Helgarpósturinn - 07.05.1997, Page 1
*
MfÐVIKUDAGUR 7. MAÍ1997
reka
^ ^mh!dUm hans- fólki sem frain að
slcerr^ Aokkmn. En þanmg er ná einu sinni gangur
skerpaandM^ur scm vopn , baníttunni fyrif vöíd*„f'
mm
'TV>enn í eitt ki
-«■
bandalag, Það út ■
Falsað bréf Ómars Smára Ármannssonar, bæjarfulltrúa í Hafnarfirði,
■r ^Or, ®*3
, Sat»9kjtrn,ran)s
Tilgangurinn er að reka
fleyg á milli mín og Guð-
mundar Áma Stefánssonar,
segir Ómar Smári Ármanns-
son, lögreglumaður og bæjar-
fulltrúi, um bréf sem farið hef-
ur inn á ritstjórnir fjölmiðla og
til hafnfirskra stjórnmála-
manna síðustu daga og vikur.
Bréfið er merkt Ómari, bæjar-
fulltrúa Alþýðuflokksins, en
óundirskrifað.
„Bréfið er falsað," segir
Ómar Smári en hann fékk
spurnir af bréfinu í síðustu
viku þegar kunningi hans
hringdi til að þakka fyrir send-
inguna.
„Ég vissi ekki hvaðan á mig
stóð veðrið, enda hafði ég ekki
sent neitt bréf,“ segir bæjar-
fulltrúinn, sem löngum hefur
verið talinn náinn Guðmundi
Árna Stefánssyni, þingmanni
og fyrrverandi bæjarstjóra í
Hafnarfirði. „Ég hélt að þetta
væri brandari.“
Kunnáttumaður hefur falsað
bréfið. Fyrri hluti þess er upp
úr grein sem Ómar Smári skrif-
aði í Fjarðarpðstinrt í vetur. En
þegar kemur að Guðmundi
Árna tekur skáldskapurinn við
og hann er ísmeygilegur sé tek-
ið til þess hver skrifaður er fyr-
ir bréfinu.
„GÁS langar til að koma aftur
inn í hafnfirsk stjórnmál og
skipa þann sess, sem hann tei-
ur sig eiga rétt á. Hér gekk hon-
um vel að hans mati og fleiri.
Hér á hann fylgi og hér langar
hann til að starfa á næstunni,
því sýnilegt er að hann kemst
rm
Ómar Smári: Ég hélt að þetta væri
brandari.
ekki til áhrifa á landsvísu á nýj-
an leik í náinni framtíð ef tekið
er mið af núverandi stöðu í ísl.
stiórnmálum. Ljóst má vera að
GÁS ásamt öðrum hefur verið
að tefla refskák stjórnmálanna
hér í Hafnarfirði undanfarna
mánuði. Það er í sjálfu sér ekki
óeðlilegt hvort sem litið er á
stöðu landsmála eða bæjar-
mála, en það er hins vegar
slæmt að vinnubrögðum þeim
sem notuð hafa verið er m.a.
ætlað að bitna á samherjum
hans, fólki sem fram að þessu
hefur starfað að heilindum fyr-
ir flokkinn. [...Guðmundur
Árni] er reyndar velkominn
aftur í bæjarmálin og því
ástæðulaust fyrir hann að tefla
flókna refskák til þess að svo
Hralh Jökulsson
skrifaði upp á fyrir
„Geira frænda
Margdæmdurfyrirfíkniefnamisferli en með blaða-
mannapassa frá Mannlífi
Asgeir Ebeneser Þórðar-
son er margdæmdur fyrir
fíkniefnamisferli en hefur
blaðamannapassa frá tímarit-
inu Mannlífi. Undir passann
skrifar Hrafn Jökulsson, rit-
stjóri Mannlífs, þann 14. apríl
síðastliðinn. Ásgeir, eða „Geiri
frændi“ eins og hann er þekkt-
ur undir í fíkniefnabransanum,
á langan afbrotaferil að baki,
en hann kom fyrst við sögu
lögreglu árið 1972 fyrir misferli
á marijúana og hassi. Árið
1979 var hann svo dæmdur af
dómstólum fyrir fíkniefnamis-
ferli. Hann hlaut einnig dóm í
júlí árið 1980 fyrir samskonar
brot. Þá hefur Ásgeir verið
bendlaður við Hollendinga
sem fluttu inn talsvert af fíkni-
efnum til landsins á síðasta ári.
Alls var um að ræða 25 kg af
hassi, tæplega þrjú kg af amfet-
amíni og allt að 600 e-töflur.
Það var í desember sem hol-
lenskt par var handtekið í toll-
inum á Keflavíkurflugvelli fyrir
innflutning á 10 kg af hassi. Að-
gerð af hálfu lögreglu fylgdi í
kjölfarið og fundust við leit til
viðbótar 35 grömm af amfet-
amíni og 500 e-töflur. í byrjun
september sama ár flutti þessi
é
FRÓDI
nóM *ni.MHrn;A*\
FRODI
BÓKA & BL\ÐAÚTGÁFA
TO WHOM rr MAY CONCERN;
ASGEIR EBENESER IHORDARSON
IS CURRENTLY WORKING AS A
JOURNAUST FOR MANNLIF
MAGAZINE IN ICE1.AND.
REYKJAVIK 14.04.97
Jfbjrlh
IIRAFN JOKULSSOfvI ‘
EDIIOR OF MANNLIF
Er óhætt að skrifa upp á blaðamannapassa fyrir þennan mann?
sama kona, en með öðrum
manni, 15 kg af hassi, 3 kg af
amfetamíni og tugi e-taflna í bíl
með ferjunni Norrænu. Fíkni-
efnin voru tekin úr bílnum í bíl-
skúr hjá Ásgeiri, sem keypti
eitt kg af hassi af skötuhjúun-
um og fékk síðar eitt kg af am-
fetamíni. Ásgeir var handtek-
inn af fíkniefnalögreglu í lok
desember 1996 og úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald til 17. janú-
ar á þessu ári. Hann var síðar
látinn laus en er í farbanni til
18. júní. Hann var síðan tekinn
aftur í apríl fyrir að eiga nokk-
ur grömm af amfetamíni í fór-
um sínum — en í millitíðinni
fékk hann passann góða hjá
Hrafni ritstjóra.
VcrU/(
cSir
’tnia
'nS9r
«ð
'•Kfafi
°e
iu
4%S?**g*
ster*i
~j*n8Cnjn;i V7>» ' 'Ͱkk*%%U'n Uf £'***«&/
Jnn«n
’nst>ó
n8,*h*r
„Ljóst má vera að GÁS ásamt öðr-
um hefur verið að tefla refskák
stjórnmálanna," segir í bréfinu.
megi verða. Allt sem þarf til er
hreinskilni og vilji til að starfa
með sömu formerkjum og aðr-
ir fulltrúar flokksins. Ef hann
sýnir hins vegar einhver merki
þess að snúa eigi aftur til fyrri
vinnubragða eða ef sýnt er að
nota eigi kjósendur til að
styrkja einstaklinga til þess
eins að þeir geti síðan misnot-
að aðstöðu sína er augljóst að
saga Alþýðuflokks Hafnarfjarð-
ar verður ekki lengri,“ stendur
í bréfinu.
Ómar Smári hyggst ekki gera
neitt frekar í málinu. Hann
kveðst ekki vita hver standi á
bakvið fölsunina en bendir á
að falsaðar fundargerðir úr
hafnfirskri bæjarmálapólitík
hafi einnig verið í umferð.
i I farnarQarðar,
i meö ómteldu ijóni '~T7ilW|flto „ Tn"y' í ' 4 ^
ia starfi afsanngirní og af heilinduffmtel
í ‘*í!UIVmín var 08 er cntx að starfa iill l|TwftiiiL||| 1 Hi, , r n
Cium An^TJlOSÍnn af Hafnfirðingum tíl
starfi éB sinna
* r iiff*kák«Ffr h,nlr fáu fuI,trúar sórhagsmunaaflanna hins veaar ......... ' ‘
U,lmjUm fl°kks,ns vcrður s‘r,ð. Þe'V koma aldrei til með að gcta unnið
Smárí Ármannsson
Einstaklingur sem þekkir vel til í hafnfirskri bæjarmálapólitík hefur falsað bréf þar sem slitrum úr blaðagrein
Ómars Smára Armannssonar bæjarfulltrúa er blandað saman við skáldskap um pólitíska stöðu Guðmundar Áma
Stefánssonar í Hafnarfirði og á landsvísu.
Hvorki borin
virðingíyrir
starfsfólki né
hlusfendum
á Bylgjimni
Útvarpskonunni Valdísi Gunnarsdóttur gert að
hætta fyrirvaralaust
Itvarpskonan Valdís
(lunnarsdóttir á Bylgj-
unni hætti skyndilega í síð-
ustu viku eftir tæplega
þriggja ára starf á útvarps-
stöðinni. „Auðvitað er
ástæða fyrir öllu,“ segir Val-
dís. „En ég er hætt og mæti
ekki aftur á Bylgjuna í vinnu.
Það kom upp á mjög snögg-
lega en ég vil ekki tjá mig
mikið um þetta mál. Það
varð ósamkomulag á milli
mín og stjórnenda íslenska
útvarpsfélagsins og mér
finnst mér ekki stætt á að
starfa hjá fyrirtækinu leng-
ur.“
Það voru ekki þeir sem
ráku þig?
„Nei, það var beggja
blands. Þeir ráku mig ekki,
en það varð ósamkomulag á
milli okkar og ég lét ekki
bjóða mér hluti og ákvað því
að fara. Það eina sem ég get
sagt er að mér finnst aðfar-
irnar slæmar að því leytinu
til að það er greinilega
hvorki borin virðing fyrir
starfsfólki útvarpsfélagsins
né hlustendum. Hlustendur
mínir skipta mig miklu máli
og ég hefði viljað fá að
kveðja þá, en því miður var
það ekki hægt. Ég er í raun
afskaplega sátt við að vera
hætt og finnst það bara léttir
fyrir mig.“
Hvað tekur við?
„Eftir sjúkralegu kem ég tvíefld aftur,“ segir Valdís Gunnarsdóttir.
„Ég er ekki búin að ákveða
það, en nú er ég að fara í frí.
Fyrst fer ég á sjúkrahús og
verð þar í tvær vikur, síðan
ætla ég að sleikja sólina ein-
hvers staðar. En ég á eftir að
sakna hlustendanna og ég er
ekki hægt í fjölmiðlum, síður
en svo. Eg kem tvíefld aftur.“
H-
b
t
b
i
I
Í
I
i
i
i
i
i
i
J
h
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ1997
3
Ragnar Halldór Hall var settur rík-
issaksóknari í endurupptökumál-
inu. í greinargerð sem hann skil-
aði Hæstarétti eru tvö atriði bein-
línis ósönn.
fjórum síðum sem Ragnar Hall
skilaði Hæstarétti sem hann
nefnir Geirfinnsmálið. Það var
þó á sínum tíma almennt álitið
mun dularfyllra, einkum af
þeim sökum að Geirfinnur átti
stefnumót við einhvern eða
einhverja ónefnda menn
kvöldið sem hann hvarf og
hafði á orði að kannski væri
skynsamlegra að fara vopnað-
ur.
Ragnar neitaði að svara
spurningum blaðamanns HP
um greinargerðina.
Ogjivað um upplognar
Sævar Ciesielski fór ekki ein-
ungis fram á að verða hreins-
aður af Guðmundar- og Geir-
finnsmálum. Hann var á sínum
tíma einnig sakfelldur fyrir að
hafa logið sökum á fjórmenn-
ingana, sem svo hafa jafnan
verið nefndir, þá Einar Bolla-
son, Magnús Leópoldsson,
Sigurbjörn Einarsson og
Valdimar Ólsen. Allt frá því að
Sævar losnaði úr einangrun
hefur hann haldið því fram að
þegar hann nefndi þessa menn
í sambandi við Guðmund og
Geirfinn hafi það verið að fyrir-
sögn rannsóknaraðila og eftir
pyntingar. í beiðni sinni um
endurupptöku fer hann því
einnig fram á að vera hreinsað-
ur af því að hafa logið sökum á
aðra.
Settur ríkissaksóknari, Ragn-
ar Hall, virðist heldur ekki hafa
lesið beiðni Sævars nógu vand:
lega til að taka eftir þessu. í
greinargerð sinni til Hæstarétt-
ar tekur hann sér vald til að
skýra til hvaða þátta málsins
endurupptökubeiðnin nái:
„Beiðni dómfellda Sævars
Marinós verður að skýra svo
að hann geri kröfu um endur-
skoðun á sakfellingu að því er
hann varðar vegna þessara
tveggja þátta málsins, en að
hann geri ekki athugasemdir
við niðurstöðu umrædds
dóms um önnur ákæruatriði
sem þar voru dæmd.“
Þessi tilvitnun í greinargerð
Ragnars kemur í beinu fram-
haldi af hinni síðustu (um lík-
amsárásina 29. nóvember
1974) þannig að þegar hann
talar um tvo þætti málsins ligg-
ur einna beinast við að álykta
að hann eigi við tvær líkams-
árásir, — á Guðmund og Geir-
finn. Ragnar er hér m.ö.o. að
halda því fram að Sævar fari
ekki fram á að verða hreinsað-
ur að upplognum sakargiftum.
Þessi túlkun Ragnars Hall
kemur óneitanlega illa heim og
saman við orð Sævars í endur-
upptökubeiðninni sem Ragnar
fékk til meðferðar. Sævar lýsti
pyndingum í Síðumúlafangelsi
ítarlega og vék þar einnig að
því hvernig hann var látinn
bendla fjórmenningana við
málið með sömu aðferðum og
hann var látinn játa sakir á
sjálfan sig. í lok greinargerðar
sinnar segist Sævar gera kröfu
til að vera hreinsaður af „fyrr-
nefndum málum“. Flestu fólki
þætti að líkindum eðlilegast að
skilja þau orð svo að Sævar
eigi við öll þau mál sem hann
rakti í skýrslu sinni, þar með
taldar þær sakir sem hann var
dæmdur fyrir að hafa borið á
fjórmenningana.
>ft>jónar réttvísinnar“ í
tugthúsið?
Sævítr Ciesielski vill að þeir
sem bera ábyrgð á hinni svo-
nefndu „rannsókn“ Guðmund-
ar- og Geirfinnsmála verði látn-
ir sæta ábyrgð. Þetta kom
skýrt fram í máli hans á blaða-
mannafundi sem hann efndi til
á föstudaginn. Þar kynnti Sæv-
ar einnig bók sem hann hefur
nú gefið út um þessi mál.
Dómsmorð nefnist bókin og
hefur að geyma megnið af
þeim skjölum sem nú hafa ver-
ið lögð fyrir Hæstarétt vegna
beiðni Sævars um endurupp-
tökuna. Fyrirferðarmest er
greinargerð Ragnars Aðal-
steinssonar lögmanns, sem
Hæstiréttur fól hlutverk réttar-
gæslumanns Sævars í málinu.
En í bókinni er einnig að finna
skýrslu Sævars sjálfs þar sem
hann rekur gang þessara mála
eins þau bitnuðu á honum. Þá
birtir Sævar ennfremur í bók-
inni álit Ragnars Hall, setts
ríkissaksóknara í málinu.
Ragnar lagði til fyrir einu og
Sævar Ciesielski notar
stór orð um þá meðferð
sem hann hefur mátt
þola af íslenska réttarkerfinu.
Ef dæma má eftir þeim upplýs-
ingum sem fram hafa komið að
undanförnu — og raunar einn-
ig miklu fyrr — virðist Sævar
reyndar hafa gott púður að
baki þessum fallbyssuskotum
sínum á íslenska réttarkerfið.
Nýjasta dæmið um framkomu
yfirvalda gagnvart honum hef-
ur reyndar nokkra sérstöðu.
Það er nefnilega hægt að
sanna. Sönnunin liggur fyrir
skjalfest og undirrituð af sett-
um saksóknara í endurupp-
tökumálinu sem nú verður
senn til meðferðar hjá Hæsta-
rétti. Þessi setti saksóknari
sagði ósatt um tvö veigamikil
atriði í skýrslu sem hann skil-
aði Hæstarétti fyrir einu og
hálfu ári. Undir þessi ósann-
indi skrifaði Ragnar Hall nafn-
ið sitt með eigin hendi.
Var Sævar úti í svert?
Það sem hér er um að ræða
er vitnisburður Viggós Guð-
mundssonar leigubílstjóra
sem ók Sævari alloft um það
Ieyti sem Guðmundur Einars-
son hvarf. Meðal annars ók
Viggó Sævari a.m.k. tvisvar
austur í Gljúfurárholt í Ölfusi.
Þessar ferðir voru farnar föstu-
daginn 25. janúar og mánudag-
inn 28. janúar 1974. Guðmund-
ur Einarsson hvarf sporlaust af
spjöldum sögunnar aðfaranótt
27. janúar þetta sama ár. Það
er því augljóst að allar dag-
setningar skipta verulegu máli.
Þann 25. janúar 1974 ók Vig-
gó Guðmundsson sem sagt
Sævari austur í Gljúfurárholt.
Þar bjuggu þá kunningjar
hans, sem raunar lágu undir
grun um fíkniefnamisferli.
Viggó Guðmundsson gaf lög-
reglunni a.m.k. tvisvar skýrslu
um ökuferðir sínar með Sævar
og önnur samskipti við hann.
Þessar skýrslur eru gerðar 22.
og 28. febrúar 1974 eða rétt um
mánuði eftir að þeir atburðir
áttu sér stað sem fjallað er um
í skýrslunum. Um fyrri öku-
ferðina austur að Gljúfurár-
holti er haft eftir Viggó í lög-
regluskýrslu:
„Þann 25. janúar kvaðst
kærði hafa keyrt Sævar að
Gljúfurárholti í Ölfusi. Sævar
var einn, og hafði með sér mat,
enda ætlaði hann að dvelja
þarna.“
hálfu ári að Sævari yrði synjað
um endurupptöku málsins og
rúmaðist það álit hans ásamt
rökstuðningi á fjórum blaðsíð-
um.
Látnir svara til saka
Sævar fór ekki dult með þá
skoðun sína á blaðamanna-
fundinum á föstudaginn að
hann gerði kröfu til þess að
þeir sem báru ábyrgð á pynd-
ingum í Síðumúlafangelsinu og
þvinguðu fram játningar á sín-
um tíma yrðu nú látnir svara til
saka.
Það hefur reyndar margoft
komið fram að þeir menn sem
rannsökuðu Guðmundar- og
Geirfinnsmál á sínum tíma hafi
ekki fylgt reglum. Ragnar Aðal-
steinsson fjallar ítarlega um
þetta atriði í greinargerð sinni
og niðurstaða hans er sú að
lögum og reglum hafi einungis
verið fylgt í undantekningartil-
vikum.
í bók Sævars er raunar að
finna fjöldann allan af nýjum
upplýsingum auk þess sem
nýju ljósi er varpað á upplýs-
ingar sem lágu fyrir þegar
dæmt var í málinu en virðast
þá ekki hafa verið taldar skipta
máli. Það er því vandséð að ís-
lenska réttarkerfið komist hjá
að taka þessi mál upp og rann-
saka þau frá grunni.
Svo virðst nú sem þessi
nærri aldarfjórðungsgömlu
sakamál séu að snúast upp í
andhverfu sína. Æ fleiri hafa
að undanförnu sannfærst um
að ekki sé líklegra að ætla að
Sævar Ciesielski, og þau sem
dæmd voru með honum, hafi
framið þessi morð en hver
annar. Ef einhver morð voru
þá yfirleitt framin. Á hinn bóg-
inn virðist varla fara á milli
mála lengur að Guðmundar- og
Geirfinnsmál séu sakamál í
öðrum skilningi. í þeim skiln-
ingi eru það „þjónar réttvísinn-
ar“ sem eru glæpamennirnir,
þeir sem héldu fólki í einangrun
árum saman og pynduðu það til
sagna, — mennimir sem skáld-
uðu upp tvö morð og pynduðu
nokkur ungmenni til að skrifa
undir þessar skáldsögur.
Slíkt er auðvitað lögbrot —
og var lögbrot þegar það gerð-
ist. Verði þessir „þjónar rétt-
vísinnar“ fundnir sekir gæti
svo farið að þeir þyrftu að
flytja sig — ekki hinum megin
við borðið — heldur hinum
megin við rimlana.
í hinn skýrslunni segir svo:
„Ég ók Sævari nokkuð oft
fyrstu dagana eftir heimkomu
hans, meðal annars í tvö skipti
að Gljúfurárholti í Ölfusi, sem
er skammt austan við Hvera-
gerði, í fyrsta skipti með mat-
væli, sem hann var búinn að
kaupa, en þá ætlaði hann að
fara með áætlunarbifreið, en
missti af þeirri ferð...“
Af frásögn Viggós er nokkuð
ljóst að Sævar hefur ætlað að
hafa einhverja viðdvöl í Gljúf-
urárholti þótt vitaskuld verði
ekki fullyrt hversu lengi hann
hefur haft í hyggju að vera þar
og þaðan af síður hversu löng
dvölin varð. Þó virðist óhætt
að fullyrða að Sævar hafi
a.m.k. ætiað að vera í sveitinni
yfir nótt og e.t.v. hefur hann
haft í hyggju að vera þar yfir
alla helgina.
Ragnar breytti dagsetn-
ingu
Hvað sem um það má segja
er óneitanlega kyndugt að
Ragnar Hall skuli halda því
fram í greinargerð sinni til
Hæstaréttar að Viggó hafi ekið
Sævari austur í Gljúfurárholt
24. janúar, sem sagt á fimmtu-
degi. Þessi fullyrðing hins
setta saksóknara eykur á hinn
bóginn líkurnar fyrir því að
Sævar hafi verið kominn aftur í
bæinn nægilega snemma til að
geta verið viðriðinn manndráp
í Hafnarfirði aðfaranótt sunnu-
dagsins.
Auðvitað má hugsa sér að
Ragnar Hall hafi einfaldlega
misritað „24. janúar“ í stað „25.
janúar“. En sé hér um misritun
að ræða hefur settur saksókn-
ari gerst sekur um ónákvæmni
sem tæplega samrýmist því
embætti sem hann er settur til
að gegna. Slík ónákvæmni er
ekki sérstaklega til þess fallin
að auka trúverðugleika þeirrar
niðurstöðu sem hann kemst
að.
Hveriir bjuggu í Gijúfurár-
hotti?
í greinargerð sinni til Hæsta-
réttar segir Ragnar Hall orð-
rétt um þessi atriði:
„f skjali M rekur bifreiðar-
stjórinn akstur sinn með dóm-
feílda eftir heimkomu þeirra
frá Kaupmannahöfn í janúar
1974. Er þar getið um ferðir að
Gljúfurárholti í Ölfusi 24. janú-
ar og 28. janúar 1974. Dóm-
felldi hafi verið einn í fyrri ferð-
inni og þá haft mat meðferðis,
enda ætlað að dvelja þar. Ekk-
ert kemur fram um það í þess-
um gögnum hverjir réðu hús-
um á þessum stað eða hvenær
eða hvernig dómfelldi fór aftur
frá Gljúfurárholti eftir dvöl-
ina.“
í þessari einu málsgrein er
beinlínis rangt farið með tvö
atriði. Dagsetningin er færð til
og auk þess gengur Ragnar
Hall út frá því að ekki sé vitað
hverjir hafi ráðið húsum í
Gljúfurárholti á þessum tíma.
Um íbúana er þó getið í lög-
regluskýrslu sem dagsett er
29. janúar 1974. Af heimilis-
fólki í Gljúfurárholti eru fjögur
nafngreind í skýrslunni; Ben-
óný Ægisson, örn Ingólfsson,
Gígja Geirsdóttir og Guð-
mundur Einarsson.
Þegar Ragnar Hall fjallar um
þetta notar hann að vísu orða-
lagið „í þessum gögnum“ þann-
ig að með hæfilegri hártogun
er hægt að hugsa sér að hann
eigi einungis við skýrslurnar
sem teknar voru af Viggó Guð-
mundssyni. Það er vissulega
einnig hægt að hugsa sér að
Ragnari hafi ekki verið kunn-
ugt um lögregluskýrsluna þar
sem getið er um íbúa í Gljúfur-
árholti. En sé svo hefur settur
saksóknari ekki lagt mikla
vinnu í að kynna sér málið sem
hann var settur til að fjalla um.
Varia orð um Geirfinn
Það er líka býsna athyglis-
vert að í þeirri stuttu greinar-
gerð sem Ragnar Hall skilaði af
sér eftir að hafa unnið að mál-
inu um eins árs skeið víkur
hann í raun varla orði að Geir-
finnsmálinu. Af skýrslu Ragn-
ars virðist helst mega draga þá
ályktun að Sævar hafi einvörð-
ungu farið fram á endurupj>
töku Guðmundarmálsins. Geir-
finnur er einu sinni nefndur á
nafn:
„Meðal þess sem dómfelldi
Sævíir Marinó var sakfelldur
fyrir var stórfelld líkamsárás á
Guðmund Einarsson aðfara-
nótt 27. janúar 1974, sem
leiddi til dauða, og stórfelld lík-
amsárás á Geirfinn Einarsson
aðfaranótt 20. nóvember 1974,
sem leiddi til dauða. Voru lík-
amsárásir þessar í báðum til-
vikum taldar varða við 218. og
215. gr. almennra hegningar-
laganr. 19/1940.“
Þetta er í eina skiptið á þeim
Settur saksóknari í endurupptökumáli Sævars Ciesielski taldi í
fyrra nægjanlegt aö skrifa þriggja blaðsíðna greinargerð þar sem
hann lagði til að Hæstiréttur hafnaði beiðni Sævars. Tvö atriði
sem hann nefnir máli sínu til stuðnings eru beinlínis ósönn.
Sævar Ciesielski var ásamt fleirum
dæmdur í Hæstarétti í febrúar
1980 en hefur æ síðan haldið
fram sakleysi sínu. Dómurinn
grundvallaðist fyrst og fremst á
játningum sakaborninganna. Nú
virðist fullvíst að þessar játningar
voru þvingaðar fram með margs
konar löglausum aðferðum, m.a.
pyndingum.