vera og er búist við að Sigurður láti stjórn leikfélags- ins vita um það á fundi leikhús- ráðs í dag. Sigurður var á leið- inni til Bandaríkjanna á leiklist- arþing, en stjórn Leikfélags Reykjavíkur dró til baka leyfið sem það hafði veitt honum til fararinnar, enda slæmt að missa báða leikhússtjórana úr húsi sama daginn. Helgarpóstur- inn spurði Sigurð hvort hann teldi uppsögn Viðars eðlilega í ljósi aðstæðna? „Ég hef kosið — og mun halda fast við það — að neita að gerast dómari í málefnum annarra leikhússtjóra en mín.“ Aðspurður hvort hann teldi að Viðar hefði verið svikinn með uppsögninni sagði Sigurður: „Ég hef ekki setið þá fundi sem hafa snúist um málefni næsta leikárs og ekki verið inni í þeim málum sem gengið hafa á milli stjórnarinnar og Viðars undan- farið. Ég lít hins vegar svo á að stjórninni sjálfri beri að meta hvort segja eigi leikhússtjóra upp störfum eða ekki.“ Sagt hefur verið að rót vandamála Leikfélags Reykjavíkur sé óvarleg fjár- málastjórn í þinni stjórnar- tíð? „Leikfélag Reykjavíkur er sjálfseignarfélag og félagsfund- ur er æðsta vald í málefnum fé- lagsins, sem svo ræður sér stjórn sem aftur ræður leikhús- stjóra. Hið aldargamla félag hef- ur áratugum saman notið opin- berrar fjárveitingar frá Reykja- víkurborg og ég held að engin leið sé að halda öðru fram en leikfélagið hafi farið ákaflega vel með þetta fé, sem þó er naumt skammtað. Menn hafa ekki verið að skrifa hér upp á neina óútfyllta víxla. Hins vegar skal ég alveg viðurkenna að ég setti mér nokkur stór og metn- aðarfull markmið, sem segja má að hafi ekki gengið upp fjár- hagslega, og í kjölfar þess sagði ég upp störfum." Starfsandinn slæmur undanfarnar vikur Hvernig líður leikhúsmönn- um nú á aldarafmœlinu með öll þessi mál á bakinu? „Mönnum líður illa. Starfs- andinn í húsinu hefur undan- farnar vikur verið mjög slæm- ur. Ég reyni ekki að draga fjöð- ur yfir það. Við höfum unnið undir afskaplega erfiðum að- stæðum eftir að öll þessi upp- sagnarmál komu upp og starf- semi Leikfélags Reykjavíkur er í uppnámi. Stjórnar leikfélagsins bíða, að mínu mati, tröllaukin vandamál við að koma öllu heim og saman, en félagið, sem nú er að verða aldargamalt, hef- ur gengið í gegnum margar krís- ur á langri ævi. Ég efast ekki um að menn klóri sig fram úr þessu eins og öðru. Þrátt fyrir að verkefnin séu gríðarlega erfið fyrir næsta leikhússtjóra þá er þetta samt spennandi og verð- ugt verkefni og ég vorkenni ekki þeim sem tekur við.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.