Helgarpósturinn - 14.03.1996, Blaðsíða 31

Helgarpósturinn - 14.03.1996, Blaðsíða 31
FlMIVmJDAGUR 14. MARS1996 31 wmm lmennskupróf Undanfarnar átta vikur hefur Helgarpósturinn tekið að sér máls- vöm karlmennskunnar. Meö kvenréttindabaráttu hafa ítrekaðar tilraunir veriö gerðar til að aö kæfa karlmannseöliö með þvætt- ingi um mýkri ímynd og skilningsrikara viðmót sterkara kynsins. Það var í upphafi árs sem Eiríkur Bergmann Einarsson og Helg- arpósturinn sáu sig tilknúna að spyma við fótum og segia þvert nei við bindindismennsku, almennum aumingjaskap og rolu- hætti í hóglifnaði. í þrotlausri leit að hinum eina sanna karl- manni íslands hefur blaðið nú lagt manndómsraun fyrir sextán valinkunn karlmenni. Og nú er komið aö úrslitum. Karlmennin sem leiða saman hesta sína í úrslitakeppninni eru þeir Gísli Marteinn Baldursson stjórnmálafræðinemi og íhaldspiltur, Bjami Frostason flugmaður og handknattleiksmaður, Hall- grímur Helgason myndlistarmaöur og rithöfundur, Steinn Ár- mtuin Magnússon leikari og Radíusbróöir, Andrés Magnússon nethaus og bareigandi, Hrafn Jökulsson rithöfundur og ritstjóri og Davíð Þór Jónsson guðfræðinemi og spurningakeppnaboss. Þess má geta að Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðidósent og gaflari, var felldur úr keppni vegna slælegrar mætingar og al- mennrar upptekni. Gefin er einkunn fyrir hvert svar frá 1 til 10 og svo deilt í með 3 til að fá heildarútkomuna. Bjarni Frostason er karlmenni HP árið 1996 1. Hver er langsamlega mesta hetjudáð sem þú hefur á ævi þinni drýgt? 1. BF: Þegar ég bjargaði vini mínum frá fólskulegri árás þriggja jöt- unuxa einhverja aðfaranóttina í miöbæ Reykjavíkur og hamraöi þá alla í götuna. (9) . HJ: Þaö var þegar ég kaus að Ijúka skák við doktor Predrag ci þrátt fyrir aö serbnesku fyllibytturnar umhverfis Sarajevó ru vaknaðar og byrjaöar aö varpa sprengjum á húsiö þar sem ið sátum aö tafli og hiustuöum á Frank Sinatra syngja My way. DÞJ: Fyrir skömmu gekk ég fram á konu nokkra sem var aö ndræðast viö bílinn sinn. Af sannri karlmennsku bauöst ég til Jáö hjálpa. í Ijós kom aö dekkiö var sprungiö á bílnum og konan veröa of sein aö ná í barnið sitt. Ég rýk því á næstu þensín- ð, verö mér úti um tilheyrandi græjur, kem til baka og tjakka o bílinn upp. Ekki vildi betur til en svo aö bíllinn, sem stóö í rekku og var meö bilaða handbremsu, datt í tvígang niöur af tjakknum. Ég skorðaði bílinn loksins af meö hellu og tjakkaöi upp aftur. Dekkiö er hins vegar fast á bílnum og ég næ því í slagham- ar og skríö undir valtan bílinn og lem helv... dekkiö af. Þannig bjargaöi ég nauöstaddri konu. (8) 2. Hvernig var svaðalegasta fyllerísbrjálæðið sem þú hefur lent á? 2. BF: Já, mér hefur skilist á þeim sem til þekkja og uröu vitni aö því, aö ég hafi fariö aö horfa á HM ‘93 í Svíþjóö. Og látiö til mín taka jafnt utan áhorfendabekkjanna sem innan. (9,5) 2. HJ: Þaö var þegar ég var um tvítugsaldur og helgaöi mig þessu áhugamáli sleitulaust í aö minnsta kosti sex mánuði. Því fylgdu ýmsar uppákomur sem ekki eru prenthæfar í viröulegu blaöi eins og Helgarpóstinum. (8) 2. DÞJ: Þaö kemur aöeins eitt fyllerí til greina, sem er varla í frá- sögur færandi. En ég datt í þaö á föstudegi. Lagöi mig aöeins á laugardegi til að geta drukkiö meira. Á sunnudagskvöld vaknaöi ég í Amsterdam, hundraö þúsundköllum fátækari. (9) 3. Hversu mikillar kvenhylli nýturðu; hvað hefurðu til dæmis átt margar kærustur? 3. BF: Ætli kærusturnar fylli nú ekki svona tæplega annan tugipn. (7) Stig: 8,3 3. HJ: Frá tólf ára aldri stóö ég í sleitulausu sambandi viö stúlku sem gegndi aö vísu ýmsum nöfum; það er aö segia hinar ýms- ustu stúlkur, þangaö til ég sigldi fleyi mínu heilu í höfn eftir þær svaðilfarir fyrir réttum tveimur árum. Ég hef hins vegar aldrei hald- iö bókhald og finnst þeir menn svolítiö grunsamlegir sem gera þaö. (7) Stig: 8 3. DÞJ: Ég hef ekki átt margar kærustur, enda giftur til fimm ára kærustu númer þrjú. Eftir þaö hef ég átt eina kærustu. En ég myndi halda aö kvenhylli væri mæld f böltum. Ætli ég hafi ekki svona 0,4 bölt. (4) Stig: 7 GMB: Á Þorláksmessukvöld fyrir löngu, þegar Hólmfríöur Karls- alheimsfeguröardrottning, var ég staddur á kaffihúsinu dropum og var þar þétt setið. Ég sé hvar Hólmfriöur nær sér í og snarvitlaus maöur vindur sér aö og ætlar að rífa af henni Hann taldi sig vera á undan f röðinni. Skiptir þá engum aö vitleysingurinn rífur í háriö á Hólmfrföi og keyrir hana f gólf. Nema hvað, ég stekk til, rýk trylltur á manninn og yfir- buga hann og fæ koss feguröardrottningarinnar aö launum. (7) SÁM: Ég hef nú aldrei bjargaö neinum, en um áriö kippti ég á jpanum mínum í einhvern ræfilsfólksbíl sem var fastur á flótta- annaleiöinni. Ég geröi nú reyndar út á þessar bjarganir á tíma. tta er svona björgunarsveitareðliö í manni. (3) Ætli þaö hafi ekki veriö þegar ég horföi á beina útsend- frá Berlín á The Wall meö Pink Floyd í heild sinni. Ég var meö í heimsókn og geröi þetta af tómri kurteisi viö þá. (2) Andrés er vist ekki ýkja mikiö karlmenni því hann gat ekki nokkru móti svaraö þessari spurningu. Telst hann þar meö hafa drýgt eina einustu hetjudáö á ævi sinni. (0) 2. GMB: Eitt 24 tfma fyllerí áttum viö félagi minn á Spáni f den, með jeppasafarii og þess háttar. Um kvöldið var haldið á diskótek og viö vissum ekki fyrri til en viö vorum lentir uppi á skrifstofu hjá vafasömum yfirmanni staðarins, sem lamdi okkur og henti út fyrir aö vilja ekki kaupa hass. Þrfr metrar voru niður aö jöröu svo viö tókum sundtökin á fluginu. (6) 2. SÁM: Hvernig á maöur aö muna þaö? Bekkurinn minn hélt eitt sinn veislu í Lindarbæ sem endaöi meö djöfulsins öskrandi fylleríi — með framhjáhaldi og slagsmálum — og ég lamdi Baltasar blásaklausan í hausinn meö stálfæti. (7,5) 2. HH: Ég fór einu sinni meö frænda mínum á hommadiskótek f París og var alveg til fimm um morguninn. (4) 2. AM: Þaö var um verslunarmannahelgi þegar ég fór meö Jó- hannesi Arasyni eitthvert austur á land. Ég veit ekki ennþá hvert. En bíllinn endaöi einhvers staðar utan vega og mér er sagt aö þá hafi ég rumskað aðeins og kvartaö eitthvað yfir aksturslaginu. Hins vegar man ég ekkert eftir mér og vaknaöi f Reykjavík. En Jó- hannes kann þessa sögu betur. (6) 3. GMB: Viö skulum hafa þaö á hreinu, aö ég nýt mjög mikillar kvenhylli og reyndar svo rosalegrar, aö þaö hefur oft horft til vand- ræöa. Núverandi konu minni þykir aö minnsta kosti nóg um. Ég hef þó aöeins átt tvær alvörukærustur, hvaö sem líöur miklum fjölda rekkjunauta. (7) Stig: 6,6 3. SÁM: Ég er nú ekki kærustutýpan og hef ekki átt þær margar. Kannski eina til tvær. Ég hef nú alltaf þurft aö hafa nokkuö fýrir þessu, en ég handreyndi mikiö viö þær á leiklistarskólaárum mfn- um. Ég var búinn aö ná upp þaö góöri tækni aö þetta var farið aö ganga nokkuð vel. En þær reyndu aldrei viö mig. (2) Stig: 4,2 3. HH: Ég náði einu sinni augnkontakti viö Grace Kelly. Og svo kom einu sinni stelpa til mfn á Café List og spuröi hvort ég væri ég. Ég hef átt eina kærustu og eina eiginkonu. (5) Stig: 3,5 3. AM: Ég nýt allt of lítillar kvenhylli og vildi óska þess aö hún væri mun meiri. Ég hef nú ekki átt margar alvörukærustur en hef þó átt gegndarlausa gnótt af hálfkærustum. (2,5) Stig: 2,8 Hlandskálamórall Nú þegar botnlaus femínismi og endalaus kvennamórall ríður hér öllu, og boðið er upp á heilt leikrit sem gerist allt á kvennaklósetti, finnst mér rétt að þakka kærlega fyrir mig og bjóða upp á pistil sem gerist all- ur á karlaklósetti. Eins og stundum áður þurfti ég að míga á almenningssalerni um daginn. Og til að drepa tím- ann meðan það lak úr kvikind- inu reyndi ég að miða á ilm- steininn í hlandskálinni, sem drakk í sig gula litinn um leið og það sem einu sinni var kaffi lull- aðist kæruleysislega yfir hann. Og það er alltaf svo skemmti- legt; einhvern veginn eins og að mála. En þegar ég var um það bil að klára heyrði ég veika ræskingu inni á einum básnum, og svo pappír rifinn af rúllu. Eft- ir smástund kom önnur veik ræsking og svo fljótlega mjög rembingsleg stuna sem mátti túlka á tvo vegu. Annaðhvort var hann að gera stórt eða þetta hitt sem menn gera yfir- leitt ekki á almenningsklósett- um. Næst heyrðist veikt skrjáf. Svipað og þegar pappír er nuddað upp við eitthvað. Skrjáfið hélt' áfram smástund og síðan heyrðist aftur pappír rifinn af rúllu. Og aðeins meira skrjáf, svo andvarp, klauf rennt upp, og loks sturthljóð. Þetta var í fyrsta skipti sem ég heyrði annan mann skeina sig. Það er oftast alveg ágætis stemmning á klósettinu hjá okkur strákunum. Yfirleitt klára. menn sín verkefni, segja eitt tvö „jæja“ og fara svo. Stundum er andrúmsloftið þó frekar hátíð- legt og þá er tipiað um til að fipa ekki neinn, eins og það standi skrifað „hér er verið að vinna“ í hnausþykka kúkafýl- una sem liggur í loftinu. Á þeim salernum dómínera oft þessir skemmtilegu karakterar sem reyna að pissa með reisn og láta líta út eins og þeir standi við ræðupúlt en ekki hlandskál. Oft eru þetta náungar í síðum ullarfrökkum sem tekst ein- hvern veginn að láta alla verða fyrir sér, hvort sem það er við sápuhylkið, vaskinn eða pissu- skálina. Menn í bullandi biss- ness sem hafa eiginlega ekki tíma fyrir svona skítamóral og bíða með óþreyju eftir að fund- ið verði upp GSM-klósett sem má fella inn í hanskahólfið á jeppanum. Andstæða þessara náunga eru rauðþrútnu bruss- mennin sem koma inn með miklum þjósti, másandi og fnæsandi, og ná að rekast utan í hvern einasta mann áður en þeir loksins lenda við pissu- skálina. Oft er eins og þeir séu með sjálfvirkan sleppibúnað sem sér um að allt draslið velli út um leið og klaufinni er rennt niður. Þegar þeir eru svo byrj- aðir að míga heyrist undan- tekningarlaust langdregið „aaahh...“ og oft fylgir drumbs- legt prump. Að loknu pisseríi nota þeir ekki bara höndina til að hrista tippið vel, heldur skaka öllum líkamanum manna- lega til og frá, og síðasta drop- anum niður í skálina. Svo skjóta þeir rassinum aftur, tylla sér á tær, troða draslinu inn og renna snöggt upp. Sumir standa á tám allan tímann eins og þeir hafi sannfært sjálfa sig um að þeir séu svona hrikalega vel vaxnir niður og verði að gera þessar ráðstafanir, því annað væri að berja „höfðinu“ við ilmsteininn. Einstaka sinn- um rekst maður svo á athyglis- sjúklinga sem reyna að pissa í tvær skálar í einu eða gera til- raunir með hvað þeir geta stað- ið á löngu færi. Það er slæmt að Ienda við hliðina á kraftmiklum bjórsvelg sem pissar fast og ákveðið þannig að hlandið skellur af skálinni og yfir mann allan. En það versta af öllu er að lenda við hliðina á mígfull- um fótvöltum gaurum sem pissa á allt annað en skálina. Yfirleitt er þó bara þægileg rólegheitastemmning við hlandskálarnar, enda einhvern veginn heilagt móment þegar maður er með sjálfan sig svona í lúkunni. Vel samstilltar hland- bunur minna oft á þægilegan lækjarnið. Sturt úr vandaðri hlandskál er ekki ósvipað foss- hljóði. Og vinalegt plomps! af klósettbás er nokkuð líkt hljóð- inu sem heyrist þegar silungur stekkur á sléttu vatni. Þannig geta mígelsismómentin stund- um komist nærri því þegar maður er einn með sjálfum sér úti í náttúrunni. Enda greinilegt að menn hugsa oft mikið við hlandskálarnar, og stundum lendir maður á góðu rabbi. En stundum lendir maður líka í nokkurs konar samanburðar- prófi, því gaurinn við hliðina gjóar augunum öðru hverju lúmskt á tippið á manni og svo sitt eigið. Þetta getur orðið óþægilegt, því að menn fara að vita of mikið hvor af öðrum. Svona jafnþvingað og þegar tvær ókunnugar manneskjur þurfa að Iesa af sama blaði. Einn stærsti munurinn á karla- og kvennaklósetti er hins vegar sá að þegar kvenfólk fer inn á bás getur það verið að gera þrennt; pissa, kúka og skipta. Karlmenn hins vegar geta eigin- lega bara verið að kúka og svo þetta hitt, en hvort tveggja er frekar hallærisleg athöfn. Þegar náunginn sem ég heyrði skeina sig kom út af kló- settinu vissi hann auðvitað að ég „vissi“ og hafði heyrt í hon- um. Og það var kannski þess vegna sem kom svona ferlega á þennan hann, sem reyndist vera gamall stærðfræðikennari minn. Eldri maður, sem allir höfðu verið frekar smeykir við á sínum tíma. En allt í einu stóð hann fyrir framan mig ferlega lúpulegur eitthvað, nýbúinn að kúka með öllum þessum stun- um og skrjáfi. Og það er bara svo vandræðalegt. Eins og öll líkamstilfinningin sé í rassinum. Til að eyða þessu óþægilega andrúmslofti þóttumst við vera alveg ferlega ánægðir að sjá hvor annan, rukum af stað og tókumst þétt og innilega í hend- ur. Svo taugaveiklaðir eitthvað að við áttuðum okkur ekki á að hvorugur var búinn að þvo sér um hendurnar fyrr en sveittir og þvalir lófarnir sameinuðust. En þá litum við báðir niður fyrir okkur smástund og kipptum svo snöggt að okkur höndun- um. Og þótt hvor um sig vissi fullkomlega hvað hinn var að hugsa varð einhvern veginn ekki aftur snúið og við tók svona ofurhressilegt samtal. Svipað og þegar verið er að heimsækja veika manneskju á spítala, þar sem allir vita hvað liggur í loftinu en allir eru samt kátari en nokkru sinni, og reynt er að eyða öllum þögnum eins og skot því þær minna óþægi- lega á raunveruleikann. Við töl- uðum saman í smástund, og gjóuðum svo augunum á vask- inn þegar við kvöddumst. Lit- um því næst sakleysislega hvor á annan eins og við hefðum bara verið rétt að kíkja í spegil- inn. Og löbbuðum út, nuddandi lófunum í jakkann. Höfundur leggur ekki nógu mikla rækt við bókmenntafræðinám sitt í Háskóla íslands, þar sem hugurinn reikar æ tíðar að þeim stórvirkjum sem hann gæti hugsanlega unnið í þvagfæraskurðlækningum.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.