Helgarpósturinn - 07.05.1997, Blaðsíða 24
HELGARPOSTURINN
7. MAÍ 1997 18. TBL. 4. ÁRG. VERÐ 250 KR.
Eigendur varnings sem á sínum tíma átti að koma til lands-
ins með Víkartindi hafa að undanförnu haft samband viö
Eimskipafélagið til að fá úr því skorið hvort gámarnir sem vörur
þeirra voru T hafi farið í sjóinn eða hvort þeir kunni að eiga von
á varningnum í misjöfnu ásigkomulagi. Eimskipafélagiö hefur
a.m.k. í sumum tilvikum ekki viljað kannast við að hafa neina
vitneskju um þetta, það verði bara að koma í Ijós. Þessi svör
hafa komið mönnum nokkuö spánskt fyrir sjónir. Fróðir menn
segja nefnilega að gámum sé raðað í skip af mikilli nákvæmni
og haldin sé nákvæm skrá yfir staðsetningu hvers einasta
gáms í hverju skipi...
Þpð var þéttsetinn bekkurinn á sameiginlegum
fundi A-flokkafélaganna á Hótel Borg 1. maí.
Fullsetið var við öll borð og margir urðu frá að
hverfa. Tilefnið var líka forvitnilegt, sameining þess-
ara flokka í brennidepli og ræðumennirnir, Jón
Baldvin Hannibalsson og Svavar Gestsson, hafa
löngum verið taldir þeir einstaklingar A-flokkanna
sem mest bæri í milli. Það var því ekki nema von
að fjöldi manns vildi hlýða á hvað þeir hefðu að
segja um sameiningarmál. Óneitanlega þótti mörg-
um kyndugt aö enginn Ijósvakamiðlanna skyldi sýna
fundinum áhuga. Engir fréttamenn sjónvarpsstöövanna voru á
staðnum og fréttastofa ríkisútvarpsins var einnig fjarverandi...
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra fer
mjúkum höndum um útgerðarmenn um þessar
mundir. Fresturtil að sækja um leyfi til síldveiða úr
norsk-íslenska stofninum rann út 10. april. Auglýs-
ingin virðist hafa farið framhjá einhverjum útgerðar-
mönnum sem ekki sóttu um leyfi og hafa nú undan-
farna daga nagað sig í handarbökin fyrir klaufaskapinn. Þessir
útgerðarmenn geta nú tekið gleöi sína á ný því Þorsteinn Páls-
son sá aumur á þeim og gaf úr reglugerð í gær þar sem um-
sóknarfresturinn var einfaldlega afnuminn...
Tillaga fulltrúaráðs Alþýöuflokksins í Reykjavík um
að efnt skuli til prófkjörs hjá Reykjavíkurlistanum
vegna borgarstjórnarkosninganna að ári er ýmist
túlkuð sem vantraust á starfandi borgarfulltrúa Al-
þýðuflokksins, Pétur Jónsson og Gunnar Gissur-
arson, eða sem liður í samræmdri áætlun forystu
Alþýðuflokksins um að setja prófkjör á oddinn í samstarfi við
Alþýðubandalag og Kvennalista...
*
Aráðstefnu Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og
Kvennalista um næstu helgi verða meöal
ræðumanna Sigrún Júlíusdóttir félagsráðgjafi,
Jón Björnsson sálfræðingur, Gestur Guðmunds-
son félagsfræðingur, Vigdís Jónsdóttir hagfræð-
ingur og Halldór Grönvold. Erfiðlega gekk að ná samkomu-
lagi um ræðumenn og viöfangsefni en nú mun allt klappað og
klárt...
Lögreglan kannar nú starfsemi nektardansstaða vegna
tengsla þeirra við Vítisengla í Kanada. Einn eigenda nektar-
dansstaðarins Vegas er Haraldur Böðvarsson,
sonur lögreglustjórans í Reykjavík, Böðvars Braga-
sonar. Ólíklegt er að rannsóknin spillist vegna
tengsla Haraldar við lögreglustjórann. Hún er hvort
sem er ekki talin skipta miklu máli fyrir starfsemi
þeirra. Félagsmálaráöuneytiö hefur kveðið upp úr
um meðferð umsókna um atvinnuleyfi hérlendis fyrir nektar-
dansara sem hingaö til hafa skráð sig sem listamenn til aö
þurfa ekki að borga gjöld og skatta. Reynt verður að láta dans-
ara skrá sig sem listamenn og framvísa gögnum frá listaskól-
um. Þetta er meðal annars gert til að takmarka starfsemi stað-
anna, en það vekur þá spurningu hvort listamaður sem fremur
gjörning á Lækjatorgi þurfi þá að framvísa pappírum frá lista-
skólum. Að sögn þeirra sem þekkja vel til innan lögreglunnar
er fremur vert að skoða innviði staðanna, en einhverjir þeirra
hafa um skeið höndlað meö eiturlyf...
Og meira af Haraldi Böðvarssyni. Hann hóf
feril sinn í nektarstaöabransanum á Bóhem á
Vitastíg fyrir nokkrum misserum. Þann staö rak
hann ásamt fleirum þar til kastaðist í kekki milli
eigenda. Af hlaust hálfgert bófastríð þar sem hver
sakaði annan um svik og pretti. Á endanum stofn-
aði Haraldur staðinn Vegas á Laugavegi ásamt nokkrum félög-
um sínum. Um svipað leyti flutti Bóhem með allt sitt hafurtask
á Grensásveg, þar sem staöurinn er staðsettur núna. Rekstur
beggja staöanna hefur verið í járnum en Haraidur, sem á einn
þriðja í staönum, mun hafa viljað út úr rekstri Vegas. Hlutur
hans mun hafa veriö til sölu í vetur fyrir átta milljónir króna...
OPIÐ ÖLL KVÖLD
VIKUNNAR TIL KL 21.00
HRINGBRAUT119, VTÐ JLHTÍSIÐ
tónli**
Í/(Ú (/(>(/('S'O Cf *(}((/*
Súpur, heitar samlokur, fisk-
og kjötréttir á verdi frá
(h,-r
Simi: S68 08 78, fax: 568 08 04, www.islandia.is/krinplukrain
sneiðar
HÚSAVÍKUR
hangikíöt
Úrbeinaður
trampartur
Ferskar
kalkúna
brinuur
toagðmikii
Ferskt
Hrásalat
350 gr.
Hartötiut1
Allar tegundir af
Pampers bleium
Mr. Propper
hreingerningarlögur '1
1000 ml 129.-
Ariel Future, Ariel Color, i<
1,5 kg. 569.-
Head & Shoulders
sjampó 3 teg. 199 pr.stk.
blautþ.box 369.-
Pampers blautþurrkur 289.-
Pampers blautþ. ferðap. 149.
Lenor mýkingarefni
4 teg. fernan 12!
Tempó vasakl. 89.-
Always Ultra normal+night
2 í pakka 469.-
Verslanir Nóatúns eru opnar til kl. 21, öll kvöld
Yes Ultra lemon,
Yes Ultra regular
brúsinn, 119.
NÓATÚN117 • R0FABÆ 39 • LAUGAVEG1116 • HAMRABORG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP.
ÞVERHOLTI 6, MOS. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68
Helga Möller, Lottódama íslenskrar
getspár, óskaöi Páli Óskari til
hamingju með árangurinn í Júróvisjón T
Lottóþætti Sjónvarpsins strax að lok-
inni keppninni í Dyflinni á laugardaginn.
Helga sagði af þessu tilefni að hún
þekkti vel hvemig það væri að taka þátt I Júróvisjón-
keppni — en hún tók þátt í keppninni fyrir íslands
hönd T Noregi árið 1986. Þá var Helga í ICY-tríóinu
góðkunna ásamt Eiríki Haukssyni og Pálma
Gunnarssyni. Ruttu þau lagið Gleðibankarm eftir
Magnús Eiríksson. Það var ekki laust við aö það
færi fiðringur um Helgu þegar hún rifjaði upp þennan
tíma. Nú er það bara spumingin hvort Páll Óskar
heldur áfram að feta í fótspor Helgu og verði T Lottó-
inu aö ellefu ámm liðnum...
Æfingar á söngleiknum Evítu eru komnar á full-
an skrið og starfa allt að 50-60 manns við
uppsetninguna. Nýlega voru pöntuö tæki og tól aö
utan til að sviðsmynd og lýsing megi verða sem stór-
brotnastar. Þetta er ansi kostnaðarsamt og Ásgeir
Sigurvinsson, sem fjármagnar sýninguna að
mestu, kom þjótandi til landsins þegar hann frétti af
þessum stórkostlegu fjárútlátum. Hann mun hafa
talið vissara að athuga hvort stóri bróðir, Andrés
Sigurvinsson, væri genginn af göflunum og hvort
ástæða væri til aö taka fram fyrir hendumar á hon-
um. Andrési tókst aftur á móti að sannfæra bróður
sinn um nauðsyn hins dýra búnaðar...