Helgarpósturinn - 07.05.1997, Side 14

Helgarpósturinn - 07.05.1997, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ1997 14 Bókmennta Knattspyrnuvertíöin á Fróni er að hefjast og vormisseri háskólans að Ijúka. GertFröbe veltir fyrir sér klassísku álitamáli. fræðingar, Húsavíkur töffarar og fótbolti Maður spurði mig, um daginn, af hverju bók- menntafræðingar væru svona mikið á móti fótbolta. Ég gruflaði soldið og svaraði því til að af lærum þeirra bók- menntafræðinga sem ég hefði fyrirhitt og séð að dæma gætu þeir ekki verið svo mikið á móti fótbolta, því þeir hafa svokölluð „fótboltalæri“. Manni þessum sagðist vera drullusama um læri bók- menntafræðinga — sér bara skildist á bókmenntafræðing- um og öðru bóklærðu fólki að það liti niðurá íþróttir. Ég kveikti á perunni — mað- urinn var ekki bara að tala um einhvern einangraðan og ein- stakan fjandskap á milli bók- menntafræðinga og fótbolta — hann var að tala um skipting- una í hið andlega og líkamlega. Tvo tjá- og samskiptahætti mannsins; barbarann sem bandar höndum og mímikkar það sem hann vill til skila koma (líkamlegur) og hinn sí- viliseraða sem hefur samskipti við aðra gegnum; fyrst hugsuð og skipulögð orð, síðan fram af munni mælt (andlegur). Tveir eru þeir sem hvað mest hafa skaðað hina eðlis- lægu leik- og ærslgleði mann- eskjunnar. John Hughes og Rodion Romanovitjs Ra- skolnikof. Hin íslenska íþrótt hefur þurft að sjá á eftir mörg- um gerðarlegum lærum í skolt- inn á þeim. Dostójevskí skapaði stereó- týpu hins eilífa bóhems; svita- storkinn, kaffibelgdur, van- nærður, kann aðminnstakosti þrjúeðafjögur tungumál önnur en móðurmál sitt, megalóma- nískur, (oftlega) rauðhærður og á hérumbil aldrei pening. Þennan bóhem þekkja allir og því óþarfi um hann að fjalla. En ef einhver vill finna hann í fjöru og fiðra hann uppúr tjöru, þá vísa ég á kaffikrá í efrihluta Kínahverfis. Fyrir bókmenntafræðingum er aðeins um tvö ímyndarleg hlutverk að velja — annað- hvort ertu Húsavíkurtöffari eða Raskolnikof. Það sem valið er ræður síðan ekki aðeins því hvernig þú klæðist, heldur einnig hvað þú leggur fyrir þig sem ævistarf og stöðu. Þá meina ég að antisportistinn og bóheminn ákveður að verða antisportisti og bóhem áðuren hann ákveður að verða bók- menntafræðingur. Alls ekki öf- ugt! En eftir að valið er verður ekki tvístigið. Það er staðfest! Ég átti tal við Sigríði Dögg Auðunsdóttur, bókmenntafræðing og nem- endaráðgjafa bókmenntafræði- deildar HÍ, og hún sagði mér að það væri algengt að krakkar í bókmenntafræði settu sig í ákveðnar stellingar. Þó væri reginmunur á kynjunum í þessu efni. Meðan strákarnir væru allir klæddir tötralegum leðurjökkum, sídrekkandi kaffi og reykjandi og væru yfirlýstir antisportistar væru stelpurnar opnari. Stelpurnar fylgdu eng- um ákveðnum straumum og stefnum í fata- og lífsstíl og væru ekkert yfirlýstari anti- sportistar en hverjir aðrir. Fatastíll er algerlega gegn- sær þegar að þessu snýr. Lín- an er dregin gegnum bláar gallabuxur og hvítan nærbol mót svörtum gallabuxum og brúnum/svörtum leðurjakka. Ég átti ennfremur tal við ófag- lærðan bókmenntafræðing sem aukþess að nema rúss- nesku og lögfræði hefur unnið sem flugfreyja. (Viðkomandi vill ekki láta nafns síns getið sökum vensla sinna við Fót- boltaklúbb íslands.) Hún sagði mér að fólk veldi sér náms- brautir í Háskóla íslands í sam- ræmi við þann lífsstíl sem það vildi lifa samkvæmt. Ef þú vilt vera „cleancut“, svokallaður Húsavíkurtöffari (bláu galla- buxurnar og hvíti nærbolurinn toppuð með penri herraklipp- ingu), þá ferðu í hagfræði eða viðskiptafræði í HI og eyðir kvöldunum á Kofa Tómasar frænda. (Þess má geta að sub- skilgreiningar Húsavíkurtöff- ara eru tvær; íþróttauppar og plein uppar.) Ég spurði viðkomandi ófag- lærðan bókmenntafræðing að því hvort hann yrði var við kynjaskiptingu á heimili sínu þegar kærastinn horfði á fót- bolta í sjónvarpinu. Hún sagði mér að tilað byrja með hefði sér fundist einsog hún væri að impósa á strákana þegar hún settist með þeim fyrirframan sjónvarpið á laugardagseftir- miðdögum. En það hefði vanist og kannski helst vegna þess að það væri sjaldnast mikill magnsmunur á þynnku hennar og þynnku strákanna. Aðspurð að því hvort fótboltaáhorf hennar væri gert kleift af nefndu líkamsástandi svaraði hún: „Maður er ekki búinn að ná sér uppá eðlilegt andlegt plan og því vel til fundið að horfa á fótbolta." Einnig tengist þetta, að því er Sigríður Dögg Auðunsdóttir sagði mér, kynjaskiptingunni í íþróttum og þá sérstaklega í fótbolta. Samkvæmt bók- menntafræðilegri skilgreiningu er fótbolti (og þá aðallega í sjónvarpi) mjög karllegur. Sjónvarpsútsendingar frá fót- boltaleik eru það eina sem karlinn á eftir af prívatdægra- dvöl sinni innan veggja heimil- isins, þannig að það skýtur all- skökku við þegar konan fer að ryðjast inní það vé karlmanns- ins. Þegar, og ef, það gerist þá er ekkert fyrir karlinn að gera nema fara útá Rauðaljónið og horfa með hinum köríunum á fótbolta á vídeóskermi. John Hughes var afturámóti ábyrgur fyrir hinum alræmdu ullarpeysugengjum — hvers meðlimir eru í dag, flestir sem einn, bókmenntafræðingar. Pretty in Pink, The Breakfast Club og Weird Science. í hlut- verkum Jons Cryer, Judds Nelson, Anthonys Michael Hall og Ilans Mitchell-Smith í þessum myndum finnum við vísinn að bókmenntafræðingi nútímans. Antisportisti gær- dagsins er bókmenntafræðing- ur dagsins í dag. f myndum Johns Hughes er gerður skýr greinarmunur á andlegum og líkamlegum. í Pretty in Pink er Jon Cryer flippari, spjátrungur og „ókynferðislegur“ karllegur mentor aðalpersónunnar, sem er stúlka.l í The Breakfast Club eru tveir antisportistar — Anthony Michael Hall sem er þögult stærðfræðinörd — þög- ult vegna þess að átroðsla sportistanna hefur gert hann einrænan og að meðveggjum- gengli. Það kemur þó í ljós að hann er gæddur mikilli póst- módernískri kímnigáfu, þegar uppkemst að hann kann að búa til sprengjur. Hinn anti- sportistinn er Judd Nelson — James Dean níunda áratugar- ins. Pabbi hans slekkur í vindl- um á framhandleggjum sonar síns og Nelson finnst fótbolta- íþróttir hommalegar. 2 „You are tearing me apart“ bjrtist hérna í sinni fullnuðustu mynd — antisportistinn er að hluta- til þaðsem hann er vegna þess að hann er að rifna í sundur milli síns sundraða og óviðun- andi heimilislífs og þeirrar kröfu sem skólakerfið gerir til hans um að hann sé alltaf hreinn og beinn og einsog allir hinir. Anthony Michael Hall birt- ist síðan aftur í Weird Science og er svo mikill antisportisti að hann verður að búa sér til konu úr tölvutengdri barbí- dúkku og þrumum. Hall og fé- lagi hans Mitchell Smith eru pyntaðir, kúgaðir og undirok- aðir af íþróttamönnunum í kringum sig og líka bróður annars þeirra (Bill Paxton í Glenn Close nýtur þess greinilega að túlka klækja- kvendið Cruellu DeEvil. 101 Dalmatíuhundur Fiölskyldu- skemmtun ★★★ Aöalhlutverk: Glenn Ctose, Jeff Daniels og Hugh Laurie Leikstjóri: Stephen Herek Hin sígilda Disney-teikni- mynd hefur verið endurgerð fyrir kvikmyndaformið og einnig staðfærð. Núna er eig- andi annars hundsins ekki lengur tónskáld heldur tölvu- leikjahöfundur sem á erfitt með að selja afurð sína. Eftir snögg kynni af konu sem á það sameiginlegt með honum að eiga dalmatíuhund tekur iíf hans nýja stefnu. Eftir að stofnað hefur verið til hjóna- bands fer illa innrættur feld- safnari (sem hefur sérstakt dá- læti á deplum) að nafni frk. DeVil að ágirnast hvolpa sem fæðast inni á heimili hinna ný- giftu hjóna. Svo fer að lokum að hún beitir óþokkabrögðum til að komast yfir hvolpana en verður söguþráðurinn ekki rak- inn frekar að sinni... Leikstjórn Stephens Herek er vandvirknisleg og í stíl við upprunalegu teiknimyndina án þess þó að vera einungis eftir- prentun. Bófunum er til dæmis gefið aðeins meira pláss í atburða- rásinni og nýjum persónum er bætt við. Leikarar standa sig flestir prýðisvel og er myndin hin frambærilegasta fjöl- skylduskemmtun. Jágarna Sænskur óhugnaður ★★★ Sögusvið þessa sænska spennutryllis er smábær í Sví- þjóð þar sem veiðiþjófnaðir eru orðnir ískyggilega algeng- ir. Fyrrverandi íbúi bæjarins, Iögregluþjónn að nafni Erik, kvíkmyndir Ari Eldjárn skrifar Liar, Liar! Lög- manns- raunir ★★ Aöalhlutverk: Jim Carrey Leikstjóri: Tom Shadyac Jim Carrey er mættur til leiks í sinni bestu mynd síð- an hann lék í Ace Ventura: Pet Detective. f þessari mynd leik- ur Jim ískyggi- lega lyginn lögmann sem kemst í hann krappan þegar son- Gúmmífésid Jim Carrey á góða spretti í Lyg- aranum. lur hans óskar jsér þess að Ipabbi sinn fgæti ekki logið ! einn dag. Því rmiður fyrir lög- rfræðinginn rætist "þessi ósk og það ein- mitt á degi þegar hvað mest liggur við. Ófan á það bætist að sambandið við soninn er farið að versna og fyrrverandi frúin íhugar að flytja til Bost- on. Á einum degi tekst Jim á við ótal erfiðleika, þar á meðal unga ótrúa eiginkonu í víga- hug, tilvonandi fósturpabba fyrir son sinn og stjórnsaman yfirmann með afar einkenni- Iegt skopskyn. Tom Shadyac leikstýrir þessari mynd en hann leik- stýrði einmitt fyrri Ace Vent- ura-myndinni og tekst honum að skila sínu á bara þó nokkuð skemmtilegan hátt. Samt er það gúmmífésið hann Carrey sem heldur myndinni með fá- ránlegheitum og grettum. ákveður að flytja aftur heim í hús sem hann og bróðir hans fengu í arf. Brátt fer að koma í Ijós að ekki er allt með felldu í litla bænum. Enginn virðist vita neitt um þjófnaðinn eða vilja vita neitt um hann. Hvert sem Erik snýr sér virðist hann mæta mótlæti, enda bærinn lítill og sitthvað hefur breyst síðan hann hafðist þar seinast við. Myndin er mjög óhugguleg á köflum og grimm en jafnframt spennandi og vel gerð. Leikstjór- inn beitir alls- konar tækni við að halda manni spenntum og hendir öðru hverju í mann svolitlum við- bjóði til að halda manni við efnið. Ansi góð spennu- mynd. Helena Bergström leikur í sænsku spennumyndinni Veiðimönnunum. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ1997 15 minnisstæðu hlutverki), sem er hermaður. (Þá verð ég að koma því að, að samkvæmt kenningum Blöndals og Darw- ins eru hermenn mjög líkam- legir. Þeir falla því óhjákvæmi- lega í flokk með andstæðingum antisportista.) Það er mjög skemmtilegt ele- ment í Weird Science, að þegar nördarnir hljóta loks náð hjá sportistunum þá er það fyrir tilstilli tölvutækninnar. Eftirað þeir skapa hina fullkomnu konu (Kelly LeBrock), með hjálp tölvu, vilja allir koma í partí til þeirra og þeir eignast alvuru, úrmóðurkviðirunnar, kærustur. Því hefur verið fleygt að upp- runa antisportista og bók- menntafræðinga tíunda ára- tugarins megi rekja lengra aft- ur, eða til myndarinnar Grease árið 1978 — á þeirri forsendu að hið antisportíska element í Travolta og félögum hans sé jafnvel enn sterkara en í mynd- um Johns Hughes. Ef útí slíkan sagnfræðifasisma væri farið yrði hinsvegar ekki aftur snú- ið, því mótórhjólagengið í Gre- ase á sér hliðstæður margar aldir aftur í tímann. Tilað byrja með í The Wild One með Marl- on Brando árið 1953, Dennis Hopper og Peter Fonda í Easy Rider 1969 og að lokum Gengis Kan og riddurum hans á 13. öld. Aukþess heldur röksemd byggð á antisportisvisma Johns Travolta ekki vatni þeg- ar Travolta byrjar að dansa. Hérna verðum við eiginlega að gera stuttan stans tilað út- skýra það að antisportinn er ekki bara einhver sem er and- vígur íþróttum og eða iðkun þeirra. (Annars væru áður- nefnd læri bókmenntafræð- inga óútskýranleg.) Og það- sem meira er; antisportistinn getur verið mjög líkamlegur. Nægir þá að nefna Bubba Morthens, Rúnar Júl., Salva- dor Dalí, Emest Hemingway, García Lorca og Luis Bunuel. (Allir hérnefndir, utan Rúnar sem var Iandsliðs- kandídat í knatt- spyrnu, voru og eru praktíserandi box- áhugamenn.) Anti- sportistar (eða öllu heldur antisportistar með kenningu — skmst. a.m.k.) gera hinsvegar greinarmun á eðlislægri íþrótt manneskjunnar annarsvegar og hinsvegar því kapítalíska tilbrigði við hana sem við bú- um við í heimi nútímans. Hin kapítalíska hlið íþrótta hefur, í áraraðir, snúið meira að hóp- formi þeirra — þó þversagnar- kennt sé, og ber hæst við þar- sem pólítísk gæfa og velund rennur í eitt með íþróttalegri velgengni. Þá er ég að tala um þá hneisu að það skuli skipta máli, bæði fyrir úrslit íþrótta- keppna hvaða pólítiska flokki keppendur tilheyra og líka í stjórnmálum þarsem mönnum er vísað til sætis eftir því hvaða íþróttafélagi þeir eru í. íþróttirnar eru því jafnmikill stökkpallur fyrir pólitíska framapotara og pólitíkin fyrir þá sem ætla á toppinn í íþrótt- um. Antisportistinn vill því oft, í samfélagslegum anarkisma sínum, draga sig útúr íþrótt fjöldans og stunda hana fyrir sjálfan sig. Hér birtist hin eftir- tektarverða kapítalíska hlið anarkistans — hann skellir skollaeyrum við framrás hóps- ins í átt að kollektívum yfir- burðum og einbeitir sér að því að bæta sjálfan sig. En svo við snúum aftur að ullarpeysugengjunum og tengslum þeirra við John Hug- hes, þá varð þeirra fyrst vart í Rvík á árunum ’91-’92. Það voru krakkar á aldrinum 17 og 18 ára. Voru sumsé 11 ára þeg- ar The Breakfast Club og We- ird Science voru í bíóhúsum. Ári eldri þegar Pretty in Pink kom. Augljóslega á sínu mót- tækilegasta skeiði. Ullarpeysu- gengin voru hópur krakka sem vildi aðgreina sig frá fjöldan- um. Fjöldi í þessu samhengi var því hópur, samansettur úr mörgum einstaklingum svo lík- um innbyrðis að úr varð ein ósundurgreinanleg heild. Hóp- ur annarra krakka snoðklippti sig og dró gömlu sumarsveita- ullarpeysurnar fram tilað að- greina sig frá þeim. Á stefnu- skrá ullarpeysugengjanna var, fyrirutan antisportivisma, að halda í heiðri gamla íslenska siði einsog t.d. brennivíns- drykkju 3. Nú, og pójntið; takið einn meðlim ullarpeysugengis pg færið hann í leðurjakka. Út- koman; karlkyns bókmennta- fræðingur. 1 Þama birtist þema sem siðar varð að gegnumgangandi heimspeki i amrískum til- finningamyndum. Þ.e. homminn sem er spi- ritúell leiðsegjarí kvenna. Kenningin var sú (sett fram i heild sinni fyrst í When Harty Met SallyI, að kona og kari geti aldrei haft einlæg og eðlileg samskipti sökum þeirrar kynferðislegu spennu sem eðli þeirra innræt- ir þeim. Það varð því að regfu að ef sýnt þótti að kvenpersóna í kvikmynd þurfti á einhverskonar heimspekilegri forsjá að halda, þá var hún látin eiga homma fyrir vin. Þessum homma gat hún sagt alK — og það vegna þess að á miili þeirra var engin kyn- ferðisleg spenna. N.B. Jon Cryer var þó ekki hommi i Pretty in Pink. 2 Sem minnir okkur á annan frægan anti- sportista; Orm Óðinsson úr bókinni Gauragangur. Ormur þessi hefur þá kenn- ingu um brúður sinn, handboltamanninn, að hann sé bara í íþróttinni tilað geta klipið í punginn á öðrum strákum. 3 flftur sjást tengsl Johns Hughes við Orm Öðinsson. Stefnuskrá ullarpeysugengj- Því hefur verið fleygt að upp- runa antisport- ista og bók- menntafræðinga tíunda áratugar- ins megi rekja lengra aftur, eða til myndarinnar Grease árið 1978 — á þeirri forsendu að hið antisportíska element í Travolta og félögum hans sé jafnvel enn sterkara en í myndum Johns Hug- hes. Ef útí slíkan sagnfræðifasisma væri farið yrði hinsvegar ekki aftur snúið því mótórhjólagengið í Grease á sér hliðstæður margar aldir aftur í tím- The Wild One með 953, Dennis og Peter Fonda í Easy Rider og að lokum Gengis Kan og 13. öld. Aukþess byggð á anti- sportisvisma Johns Travolta ekki vatni þegar Travolta byrjar að dansa. Fjörukráin fullvaxin á X ára afmælinu Sjö ára afmæli Fjörukráarinnar við Strandgötu í Hafnarfirði verður fagnað 10. maí næstkomandi með viðeigandi hátíðahöldum. Þann dag verður nýbygging formlega opnuð, glæsilegt tvílyft langhús, sem tengist húsaþyrpingunni sem fyrir er. Þar með er lokið þeim framkvæmdum og breytingum sem hafa verið að líta dagsins ljós smátt og smátt frá upphafi. Má því segja að Fjörukráin sé loks orðin fullvaxta og það aðeins á sjöunda afmælisdeginum. í nœsta húsi við Fjörukrána - í Smiðjunni við Hamarinn- verður á afmœlinu opnað handverkshús víkinga. Afmœlishátíð Fjörukráar- innar verður opin gestum og ganganáifrá kt 22, laugaráagskvöláið 10. maí og hvetjum við velunnara nœr ogfjcer að líta inn. ———■ I !■ —————— Strandgötu 55 • Hafnarfirði Sími 565 1213 & 565 1890

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.