Helgarpósturinn - 07.05.1997, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ1997
1 19
ENSKI BOLTINN
íþróttir
Sigurdur Agústsson
sknfar
- og ansi langt frá því. Eitt afþví fáa sem er öruggt er að Nottingham Forest fellur og líklega Coventry líka.
Hvert þriðja liðið verður, hverjir verða meistarar og hverjir komast í Evrópukeppnina er ekki enn Ijóst og
skýrist jafnvel ekki fyrr en í síðasta leik.
Undirritaður hefur reyndar
Iöngum sagt — og það er
enn og aftur að koma í ljós —
að ekki er hægt að bóka neitt í
enska boltanum. Manchester
United er búið að gera tvö
jafntefli, gegn kjallaraliðunum
Leicester (2-2) og gegn Boro
(3-3), og leikur gegn Newcastle
8. maí og gegn West Ham, sem
rúllaði yfir Sheffield Wed. 5-1, í
seinasta leik. Newcastle er
einnig á feikilegri siglingu og á
fræðilega möguleika á titlinum.
ÞREYTA OG STREITA
Síðustu tveir leikir United
verða því mjög erfiðir og það
má vel sjá á hinu firnasterka
liði United að af því er dregið,
enda mikið álag búið að vera á
leikmönnum þess í rétt tæpan
mánuð. Erfiðir Evrópuleikir,
deildarleikir sem tóku á og síð-
ast en ekki síst nýafstaðin
landsleikjahrina og í kjölfarið
fjórir leikir á rétt rúmri viku. Ef
liðið vinnur titilinn með allt
þetta á móti sér verða jafnvel
hatrömmustu óvinir liðsins að
viðurkenna mátt þess og meg-
in. Það er enn ótrúlegra en ella
að lið sem kaupir tvær stjörn-
ur og getur hvoruga notað
skuli vera jafn ofarlega og raun
ber vitni. Þeir markabræður
Cruyff og Poborsky hafa verið
næstum jafn heilladrjúgir og
John „Faxe“ Jensen var hjá
Arsenal. Manchester-manna
bíða nú verðug verkefni og
eins og Alex Ferguson segir er
þetta spurning um sigurvilja
og hann hefur ekki vantað,
eins og sést best á því að ör-
þreytt liðið vinnur upp tveggja
marka forskot Leicester og
Boro.
Það er áhyggjuefni fyrir Alex
Ferguson hvað vörn United
hefur fengið mörg mörk á sig
að undanförnu. Það er ekki
góðs viti fyrir United ef vörnin
er að klikka, því 8. maí mæta
Alan Shearer og félagar á Old
Trafford. Shearer hefur verið í
miklu stuði eftir að hann byrj-
aði að spila eftir meiðslin og
það verður að teijast líklegt að
hann valdi margfrægum usla í
vörn United. Ferguson segist
vita af vandamálinu og telji sig
hafa lausn á því. Varla efa það
margir. Árangur Fergusons tal-
ar sínu máli.
SÆTI I MEISTARA-
DEILDINNI OG
KANNSKI TITILL
Liverpool er enn í baráttunni
og það lið sem er líklegast til
að vinna ef United-maskínan
hikstar meira. Sem stendur er
liðið næsta öruggt með sæti í
meistaradeild Evrópu, en tvö
efstu liðin í deildinni komast
þangað. Liverpool á eftir tvo
leiki eins og United; gegn Wim-
bledon og Sheffield Wed. Báðir
leikirnir eru útileikir. United
má ekki vinna fleiri leiki, en tvö
jafntefli Manchester-manna
ættu að færa Liverpool titilinn
að því tilskildu að þeir klári
sína leiki. Roy Evans, stjóri Li-
STAÐAN
Roy Keane (the
human dynamo)
skoraði gegn Boro,
Beckham og Can-
tona samfagna
honum hér.
Gordon Strachan, það er ljóst.
Annars hafa Coventry-menn á
undraverðan hátt forðast fall
mörg undanfarin ár og annað
lið sem hefur oftar en ekki
bjargað sér á undraverðan
hátt, Southampton, spilar gegn
Aston Villa í síðustu umferð-
inni. Villa leikur án Steves Sta-
unton fyrirliða og ætli það
verði ekki Le Tissier sem
tryggir áframhaldandi veru
dýrlinganna í deildinni.
Nýkrýndir Kókbikarmeistar-
ar Leicester eiga eftir tvo leiki,
gegn Sheffield W. og Black-
burn, og verða að teljast líkleg-
ir til að sleppa við fall. Sérstak-
lega ef taka á mið af síðasta
leik þeirra. Marskálkurinn Ian
Marshal heldur áfram að gera
góða hluti. Hann er allur annar
eftir að permanent-apecuttið
vék fyrir drengjakollinum.
(Hvað er hann eiginlega gam-
all??)
Blackburn og Everton hafa
spilað illa í vetur og eru ennþá
í botnbaráttu. Geta vel fallið ef
þau passa sig ekki. Blackburn
er þó með 41 stig og á tvo leiki
inni og telst liðið því hólpið.
Boro-menn sýndu og sönnuðu
gegn United að þeir eru klassa-
lið og það eina í kjallaranum
sem sparkfræðingar eru sam-
mála um að ætti að vera mun
ofar. En það eru stigin sem
gilda en ekki hælsendingarnar.
Leikur Boro gegn Blackburn
verður án efa hörkuslagur og
svo eiga þeir að leika gegn
Leeds, sem siglir áhyggjulaust
um miðja deild. Fabrizio Ra-
en hefur verið óstöðugt og
dottið niður á köflum. Liðið
spilar þó yfirleitt alltaf vel
gegn Liverpool. Rautt spjald
Davids Hirst kemur ekki til
með að ráða úrslitum í leik Li-
verpool og Sheff. Wed. Sheffi-
eitt þegar fallið. (Farvel Stuart
Pearce). Þetta segir meira en
mörg orð um hversu spenn-
andi og skemmtileg enska
deildin er. Coventry er mjög
líklegt til að fylgja sömu leið og
þá mun eitthvað heyrast í
Einnig hægt að senda til Henson, Brautarholti 8, pósthólf 1015.
Símbréf 562-6499
vanelli meiddist gegn United og
ekki er enn víst hvort hann spil-
ar meira með á leiktíðinni. Gæti
jafnvel misst af bikarúrslita-
leiknum á Wembley gegn Chels-
ea. Annars virðist heppnin vera
gengin í lið með Boro (kominn
tími til segja sumir); liðið fékk
vítaspyrnu gegn Aston Villa á
síðustu mínútu leiksins og gerði
jafntefli gegn United.
Enn er eftir að minnast á eitt
lið; Sunderland. Sunderland
hefur alla burði til að verða
næsta stórlið enskrar knatt-
spyrnu; nægt fjármagn og góð-
an efnivið. Liðið má bara ekki
falla að svo stöddu. Þegar liðið
var komið í standandi vandræði
var hringt í gömlu kempuna
Chris Waddle og hann hefur
sko sýnt mönnum að hann hef-
ur engu gleymt. Hann er bara
örlitlu seinni en hann var —
ekki það að hann hafi verið nein
píla. Waddle hefur leikið eins og
herforingi hjá Sunderland, skor-
að og verið iðinn við að mata
samherja sína á frábærum
sendingum. Lið með Krissa
gamla innbyrðis á ekki skilið að
falla
verpool, hefur sagt sínum
mönnum að hugsa bara um að
klára þá leiki sem eftir eru og
sjá hversu langt það skilar lið-
inu. Sigur liðsins gegn Totten-
ham var sannfærandi og bæði
vörn og markvarsla virtust í
góðu lagi. Wimbledon er eins
og alltaf spurningarmerki. Lið-
ið er sterkt og á góðum degi
vinnur það hvaða Iið sem er,
eld hefur spilað mjög vel síð-
asta mánuð og á möguleika á
Evrópusæti. Liðið tapaði stórt
fyrir West Ham og verður búið
að taka út reiði sína áður en Li-
verpool kemur í heimsókn.
STÓRSPENNANDI í
„KJALLARANUM“
Það eru átta lið í fallhættu og
Lið Leikir u J T Mörk Mörk Stig
(skorl (á sigl
Man Utd 36 20 11 5 74 44 71
Liverpool 36 19 10 7 60 34 67
Arsenal 37 18 11 8 59 31 65
Newcastle 35 18 9 8 68 40 63
Aston Vilia 37 16 10 11 46 34 58
Chelsea 37 15 11 11 56 54 56
SheffWed 36 14 14 8 49 49 56
Wimbledon 36 13 11 12 46 45 50
Tottenham 37 13 7 17 43 49 46
Derby 37 11 13 13 44 55 46
Leeds 37 11 12 14 27 37 45
Everton 37 10 12 15 43 55 42
Blackburn 36 9 14 13 40 39 41
Southampton 37 10 11 16 50 55 41
West Ham 36 10 11 15 39 46 41
Leicester 36 10 11 15 41 52 41
Sunderland 37 10 10 17 35 52 40
Coventry 37 8 14 15 36 53 38
Middlesbrough 36 10 10 16 50 59 37
Nottm Forest 37 6 16 15 31 54 34
Gordon Banks welcomes you to join the unique club that works for
all who care about the world’s No. 1, sport regardless where you live
When entering you receive a beautiful personalized plaque, pln, sticker and
membership card that can make á dífference to you as a fan, player,
manager or referee.Endorsed by some of tne wonds greatest soccer
personalities.
I enclose cheque/PO for US$ 75.00 made payable to W.S.S.C. or debit
Card no.:
Name:
_ Exp. Date:
_Date of Birth:
.Country:_____
Please allow 28 days for dellvery from recelpt ol entry ___
W.S.S.C Oakridge House, Welllngton Road, Cressex Ind. Estate,
High Wycombe, Bucks HP12 3PR, England Fax 44-1494-461456
Signature