Alþýðublaðið - 20.02.1971, Side 1
Bíleigendur mega vænta iðgj aldahækkunar
Stefnir yfirlæknir Arnarholts Steinunni?
□ „Það er óhætt að ses'ja, að
jietta sé tóm vitleysa og það eina,
sem á að gera er að stefna Stein-
unni Finnbogadóttur fyrir þetta.
Ég álít að það, sem hún hefur sagt
sé rakalaus vitleysa og óhróður
um stofnunina“.
Þetta sagði Kristján Þorvarðar
son yfirlæknir í Arnarholti í til-
efrii fréttar, sem Alþýðublaðið
birti í gær, þar sem kom fram, að
Steinunn Finnbogadóltir og Adda
Bára Sigfúsdóttir hefðu viðhaft
ummæli á borgarstjórnarfundi í
fyrradag, sem á engan hátt var
hægt að túlka öðruvísi en sem
mjög alvarlegar ásakanir á þá að-
ila. sem með stjórn visthælisins
að Arnarholti fara. í ræðu, sem
Steinunn hélt, Iét hún falla um-
mæli, sem á engan hátt var unnt
að skilja öðruvísi, en hú nhefði
vitneskju um, að sjúklingar í
Arnarholti hefðu mátt sæta refs-
ingum, líkamlegum eða andleg-
um, af hálfu starfsfólksins.
Kristján sagði, að hann hefði
athugað þetia og væri þetta tóm
vitleysa hjá Steinunni. Það færi
vel um sjúklingana, en að vísu
hefði komið fyrir, að óðir sjúk-
Iingar hefðu verið settir í einangr
un rétt á meðan verið var að gefa
þeim lyf.
Framhald á bls. 5.
SAGA TIL NÆSTA BÆJAR
0 Samkvæmt síðustu
skýrsln landlæknis er að-
eins ein skráð lús til á land
inu 1967. —
□ Samkvæmt upplýsingum
sem Alþýðublaðið hefur aflað
sér, bertdir |allt til þess, að ið-
gjöld aí bii'reiðatryggingum
hækki talsvert nú í vror, þrátt
fyrir all værulega hækkun
þeirra fyrir tæpu ári.
HækkurJn hefur þó ekki enn
verið slaðfest al’ tryggingafélög-
unum, en það er einkum tvennt,
sem bend.ir til þess að af henni
verði. Það er í íyrsta lagi, að
þrátt fyrir mikla iðgjaldabækk-
un s. I. vor, telja félcgin, að hún
hafi þurft að vera 15% hærri en
raun varð, en í öðru lagi er
hvert tjcn á síðasta ári mun dýr
ara, eða allt að 40%, sem stafar
af harðari árckstrum, dýrari
varahlutum og mikilli hækkun
útseldra vinnustundia á bil'reiða
verkstæðum.
Þar er nú hver vinnustund
stld á 260—280 kr., en trygg-
ingafélögin böfðu reiknað með
að hún yrði á 215—230 kr.
Hækkunin á vinnustundunum
út af fyrir sig hefur mjög veru-
leg álirif á kostnaðinn við hvert
tjón, því gegnumsneiW er vinnu
kostnaður og varahlutakostnað-
ur mjög svipaður við hverja við-
gerð. —
Á mánudaginn er bolludagur —- en við birtum þessa mynd ekki f
tilefni af því. Við birtum hana ekki að heldur af tilefni sprengi-
dagsins, sem er á þriðjudag, né heldur öskudagsins, sem er á mið-
vikudaginn kemur. En allir góðir eiginmenn taki nú eftir, sem hafá
syngað upp á náðina upp á síðkastið eða veitir ekki af dálítilli
inneign upp á framtíðina: Á MORGUN ER KONUDAGUR! 0G HAGIÐ
'KKIIR FFr,r* M,f'
*
ifö
TUGIR MANNA
HAFA VERIÐ YFÍR-
HEYRÐIR 1 UNDAN-
FARNA L & ÁG A
□ Alþýðublaðinu er kunn-
ugt um, að rannsóknalögregl-
an hefur undir höndum nöfn
hundruða manna, sem ýmist
hafa játað á sig hasssölu,
neyzlu á hassi eða eru grun-
aðir um slíka neyzlu. Blaðið
veit þetta raunar og hefur
ekki ástæðu til að véfengja
heimild sína.
Virðist sem þáttaskil hafi
orðið í störfum lögreglunnar
í þessum málum í lok síðustu
viku og hafi löggæzlumenn
starfað 13—14 klukkustundir
á sólarhring við að yfirheyra
imgt fólk, sem notað hefur
hass og reynt að fá hjá því
upplýsingar hjá því um aðila,
sem selja hass hér á Iandi.
Nöfn þeirra, sem lögreglan
hefur yfirheyrt í þessari viku
munu vera komin frá ungum
manni, sem tekin var nýlega
og sagt var frá í blöðimuni.
Það er vitað, að hann hefur
ekki einungis notað hass held
ur ýmiss konar sterkari fíkni-
iyf-
Það er augljóst, að það er
meginmarkmið yfirvaldanna
með þessari licrferð, að kom-
ast að þvi hverjir eru sölu-
menn og dreifingarmiðlai'
liass, livar þeir fá það og
hverjir eru innflytjendur. —
Jafnframt hefur við yfir-
heyrslur undanfarna daga ver
ið lögð áherzla á að grafast
fyrir um aðstæður neytenda
og þeir, sem teknir hafa verið
til yfirheyrslur jafnvel verið
spurðir í þaula um lieimilis-
aðstæður, námsferil, félaga og
hvernig þeim vegnaði í starfi.
í þessum yfirheyrslum hef-
ur skipzt á harka og skilning-
ur lögreglunnar. Það liggur
hreint ekki á borðinu, að þeir,
sem teknir hafa verið til „við-
tals“ verði dregnir fyrir dóm-
stólana. Hins vegar var auð-
lieyrt á heimildarmanni okk-
ar, að leitazt var við að ger i
lionum ljóst, að hér væri á
ferðinni fyllsta alvara.
liögreglunni er Ijóst, að sá
liópur, sem hún liefur rök-
studdan grun um að neyti
Framhald á bls. 5.