Helgarpósturinn - 07.05.1997, Page 4

Helgarpósturinn - 07.05.1997, Page 4
4 MfÐVIKUDAGUR 7. MAÍ1997 W1 Enn og aftur tala menn um sameiningu eöa samfylk- ingu vinstri stjórnmála- flokka landsins, enda er mörgum oröiö Ijóst hversu smáir og valdalitlir þessir flokkar eru hver í sínu horni. Helgarpósturinn haföi samband viö Svan Kristjánsson, prófessor viö Háskóla íslands, og ræddi við hann um mögu- leikann á sameiningu vinstriflokkanna. Draumur þing- mannsins er að verða ráðherra „Ég hef ekki trú á þessari allsherjarsameiningu Alþýðu- flokks, Alþýðubandalags, Þjóð- vaka og Kvennalista, að minnsta kosti ekki í nánustu framtíð,“ segir Svanur. „Og það er ekki út frá málefnaágreiningi sem þeir geta ekki sameinast. Þessir flokkar gætu í raun náð sameiginlegum áherslum í öll- um helstu málum og hafa reyndar gert það, til að mynda á þessu þingi. Það sem helst stæði í veginum væri ekki áherslan í utanríkismálum — sem ágreiningurinn hefur oft staðið um — heldur frekar veiðileyfagjaldið, sjávarútvegs- stefnan. En það væri trúlega ekkert sérstaklega erfitt fyrir þessa fiokka að ná samkomu- lagi um þessi mál ef menn vildu. Það sem ég held að standi í veginum fyrir allsherjar- sameiningu þessara stjórn- málaflokka er að það vantar áþreifanlega ástæðu fyrir sameiningu. Á Bretlandi til dæmis er kosningakerfið þann- ig úr garði gert að hagstætt er að hafa stóran stjórnmálaflokk. Þá erum við að tala um ein- menningskjördæmi, þar sem fleiri þingsæti fást ef flokkarnir eru stórir. Verkamannaflokkur- inn fær núna í kosningunum tæplega tvo þriðju þingsæta út á rúmlega fjörutíu prósent at- kvæða. íhaldsflokkurinn var, alla sína stjórnartíð, aldrei með meirihluta atkvæða, þó svo að hann hefði meirihluta á þlngi. Þetta er ekki þannig hér. Kjördæmaskipan og kosninga- reglur miða að því að flokkarn- ir fái nokkurn veginn álíka mik- inn fjölda þingsæta og hlutfall atkvæða. Annað mikilvægt at- riði er að draumur þingmanna á íslandi er undantekningarlít- ið að verða ráðherrar. Ráð- herrar á íslandi ráða tiltölulega miklu á meðan óbreyttir þing- menn eru ekkert sérstaklega valdamiklir. Flokkar vilja fá ráðherra. Sem dæmi var Al- |)ýðuflokkurinn með fimm ráð- iterra af tíu þegar þeir voru með Sjálfstæðisflokknum síð- ast í stjórn. Þá var Alþýðu- flokkurinn aðeins með tíu þing- menn og Sjálfstæðisflokkurinn tuttugu og sex. Helmingur af þingflokki Alþýðufiokks varð j)ví ráðherrar í þeirri stjórn! Þar að auki eiga flokkarnir möguleika á tilsvarandi hlut- deild í útdeilingarvaldinu á embættum og öðru þvíumlíku. Svo má ekki gleyma einu sem getur skipt máli hvað varðar sameiningu, það eru peningarnir. íslensku stjórn- málaflokkamir skipta á milli sín um 170 milljónum króna á ári af almannafé. Síðan er búið að setja reglur um að fyrirtæki geti dregið frá til skatts fram- lög til stjórnmálaflokka. Þrátt fyrir alit hef ég þá trú að jafnaðarmenn, félagshyggju- fólk og kvenfrelsissinnar sam- einist á endanum hér á ís- landi.“ Hvað þarfað gerast til þess? „Það þurfa að koma til nýjar kynslóðir, ungt fólk með hug- sjónir og raunsærra en þeir sem ráða ríkjum núna. Að gild- in fari að skipta meira máli og fólk sé tilbúið að miðla málum innan flokksins til að fá afger- andi stuðning kjósenda." Þaö er komið aö því. Bítlarnir á íslandi. Eöa því sem næst. Ef til vill koma þeir, fyrir utan John Lennon aö sjálfsögöu. Hinum þremur og George Martin upptökustjóra þeirra hefur nefnilega veriö boðið til íslands 6. júní næstkomandi. Ástæöan: Nú eru þrjá- tíu ár síðan Bítlahljómplatan Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band var gefin út og í tilefni af því veröa haldnir stórtónleikar í Há- skólabíói sjötta dag júnímánaðar. Sinfóníuhljómsveit íslands, Ólafur Gaukur, Jón Ólafsson og nokkrir góðkunnir poppsöngvarar / flytja allt Sgt. Peppers-verkið auk nokkurra vel valinna Bítlalaga á hljómleikunum, sem verða í stærra lagi fyrir okkur Frónbúa. Ekk- ert veröur til sparað. Blaöamaöur HP settist niður meö framkvæmdastjórum og hugmyndasmiðum tónleikanna, þeim Sigurði Kaiser og Gísla Erni Garðarssyni. Eru virkilega þijátíu ár síðan? Hvernig dattykkur þetta í hug. Sát- uð þið á kaffihúsi og voruð að velta fyrir ykkur hvað þið œttuð að gera í sumar? „Já, næstum því,“ segja þeir. „Við sát- um nokkrir saman á kaffihúsi og fórum að tala um Bítlana. Einhver missti út úr sér að það væru nú þrjátíu ár í ár síðan Sgt. Peppers-platan var gefin út. Við gripum það á lofti og það fyrsta sem við sögðum var: „Megum við stela hug- myndinni?" Svarið var: „Ef ég fæ boðs- miða á frumsýninguna." Er hann kominn með boðsmiða? „Jájá. Hann er reyndar að vinna með okkur í þessu.“ Þeir segja að allir sem þeir viðruðu hugmyndina við hafi strax tekið henni mjög vel. „Sinfóníu- hljómsveitinni, Jóni Ólafssyni, Ólafi Gauki og öllum öðr- um fannst þetta mjög góð hugmynd allt frá upphafi," segir Sig- urður. „Um leið og maður fór að sjá fyrir sér hljómleika í þess- um dúr sá maður fyrir sér heila sinfóníu- hljómsveit og popp- ara sem spiluðu allt verkið í heild sinni,“ segir Gísli. „Við verð- um með alveg hrika- lega massíft hljóð- kerfi og þetta verða tæknilega flóknustu tónleikar sem hafa verið settir upp á ís- landi. Við verðum með mjög fullkomið ljósakerfi, tölvustýrð vélmenni. í raun verða þarna flestöll tæki sem til eru á landinu. Við verðum tii dæmis í samstarfi við Rás tvö, sem lánar okkur hljóðnema sem sérstaklega eru gerðir fyrir sinfóníuhljóm- sveit, þannig að hljóð- ið verður eins full- komið og völ er á og enginn ætti að verða svikinn af því.“ Miðasalan var opnuð síðastliðinn fimmtudag og þá myndaðist löng röð og um fimm hundruð miðar seldust fyrsta daginn. „Við getum ímyndað okk- ur að það sé orðið uppselt á fyrstu tón- leikana í dag,“ segir Sigurður, en viðtal- ið var tekið á mánudag. „Þrátt fyrir að allir hafi tekið þessu mjög vel liggur skiljanlega mikil vinna bak við svona hljómleika. Þetta er stórviðburður sem í heimi. Jón Ólafsson og Ólafur Gaukur koma með okkur þangað." Var ekkert mál að fá Norðmenn í þetta? „Nei, Bítlarnir eru alþjóðlegt fyrir- brigði og allir til í að gera eitthvað í tengslum við þeirra tónlist. Norðmenn voru ekki lengi að taka ákvörðun um að vera með,“ segir Sigurður. Gísli og Sigurður eru báðir 23 ára og þegar Bítlarnir hættu árið 1970 voru þeir ekki einu sinni fæddir. Eruð þið Bítlaaðdáendur? „Ja, Gísli er alger Bítlaaðdáandi en ég er að kynnast þeim fyrst núna,“ segir Sigurður. „Þeir verða meira og meira heillandi eftir því sem ég hlusta meira á þá.“ „Við erum í raun frelsaðir og erum komnir með nýja trú sem heitir Bítlarn- ir og guðinn okkar heitir John Lenn- on,“ segir Gísli og hlær og heldur áfram: „Foreldrar mínir eru af Bítlakyn- slóðinni og fyrir þeim eru Bítlalögin æskulögin. Mamma, sem er frá Súg- andafirði, sagði mér frá því að hún var önnur tveggja í bænum sem fengu Sgt. Peppers-plötuna þegar hún var gefin út. Það voru tvö eintök send á Súganda- fjörð! Þú getur ímyndað þér að Bítlarnir hafa alltaf verið í hausnum á mér. Það er erfitt að verða leiður á þeim því þeir voru svo fjölbreyttir.“ Hver eru uppáhaldslögin með Bítl- unum? „Happiness is a warm gun,“ segir Gísli. „Eg verð bara að segja Sgt. Pep- per’s Lonely Hearts Club Band,“ segir Sigurður og hlær mikið. Bítlarnir til íslands? Nú hefur mikið verið talað um að einhver af Bítlunum eða George Martin komi til landsins í tilefni tón- leikanna. Er þetta bara áróðurs- brella af ykkar hálfu eða er einhver möguleiki á því? „Það er full alvara í þessu og við höfum ver- ið að vinna að því að fá þá hingað sem heiðurs- gesti á tónleikana í sam- vinnu við embætti for- seta íslands, mennta- málaráðuneytið, Reykja- víkurborg, Skífuna og breska sendiráðið,“ seg- ir Sigurður. „Fyrsta hug- myndin var að bjóða þeim hingað og segja engum frá því,“ segir Gísli. „Það hefði verið gaman að koma fóiki á óvart með að fá Paul McCartney til að ganga upp á svið og taka eitt lag. En það er erfitt að halda svona hlutum leyndum og þetta fór að spyrjast út. Það kemur í ljós á næstunni hvort einhver þeirra kemur. Við vitum það ekki enn- þá. Paul er að vísu mjög upptekinn og notar allan frítíma sinn til að vera með Lindu, konunni sinni, sem er með krabbamein. En við höf- um fengið jákvæð við- brögð við fyrirspurnum okkar og erum búnir að bjóða þeim formlega. Sendum þeim meira að segja fax per- sónulega.“ Verðið á tónleikana er kr. 2.500 og eru miðar seldir í Háskólabíói. Nú er bara að drífa sig vestur í bæ og kaupa miða á atburð sem samkvæmt öllu ætti að verða einstök upplifun, að minnsta kosti fyrir Bítlaaðdáendur, og hver er það ekki? getur aðeins átt sér stað á tíu ára fresti. Núna eru Bítlarnir í tísku, en eftir tíu ár geta það verið Wham sem eru í tísku, hver veit? En eins og Ólafur Gaukur sagði þá er þetta einstakt og verður ekki gert aftur," segir Gísli. Ný trú sem heitir Bítlarnir Þeir Gísli og Sigurður kynntust fyrir nokkrum árum í Osló og ákváðu að setja upp söngleikinn Rocky Horror þar í borg. Eins tóku þeir þátt í að skipu- leggja tónleika bresku hljómsveitarinn- ar Suede í Osló ásamt ýmsu öðru. „Fyr- irtækið okkar, Nótt & dagur, varð til í Osló og þar sem samstarfið gekk það vei þarna úti ákváðum við að halda því áfram hér heima,“ segir Sigurður. Strák- arnir komu heim um síðustu áramót og eru Bítlahijómleikarnir þeirra fyrsta verk hér á landi. Þar er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. „Svo var ég í Osló um daginn,“ segir Gísli. „Þá var ákveðið að halda þessa tónleika þar í september. Norska Fílharmóníu- hljómsveitin mun spila þar ásamt fræg- um norskum poppurum. Sú hljómsveit er ein af virtustu sinfóníuhljómsveitum IMedanmáls Fimmtíu og sex sögur eftir þrjátíu og einn höfund bárust í smásagnasamkeppni Torf- hildar, félags bókmenntafræöinema, og Stúdentaráðs Háskóla íslands. Sögurnar sem skipuðu þrjú efstu sætin voru þó allar eftir sama höfund, Huldar Breiðflörð. Ertu svona mikið skáld Huldar? „Ég er að minnsta kosti á réttri leið virðist vera.“ Hvaða listamaöur hefur haft mest áhrif á þig? Mér detta í hug Raymond Carver, Þórbergur Þórðarson og svo auðvitaö Halli og Halli, alltaf í stuöi. Hvaða stjórnmálamaður lifandi eða látinn er í mestu uppáhaldi hjá þér? Jón Baldvin Hannibalsson. Hvaða skáldsagnapersónu vildirðu helst iíkjast? Morgan Kane, Philip Marlowe ogjafnvel Gatsby. Hvaða persóna mannkynssögunnar vildiröu heist hafa verið? Jesús, hann var svo vel fílaöur — af velflestum aö minnsta kosti. Ef þú fengir að lifa lífinu aftur myndirðu þá breyta einhverju? Ég heföi sleppt því aö selja trommusettiö og eins haldið lengur áfram aö æfa skákina. Hver er merkilegasti atburöur sem þú hefur upplifað? Þegar ég komst fyrst í „Hverjir voru hvar?". Hver er merkilegasti atburöurlnn sem þú ætlar að upplifa? Ég á eftir aö gera þaö upp viö mig. Hvaða atburöur, verk eöa manneskja hefur mótað lífsviðhorf þitt framar öðru? Foreldrar mínir, Gunnar Breiöfjörö og Hulda Ingólfsdóttir. Ef þú ættir kost á að breyta einu atriði í þjóðfélaginu eða umhverfinu, hvað yrði fyrir valinu? Ég hugsa aö ég myndi gefa rithöfundum okkar nýja skrifborösstóla frá IKEA. Maöur hefur þaö dálítið á tilfinningunni, þegar maöur les bækur þeirra, aö þeir séu flestir að drepast í bakinu. Sérðu eitthvað sem ógnar samfélaginu öðru fremur? Þaö er ef til vill ekki bein ógn, en ég er nokkuö sannfærður um aö ef viö fengjum hvassari dagblöö og skemmtilegri — en jafnframt hollari bók- menntir — myndi ýmislegt breytast til batnaðar í framhaldi af því. Mottó? Meira fjör.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.