Helgarpósturinn - 09.01.1997, Blaðsíða 19
FIMMTUOAGUR 9. JANÚAR1997
19
\
Körfubolti
Frednir forkólfar KKI
Sigurður Ágústsson og Karl Jónsson skrífa um körfuboltann
Pað er með eindæmum
hvað forystu KKÍ eru oft
mislagðar hendur. Ekki nóg
með að þeir sjái ekki sóma
sinn í að sjá landsliðsþjálfaran-
um, Jóni Kr., fyrir verkefnum
svo hann þurfi ekki að spila,
heldur eru undanúrslit bikar-
keppni KKÍ á þeim allra furðu-
legasta tíma sem um getur.
(Það má þó geta þess Jóni til
hróss að hann sagðist nýlega í
viðtali hafa farið á tólf leiki til
að skoða leikmenn. Það hlýtur
hann að hafa gert kauplaust og
er það virðingarvert.) Hvernig
stendur á að þeim dettur í hug
að hafa undanúrslitin fyrsta
leik eftir áramót, af hverju var
ekki leikin að minnsta kosti ein
umferð áður? Lítum aðeins á
staðreyndir málsins.
Litil hvíld fyrir
landsliðsmenn
Leikirnir voru sunnudaginn
5. janúar eins og flestum er í
fersku minni. Síðasta umferð
fyrir jól var um miðjan des-
ember þannig að um 25 daga
leikjafrí var fyrir hinn almenna
spilara fram að undanúrslit-
um. Landsliðsleikmenn lið-
anna fengu hins vegar ekki
mikla hvíld; íslenska landslið-
ið fór til Danmerkur og spilaði
þar nokkra leiki. Vegna verk-
efna landsliðsins gátu félags-
liðin ekki æft sig og undirbúið
sem skyldi. Og þó að ekki
hefðu verið leiknir neinir
landsleikir hefðu liðin samt
varla verið í toppæfingu. Fyrir
jjví eru nokkrar ástæður: Út-
lendingarnir hjá liðunum fara
langflestir til síns heima yfir
jólin vegna þess að fríið er svo
langt, þeir hafa þetta í sínum
samningi flestir (það má svo
deila um hversu gáfuleg sú
ráðstöfun er hjá liðunum).
Þetta hlýtur forysta KKÍ að
vita, annað er ótrúlegt. Það
kemur kannski forystu körfu-
knattleikssambandsins á
óvart, en áramótin eru mikill
gleðitími, jafnt hjá íþrótta-
mönnum sem öðrum. Auðvit-
íþróttir
Sigurður Ágústsson
skrifar
markaðssetning íþróttarinnar
hefur tekist með ágætum og
svo hafa menn reyndar slopp-
ið ótrúlega vel ár eftir ár með
skuldahalann á milli lappanna.
Slíkt hið sama er ekki hægt að
unum með allar bílhurðir opn-
ar upp á gátt hlustandi á Nig-
gers With Attitude með Budwe-
iser- kippuna) inn í hreyfing-
una. Það er alveg ljóst að mikil
aukning hefur átt sér stað í
að fara menn út á lífið — það
er varla hægt að ætlast til ann-
ars (samanber Umf. Skalla-
grím og verkamenn í fyrrver-
andi lýðveldum Sovétríkj-
anna). Þar fyrir utan er það al-
kunn staðreynd að menn æfa
ekki af jafnmiklum krafti um
jólin og ella.
Það er því vænlegri kostur
að spila fram undir 20. des. og
gefa mönnum smátíma til að
hlaupa af sér jólakaloríurnar
eftir áramót — hefja mót t.d.
um 10. jan. Taka þarf mið af
því upp á hvaða daga jólin ber.
Þýðingarlaus
„Stjörnuleikur“
Nú kynnu einhverjir að segja
að ekki hefði verið um annan
kost að velja í stöðunni, það
hafi verið búið að raða niður
leikdögum. Pétur Hrafn Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri
KKÍ, segir að auðvitað megi
deila um niðurröðun leikja, en
ástæða þess að hafa undanúr-
slitin í byrjun janúar sé sú að
félagsliðin hafi kvartað sáran
yfir slitróttu tímabili (leikur í
deild og svo hvíld vegna bikar-
keppni). Því hafi KKI valið að
fara þessa leið. Þetta er svo
sem gott og blessað, en í stað
þess að hafa „Stjörnuleikinn" á
auglýstum tíma hefði mátt
færa hann fram og undanúrslit
bikarsins aftur. Skipta á leik-
dögum, enda skipta úrslit
„Stjörnuleiksins" engan neinu
máli. Eingöngu er um að ræða
markaðssetningu á íslenskum
körfubolta. Undanúrslit bikars-
ins skipta hins vegar öll hlut-
aðeigandi lið máli. Til að taka
af allan vafa er ekki á neinn
hátt verið að fjargviðrast út af
úrslitum leikjanna, enda engin
ástæða til. Leikirnir voru þó
báðir frekar bragðdaufir og
Pétur Hrafn Sigurðsson segir markaðssetningu íslensks körfubolta hafa tekist vel. „Ég er samt fyrsti maðurinn
til að viðurkenna að það er hægt að gera betur og fækkun áhorfenda á leikjum er nokkuð sem við verðum að
bregðast við.“
ekki sérlega vel leiknir, vænt-
anlega vegna fyrrgreindra
ástæðna. Áðan var minnst á
markaðssetningu og vert að
fylgja því aðeins eftir.
Markaðssetning
körfuboltans á Tslandi
Handbolti er á mun hærri
stalli hér á landi en víðast hvar
í heiminum og ekkert sérstakt
um það að segja, nema það að
segja um körfuboltann. Auðvit-
að má segja sem svo að hand-
boltinn njóti góðs af því að
hann er ekki hægt að leika
nema í íþróttahúsum og þá fá-
ist iðkendur en í körfunni geti
menn spilað á hvaða leikvelli
sem er — úti og inni. Þetta eru
bara ekki nægilega sterk rök,
það hefði átt að vera hlutverk
forystu KKÍ að ná þessari NBA-
kynslóð (sem spilar á leikvöll-
körfunni, en er hún eðlileg?
Þessu svarar Pétur með eftir-
farandi hætti:
„Á síðastliðnum tveimur ár-
um hefur stórum styrktaraðil-
um fjölgað úr fjórum í níu og á
undanförnum árum hefur fé-
lögum sem stunda körfubolta
fjölgað um ríflega 100%. Við
breyttum fyrirkomulagi í yngri
flokkunum þannig að einungis
einn árgangur spilar í hverjum
flokki og þannig höldum við
fleiri leikmönnum við efnið, —
þar með þessari NBA-kynslóð
sem þú minntist á. Þessu til
viðbótar stofnuðum við svæð-
isbundna aðra deild sem er
fjölmenn og hefur verið mikil
lyftistöng fyrir sambandið.
Þess má einnig geta að fyrir
tveimur árum gáfum við, í sam-
vinnu við Mjólkursamsöluna,
körfur á hvern einasta leik-
skóla í landinu. Hvað varðar
þesssa NBA-krakka sem þú
minntist á þá eru margir gríð-
arlega efnilegir strákar í yngri
flokkunum sem verða farnir að
láta ljós sitt skína eftir nokkur
ár.“
En þessa menn er ekki að
finna í meistaraflokkunum,
sem er skrýtið því að strákur
sem var þrettán ára þegar
NBA-æðið hófst ætti að vera
átján ára í dag og lykilleikmað-
ur í sínu liði. Svo er í meistara-
flokkum ekki (ennþá) að finna
þær stjörnur morgundagsins
sem ætla mætti eftir aðra eins
kynningu og verið hefur á NBA
hérlendis undanfarin ár. Er
markaðssetning íþróttarinnar
næg?
„Já, ég tel að mjög vel hafi
tekist til með markaðssetningu
greinarinnar og vísa í það sem
ég sagði áðan með yngri flokk-
ana, 2. deild karla og offjölgun
félaga og iðkenda. Iðkendur
eru núna nálega 6.500. Veltan
hefur aukist og hjá okkur er
allt á uppleið, ber það ekki vott
um gott markaðsstarf?"
Það er allt á uppleið já, nema
það sem skiptir félögin mestu
máli; áhorfendafjöldi. Áhorf-
endafjöldi á leikjum er nánast
enginn og einungis KFÍ getur
státað af þokkalegri mætingu
áhorfenda, enda um fátt annað
að ræða á ísafirði.
„Það er rétt, þetta er vanda-
mál sem er nýlega komið upp.
Þessu bregðumst við auðvitað
við á einhvern hátt en höfum
engu að síður áhyggjur af því.“
Lesendur láta Ijós sitt
Uv
□m®
Tómas, tiL
lukku með nýja árið!
Jæja nú er loksins eitthvað
að gerast í boltanum sem ég
undirritaður, Lýður Ófeigs-
son, til heimilis að Ljótshólum
í Köldukvísl, 551 Sauðárkróki,
er mjög svo — en samt ekki
svo að nauðga þurfi þeim orð-
um — brjálæðislega hamingju-
samur yfir. Ég er ekki beint lít-
ið ánægður með Tómas Holt-
on, þjálfara Skallagríms og
fyrrverandi þjálfara Skalla-
gríms, að sekta þá leikmenn
sem tóku ástfóstri við þann
slóttuga og geðtruflandi að
ekki sé sagt hrútleiðinlega og
ódrekkandi BAKKUS. Eg er
þeirrar skoðunar að drekka
megi áfengi í hófi, en mér er
spurn: Hvað er þetta HÓF? En
hvað um það, ég vona að strák-
arnir hans Tomma læri af
þessu og sýna góðan karakter
með því að taka sig taki og
gera bara betur (þ.e.a.s. í
körfuboltanum, ekki í hófinu).
Landsbyggðar-Lýður
Gengi Skallagrímsmanna
hefur ekki verið neitt til að
hrópa húrra fyrir. Þeir hafa
tapað illa og spilamennskan
ekki verið sannfærandi.
Kannski var um að ræða til-
raun leikmanna til að rífa upp
móralinn, en það er alsiða að
leikmenn þurfa á hóli að
halda þegar illa gengur, miklu
hóli — og ég er að sjálfsögðu
að tala um alkóhól. Annars er
ég sammála þér; það er
gott hjá Tomma að halda
andlitinu og taka séns á
að tapa stórt frekar en
að láta aðrar eins ka-
rakterleysur vaða uppi
með tóma steypu.
Umfjöllun
um enska
boltann takk!
Gleðilegt nýtt ár öll-
sömul og takk fyrir að
birta bréfið. Ég vildi bara
koma því á framfæri að
nú væri kominn tími á að
HP færi að skrifa nokkra
pistla um enska knatt-
spyrnu — ekki endilega
um úrslit og hverjir skor-
uðu heldur slúður og eitt-
hvað í þeim gír. Að lokum
spyr ég hvað er að gerast
hjá Newcastle, Kevin Ke-
egan bara farinn í faðm
fjölskyldunnar að safna
spiki eða hvað? Er það
taugaveiklun eða skortur
á faðmlögum (eitthvað
tengt bernskuárum
stráksins, hann fór jú
ungur í boltann en
andsk....)?
Emelíus Vilberg
Það eru líkur á að HP fari
að sinna ensku knattspym-
unni betur á næstunni, enda
ekki vanþörf á. Hvað varðar
Keegan þá hefur það loðað
við Libbarana að klikka í
framkvæmdastjórastólnum
undir pressu. Sjáðu bara
Kenny Dalglish, hann var
með súperlið í höndunum en
taugarnar bmstu og hann yf-
irgaf liðið. Keegan ætti varla
að skorta faðmlög, það er
eitthvað annað.
((/ /
H
7
TZ7
m
B
Karlaþrek
að hefjast fyrir þá sem vilja ná árangri
SMIÐJUVEGUR 1 • 200 KOPAVOGU
SÍMI: 554 3040
Leiðbeinendur:
Eitiar Vilhjálmsson,
lífeðlisfræðingur,
Ragna Bachmann,
heilpraktíker.
SPáiftRT
TEC 2000
Hágceða heilsuvörur
SIMI: 554 3040
Fullkominn TECHNOGYM æfingatæki
Sport Tec 2000 æfingakerfi, fjölþætt áreiti.
Mastercare, Sænski Heilsubekkurinn
gegn verkjum í baki, hnakka og öxlum.
Næringar- og bætiefnaráðgjöf.
Vildarkjör á bætiefnum frá Sport Tec
2000 innifalin í 8 vikna námskeiði.
Einkaþjálfun
GSM: 896 7080