Helgarpósturinn - 07.05.1997, Page 13

Helgarpósturinn - 07.05.1997, Page 13
MtÐVIKUDAGUR 7. MAÍ1997 13 f ogaunætn Það fyrsta sem vakti athygli mína eftir að við lögðum diskinum okkar í Öskjuhlíðinni var krafturinn sem lá einhvern veginn í loftinu, öðruvísi en á öllum öðrum stöðum sem ég hef heimsótt. - Það hlýtur að vera vorið, sagði mamma. Hún er búin að lesa sér svo vel til um landið og þjóðina og er miklu betur inni í öllum hlutum en ég. Og mikið rétt, ég lagði leið mína í bæinn og komst að því að vor- ið var á vörum allra og veðrið. Fólkið var svo brosmilt og létt í spori að ég gat ekki annað en verið sammála mömmu um að það hlyti að vera vorið sem blés þeim þennan kraft í brjóst. Ég gekk meira að segja fram á stóran hóp af fríðu ungu fólki sem ég hélt að ég væri að fagna vorkomunni því þau hrópuðu og sungu, frömdu tónlist og héldu ræður. Þegar ég spurði mömmu fletti hún einhverju upp í íslandsbæk- lingnum og sagði mér að þarna hefðu verið nemendur í Menntaskólanum við Hamra- Irmin Schmidt, hljómborðsleikari Can, verður sex- tugur í þessum mánuði. Hann veltir oft vöng- um yfir þeim áhrifum sem tón- list þeirra hafi haft á framsækn- ustu bönd heims- ins; sveitir sem voru að fæðast þegar Can leystist upp árið 1978! Til- efni endurkomu Can í sviðsljósið er útkoma „Sacri- lege“, albúms sem geymir hljóðblandanir á verkum þessarar goðsagnakenndu þýsku sveit- ar. Bassisti var Holger Czukay, trymbill Jaki Liebezeit og gítarinn plokkaði Michael Karoli, sem var 19 ára þegar tíu ára saga Can hófst árið 1968. Hinir þrír voru þá allir um þrítugt og eru því á svipuðum aldri og Irrnin. Nafnið Can stendur fyrir kommúnismi (C), anarkismi og ní- hílismi. Lögin sem lentu á plötum þeirra fædd- ust upp úr hljóðversdjammi sem oft teygðist í margra klukkustunda spilamennsku. Söngvarar voru tveir á ferlinum. Sá fyrri var Malcolm Mo- oney. Hann kom í stúdíó með Irmin, byrjaði að syngja og var skyndilega orðinn hluti af grúpp- unni. Söngur hans heyrist á albúminu „Monster Movie“ frá 1969, en hann yfirgaf þá áður en árið 1970 rann upp. Japaninn Damo Suzuki var síð- ari söngvarinn. Þeir sáu hann fyrst þar sem hann lá á bæn, hélt höndum til himins og hróp- aði einhver dularfull orð. „Þarna er nýi söngvar- inn okkar,“ sagði Holger. Tónlistin var best heppnuð upp úr þessu, albúmið „Mother sky“ ‘70 og „Tago Mago“ bera því vitni. Stundum hlíð að mótmæla niðurskurði til skólanna og auknum út- gjöldum nemenda. - Það leit ekki út eins og nein mótmæli, mótmælti ég. - Ég hef ekki vitað fágaðri mótmæli, samsinnti mamma. - Ég vona að þau fái vilja sín- um framgengt, sagði ég þá, af því að fólk sem getur mótmælt án þess að vera með skrílslæti hlýtur að vera nógu fullorðið til að greina rétt frá röngu. En mamma hristi aðeins höfuðið og sagði að það væri hefð á ís- landi að námsmenn væru rang- læti beittir. - Af hverju? spurði ég. - Ætli það sé ekki af því að þeir eiga enga peninga. Fólk fær vald og réttlæti fyrir pen- inga og allt sem því finnst gott, held ég, nema kannski vor. Vorið eiga allir saman. En pen- ingar eru almáttugir. - Nú? Ertu viss um að þú haf- ir ekki farið línuvillt í þessum „Ég minnti mömmu áað þaðværi alls ekkert of seint að snúavið,við gætum farið heim eða yfir á einhverja aðra plánetu eða bara til einhvers annars lands á þessari. En hún hló bara að mér og sagði mér að vera ekki með þessar áhyggjur, þetta gæti ekki þýtt annað en það að samfélagiðværi laust við alvöru vandamál fyrst fólk- ið væri að gerasér þau upp...“ bæklingi og sért að ruglast á peningum og þessum guði sem þau eru alltaf að rífast um? - Nei, Gep minn. Ég veit al- veg hver hann er, þessi guð. Hann er eitthvað ósýnilegt sem sumir halda að sé til og sumir ekki. Annars má það nú varla heita að þau rífist um hann hér. Þú ættir að vita lætin í löndunum þar sem langflestir trúa að þessi ósýnilegi sé til. ís- lendingar eru ekki sérlega trúaðir, ég held að þau hér nagist um þetta meira sér til gamans, svona út úr leiðind- um. Þá hætti mér alveg að lítast á blikuna. Ég er ekki viss um að það hafi verið góð hugmynd hjá okkur að setjast hér að, í landi þar sem svo lítið er um að vera að fólk tekur upp á því að rífast um eitthvað ósýnilegt sér til skemmtunar. Ég minnti mömmu á að það væri alls ekkert of seint að snúa við, við gætum farið heim eða yfir á ein- hverja aðra plánetu eða bara til ein- hvers annars lands á þessari. En hún hló bara að mér og sagði mér að vera ekki með þessar áhyggjur, þetta gæti ekki þýtt annað en það að samfélagið væri laust við al- vöru vandamál fyrst fólkið væri að gera sér þau upp. Fyr- irmyndarríki þetta Island. Laust við sorg og sót. Ég gæti sjálfur séð að Reykjavík væri friðsælli og hreinni en flestar þessara sótugu borga sem við höfðum heimsótt á ferðum okkar. Henni tókst hérumbil að sannfæra mig en lít- il hugsun bærði á ser í höfðinu, feimin og mjóróma, að ef til vill ætti fólkið sér ein- hver önnur vandamál en sorg- ina og sótið og þess vegna byggi það til dramatíska leik- þætti um eitthvað sem skipti það í raun ekki svo miklu máli. Eg er til dæmis alltaf fljótur að skipta um umræðuefni þegar mamma segir að það sé kom- inn tími til að fara í bað. Það er gott að vera hreinn en það er bara svo leiðinlegt að fara í bað. Ég mótmælti samt ekki meir veru okkar hér, því eins og ég hef þegar minnst á er mamma mun betur upplýst um þetta allt saman en ég. Ég hlýt að komast að því fyrr eða síðar hvort okkar hefur rétt fyrir sér. virðist sungið á ensku, frönsku eða þýsku en í rauninni er um að ræða einhverja óþekkta mál- lýsku aftan úr grárri forneskju. Éftir tímamóta- plötuna „Ege Bam Yasi“ og „Future days“ hætti Japaninn og gerðist vottur Jehóva árið 1973. Fjórmenningarnir héldu áfram til ársins 1978 og áttu eitt lag á topp 30 í Bretlandi 1976, „I want more“. Can hætti en allt í mestu vinsemd. Áhrif Þjóðverjanna á síðari tíma tónlistarmenn finn- ast víða. Þar má nefna lag Stone Roses „Fools gold“ og Happy Mondays-lagið „Hallelujah“. Blur stela síðan hreinlega trommuleik Jaki í lagi sínu „Popscene". Fall og Julian Cope eru líka dæmi um listamenn sem eru undir sterkum áhrifum. Orb, Carl Craig, Brian Eno, Sonic Youth og aðrir þakka síðan fyrir sig með vinnu sinni við remix-plötuna, sem kemur út 12. maí. Gary Stringer er söngpípa hljómsveitarinnar Reef. Fyrsta bandið til að hrista upp í hon- um á táningsárunum var AC/DC. Á þessum aldri var hann farinn að syngja í hljómsveit og á efn- isskránni var t.d. tónlist áður- nefndrar rokksveitar. í þrjú ár var hann á heimavistarskóla ásamt Jack Bessant, núverandi bassaleikara Reef. Um tíma voru þeir saman f grúppu sem hét Big Talk. Stringer komst þá í kynni við No Smoke frá Glastonbury. Trommuleikari var Paul Winterheart (Kula Shaker). Stringer, Wint- erheart og Bessant stofnuðu með ónefnd- um gítarleikara grúpp- una Chief, sem lifði í nokkra mánuði. Stringer, Bessant, Kenwyn House (gítar) og Dominic Greensmith á trommur (núverandi liðskipan Reef) komust á samning hjá Sony árið 1994 undir nafninu Naked með demóupptökurnar „The Purple tape“. Reef varð síðan til þegar Sony vildi annað nafn á bandið. Fyrsta smá- skífan, „Good felling", náði 24. sæti í mars 1995. Frum- burðarplatan „Replenish" skilaði sér í níunda þrep síðar sama ár með 70.000 eintaka sölu á Bretlandi. í október sl. fór singull þeirra „Place your hands“ í 6. sæti, en hann er að finna á annarri plötu Reef sem þaut beinustu leið á tind breska breiðskífulistans fyrr á árinu.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.