Helgarpósturinn - 14.03.1996, Blaðsíða 28
28
FIMMTUDAGUR14. MARS1996
heitt
Að skipta um stil, eins og er
bráönauösynlegt við hver árstíöa-
skipti, þó ekki væri nema fyrir
sálarheillina. Best er aö taka
breytingarnar skref fyrir skref og
byrja á aö veröa Ijósgulur á hör-
und meö þar til geröum hjálpar-
tækjum, síöan er ekki slæmt aö
sækja heim hárskuröarmeistar-
ann og láta hann útfæra hug-
myndir manns um breytt og betra
útlit. Þá er grunnurinn svona
nokkurn veginn lagöur. Upp úr því
er óhætt aö fara aö hlaöa utan á
sig skærlitum spjörum og leggja
grámuskulegum vetrardulunum.
Kristilegt íhald, sem nú virðist
spretta upp í öllum skúmaskot-
um samfélagsins. Árni Johnsen
opinberaöi sína kristilegu íhalds-
semi á dögunum þegar hann
lagöi orö í belg um sambúð
homma og lesbía. Þaö er í sjálfu
sér ágætt aö Árni skuli hafa látið
Ijós sitt skína, þvi á hinu háa Al-
þingi sitja nefnilega margir sem
eru sömu skoðunar og Árni en
þegja yfir henni. Viö vitum aö
minnsta kosti hvar viö höfum
Árna en höfum bara grun um alla
hina kristilegu íhaldsseggina.
Þaö aö luma á skoðun er miklu
hættulegra en hitt.
... fjöldaúrsögnum úr þjóð-
kirkjunni
aldrei er góö vísa of oft kveö-
in.
... leikhúsferð
á Konur skelfa, Tröllakirkju,
Engilinn og hóruna eða einhverja
aöra góöa næringu og fer hver
aö veröa síðastur, því óöum
styttist í lok leikársins.
... breytingunum í Borgarleik-
húsinu
þótt margir kunni aö vera sár-
ir er deginum Ijósara aö sérhver
breyting þar getur ekki veriö
annaö en til batnaöar.
... gönguferðum um Þingvelll
þaö er allt betra en aö sniffa
koltvísýring á fallegum degi.
1. Ríkisstjórnin, sem er búin að
eyðileggja áhuga almennings á pólit-
ik meö því aö drepa okkur úr leiöind-
um I allan vetur...
2. Stjórnarandstaðan, sem er
ekkert skárrl þrátt fyrir góö sóknar-
færi og ætti aö skammast sín...
3. Sameining Jafnaðarmanna,
sem eiga ekkert sameiginlegt og hat-
ast i rauninni hver út í annan...
4. Blll Cllnton, sem eflist með
hverjum degi og á því miður eftir aö
gjörsigra repúblikana...
5. Alþlngismenn og ráðherrar,
sem dlrfast ekki aö lýsa yfir stuön-
ingi viö forsetaframbjóðanda, hvaö
þá aö þeir þori í framboö...
6. Rúðuplss, sem klárast þegar
síst skyldi á miöri Miklubraut i tjöru-
bleyttum umferöarhnút...
7. íslenski þjóðsöngurinn, sem
okkur finnst jú fallegur en getum
ekki meö nokkru móti sungiö og
veröur okkur til skammar I fjölda-
söng á íþróttakappleikjum...
8. íþróttamenn, sem geta ekki fyr-
Ir sltt litla líf komist áfallalaust gegn-
um eitt bévítans stórmót...
9. Alþjóðlegir samningar á borö
viö GATT, sem reynast þegar allt
kemur til alls fremur hækka mat-
vælaverö en lækka...
10. Vinlr, kunnlngjar og flöl-
skyldumeðllmir, sem koma óboönir í
heimsókn og sitja síöan von úr vití,
éta mann út á gaddinn og reynist
ómögulegt aö koma út...
legra en
bæjarvinnan
*
Ulfur Chaka Karlsson er ungur og áberandi
miðbæjartöltari, sem auk þess að stunda nám
við Menntaskólann við Hamrahlíð er duglegur að
sitja á kaffihúsum bæjarins. Þegar betur er að gáð
er honum fleira til lista lagt en ástundun náms og
kaffihúsa. Hann er nefnilega bæði á kafi í tónlist og
tölvuleikjum.
Segðu mér frá hljómsveitinni sem þú ert í.
„Hún heitir Stjörnukisi og er um þessar mundir
að búa sig undir að taka þátt í Músíktilraunum, þar
sem við stefnum á að gera okkar besta.“
Hvað hafið þið fram að fœra?
„Gleðipönk, sem hefur að geyma þunga, krass-
andi elementið úr pönkinu. Gleðin kemur til af því
að tónlistin er poppskotin á köflum. Ólíkt pönkinu,
sem er frekar niðurrifstónlist, er okkar tónlist upp-
byggjandi. Þess vegna köllum við hana gleðipönk."
Syngið þið þá einhverja heimsósómatexta?
„Textarnir skipta ekki meginmáli; enn sem kom-
ið er eru raddirnar aðeins notaðar sem aukahljóð-
færi.“
Ég var að heyra að þú hefðir hannað tölvu-
leik fyrir Oz, segðu mér nánar frá því.
„Já, ég hef verið að hanna leik fyrir hugbúnaðar-
fyrirtækið Oz frá því í september og lauk við hann
fyrir tveimur vikum. Mín vinna snerist aðallega um
að hanna byggingar og stórvirkar vélar, enda er
þetta svona einhvers konar framtíðarfantasía.“
Þetta hljómar ekki sem fögur framtíðarsýn?
„Það eru hvorki persónur né söguþráður í þess-
um leik, þannig að hann virkar heldur ógnvekjandi
og dularfullur.“
Það hlýtur að vera draumastarf fyrir jafn-
ungan mann að fá inni hjá eins öflugu fyrir-
tœki og Oz?
„Þetta er ólíkt skemmtilegra en að vinna í bæjar-
vinnunni," segir Úlfur, sem eftir því sem HP kemst
næst var uppgötvaður fyrir hreina tilviljun.
-GK
atur
Milliliðalaust frá Sikiley
Eg var einhvern tímann að slá
um mig í þessum dálki og hélt
því fram að ítalskur matur og
ítalskur matur væri ekki það
sama, án þess að ég skýrði það
nánar. Nú ætla ég hins vegar að
bæta úr því.
Ég er fyrir löngu orðin mett af
ameríkaníseruðu hveitirjóma-
sósuostapasta. Af ekta ítölskum
sælkeramat fæ ég hins vegar
seint nóg. Lifandi dæmi um hið
síðarnefnda hef ég aðeins komist
í tæri við á einu veitingahúsi hér í
borg, La Primavera, sem eftir því
sem ég kemst næst er að flytja úr
nýja miðbænum í þann gamla um
þessar mundir. Það er mikið fagn-
aðarefni, enda er ég þeirrar skoð-
unar að allir orginalar eigi að vera
í gamla miðbænum en hermikrák-
urnar utan hans.
Dæmi um amerísk/ítalska mat-
argerð er hins vegar að finna á
veitingahúsinu Ítalíu, en þar er í
boði gott úrval af hveitirjóma-
sósuostapasta og pítsu, sem eins
og flestir vita er afar ameríkanís-
eruð í þeirri mynd sem hún fæst
víðast hvar annars staðar í heim-
inum en á Ítalíu.
Ég er semsagt sammála helstu
sælkerasérfræðingunum um að
eina alvöru ítalska veitingahúsið
á íslandi sé La Primavera.
Vagga ítalskrar matargerðar-
listar er á hinni alræmdu Sikiley
og sumir vilja ganga svo langt að
segja Sikiley vöggu evrópskrar
matargerðarlistar. Alltént eru
uppskriftirnar komnar milliliða-
laust beint frá Sikiley; eru með
öðrum orðum eins orginal og
hægt er að hugsa sér. Þetta er
tómatpasta með ansjósum, sem
eru blessunarlega í miklu uppá-
haldi hjá mér. Það skilst mér að
eigi alls ekki við um alla. Þeir geta
þá bara nýtt sér tómatsósuupj>
skriftirnar.
Pasta
15 ansjósuflök (fást í olíu í
Heilsuhúsinu)
2 bollar heimatilbúin tómat-
sósa
1/4 tsk. kanill
1/8 tsk. negull
700 g spagettí (ferskt eggja-
pasta)
1 bolli ristaðir brauðteningar
Tómatsósa I
1 kíló tómatar
1 lítill laukur
2 greinar steinselja
sletta af ólífuolíu
salt og sykur eftir smekk
Tómatsósa II
1 kíló tómatar
1 til 2 hvítlauksrif
1 stilkur basillauf
salt
• Sjóðið vatn og hellið yfir tóm-
atana. Látið standa í vatni í fáein-
ar mínútur. Afhýðið þá tómatana,
skerið og hreinsið fræin innan úr.
Maukið í matvinnsluvél.
Setjið olíu á pönnu, steikið lauk-
inn og steinsteljuna ef þið gerið
númer I en hvítlaukinn og basil-
laufin ef þið veljið II. Steikið uns
laukurinn verður gullinn. Setjið
þá tómatana út í og látið malla í
15 til 20 mínútur þar til sósan er
orðin þykk og rjómakennd. Saltið
og sykrið eftir smekk. Mauk þetta
dugir í tvo bolla. Óhætt er að tvö-
ef ekki þrefalda uppskriftina og
geyma í ísskáp í að minnsta kosti
mánuð.
• Skerið því næst hvítt brauð
niður í litla teninga. Setjið ólífuol-
íu á pönnu og steikið teningana á
báðum hliðum þar til þeir verða
gullnir að lit. Látið þá kólna á
bréfþurrku svo þeir verði ekki
löðrandi í olíu.
• Setjið örlitla olíu á pönnu, hit-
ið tómatsósuna upp og bætið við
negul og kanil. Látið malla í tíu
mínútur. Bætið að síðustu við an-
sjósuflökunum, auk dreitils af an-
sjósuleginum. Sjóðið spagettí-
reimarnar (eggjapastað) þar til
þær verða það sem ítalirnir kalla
al dente. Með öðrum orðum: ekki
mauksjóða hveitilengjurnar, held-
ur hafið þær þéttar undir tönn
(þegar þið kastið þeim upp þá
festist þær við loftið), en þetta
ætti nú hvert mannsbarn að vita.
Berið spagettíið, sósuna og
brauðteningana fram hvert í sínu
lagi og drekkið rauðvín með.
Skál! Guðrún Kristjánsdóttir
Gott með
pasta
íbetri
kantinum
Það er við hæfi að mæla
með ítölsku rauðvíni,
fyrst á annað borð er verið
að kokka ítalska sælkera-
fæðu hér í dálkinum við hlið-
ina. Rauðvínstegundirnar
sem fást í ríkinu eiga að mati
Einars Thoroddsen vín-
smakkara best við osta ann-
ars vegar og nauta- eða
lambasteik hins vegar. Chi-
éinti Ruffíno á jafn vel við
lambakjöt og pasta í betri
kantinum. Þetta rauðvín læt-
ur ekki mikið yfir sér, virkar
slétt og fellt á yfirborðinu
en er með góðu eftirbragði
og reyndar mjög gott. Mið-
að við gæðin er verðið hóf-
stillt, um 1.300 krónur flask-
an.