Helgarpósturinn - 09.01.1997, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 09.01.1997, Blaðsíða 2
2 RMMTUDAGUR 9. JANÚAR1997 mm Heiðar snyrtir dæmdur fyrir húsbrot og kynferaistilburði á Egilsstöðum Ætlar ekki að áfiryja Héraðsdómur Austur- lands dæmdi Heiðar Jónsson í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa farið í heim- ildarleysi inn í hús á Eg- ilsstöðum og sært blygð- unarkennd pilts sem þar bjó. Var dómurinn meðal annars byggður á DNA- rannsókn sem staðfesti að Heiðar hefði átt sæði sem fannst í herbergi piltsins. Þá kom fram í dóminum að tveir aðrir piltar töldu sig hafa orð- ið fyrir svipuðu ónæði af hans hálfu, en þeir hafa ekki kært áleitnina. Leystu vind Atburðurinn átti sér stað aðfaranótt laugardagsins 8. júlí 1995 eftir gleðskap sem Heiðar var þátttakandi í ásamt fjórum piltum og tveim- ur stúlkum. Að sögn vitna var þar áfengi haft um hönd en þegar líða fór á samkvæmið fóru stúlkurnar afsíðis til að spjalla saman. Heiðar mun þá hafa fengið þá hugmynd að fara í keppni í að leysa vind(!). Féll hugmyndin í góðan jarð- veg og „þeir leystu vind hver sem betur gat“, eins og segir í dómsskýrslu. Að sögn piltsins leitaði Heiðar hvorki á hann né aðra þar inni. Hann sagðist hafa yfirgefið samkvæmið um svipað leyti og aðrir gestir og haldið einn heim til sín og sofnað í herbergi sínu. Árla morguns mun Heiðar hafa farið inn í íbúðarhús piltsins. Að sögn móður hans vaknaði hún við að Heiðar stóð við rúmgafl hennar og spurði hvort pilturinn byggi í húsinu. Hún kvað svo vera og sagðist hann þá vilja leiðrétta misskilning sem upp hefði komið. Vísaði hún honum á herbergi sonar síns. Móðirin taldi sig ekki hafa neina ástæðu til annars en að treysta Heiðari og beið í eld- húsinu eftir að heimsókninni lyki. Hún segir að hann hafi komið glaðbeittur niður nokkru síðar og talað stutt- iega um veðrið. Nærbrókin niður í dómsskýrslu segir piltur- inn að sér hafi brugðið við þessa óvæntu gestakomu en reynt að bera sig mannalega. „Hafi ákærði talað um að sér þætti hann vera þroskaðri en aðrir drengir sem í samkvæm- inu voru. Þá mun hann hafa sagt piltinum sögur um að hann hefði alltaf orðið svo æstur sem ungur maður í sveit er vinnumennirnir leystu vind fyrir framan sig...“ Þá segir í skýrslunni að Heiðar hafi sest við rúmgaflinn og beðið piltinn að setja rassinn aðeins út undan sænginni. Pilturinn kveðst hafa gert það og hafi Heiðar þá þefað af aft- urenda sínum og beðið sig að draga nærbrókina aðeins nið- ur. „[Hann] kvaðst einnig hafa gert það og þá heyrt hljóð sem líktist því sem ákærði væri að fróa sér. [Pilturinn] kvaðst ekki hafa horft á ákærða meðan hann hafi við- haft tilburði sína en snúið sér undan. Hins vegar hafi hann „dauðskammast sín“ og viljað halda þessu leyndu. Hafi hann því fallist á að segja móður sinni að ákærði hafi aðeins með komu sinni verið að leið- rétta einhvern misskilning milli þeirra. Ákærði hafi því næst yfirgefið herbergið en [pilturinn] kastaði peysu yfir blett á teppinu eftir sæði úr ákærða..." Um ástæðu þess að hann rak Heiðar aldrei út úr húsinu sagðist pilturinn hafa talið þetta einu færu leiðina til að losna undan þessum kringum- stæðum, enda hefði hann ekki vitað hvað myndi gerast eða við hverju mætti búast. Hann sagði að sér hefði þó aldrei verið ógnað á neinn hátt en þvertekur fyrir að einhver misskilningur hafi átt sér stað í samkvæminu. Er vitnisburð- ur piltsins staðfestur af þeim sem gleðskapinn hélt. Tvö önnur tilvik í dómsskýrslu kemur fram að Heiðar hafi þennan um- rædda morgun ennfremur heimsótt tvo aðra pilta sem voru í gleðskapnum fyrr um nóttina. Bað hann báða að leysa vind og lét annar undan ósk Heiðars — sem lagðist á gólfið og fróaði sér. Pilturinn kvaðst hafa yfirgefið hann og lagst til svefns í öðru her- bergi. Hinn pilturinn segist hafa rekið Heiðar út með harkalegu orðbragði þegar hann bað hann um hið sama. Móðir fyrstnefnda piltsins segir hann hafa verið í mikilli geðshræringu þegar hún leit inn til hans eftir umrætt atvik og því hafi hún lengi haft hug á að krefja piltinn svara. Það hafi dregist á langinn en sig hafi verið farið að gruna sitt- hvað eftir að fjölmiðlar fjöll- uðu um hegðun Heiðars á Ak- ureyri um veturinn. Að lokum tjáði pilturinn móður sinni frá samskiptum sínum við Heiðar þennan morgun og leitaði í framhaldi af því til starfsfólks Stígamóta. Það ráðlagði hon- um að kæra atburðinn ef hann treysti sér til. DNA-rannsókn staðfestir dóminn Atburðurinn var kærður í nóvember, en við skýrslugjöf lögreglu kom fram að ekki hefði tekist að þrífa blett úr gólfteppi við rúm piltsins. Að ósk ákæruvaldsins var málinu frestað um nokkra mánuði á meðan bútur úr teppinu var sendur til Noregs til DNA-rann- sóknar ásamt blóðsýni úr ákærða. Um niðurstöðu rann- sóknarinnar segir „...að ákærði eigi sæði sem fannst í teppinu og eru líkurnar fyrir því að annar maður honum óskyldur finnist með samkyns erfðamynstur taldar mun minni en 1:10.000“. í niðurstöðu héraðsdóms frá 20. desember 1996 þykir sann- að að atvik hafi verið á þá lund sem pilturinn lýsir og verður því að telja að ásetningur ákærða til kynferðistilburða hafi verið fyrir hendi. Telst ákærði hafa ruðst heimildar- laust inn í húsið og sært blygð- unarkennd piltsins með lost- ugu athæfi samkvæmt 209. og 231. greinum almennra hegn- ingarlaga. Þar sem ekki var bú- ið að dæma hann fyrir svipað brot þann 8. mars 1996 í hér- aðsdómi Norðurlands eystra, þegar atburðurinn þar gerðist, voru bæði málin tekin til með; ferðar og dæmd í einu lagi. í dómsorði segir að ákærði, Kristbjörn Jóhann Heiðar Jónsson, skuli sæta fangelsi í þrjá mánuði. Fresta skal fulln- ustu refsingarinnar og hún felld niður að liðnum fjórum árum frá birtingu dómsins haldi ákærði skilorðið. Skal ákærði auk þess greiða allan málskostnað. Isamtali við HP sagðist Heið- ar ekki ætla að áfrýja dómi Héraðsdóms Austurlands. „Nei, en ég hef þakkað Guði mínum fyrir öll jólin og hing- að til að fjglmiðlar skuli hafa látið þetta í friði, því síðasta ár hefur bókstaflega verið skelfilegt," segir hann. „Tekj- ur mínar hafa til að mynda verið aðeins einn þriðji af því sem þær eru venjulega. Ég hef því lofað Skaparann fyrir að fjölmiðlar skyldu ekki gera sér mat úr þessu máli og geri það áfram. Þess vegna hef ég ekki látið í mér heyra út af þessu.“ Spaugstofumaður með leikrít í báðum stóru leikhúsunum ýtt íslenskt leikrit eftir Kari Ágúst Úlfsson, Fagra veröld, verður frumsýnt á laug- ardaginn, en að auki er leikritið / hvítu myrkri, sem sýnt er í Þjóðleik- húsinu, eftir hann. Síð- ast en ekki síst fer Spaugstofugengið svo í gang í sjónvarpinu á laugardaginn. Mikið er að gera hjá Karli Ágústi Úlfssyni þessa dagana, því auk leikrits hans / huítu myrkri, sem hefur verið sýnt fyrir fullu Þjóðleikhúsi síðast- liðna mánuði, verður frumsýnt nýtt leikrit, eða réttar sagt söngleikur, eftir hinn mæta Spaugstofumann í Borgarleik- húsinu á laugardag. „Þetta er verk sem heitir Fagra veröld, er byggt á ljóðum Tómasar Guðmundssonar og að mestu leyti á ljóðabók hans Fagra veröld," segir Karl. „Sag- an í verkinu gerist í Reykjavík um það leyti sem ljóðabókin kom út, það er að segja snemma á fjórða áratugnum. Sagan er að einhverju leyti spunnin út frá ljóðunum og ljóðin látin innblása það sem gerist á sviðinu. Eins er það sem gerist á sviðinu látið leiða yfir í ljóðin, þannig að þetta verður einhvers konar flétta.“ Svo er Spaugstofan að fara af stað á laugardag- inn... „Jújú, mikið rétt, og undir- búningur á fullu." Að hverju gerið þið grín á laugardaginn ? „Eg má ekkert segja frá því, en það verður svolítið ein- kenni á þættinum að jól og ára- mót eru liðin og í sumum til- fellum er komið að skuldadög- um.“ Svo ertu með annað leik- verk í Þjóðleikhásinu. Ertu svona afkastamikill? „Nei, þetta er nú ekki alveg að marka, því oft er langur að- dragandi að svona sýningum. Ég skrifaði Hvítamyrkur árið 1994. Það er ekki þannig að ég skrifi tvö leikrit á ári og fái þau bæði sett upp,“ segir Karl og hlær. „Það er bara tilviljun að þetta gerist á svipuðum tíma.“ , Vikan verður snúin hjá Karli Ágústi því hann þarf að skipta sér á milli Borgarleikhússins og Spaugstofunnar. „Þetta er ef til vill ekki dæmigerð vika í mínu lífi — sem betur fer — því að öliu eðlilegu er ég í fullu starfi hjá Spaugstofunni við að skrifa, leika og starfa við þessa sjónvarpsþætti. Annars er ég í sjöunda himni yfir að vera með verk eftir mig í stóru leik- húsunum báðum. Sjálfsagt á það ekki eftir að gerast oft á lífsleiðinni." Ertu að skrifa eitthvað núna, fyrir utan glens og gaman? „Jájá. Ég á, að ég held, ein þrjú eða fjögur ófullgerð verk í fórum mínum en ég læt nú aðr- ar skriftir en fyrir Sjónvarpið að mestu leyti liggja niðri, því maður gerir lítið annað en finna efni í Spaugstofuþætt- ina.“ Hvernig gengur að vera alltaf svona fyndinn? „Það gengur misjafnlega, en maður getur ekki beðið eftir því að komast í stuð því maður starfar nú við þetta. Maður verður að finna einhverjar að- ferðir til að koma sér í stuð. Ég er nú svo heppinn að eiga góða vinnuféiaga og sem betur fer dugar það oftast til að koma mér í gott stuð.“ Geturðu þá búið til einn góðan brandara fyrir mig núna í símanum? „Nei,“ segir Karl og hlær mik- ið. „í fyrsta lagi þarf ég aðeins að setja mig í stellingar til þess og í öðru lagi þarf ég á öllum mínum bröndurum að halda fyrir sjónvarpið, þannig að ég held að ég verði að skorast undan því.“ Dýrt ra&nagnseftirlit Skoöunarmaður kostar rúmar 100 þúsund krónur á dag Ef þú ert handhafi hug- myndafræði skiptir veru- leikinn engu máli — jafnvel þó að sýnt sé fram á að þú sért að auka kostnað og draga úr ör- yggi,“ sagði Ögmundur Jónas- son, þingmaður Alþýðubanda- lagsins, um breytta starfsemi Rafmagnseftirlitsins. Við umræðu um frumvarp iðnaðarráðherra, Finns Ing- ólfssonar, um breytta starf- semi Rafmagnseftirlits og breytingu laga um Rafmagns- eftirlit ríkisins, fengu iðnaðar- nefnd og alþingismenn meðal annars í hendur gögn sem sýndu að kostnaður við skoð- un háspennuvirkja er hærri en flesta grunar. Sem dæmi kost- aði innan við tíu daga verk eins skoðunarmanns á háspennu- virki á Austurlandi yfir 950 þús- und krónur. Frumvarpið hefur nú verið samþykkt, en það fel- ur í sér sameiningu Löggilding- arstofunnar og Rafmagnseftir- litsins. Auk þess er liorfið frá því fyrirkomulagi að RÍ og raf- veiturnar hafi með höndum raf- magnseftirlit og skoðun mann- virkja. Ögmundur hefur ásamt þingmönnunum Gísla Einars- syni, Alþýðuflokki, og Svavari Gestssyni, Alþýðubandalagi, barist gegn lagasetningunni, en hann sagði að sér virtist sem staðreyndir málsins skiptu meirihluta þingmanna ekki neinu máli. Með lagasetningunni er horf- ið frá allsherjareftirliti til úr- taksskoðunar. Þeir sem koma til með að framkvæma slíka skoðun eru skoðunarstofur í einkaeigu. Meðal starfsmanna Rafmagnseftirlitsins er óánægja með þessa breytingu og hafa menn bent á aukinn kostnað og lakara eftirlit. Dæm- ið af Austurlandi er ekki ein- stakt. í samtali við Agnar Áma- son hjá Rafmagnseftirlitinu á Akureyri sagði hann að þeir hefðu fengið mann frá Reykja- vík til að skoða eitt verk, en kostnaðurinn hefði verið óheyrilegur. „Verkið tók um það bil þrjá tíma og var kostn- aðurinn á annað hundruð þús- und krónur. Kostnaðurinn var mun minni þegar við létum mann gera þetta á staðnum.“ Agnar sagði að með þessum breytingum yrði kostnaður við eftirlit svipaður en eftirlitið engu að síður minna. „Menn geta síðan deilt um hvort sé betra. Ég tel að heppilegast væri að taka faggildingu af skoðunarstofunum og löggilda þær eins og rafverktaka. Þá yrði ekkert mál að stofna svona stofur um landið, en með þess- ari breytingu verða aðeins tvær til þrjár stofur starfandi og allar á stór-Reykjavíkur- svæðinu."

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.