Helgarpósturinn - 07.05.1997, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ1397
mmá
7
ferðinni grundvallaratriði
heldur tæknilegt fyrirkomu-
lagsatriði.“
Af hálfu Svavars Gestssonar
er hér um greinilega stefnu-
breytingu að ræða. Svavar tek-
ur vissulega fram að hann sé á
móti veiðileyfagjaldinu en það
heitir ekki lengur auðlinda-
skattur í hans munni og er
heldur ekki aðalatriði heldur
„tæknilegt fyrirkomulagsat-
riði“.
í ljósi þessarar ræðu Svavars
þótti sumum fundarmönnum
athyglisvert að Jón Baldvin
Hannibalsson minntist varla á
sameiningarmál fyrr en undir
lok ræðu sinnar. Sighvatur
Björgvinsson, formaður Al-
þýðuflokksins, tók sameining-
armálin hins vegar til umræðu
á fundi Jafnðarmannafélags
Eyjafjarðar á Akureyri um
helgina.
Vel þekkt slagorð
Sighvatur lýsti í ræðunni
hugmyndum sínum um sam-
eiginlegt framboð og rakti tíu
stefnupunkta sem hann taldi
geta orðið málefnalegan
grundvöll samstarfsins. Flestir
þessir punktar eru vel þekktir
sem sígild baráttumál jafnað-
armanna; frelsi og jafnrétti, ör-
yggi og velferð, lýðræðisum-
bætur, kvenfrelsi og mannrétt-
indi, ný menntastefna, fjöl-
breytni í menningarmálum,
umhverfisvernd og loks efna-
hagsleg uppstokkun og ný-
sköpun. Ekkert þess
En Sighvatur nefndi líka sam-
ræmda auðlindastefnu og
aukna Evrópusamvinnu. Bæði
þessi mál hafa verið hitamál
milli A- flokkanna en á allra síð-
ustu mánuðum hafa þó farið
minnkandi líkur á því að sam-
Svavar Gestsson. Ræða hans á
Hótel Borg virðist marka tímamót í
sameiningarferli A-flokkanna.
starfið strémdi á þessum mál-
um og eins og lýst var hér að
framan má segja að Svavar
Gestsson hafi ýtt þessum mál-
um tii hliðar í ræðu sinni á Hót-
el Borg.
Tilboð sem ekki er hægt
að taka?
En Sighvatur Björgvinsson
lét ekki staðar numið við mál-
efnin í ræðu sinni á Akureyri.
Hann vék líka að framkvæmda-
hliðinni, hvernig ætti að raða á
listana og boðaði nánast opið
prófkjör þar sem þátttökurétt
ættu allir sem lýstu fylgi við
framboð „nýrrar og öflugrar
hreyfingar jafnaðarmanna“.
Þessi ummæli Sighvats eru
ast um 2. sætið Anna Kristin
Gunnarsdóttir á Sauðárkróki
og Siglfirðingurinn Sigurður
Hlöðversson, sem hafði betur
og er nú varaþingmaður. Það
sem hins vegar gæti ráðið úr-
slitum í innbyrðisslag Alþýðu-
bandalagsins er að líklegasti
Alþýðuflokksmaðurinn í 2.
sæti listans er Kristján Möller
á Siglufirði. Á Norðurlandi
vestra þætti eflaust hæpin lat-
ína að bjóða fram tvo Siglfirð-
inga í efstu sætum.
Við þetta má svo bæta því
að Þjóðvakamaðurinn Sveinn
Allan Morthens mun njóta
vaxandi stuðnings innan
beggja A-flokkanna. Þá er einn-
ig talið líklegt að Valdimar
Guðmannsson, forseti Alþýðu-
sambands Norðurlands, verði
ofarlega á lista, en hann yfirgaf
Framsóknarflokkinn í fyrra.
Jafnaðarmenn ættu að eiga
góða möguleika á tveimur
mönnum í þessu kjördæmi en
það myndi jafnframt þýða að
Vilhjálmur Egilsson félli af
þingi.
1) Sveinn Allan Morthens
(Þ), 2) Kristján Möller (A),
Ánna Kristín Gunnarsdóttir
(Ab), 4) Valdimar Guðmanns-
son.
Norðurland eystra
Steingrímur J. Sigfússon
telst ekki beinlínis elskur að
Alþýðuflokknum. Þó munu
ekki taldar neinar horfur á því
að hann dragi sig í hlé verði af
sameiginlegu framboði. Hér
gæti Alþýðuflokkurinn aftur á
móti staðið frammi fyrir
ákveðnu vandamáli. Svanfríð-
ur Jónasdóttir komst inn fyrir
Þjóðvaka í síðustu kosningum
og felldi um leið út sitjandi
þingmann Alþýðuflokksins,
Sigbjörn Gunnarsson. Það
þeirra sem yrði undir í barátt-
Steingrímur Svanfríður
unni um annað sæti listans
yrði að láta sér nægja fjórða
sætið. Alþýðubandalagið hefur
nefnilega stundum verið nærri
því að fá tvo menn í þessu kjör-
dæmi.
Jafnaðarmenn ættu að eiga
tvö nokkuð örugg þingsæti hér
en þriðja sætið yrði tæpast
meira en baráttusæti, jafnvel
þótt Kvennalistinn yrði með.
Það er þó alls ekki hægt að úti-
loka þriðja sætið og þá yrði
það að öllum líkindum Tómas
Ingi Olrich sem félli af þingi.
1) Steingrímur J. Sigfússon
(Ab), 2) Sigbjörn Gunnarsson
(A), 3) Árni Steinar Jóhanns-
son (Áb), 4) Svanfríður Jónas-
dóttir (Þ).
Austurtand
Engar líkur munu til að Hjör-
leifur Guttormsson taki sæti á
sameiginlegum framboðslista
A-flokkanna. Neskaupstaður er
sterkasta vígi Alþýðubanda-
lagsins á landinu og því er
nokkuð tryggt að 1. sæti list-
ans yrði skipað þaðan. Þar ber
nú líklega hæst nafn Smára
Geirssonar, sem lengi hefur
staðið framarlega í flokki.
Öruggt má telja að séra
Gunnlaugur Stefánsson fengi
annað sætið en hann vann það
afrek að ná kjöri fyrir Alþýðu-
flokkinn 1991. Það var í fyrsta
sinn sem Alþýðuflokkurinn
hefur fengið mann kjörinn í
Austurlandskjördæmi. Gunn-
laugur var
reyndar nærri
því að endur-
taka leikinn
síðast. Þriðja
sætið kæmi
svo í hlut Al-
þýðubanda-
lagsins og þá
trúlega Egils-
staðabúans
Þuríðar Bachmann, sem nú er
varaþingmaður Hjörleifs Gutt-
ormssonar.
Jafnaðarmenn fengju að lík-
indum tvo þingmenn á Austur-
landi en verulegar tilfæringar
þyrfti á fylgi til að þriðji maður
á lista komist inn. Seyðfirðing-
urinn Arnbjörg Sveinsdóttir
yrði að láta af störfum á Al-
Gunnlaugur
Sighvatur Björgvinsson, formaður
Alþýðuflokksins, boðar opið próf-
kjör til að raða á sameiginlegan
lista jafnaðarmanna fýrír næstu
kosningar. Því má nánast líkja við
að rétta fram sáttahönd íklædda
gaddaglófa.
ión Baldvin Hannibalson minntist
ekki á sameiningarmálin fyrr en
undir lok ræðu sinnar á fundinum
Hótel Borg.
merkileg fyrir þá sök að opið
prófkjör er sennilega sú leið
sem síst væri unnt að ná sam-
stöðu um við röðun á lista
sameiginlegs framboðs. Sé
rýnt í þessa tillögu formanns
Alþýðuflokksins með aðferð-
um „Kremlólógíunnar" mætti
jafnvel segja að Sighvatur hafi
verið að gera Alþýðubandalag-
inu tilboð sem ekki væri hægt
að taka. Að nefna opið prófkjör
í þessu sambandi má nánast
líkja við að rétta fram sátta-
hönd íklædda gaddaglófa.
Vopnin gætu snúist
{ þessu sambandi má benda
á tilurð Reykjavíkurlistans.
Flestir sem til þekkja munu á
þingi eftir fjögurra ára setu.
1) Smári Geirsson (Ab), 2)
Gunnlaugur Stefánsson (A), 3)
Þuríður Bachmann (Ab).
Suðuriand
Sitjandi þingmenn eru
Margrét Frímannsdóttir og
Lúðvík Bergvinsson. Þau ættu
að geta komist að samkomu-
lagi og þriðja sætið kæmi
væntanlega í hlut Alþýðu-
Margrét Lúðvík
bandalagsins en yrði að líkind-
um ekki þingsæti. Tveir þing-
menn af nýjum lista jafnaðar-
manna eru líklegasta niður-
staðan.
1) Margrét Frímannsdóttir
(Ab), 2) Lúðvík Bergvinsson
(A).
einu máli um að samstaða um
hann hefði aldrei tekist ef átt
hefði að velja fólk til setu á
honum í prófkjöri. Það sem
gerði útslagið var einmitt það
að sætum á listanum var út-
hlutað til flokkanna fyrirfram.
Það mun óhætt að fullyrða
að ótti þingmanna við að
missa sæti sín sé í raun erfið-
ara vandamál til úrlausnar en
málefnaágreiningur. Það virð-
ist sem sagt nokkuð augljóst
að samkomulag um röðun á
lista í einstökum kjördæmum
verði, þegar til kastanna kem-
ur, það atriði sem ræður úrslit-
um um tilurð sameiginlegs
framboðs. í þessu sambandi er
ekki endilega líklegt að þing-
menn Alþýðuflokksins verði
fúsari til að Ieggja sæti sín í
hættu en þingmenn Alþýðu-
bandalagsins. I því ljósi skoð-
að virðist tillaga Sighvats
Björgvinssonar um opið próf-
kjör nokkuð kyndug.
Hitt er svo annað mál að
miðað við fylgi flokkanna í
skoðanakönnunum að undan-
förnu ætti Alþýðubandalaginu
að vera óhætt að taka Sighvat
á orðinu og efna til opins próf-
kjörs. Alþýðubandalagið hefur
að undanförnu mælst með hátt
í tvöfalt fylgi Alþýðuflokksins.
Ef þetta fylgi skilaði sér í próf-
kjöri gætu sumir þingmanna
Alþýðuflokksins lent óþægi-
lega neðarlega á framboðslist-
um.
Samstarf í sve'rtarstjórn-
um
Mörg Ijón eru á veginum áð-
ur en sameining jafnaðar-
manna verður að veruleika.
Margir hafa talið að fulltrúar A-
flokkanna í sveitarstjórnum
landsins muni á mörgum stöð-
um eiga enn erfiðara með að
ná saman en þingmennirnir.
Nú háttar svo til á Alþingi að
flokkarnir eru báðir í stjórnar-
andstöðu og eiga því að sumu
leyti auðveldara með að ná
saman málefnalega. Þetta er
hins vegar ekki raunin í sveit-
arstjórnum nema á stöku stað.
Það kemur þess vegna nokk-
uð á óvart að A-flokkarnir skuli
vera farnir að tala saman — og
að því er virðist í fullri alvöru
— í allmörgum sveitarstjórn-
um, jafnvel þar sem annar
flokkurinn á aðild að meiri-
hluta en hinn ekki. Rannveig
Guðmundsdóttir skrifaði grein
um sameiningarmál í Alþýðu-
blaðið 1. maí og nefnir þar til
sögunnar viðræður í Hafnar-
firði, Garðabæ, Kópavogi, Ak-
ureyri og Reykjanesbæ.
í Hafnarfirði myndaði fulltrúi
Alþýðubandalagsins meiri-
hluta með Alþýðuflokknum á
árunum 1986-’90 en síðan hef-
ur verið grunnt á því góða og
jafnvel talað um persónulega
óvild milli forystumanna flokk-
anna í Hafnarfirði. Engri slíkri
óvild mun til að dreifa á Akur-
eyri, en þar stjórnar Alþýðu-
flokkurinn nú með Framsókn-
arflokki en Aiþýðubandalagið
er í stjórnarandstöðu.
Hvað gera konurnar?
Þegar sögunni víkur að sam-
starfi eða sameiningu A-flokk-
anna á landsvísu er einkum
tvennt sem óhjákvæmilega
verður tekist á um. Annars
vegar eru það málefni, hins
vegar persónur. Þrátt fyrir
margvíslegan málefnaágrein-
ing má kalla það opinbert
leyndarmál að sjálf uppstilling-
in á lista verði mun erfiðara og
torleystara vandamál ef sam-
starf flokkanna nær að lokum
alla leið að því marki að bjóða
fram sameiginlegan lista.
Skoðanakannanir hafa gefið
vísbendingar um að sameinað-
ur listi jafnaðarmanna gæti
fengið nálægt 40% atkvæða í
kosningum. Þetta er nálægt því
sem A-flokkarnir, Þjóðvaki og
Kvennalisti fengu í síðustu
kosningum. Ljóst er að vilji til
sameiningar eða a.m.k. sam-
starfs fyrir næstu kosningar er
einnig verulegur innan
Kvennalistans en þar er þó
einnig að finna andstöðu við
þessar hugmyndir.
Það skiptir auðvitað veru-
legu máli þegar hugað er að
uppstillingu á lista í einstökum
kjördæmum hvort Kvennalist-
inn tekur þátt í framboðinu
eða ekki. Einkum á þetta við
um þau kjördæmi þar sem fylgi
Kvennalistans hefur verið
mest. Það setur óneitanlega
nokkra pressu á Kvennalistak-
onur að sameiginlegt framboð
jafnaðarmanna án þeirra gæti
sem hægast orðið til að þurrka
Kvennalistann út af þingi.
Verði af sameiginlegu fram-
boði er af ýmsum sökum óljóst
hvort allir eiga afturkvæmt á
þing sem þar sitja nú og vilja
halda áfram. Það gæti orðið
mörgum þingmanninum súr
biti að kyngja að þurfa að taka
vafasæti á sameiginlegum lista
í stað öruggs þingsætis. Fyrir-
sjáanleg endurnýjun við næstu
kosningar gæti þó e.t.v. auð-
veldað þetta nokkuð í sumum
kjördæmum en í öðrum getur
valið á framboðslista orðið erf-
iðara.
Hreinn meirihluti?
Á fylgismönnum sameining-
ar hefur stundum verið að
heyra að hreinn meirihluti
sameinaðs framboðslista jafn-
aðarmanna geti verið raunhæf-
ur meirihluti í næstu kosning-
um. Skoðanakannanir hafa
sýnt að nýr jafnaðarflokkur
gæti fengið um 40% atkvæða.
Þá má auðvitað segja að með
þokkalega sterkri fylgissveiflu
gæti pendúllinn slegið yfir 50%
á kosninganóttina.
Gegn þessu mælir þó margt.
Það hefur verið dregið í efa að
Alþýðubandalagið gangi inn í
sameininguna í heilu lagi. Ef
svo færi að einhverjir yrðu eft-
ir og byðu fram lista er hætt
við að sá listi tæki einhver at-
kvæði, jafnvel þótt hann fengi
engan þingmann. Svipaða sögu
gæti verið að segja um
Kvennalistann. Þar er ekki
samkomulag um þátttöku og ef
til vill kynni að fara svo að
Kvennalistinn klofnaði.
Kvennaframboð gæti einnig
orðið til þess draga úr árangri
sameiningarmanna, án þess þó
að eiga nokkurn möguleika á
þingsæti.
H ELGARPÓSTU RlN N
Blaðsölu-
börn óskast
Óvæntur
glaðningur
fylgir við
uppgjör
Hafið samband við
okkup í síma
552 22«
GARÐEIGENDUR ATHUGIÐ!
Viö erum fluttir aö Funahöföa 17
Við bjóðum ykkur áfram góða
viðgerðarþjónustu á garðverkfærum ykkar,
s.s. sláttuvélum, hekkklippum og kurlurum.
Seljum einnig nýjar vélar.
Funahöfða 17 - sími 587 5128
HK
Þjónustan