Helgarpósturinn - 07.05.1997, Síða 22

Helgarpósturinn - 07.05.1997, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ1997 am X Rómantík AUDEN Auden Richard Davenport-Hines Minerva 1996 Ævisaga Audens loksins á bók Áriö 1995 kom út ævisaga eins merkasta Ijóöskálds Breta á öldinni, W.H. Auden, eftir Ri- chard Davenport-Hines. Sögu Audens haföi veriö beöið um nokkurt skeiö en sú biö borgaði sig því bókin um Auden er í alla staöi vel heppnuö. Ltfshlaup Audens var langt og litrikt, hann fæddist í Birmingham áriö 1907 þar sem hann ólst upp og hlaut ágæta menntun. Auden var aðeins tvítugur þegar hann ákvaö aö leggja Ijóölistina fýrir sig. Á langri ævi skilaöi Auden gríöarlegu dagsverki. Hann var óhemju ötull rithöfundur og sagö- ist reyndar ekki lifa daginn af ef hann skrifaöi ekki eitthvað, þá skipti ekki máli hvort þaö væri gott eöa lélegt, hann yröi bara aö skrifa. Aödáendur Ijóöa Audens hafa stundum kvartaö yfir því aö skáldiö leggi ekki mikiö úr eigin lífi til skáldskaparins. Þeir hinir sömu ættu aö gleöjast yfir þess- ari bók, því Davenport-Hines not- ar Ijóö, leikrit, ritgeröir og gagn- rýni, bæöi eftir skáldiö og aöra, og útkoman veröur heilsteypt og heillandi saga. Talsvert er fariö út í samkynhneigö Audens en hann þótti afar opinskár í þeim málum og hneykslaöi jafnvel sína eigin vini á stundum. Bókin er 406 síður, fæst hjá Máli og menningu og kostar 1.595 krónur. ARTttUK tf CLARKE ZZD lllí MrQIIAY W' Richter 10 Arthur C. Clarke og Mike McQuay Bantam Books 1997 Tíu á Richter Sá stóri er í aösigi og aöeins jaröskjálftafræöingurinn Lewis Crane getur sannaö þaö. Hann hefur unniö aö því í langan tíma aö þróa einstaka aöferö til aö sjá fyrir jaröskjálfta. Hann einn veit hvenær sá stóri, eöa Richter 10 eins og hann kýs aö kalla hann, kemur til meö aö skekja jöröina. Lewis Crane veit líka hvemig koma má í veg fyrir jaröskjálft- ann. En hver mun trúa honum í verðld sem er stjórnað af kín- verskum risafýrirtækjum; og svo eru sumir sem vilja ekki fýrir nokkurn mun hindra skjálftann vegna þess aö hann sé verk al- mættisins. Þaö er illa komiö fyrir Lewis Crane, hann hefur glataö fjöl- skyldu sinni, besta vini og mann- oröinu. En uppgjöf er ekki til í oröabók Lewis Crane því ef hann gefst upp veröur heimurinn aldrei samur á eftir. Svo hljóðar sögu- þráöur vísindaskáldsögunnar Richter 10 eftir þá félaga Arthur C. Clarke og Mike McQuay. Mike McQuay skrifaöi á fjóröa tug skáldsagna á ferli sínum, þar á meöal Puppetmaster. Báöir höf- undarnlr eru margverölaunaöir í bókmenntaheiminum. Mike McQay entist ekki aldur til þess aö sjá velgengni bókarinnar Richter 10, því hann lést skömmu eftir aö handrit hennar var fullbúiö. Bókin er 407 síöur, fæst hjá Máli og menningu og kostar 975 krónur. Alvara A móti cignnriinkli yfímianna sinna...! Það kom undirrituðum satt að segja ákaflega mikið á óvart, að langstærstur hluti ís- lenzkra blaða- og fréttamanna skuli telja það vonda þróun, að fjölmiðlar á íslandi séu í eigu örfárra manna. Þessi afstaða stéttarinnar, sem kynnt var um liðna helgi, kom mér veru- lega á óvart af mörgum ástæð- um. Ein ástæðan er einfaldlega sú, að eigi ófáir þeirra, sem tóku þátt í viðhorfskönnun- inni, starfa einmitt á fjölmiðl- um, sem eru í eigu marg- nefndra fjölmiðlakónga. Þeim er illa við að starfa við þær kringumstæður, sem þeir þurfa samt að búa við. Niður- stöður viðhorfskönnunarinnar má lesa sem svo, að lunginn úr blaðamanna- og fréttamanna- stétt hafi verið að kveða upp mjög alvarlegan dóm yfir eig- endum vinnustaða sinna. Aðalástæðan fyrir undrun minni er þó sennilegast sú, að þróun eignarhalds á fjölmiðl- um hérlendis hefur hægt, en örugglega, verið að færast á fárra hendur um margra ára bil. Árið 1994 birti Samkeppn- isstofnun úttekt á eignatengsl- um í íslenzku viðskiptalífi (um Kolkrabbann, Smokkfiskinn etc.), þar sem greinilega kom fram, að hérlendis ríkti fá- keppni á dagblaða- og tímarita- markaði og einnig á ljósvaka- markaði. Þótt peð hafi færzt fram og tilbaka á borðinu er heildarmyndin enn mjög svip- uð. Ef eitthvað er hefur tak hinn fáu sterku og stóru herzt á þessum markaði. Blaðamenn og fréttamenn hafa hins vegar ekki æmt fram til þessa, ekki svo ég hafi heyrt. Fréttin um viðhorf frétta- og blaðamanna fékk verðugan sess í fréttatímum ljósvakamiðlanna um liðna helgi. Hins vegar bar ekki á þessari frétt í stóru dagblöð- unum tveimur, Morgunblaðirui og DV. Skodanakúgun fyrir 10 ár- um — skoðanakúgun nú? í rauninni hefðu starfsbræð- ur mínir átt að byrja á því að vekja athygli á þessari stór- hættulegu þróun fyrir mörgum herrans árum. Það gat hins vegar verið svolítið erfitt fyrir auma einstaklinga í þessu frjálsa og fordómalausa landi. Fyrir áratug hefði gagnrýni á hættuleg ítök beinzt að Morg- unblaðinu og Árvakri. Þá ríkti Mogginn hér sem enginn annar Fiölmiðlar Halldór Halldórsson skrifar fjölmiðill þrátt fyrir nokkurn fjölda minni daglegra fjöl- miðla. Hugrakkir menn skrif- uðu greinar um það, að skoð- anafrelsinu stafaði hætta af .jeinveldi" Morgunblaðsins. Áhyggjur manna voru alls ekki ástæðulausar. Og skoðanirnar voru ekki flokkspólitískar, eins og reynt var að segja. Þetta var á þeim árum, að ekki var hægt að hafa skoðun á íslandi án þess, að hún hlyti að vera flokkspólitísk!! Um áratugi höfðu fjölmiðla- fræðingar, blaðamenn, félags- fræðingar og alls kyns félags- vísindamenn fjallað um eignar- hald fjölmiðla og sérstöðu þessa markaðar. Yfirleitt hafa menn verið sammála um, að fjölmiðlar séu ekki sams konar hagfræðieining og bílar eða önnur framleiðsluvara. Um fjölmiðla gildi allt önnur lög- mál, þótt þeir séu söluvara. Fjölmiðlar séu verkfæri í þágu lýðræðis og almannahags og samkeppni á þessu sviði hljóti að takmarkazt af lögfræðileg- um og siðferðilegum forsend- um. Almennt eru menn sam- mála því, að fjölmiðlar séu fyrst og síðast þjónar almanna- hagsmuna í lýðræðissamfélög- um. Eftir því sem fjölmiðlarnir séu færri og eigendurnir færri vaxi ábyrgð þessara fjölmiðla. Konungar geta verið hættulegir! En um leið liggi í augum „Það kom undirrituðum satt að segja ákaflega mikið á óvart, að lang- stærstur hluti íslenzkra blaða- og fréttamanna skuli telja það vonda þróun, að fjölmiðlar á / Islandi séu í eigu ör- fárra manna ... eigi ófáir þeirra, sem tóku þáttíviðhorfskönnun- inni, starfa einmitt á fjölmiðlum, sem eru í eigu margnefndra fjöl- miðlakónga.“ uppi, að fjölmiðlun sé komin á hættubrautir, ef einungis tveir til þrír svokallaðir fjölmiðla- kóngar (sem kunna bara að græða pening) ríki á þessum sérstaka markaði. f ljósi hugsana af þessu tæi varð það að almennu sam- komulagi í flestum löndum, að setja þyrfti hömlur við eignar- haldi manna á fjölmiðlum til þess, að enginn einn maður eða kona kæmust í þá aðstöðu að geta einokað allan flutning frétta í sömu borginni, sama bænum, sama landsvæðinu, sama landshlutanum eða einu og sama landinu. Þá hefur í flestum löndum verið girt fyrir einokun sama einstaklings á öllum fjölmiðlum, s.s. sjón- varp, útvarp, dagblöð, tímarit o.s.frv. Hérlendis skortir slíka löggjöf. I framhaldi af kynningu á niðurstöðum viðhorfskönnun- arinnar á meðal blaða- og fréttamanna var sagt, að hér væri ekki um að tefla flokks- pólitískt vandamál. Það fer nú eftir ýmsu. Það fer eftir því hvort stjórnmálaflokkur tekur þetta vandamál sérstaklega upp á sína arma. Það er hins vegar einnig rétt, að eignar- hald á fjölmiðlum er fyrst og fremst pólitískt vandamál. Þetta vandamál fjallar m.a. um málfrelsi, tjáningarfrelsi, frelsi fjölmiðla, heiðarlega frétta- mennsku, óheft skoðanaskipti, umburðarlyndi o.s.frv. í raun skiptir það aldeilis engu máli hvort menn líta á þetta sem flokkspólitískt eða bara pólit- ískt vandamál. Að mínu mati er um að ræða buliandi pólitískt mál. Bóksem skiptir máli „Þaö er ein bók sem ég ráölegg hverju mannsbarni aö lesa og þaö er Huunndagshetjan eftir Auði Haralds. Ef ég er einhvern tímann á barmi taugaáfalls þá næ ég mér í Hvunndagshetjuna og hún heldur mér ennþá gargandi úr hlátri. Hún mótaöi líka svolítiö þaö hvernig ég lít á sjálfan mig. Ég er bara eitt eintak af manneskju og þaö skiptir ekki meginmáli hvaö ég er aö hugsa þeg- ar ég geri einhverja ákveöna hluti, en þaö er aldrei aö vita nema þessi ákveöni hlutur eigi eftir aö breyta pínu- lítiö heiminum. Þetta fæ ég af einhverjum orsökum á. tilfinninguna þegar ég er búinn aö rúlla yfir bókina. Langmest djúsí kafli bókarinnar er þegar hún tekur kyn- þroskaaldurinn fýrir. Unglingar mála gjarnan skrattann á vegginn og ég held aö þau hafi mjög gott af því aö lesa þann kafla í bókinni. Ónnur bók sem aldeilis bætti Páll Óskar Hjálmtýsson viö líf mitt eftir aö ég var kominn í þessa stööu sem ég er í núna, þetta poppstjörnurugl, er bók eftir Ray Col- man um Carpenter-systkinin. Hún lýsir því hvernig venjuleg millistéttarfjölskylda þarf allt í einu aö díla viö heimsfrægöina. Þau fatta engan veginn út í hvaö þau eru komin og enn síöur foreldrar þeirra. Þaö er fariö í saumana á því hvers vegna systkinin beygöu svona rosalega út af veginumm, þ.e. anorexían hennar Kar- enar og pilluátiö á Richard. Bókin var rosalega holl lesning fýrir mig; hvar ég þarf aö passa mig og í hvaöa spotta ég þarf aö kippa í sjálfum mér til aö veröa ekki leiksoppur einhverra örlaga sem geta komiö manni I gröfina fyrir 33 ára aldur. Þetta er æöisleg bók og ekki skaöar aö ég er aödáandi Karenar Carpenter par excel- lence.“ Dmitri Volkogonov; STALÍN Triumph and Tragedy Prima Publishing 1996 (1988) Eftirmálar Stalíns Stalín er ásamt Hitler mesti haröstjóri tuttugustu ald- ar. Samjöfnuöur á milli þess- ara manna veröur engu aö síö- ur aö taka tillit til þess aö pól- itísk hugmyndafræöi Stalíns var öllu manneskjulegri en nas- ismi Hitlers. Og þar liggur hluti skýringarinnar á því hvers vegna Hitler hélt völdum í eitt Viöreisnartímabil (1933-1945) en Stalín í rúman aldarfjórö- ung. Fljótlega eftir dauöa Len- íns áriö 1924 náöi Stalín að sanka að sér völdum meö svik- um og ofbeldi og hélt þeim til dauðadags 1953. Höfundur þessarar ævisögu var ofursti og yfirskjalavörður í sérstakri deild sem Gorbat- sjov stofnaöi til síöasta áratug í því skyni aö opna aögang aö leyndarskjölum Sovétríkjanna. Einstæðan aögang aö þessum skjölum notaöi Volkogonov til aö skrifa ævisögur þeirra þriggja manna sem hvaö mesta ábyrgö bera á pólitískri þróun Sovétríkjanna fyrstu ár- in: Lenfn, Trotský og Stalín. Stalín er almennt talinn hafa haft gáfnafar í tæpu meðallagi en þess slóttugri og miskunn- arlausari. Volkogonov er ekki sammála og dregur upp mynd af manni sem geröi sér far um aö bæta skipulega upp meö vinnusemi og ástundun þaö hann fór á mis við í vöggu. Mikill bóklestur og breitt menn- ingarlegt áhugasviö er ekki þaö sem manni dettur fyrst í hug í tengslum viö nafn Sta- líns. Ævisaga Stalíns er á sjö- unda hundraö blaösíöur og fer ágætlega saman viö vikudvöl í sumarbústaö. Bókin fæst hjá Máli og menningu og kostar 2.695 kr. Bókabúð Máls og menningar er opin frá 10 til 22 alla daga vikunnar.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.