Helgarpósturinn - 21.11.1996, Blaðsíða 11

Helgarpósturinn - 21.11.1996, Blaðsíða 11
HMIVmJDAGUR ZL NÓVEMBER1996 11 HSS.' Þegar þingmenn skilja ekki eigin lög Hvaö mun biðlaunaklúðrið kosta? inn og að frumvarpið stríddi beint eða óbeint gegn ýmsum ákvæðum stjórnarskrárinnar. Hvað eftir annað var í þeirri ítarlegu umræðu, sem varð um frumvarpið, staldrað við biðla- unaákvæðin en þegar að lok- um hennar dró stóð stjórnar- andstaðan saman um sína skoðun og stjórnarþingmenn héldu fast í sína. Umræðan breytti ýmsu í lokagerð hins viðamikla lagafrumvarps — en ekki nægilega mörgu. En segja má að stjórnarandstaðan hafi gert það sem í hennar valdi stóð til að koma í veg fyrir að löggjafinn lenti í því að þurfa að naga sig í handarbökin. Jafnframt er ljóst að hún lagði sig ekki fram um að finna leið út úr vandanum. Rökin sem brugðust Ljóst er af fregnum af-bið— launamáli kennaranna, og það kemur einnig skýrt fram séu málavextir og niðurstaða skoðuð í dómabók, að heistu rökum fjármálaráðuneytisins er hafnað. Um leið er verið að hafna ýmsum rökum sem tals- menn lagfrumvarpsins, sem varð að lögum 29. maí, færðu fram um biðlaun. Dómarinn kemst að þeirri niðurstöðu að stöðurnar hafi verið lagðar niður og sækjendur eigi rétt til biðlauna samkvæmt 14. gr. laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna frá 1954. Rök fjármálaráðuneytis- ins um að hlutaðeigandi hefði ekki verið sagt upp starfi og kennurum og skólastjórnend- um væri tryggt sama starf og sömu starfsréttindi og þeir höfðu hjá ríkinu reynast létt- væg fyrir dóminum svo og til- vísanir í nýju lögin. Einnig sú fullyrðing að réttur til bið- launa hafi ekki verið samn- ingsbundinn réttur. „Biðla- unaréttur stefnanda var hluti af ráðningarkjörum hans fylli- lega til jafns við það að hann helgaðist af kjarasamningi" segir í niðurstöðum dómsins. í framhaldinu er vitnað til stjórnarskrárákvæðis, sem einnig kom til umræðu á Al- þingi þegar lagafrumvarpið var þar til umræðu í vor og biðlaunarétturinn talinn verndaður sem eign. Og að gefnu tilefni segir enn fremur í niðurstöðunni: „Eigi verður talið að fulitrúar kennarafé- laga, sem komu að undirbún- ingi flutnings grunnskólanna og löggjafar sem lýtur að hon- um, hafi haft umboð til afsals lögbundinna starfsréttinda kennara.“ Það þýddi sem sagt ekkert fyrir fjármálaráðuneyt- ið að reyna að vitna til sam- komulags um lagasetninguna í verkefnisstjórn um flutning grunnskólans og sættir þar um efni lagasetningarinnar. Mál er að linni Fleira má lesa í dómsniður- stöðunum sem vekur upp spurninguna stóru um það hvert framhaldið verður. Spurningar, sem varða ef að er gáð, það sameiginlega mark- mið stjórnar og stjórnarand- stöðu að reka ríkissjóð án halla. Verði framhald á laga- setningu sem reynist ekki samræmast almannahags- munum er ekki von á góðu. Hafi tilraunin, sem gerð var til að koma í veg fyrir biðlauna- hneyksli í framtíðinni, mistek- ist í vor er Alþingi neytt til að gera nýja tilraun. Allir læra af því að reka sig á. Landsmenn hafa fengið nóg af fregnum um það að þeir siðlausu fari að lögum. Það hlýtur að vera nóg af lögfræðingum og skynsömu fólki á þingi til að tryggja að lög, sem eiga að gæta al- mannahags, geri það í raun. Landsmenn hafa kynnst margs konar vandræðum sem stafa af því að lög frá Al- þingi reynast öðruvísi en til var ætlast. Afdrifaríkastar og þekktastar eru hliðarverkanir og uppákomur sem rekja má til laga um fiskveiðistjórnun: einkum eignatilfærslan sem þau valda, kvótaleigan og hvernig þau hvetja til þess að fiski sé hent. Fregnir af haldlitl- um ákvæðum í fjárlögum ber- ast reglulega. Og nú virðist von á auknum vanda við rekst- ur hins skuldum hlaðna ríkis- sjóðs okkar vegna lagaákvæða sem dómar um biðlaun hvíla á. Tveir kennarar, sem fjár- málaráðuneytið taldi að ættu ekki rétt á biðlaunum, fengu dæmd biðlaun sér til handa í héraðsdómi Reykjavíkur fimmtudaginn 14. þ.m. eins og kunnugt er af fréttum í fjöl- miðlum. Ekki er fullljóst hvort dómurinn opnar möguleika fyrir alla grunnskólakennara á að fá sér dæmd biðlaun vegna flutnings grunnskólans til sveitarfélaga. Dómurinn varð- ar kennara sem hættu starfi. En að minnsta kosti er ljóst að lögin um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, sem stuðningsmenn ríkisstjórnar- innar samþykktu á Alþingi í vor, þjóna ekki yfirlýstum til- gangi sínum og samningar Kennarasambandsins og ríkis- ins hafa ekki þau áhrif sem fjár- málaráðuneytið hugði. Fjár- málaráðherra og auralitlir skattgreiðendur verða að fara að biðja fyrir sér, því að biðla- un samkvæmt áunnum rétti allra grunnskólakennara skv. lögunum um réttindi og skyld- ur frá 1954 myndu kosta millj- arða. Það er hætt við að ekki stoði að biðja um miskunn í þessum efnum í hörðu sam- keppnis- og neysluþjóðfélagi. Umræðan á Alþingi í nýju Ijósi Einhver lengsta og ítarleg- asta umræða sem farið hefur fram á Alþingi snerist um frum- varp til nýrra laga um réttindi og skyldur opinberra starfs- manna sem samþykkt voru 29. maí sl. Talsvert var rætt um biðlaunarétt og kemur alloft fram að stjórnarliðar á þingi ætluðu nú alldeilis að koma skikk á það mál og koma í veg fyrir að fólk væri á tvöföldum launum að ástæðulausu. Raun- ar sést ekki við lauslega skoð- un á Alþingistíðindum að stjórnarandstæðingar hafi haft eitthvað á móti því. E.t.v. hefur minningin um biðlaunin, sem ið almenna ánægju með laga- ákvæði um biðlaun. A.m.k. virðist augljóst að þeim tak- mörkuðu peningum, sem ríkið hefur úr að spila til að sinna ýmsum aðkallandi verkefnum, er illa varið þegar þeir streyma í svokallaðar biðlaunagreiðsl- ur til fólks sem fer í jafngóða vinnu og það hafði eða hafnar slíkri vinnu. En við höfum greinilega fengið enn eitt dæmi um að Al- þingi eru mislagðar hendur við lagasetningu; lögin kveða ekki á_um það sem til var ætlast! „Ég hygg að engin óvissa sé um að það stenst stjórnarskrá að takmarka biðlaunaréttinn með þessum hætti og þeim peningum, sem færu í málaferli af því tagi, væri kastað á glæ,“ „En við höfum greini- lega fengið enn eitt dæmi um að Alþingi eru mislagðar hendur við lagasetningu;lögin kveða ekki á um það sem til var ætlast!“ Þeir hafa ekki ályktað rétt, um það vitnar dómurinn þann fjór- tánda. Að vísu tóku fáir stjórn- arþingmenn þátt í umræðunni en næstum allir stjórnarand- stæðingarnir höfðu margt um Stjórnmál Hörður Bergmann skrifar Sverrir Hermannsson fékk þegar hann hætti á Alþingi til að taka við b'ankastjórastöðu, vakið almennan áhuga innan þings sem utan á að láta biðla- un ekki renna úr ríkissjóði til annarra en þeirra sem þurfa að bíða eftir að fá annað starf. Al- menningur hlýtur að ætlast til að sú meginregla gildi og sé framkvæmd undanbragða- laust. Því má ætla að dómur- inn um biðlaun starfsmann- anna hjá SR-mjöli hafi ekki vak- sagði Vilhjálmur Egilsson, al- þingismaður og annar aðal- framsögumaður fyrir frum- varpi til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, þann 15. maí sl. þegar hann gerði grein fyrir atkvæði sínu við atkvæðagreiðslu um 34. og 35. gr. laganna. Umræðurnar bera þess vitni að stjórnar- þingmennirnir, sem sam- þykktu biðiaunaákvæði lag- anna og lagabálkinn í heild, hafi litið málið líkum augum. frumvarpið að segja. Sumir þeirra lýstu yfir svipaðri skoð- un á biðlaunaákvæðunum í nýju og gömlu lögunum og nú hefur verið staðfest fyrir hér- aðsdómi. Lúðvík Bergvinsson vitnaði t.d. í 2. umræðu til fræðirits eftir Gauk Jörunds- son, fyrrverandi prófessor í lögum og umboðsmann Al- þingis, þar sem segir að líta verði svo á „... að rök standi til að aflahæfi manna og atvinnu- réttindi njóti verndar sem eign skv. 67. gr. stjórnarskrárinn- ar“. Ögmundur Jónasson vitn- aði iðulega í umræðunni til umsagna frá stéttarfélögum þar sem fram kom það álit að biðlaunarétturinn væri áunn- Sfldarmet og flámælska Bréf frá Neskaupstað Elma Guðmundsdóttir Já, nú er líf í tuskunum hér, allt á kafi í síld og svej mér ef það stefnir ekki í nýtt íslands- met í síldarverkun hjá burðar- ásnum hér í bæ, Síldarvinnsl- unni hf. Hér er lífið síld en ekki saltfiskur. Allur fiskur, annar en síld að sjálfsögðu, sem hér hefur borist á land frá því að síldarsöltun hófst í lok sept- ember hefur verið seldur ann- að. í bænum er margt aðkomu- fólk og þegar maður kemur í móttökuna í frystihúsinu þar sem er flakað, bitað og pakkað af fullum krafti má heyra mörg tungumál. Það er eins og þarna sé saman kominn hópur land- nema, enda minnir dansinn í kringum gullkálfinn, síldina, oft á sögurnar frá Klondike. Þarna er fólk frá flestum ef ekki öllum löndum Austur-Evrópu og nú síðast bættist í landnemahóp- inn fjölskylda frá Albaníu. Hér er fólk frá Suður-Ameríku, Afr- íku, Ástralíu og Nýja-Sjálandi auk Sunnlendinganna! Vinna, sofa, borða... En þó að það sé gaman að hafa hér svona mikið umleikis þá hef ég oft óskað þess að þetta væri minna og jafnara, ekki þessi vertíðarstemmning sem býður ekki upp á neitt ann- að en að vinna, sofa og borða. Að vísu var gefið helgarfrí í end- aðan október og þá brugðu margir sér á kántrí- og rokk- veislu í Egilsbúð, en ég held að margir hafi óskað þess daginn eftir að hafa bara verið heima og hvílt sig. Og ef allar áætlanir ganga eft- ir þá verður síst minna hér um- leikis á komandi loðnuvertíð og næstu síldarvertíð. Síldar- vinnslan er nefnilega að byggja hér gríðarstórt frystihús, um 4.500 fermetra að stærð, eða eins og þrjú fullorðin íþrótta- skrifar hús, og á að taka fyrsta áfanga þess í notkun um miðjan janúar næstkomandi. í þessum fyrsta áfanga verður fryst síld og loðna og verða afköstin um 300 lestir á sólarhring, þ.e.a.s. ef vel veiðist. Þetta er nánast fimm- földun á framleiðslugetunni frá því fyrir nokkrum árum. Og það á líka að frysta í gamla húsinu og um borð í frystiskipum fyrir- tækisins. Ég er hrædd um að það vanti þá talsvert af fólki til starfa þó svo að þetta nýja frystihús verði mjög fullkomið og sjálfvirkni mikil. Til marks um það má nefna að öllum úr- gangi verður skotið frá frysti- húsinu út í bræðslu í þar til gerðum leiðslum, sem nú er verið að koma fyrir. Strákar og böll Allar þessar framkvæmdir krefjast mikils mannafla og allt leiguhúsnæði og það sem nefnt er verbúðir er þéttsetið. Meira að segja Bjarg, gamla elliheimilið, er nú orðið ver- búð. Það er í hæsta máta eðlilegt að mér verði tíðrætt um síld- ina, en þetta er ekki síldarsölt- un eins og í gamla daga þótt kryddlyktin sé sú sama. Nú fer öll vinna fram innan dyra, enda ekki talið forsvaranlegt að vinna matvæli utandyra. Hvað skyldi þá hafa orðið um þær rúmlega 53.000 tunnur sem voru saltaðar hér á sex söltunarstöðvum árið 1966? Nú heyrast ekki lengur köllin „Þaðyrði nú ekki amalegt að heyra talað um tönnur og kredd og stöð í Stúku Egels rauða. Farandverkafólkið mendi læra þetta og beðja um sker og rjóma og breiða þetta út. Aller mendö velja koma og skoða þessa kenlegu kvesti ferir austan og þar með erðum við fræg.“ sem einkenndu söltunarplön- in, vélarhljóðið yfirgnæfir allt tal. Og þótt hér í den hafi sum- ar söltunartarnirnar verið ansi langar gafst nú alltaf tími í landlegum til að kíkja á strák- ana og skreppa á ball. Þó að líf- ið hafi þá verið á vissan hátt síld líka þá var það öðruvísi, manneskjulegra. Allt best í Reykjavík?! En þó að ég hafi sagt að þetta mætti vera minna og jafnara þá er ég auðvitað í sjö- unda himni yfir því hversu vel gengur. En það er skrítið að þrátt fyrir alla þessa vinnu og góðan efnahag í bænum yfir- leitt þá fækkar samt fólkinu. Ekki bara hér heldur alls stað- ar á landsbyggðinni. Ætli ein- hæft atvinnulíf eigi þar ekki hlut að máli og hitt líka að margir halda að allt sé svo gott í henni Reykjavík? En ég er tjóðruð í þessa ógurlegu átt- hagafjötra. Hér er allt fallegast, best og mest samanber síldar- söltunin. Nú ætla ég að leggja til við mitt fólk að við tökum upp gömlu austfirskuna, flámælskuna, svo við höfum nú einhverja afgerandi sérstöðu fyrir utan síldina. Það yrði nú ekki amalegt að heyra taiað um tönnur og kredd og stöð í Stúku Egels rauða. Farandverkafólkið mendi læra þetta og beðja um sker og rjóma og breiða þetta út. Aller mendö velja koma og skoða þessa kenlegu kvesti fer- ir austan og þar með erðum við fræg. Sæl að senni, Elma. Höfundur er bladamaður við vikublaðið Austurland.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.