Helgarpósturinn - 21.11.1996, Blaðsíða 24
HELGARPÓSTURINN
21. NÓVEMBER 1996 46. TBL. 3. ÁRG. VERÐ 250 KR.
Bresk skáld leita Útópíu á íslandi. Fyrir rúmri öld heimsótti
William Morris ísland til að dást að heimkynnum íslend-
ingasagna og sérstakri lýðræðishefð. Fyrir hálfri öld komu þeir
félagar Auden og MacNeice og
skrifuðu bréf frá Islandi sem gefin
voru út á bók. Nú hafa tvö ung-
skáld frá bresku Miðlöndunum,
Simon Armitage og Glyn Max-
weil, sent frá sér frekari fréttir af
íslandi (further reports from lce-
land) í safnritinu Moon Country. Þeir dvöldu m.a. á bóndabæ
og kynntu sér bæjarbrag Reykjavíkur með aðstoð Braga Ólafs-
sonar, rithöfundar og bassaleikara. í síöasta hefti vikuritsins
New Statesman er sagt frá skýrslum þeirra félaga. Björk Guð-
mundsdóttir söngkona er ritdómaranum ofarlega í huga og
hann reynir að finna samhengi milli útópíunnar með heima-
geröu lýðræði í landi íss og jarðhræringa og framúrstefnutón-
list söngkonunnar...
Vinstri kratar í Hafnarfiröi telja það ekki beinlínis lýsa sam-
einingarvilja Sighvats Björgvinssonar, formanns Alþýðu-
flokksins, að skipa Ingvar Viktorsson, bæjarstjóra í Flafnar-
firði, I viðræðunefnd vinstriflokkanna. Á heimaslóðum er Ingvar
ekki þekktur fýrir að stuðla aö samvinnu vinstrimanna. Opin-
bera skýringin er sú að fyrst Alþýðubandalagið tilnefndi Magn-
ús Jón Ámason, fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar, væri
núverandi bæjarstjóri langheppilegasti fulltrúi Alþýðuflokks-
ins...
jr
Afýrsta fundi fulltrúa stjórnarandstöðunnar
um mögulegt samstarf — eða sameiginlegt
framboð — áttu margir von á að gömul kergja
tæki sig upp á milli Ingvars Viktorssonar, bæj-
arstjóra Hafnarfjarðar, og Magnúsar Jóns Áma-
sonar, fyrrverandi bæjarstjóra. Svo fór þó ekki
og var gott á milli fulltrúa A-flokkanna. Mörður
Ámason, fulltrúi Þjóövaka á fundinum, sem var haldinn í fyrra-
dag, þótti hins vegar ekki hafa mjög jákvætt viðhorf til við-
ræönanna...
Sighvatur Björgvinsson, for-
maður Alþýðuflokksins, var full-
ákafur þegar hann þakkaði sér
sameiningarviðræður stjórnarand-
stöðuflokkanna á Bylgjunni á
mánudag. Viðræöurnar eru í fram-
haldi af bréfi Margrétar Frí-
mannsdóttur, formanns Alþýöubandalagsins, í vor þar sem
hún baö stjórnarandstööuflokkana að tilnefna fulltrúa í við-
ræðunefnd...
Sverrir Ólafsson, myndlistarmaöur og Hafnarfjarðarkrati, er
aöalpersónan í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins sl. sunnu-
dag þar sem blaöiö fer fram á að opinber rannsókn fari fram á
höfundi bréfsins sem Bjöm V. Ólason sendi
blaðinu síðsumars en kvaöst síðar í yfirlýsingu
hafa lánað Sverri nafnið sitt og sjálfur ekki eiga
þar stafkrók. í bréfinu voru gagnrýndir harðlega
tveir forystumenn meirihlutans í Hafnarfirði, þeir
Ellert Borgar Þorvaldsson og Jóhann Berg-
þórsson, og stóryrðin ekki spöruð. Ritstjórar
Morgunblaösins tóku afneitun Björns trúanlega án þess aö
bera hana undir Sverri, sem síðar kærði Morgunblaðið fyrir
siðanefnd blaðamanna. í bréfi sem Sverrir skrifar í framhaldi
af Reykjavíkurbréfinu segir m.a. að „Björn hefur boriö, að hátt-
settir og nafngreindir menn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafi
þvingað fram undirritun sína [á afneituninnij..." Sverrir mun
þar eiga við téða Ellert Borgar og Jóhann...
Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðis-
stofnunar, og lögfræðihjörö stofnunarinnar hafa kært Sig-
urð H. Guðjónsson, formann Húseigendafélagsins, fyrir um-
mæli sem hann hefur látið falla í fjölmiðlum. Ummæli Sigurðar
eru athyglisverð og sennilega hafa aldrei verið látin falla eins
hörð orö um eina stofnun og Húsnæöisstofnun.
Meöal annars hefur Sigurður sagt að.margar
meinsemdir og innanmein hrjá llkama stofnunar-
innar og lögfræðideildin er jafnvel sú illkynjað-
asta“. Þá hefur hann sagt aö saga Húsnæðis-
stofnunar sé.svört, vörðuð spillingu, hroka,
vanhæfni og eiginhagsmunapoti". Hann hefur
líka látiö hafa eftir sér að.lögfræðingar deildarinnar hafa í
gegnum tíðina stundað fjárplógsstarfsemi í eiginhagsmuna-
skyni á kostnað fólks I nauðum". Um nafna sinn Guðmunds-
son hefur formaður Húseigendafélagsins sagt að hann sé at-
http: / /this. i
lifandi vefur um Internetið, fólkið, fyrirtækin og framþróunina
■ 105 hnappa Win'95 lyklaborð
■ 3ja hnappa mús
■ 8x geisladrif
■ Soundblaster hljóðkort
■ Hátalarar
aco
Elsta töluufyrírtækí á Islandi
vinnugóðmenni sem margir hafi heyrt klökkna yfir
eigin góðmennsku, einkum þegar vondir menn
séu að gagnrýna einkafyrirgreiðslu hans utan
laga og siöferðis...
m sama leyti og Húsnæðisstofnun reynir að
hreinsa þann þlett sem hefur falliö á stofn-
unina með málshöfðun hafa skriflegar upplýsing-
ar um meint skipulegt misferli innan hennar bor-
ist Rannsóknarlögreglu ríkisins, umboðsmanni
Alþingis, dómsmálaráðuneytinu, Ríkissaksókn-
araembættinu og Ríkisendurskoðun. i nýlegri
skýrslu Ríkisendurskoöunar er hvergi getið um
eitt einasta tilvik þessara alvarlegu ávirðinga
eins og meint veðsvik, ólögmæta veðflutninga og
veðleyfi. Þá vekur undrun að Ríkisendurskoðun
fékk til samstarfs við sig KPMG endurskoðunar-
skrifstofu, sem hefur um árabil verið starfandi
endurskoöandi inni í Húsnæðisstofnun. Margir
mundu ætla að KPMG væri vanhæf til að leiða
Ríkisendurskoðun um stofnunina sem endur-
skoðunarskrifstofa en svo er greinilega ekki. Eða
hvað?...
EES-samningurinn færði með sér aragrúa af
nýjum reglum. í ráðuneytunum er enn verið
að vinna aö nýjum reglugerðum til að uppfylla
ákvæði samningsins og enn bætist við. Iðnaö-
ar- og viðskiptaráðuneytinu barst í lok síðustu
viku erindi frá höfuöstöövum EB í Brussel. Er-
indið fjallar um eina af tilskipunum sambands-
ins. Þau leiðu mistök urðu nefnilega að þessi
tilskipun gleymdist þegar EES-samningurinn var
gerður. Nú vill Evrópusambandið að íslendingar
(og væntanlega einnig Norðmenn) taki til athug-
unar hvort ekki sé rétt að bæta þessari tilskip-
un í samninginn. Þetta er tilskipun nr.
69/493EBE um kristalsglös...