Helgarpósturinn - 07.05.1997, Síða 11

Helgarpósturinn - 07.05.1997, Síða 11
MtÐVlKUDAGUR 7. MAÍ1997 11 -- SkeHdir karlar se Kynjamenning Eva Pálsdóttir skrifar krunka um sín hjartans mál Það var sannarlega kominn tími til að karlar söfnuðu liði til að bera hönd fyrir höfuð sér, því í allri þeirri umræðu sem gengið hefur út á það að skilgreina konuna upp á nýtt hefur karlímyndin verið nokk- uð á reiki. Það er kannski hel- ber tilviljun að ráðstefnan Karl- ar krunka var haldin í því sama húsi og Konur skelfa um þessar mundir, en örugglega mjög viðeigandi. Eins og fram kom í erindunum sem flutt voru kreppir að körlunum okkar á mörgum stöðum vegna félags- legrar vanrækslu og stöðugrar gagnrýni okkar kvenna, sem sendum þeim sífellt ruglings- legri skilaboð um það hvernig þeim beri að haga sér. Eða öllu heldur hvernig þeim beri ekki að haga sér. Þeir voru samt ekki á því að setja sig í hlut- verk fórnarlambsins heldur var í þeim hinn göfugi sátta- tónn þess sem er tilbúinn að axla sinn hluta ábyrgðarinnar möglunarlaust, eða með öðr- um orðum: Vill bregðast við af karlmennsku. Viljinn til að koma til móts við okkur konur var allsráðandi og karlakli- sjurnar voru skoðaðar og gagnrýndar harðlega, einkum vegna skaðsemi sinnar fyrir þá sem þær bitna helst á, það er að segja karlmennina sjálfa. Einu kvörtunarefni beindu þeir þó sérstaklega til kvenkynsins og báru sig illa yfir því hversu þeim væri vantreyst innan heimilisins. Samkvæmt athug- unum Ingólfs V. Gíslasonar er ekki nóg með að karlmönnum sé almennt ekki treystandi fyr- ir þvottavélinni heldur er smekkvísi þeirra fordæmd frá byrjun til enda, hvort sem snýr að barnafötum eða innanhúss- skreytingum. Hann jafnaði þessum glerveggjum heimilis- ins við glerþökin sem talað er um að konur reki sig á þegar þær reyna að komast til met- orða á vinnumarkaðnum. Karlar hafa ekki gert mikið af því að ræða um óöryggi í tengslum við kynferði, eins og konur hafa hins vegar gert. Karlafræði er nær óþekkt fræðigrein á íslandi. Hver hef- ur til dæmis heyrt talað um karlsjúkdómafræðinga? í raun réttri hefur þessi þarfa um- ræða ekki skotið upp kollinum nema þá helst í hálfkæringi og þá oft dregin upp skrumskæld mynd af „mjúka manninum“ svokallaða sem skiptir um bleyjur og skúrar gólf og er meðvitaður um heilsuna, sína eigin og allrar fjölskyldunnar. Það hefur viljað fylgja mynd- inni að karlmaður sem hagar sér þannig hljóti að vera kerl- ingarlegur, tilgerðarlegur, und- irgefinn og ekki mjög skarpur. Ef ég væri karlmaður myndi ég gæta þess vel að engum dytti í hug að ég ætti heima í flokki hinna mjúku manna, sem jafn- vel konur úthrópa sem hlægi- lega. Karlar gera ekki mikið af því að ræða um kynferði sitt og óöryggi í tengslum við breytt kynjahlutverk. Karlafræði er satt að segja nær óþekkt fræði- grein á íslandi þótt víða annars staðar blómstri hún, svari mörgum spurningum og veki enn fleiri. Karlar eru nefnilega ekki einir ábyrgir fyrir samfé- lagsmótun sinni. Þeir hafa líka, eins og við, þurft að glíma við þetta ósamræmi sem er á milli hlutverksins, ímyndarinnar og fyrirmyndarinnar, þessara þriggja þátta sem eru svo — til að flækja málin enn meir — sí- breytilegir. Karlmenn verða auðvitað fyrir alveg jafnmikl- um ómeðvituðum áhrifum af glansmyndum auglýsinga og konur, en fjölmiðlar dagsins í dag segja þeim til skiptis að þeir eigi að vera stæltir og hörkulegir Marlboro-menn eða fölir og horaðir með umkomu- „En vitanlega er raunin sú að vandi karla og vandi kvenna eru tvær hliðar á sama megin- vandanum þar sem lausn annars er lausn hins. Karlréttindin hafa drukknað í umræðunni um kvenréttindi og karlar hafa kyngt mörgu beisku tári, því þeim er líkt farið og verkamanninum sem er minntur á svöngu börnin í Afríku í hvert sinn sem hann opnar munninn til að kvarta yfir sultarlaunum sínum.“ leysissvip eins og yfirgefin börn. Allir þættir eru þó sam- taka í því að hefta karlmanninn sem kynveru. Mig hryllir við ófrelsinu sem felst í þessum skilaboðum sem beint er til karlmannsins: Taktu ef þú get- ur, annars ertu náttúrulaus. Ungur vinur minn einn sagði mér sorglega sögu af sjálfum sér sem hefur leitað á huga minn oft síðan. Hann trúði mér fyrir því að sér hefði verið nauðgað á útihátíð og þegar ég innti um nánari málavöxtu sagði hann að þegar vinkona hans ein hefði boðið sig fram til persónulegri kynna hefði hann komist í skelfilega kreppu, því samfélagið hefði kennt honum að þessi væri stundin þar sem honum bæri að sýna sjálfum sér og öðrum að hann væri maður en ekki mús. Nei, karlmennskan er svo sannarlega ekkert grín. Og þá á ég ekki aðeins við einhverja óáþreifanlega tilvistarkreppu sem erfitt er að koma höndum yfir, heldur talar gallhörð töl- fræði sínu máli. Eins og fram kom í merku erindi á þessari ráðstefnu eru strákarnir í mikl- um meirihluta þeirra sem þarfnast sérkennslu og sérað- stoðar í skólum og eins eru þeir meiripartur skjólstæðinga skólasálfræðinga og barnageð- lækna. Hvað viðvíkur þeim full- orðnu eru það þrisvar sinnum fleiri karlar en konur sem fremja sjálfsmorð á aldrinum 25-74 ára og hlutfallið er mun hærra í yngri aldurshópunum. Afbrotamenn eru að miklum meirihluta karlmenn og ótíma- bær dauði er mun algengari meðal karla en kvenna. Ég hef reyndar áður heyrt þessum óhugnanlegu og óskiljanlegu tölum fleygt, en gefið vanda- málið frá mér á þeirri forsendu að karlmenn væru þá bara veikara kynið eftir allt saman. Þá gerði ég mér ekki grein fyrir því hvað skórinn kreppir illa að þessum þjóðfélagshóp sem hefur frá fæðingu þurft að skil- greina sig út frá því sem þeir eru ekki, frekar en því sem þeir eru, vegna skorts á fyrirmynd- um. Margir drengir alast upp á karlmannslausum heimilum og karlmannslausum leikskólum og kennarar á neðri stigum grunnskóla eru langflestir kon- ur. Þeir hafa því ekki aðrar fyr- irmyndir en Aksjónman og Bat- man og aðrar súperhetjur og svo auðvitað afmynduðu karl- fígúruna sem þeir sjá og heyra í sjónvarpinu. Með öðrum orð- um vita þeir ekki hvernig venjulegur karlmaður hagar sér í daglegu lífi sínu. Konur skelfa. Þær ala upp unga menn sem vita ekki hverj- ir þeir eru og þurfa jafnvel að ríghalda sér í bílinn sem síð- asta vígi karlmennskunnar. Svo horfa þær framhjá vandan- um vegna þess að þær halda því fram að þeirra vandi sé stærri. En vitanlega er raunin sú að vandi karla og vandi kvenna eru tvær hliðar á sama meginvandanum þar sem lausn annars er lausn hins. Karlréttindin hafa drukknað í umræðunni um kvenréttindi og karlar hafa kyngt mörgu beisku tári, því þeim er líkt far- ið og verkamanninum sem er minntur á svöngu börnin í Afr- íku í hvert sinn sem hann opn- ar munninn til að kvarta yfir sultarlaunum sínum. Það var því löngu kominn tími á sam- kunduna í Borgarleikhúsinu þar sem karlar komu saman með hendurnar djúpt í buxna- vösunum — strákar eru jú allt- af strákar — til að ræða sín hjartans mál í hjartans ein- lægni. Þörf hugvekja það. Sveitarstjórnarkosningar verða eftir um það bil ár og undirbúningur að hefjast hjá stjórnmálaflokkum. Eitt af því sem þarf að ákveða er hvernig stilla skal upp á framboðslista fýrir kosningarnar. Prófkjör er ein vinsælasta leið flokkanna til að ákveða upp- stillingu. HP hafði samband við Árna og Árna, sem eru báðir borgarfulltrúar í Reykjavík, og spurði þá út í kosti og galla prófkjörs. Prófkjör eða ekki prófkjör? ni Pór Sigurðsson Arni Sigfússon „Kostirnir við prófkjör finnst mér vera að það er mjög hrein- leg Ieið til þess að velja á milli einstaklinga," segir Arni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlista. „Þá fá þeir sem eiga rétt til þátttöku í próf- kjörinu, hvernig sem það er skipulagt, möguleika á að velja þá frambjóðendur sem þeir helst kjósa. Það er hægt að segja að með prófkjörum sé meira lýðræði. Gallarnir eru einkum að afar tilviljunarkennt er hvernig framboðslisti kemur út úr svona prófkjöri og það er alveg undir hælinn lagt hvernig samsetning — til dæmis milli kynja, aldurshópa og þess hátt- ar — kemur út úr prófkjöri. Það getur boðið heim þeirri hættu að það sé ekki eins breiður hópur á framboðslistanum og ef honum væri stillt upp með það að leiðarljósi að ná sem mestri breidd. Það er oft þann- ig með uppstillingar að það hefur verið legið yfir því að reyna að fá fólk úr sem flestum áttum og mikil breidd er í sam- setningunni. Þetta er ef til vill kosturinn við uppsetninguna. Gallinn við hana er hins vegar sá að þetta er tiltölulega fá- mennur hópur sem velur þessa einstaklinga.“ Efþú fengir að ráða, hvora aðferðina myndirðu velja? „Ef þú ert að hugsa um borg- arstjórnarkosningarnar á næsta ári hef ég ekki gert það upp við mig. Persónulega er mér alveg sama hvaða aðferð er viðhöfð. Mér finnst aðalat- riðið að menn í þeim flokkum sem standa að Reykjavíkurlist- anum vegi og meti kosti og galla við allar aðferðir. Það má segja að þetta sé nokkuð vandasamt með Reykjavíkur- listann, því þetta er ekki einn flokkur, þetta er bandalag fjög- urra flokka. Það gefur augaleið að þetta er nokkru vandasam- ara en ef þetta væri einn flokk- ur. Grunnurinn að þessu sam- starfi í Reykjavíkurlistanum var ákveðin jafnræðisregla, sem mér finnst persónulega mikilvægt að hafa áfram í heiðri á milli flokkanna til að tryggja að allir flokkar eigi jafna aðild að Reykjavíkurlistanum. Ef menn velja prófkjörsleið þarf að mínu mati að finna út- færslu á henni sem tryggir þetta jafnræði. Síðan þarf að tryggja að ef af prófkjöri verð- ur, þá sé hægt að hafa með ein- staklinga sem ekki eru flokks- bundnir en eru stuðningsmenn Reykj avíkurlistans. Það getur vel verið að þetta reynist allt saman mjög flókið í framkvæmd, ég hef svo sem ekki hugsað það ofan í grunn- inn, en mér finnst að minnsta kosti mikilvægt að þetta sé tryggt og ég hygg nú að allir flokkar leggi á það áherslu að jafnræði sé á milli þeirra inn- byrðis. Fyrir síðustu borgarstjórnar- kosningar var samkomulag milli flokka um hvaða sæti hver flokkur fengi á listanum og svo valdi hver flokkur sína fulltrúa með ýmsum aðferðum. Við hjá Alþýðubandalaginu höfðum prófkjör meðal flokksbundinna alþýðubandalagsmanna í Reykjavík um þau sæti sem við fengum úthlutað." Verður eitthvað svipað gert núna? „Það er ekki búið að ákveða það. Það er hins vegar búið að ákveða að setja á laggirnar samráðsvettvang þar sem fimm fulltrúar úr hverjum flokki og fimm óflokksbundnir stuðningsmenn gera tillögur til flokkanna um hvaða aðferð á að nota. Ég reikna með að sú vinna fari fram í vor og sumar.“ Hvet til prófkjörs „Ég er mjög hlynntur próf- kjöri sem aðferð til að velja á framboðslista," segir Árni Sig- fússon, borgarfulltrúi Sálfstæð- isflokks. „Við höfum ekki fund- ið lýðræðislegri leið. Hún kann jú að vera til, það er að menn velji bara um leið og þeir kjósa. En þegar verið er að byggja upp lista sem er svo boðinn fram er prófkjör mjög lýðræð- isleg leið. Það er auðvitað kost- ur að það sé ekki þröngur lok- aður hópur sem ákveður hverj- ir skuli verða frambjóðendur, ef sá hópur á að höfða til fjöld- ans. Það er sanngjarnara að fjöldinn fái að hafa áhrif á það. Gallarnir geta verið að hæfi- leikafólk skortir kynningu og er þar af leiðandi ekki metið að verðleikum og kemst ekki á list- ann. Þó má segja að eitt er að vera í pólitísku forsvari og ann- að að vera í embættislegu for- svari. Stjórnmálamaður þarf að vera þekktur. Það gengur þann- ig fyrir sig, þó svo að ég sé mjög hlynntur kenningu Lao Tse um leiðtogann: „Hann er bestur þegar minnst fer fyrir honum. Þegar leiðtoginn hefur lokið sínum störfum og gert það vel, þá segir fólkið: „Við gerðum það“.“ Hvernig það fer saman við að vera þekktur og vinsæll í prófkjöri veit ég ekki,“ segir Árni og hlær. Getur prófkjör ekki vakið úlfúð meðal þeirra sem berj- ast um sœti og þar af leið- andi skaðað flokkinn? „Ég held að enginn flokkur hafi jafnoft farið í prófkjör og sjálfstæðismenn og er hann nánast eini flokkurinn sem hef- ur verið með öflug prófkjör. Það hefur ekki reynst þannig. Ef við höfum þann þroska að geta reynt með okkur og síðan tekið því sem að höndum ber og unnið saman, þá er ekkert að þessari aðferð. Við drögum fram kosti hennar og lágmörk- um vankantana." Verður Sjálfstœðisflokkur- inn með prófkjör fyrir nœstu borgarstjórnarkosningar? „Það hefur í sjálfu sér ekki verið ákveðið. Borgarfulltrúar hafa til dæmis ekkert með það að segja. Fulltrúaráð sjálfstæð- isfélaganna ákveður prófkjör og tilhögun þess,“ segir Árni að lokum.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.