Alþýðublaðið - 04.09.1971, Blaðsíða 1
ENN SAMA 4$
RIGNINGIN (
O Þeir, sem voru ánægðir
með veðurfar í Iíeykjavík í
gær geta haldið áfram að
vera ánægðir og það alla helg
ina, því samkvæmt upplýs-
ingum Knúts Knudsen, veð-
urfræðings mun veðrið hald-
ast að mestu óbreytt,
l
f dag verður suðaustan átt
með rigningu á Suður og
Vesturlandi og á sunnudag
dregur til suðvestanáttar með
skúraleiðingum.
Reyndar mun rigningar
gæta eitthvað á öllu landinu.
Á annesjum norðanlands
mun rigna á sunnudag og þar
verður norðanátt, en inn til
landsins verður suðvestanátt
og betra veður.
En þeir, sem fá bezta veðr-
ið eru þeir, sem búa á norð-
vesturlandi. Þar á samkvæmt
veðurspá að létta til á sunnu-
dag. —
Er Eystri - Rangá týnd?
□ Er Eystri-Rangá ;týnd? Þessi
spurning ei ekki alvég út í hött,
enda er hún a.m.k. eins og er
horfin undir hraun og er alls ekki
vitað, hvar hún kunni að koma
undan því aftur.
Eins og kunnugt er var Eystri-
Rangá veitt af mannavöldum úr
sínum gamla farvegi fyrir nokkr-
um dögr.Ti. Fer áin nú um örfoka
hraun, svonefnt Langvíuhraun, og
í gær þegar við höfðum tal af
Páli . Sveinssyni, Iandgræðsiu-
stjóra, í Gunnarsholti, hafði ánni
ekki enn tekizt að síast gegnunr
þurrt vikurhraunið, sein bókstaf-
lega drekkur vatnið í sig.
Páll fer í dag í ferð inn á hið
nýja vatnasvæði Eystri-Rangár til
að kanna ,ferð“ árinnar gegnum
hraunið. Alþýðubiaðið vonast til
að frétta eftir lielgina, hvar áin
nú er niðurkomin, og hvar lík-
Framh. á bls. 8.
• •
Ollu var umturnao í stóra flugskýlinu á Keflavíkurflugvelli
HOTUN UM
SPRENGJU
VAR GABB
Q Neyðáiástand ríkti á Kefla
víkurflugrvelli í tvær klukku-
stundir í gær( eftir að óþekkt-
ur aðili tilkynnti með sí,m-
hringingu, að sprengju hefði
verið komið fyrir í aðalflug-
vélaskýli bandaríska varnar-
liðsins, sem springa myndi í
loft upp að klukkustund lið-
inni.
Þegar var gripið til neyðar-
ráðstafana og leit hafin að
sprengjunni. Herflugvélar, sem
voru inni í skýlinu, og aðrar
flugvélar í grennd við það,
þar á meðal nokkrar af vél-
um Loftleiða, voru fluttar í
skyndi langt frá flugskýlinu,
þannig að þeim stafaði ekki
hætta af, ef það springi í loft
UPP.
Bandaríska herlögreglan
sérmenntaðir sprengjusérfræ?
ingar, íslenzka ríkislögreglan
á flugvelllnum og slökkviliðs-
menn tóku þátt í sprengjuleit
inni. Slökkviliðsbílar og sjúkra
bílar voru til taks ef með
þyrfti.
Eftir tveggja klukkustunda
leit, var talið, að hættuástand
ið væri liðið hjá, enda klukku
stund liðin frá þvi sprengjan
átti að springa og augljóst orð
ið, að um gabb hefði verið að
ræða.
Klukkan tvö í gærdag
Eramh. á bls. 2.
Allar nærstaddar flugvélar voru fluttar í dauffans ofboffi í brott frá
flugskýlinu, áffur en þaS spryngi í loft upp.
Sýningin
varð enginn
góðakstur
□ Geysiharðu’r árekstur varð
á Akranesi í gærkvöldi, en að-
eins urðu lítilsháttar meiðsli á
fólki. Þetta atvikaðist þannig aii
ungur ökumaður ók all geyst
eftir Vesturgötunni og voru fjór
ír farþegar í bílnum auk hans.
Hafi ökumaðurinn ætlað að
sýna kvenfarþegum sinum akst-
urshæfni, þá hefur það a.m.k.
ekki verið sýnikennsla í góð-
akstri.
1
- «
Mikil rigning var og slæmt
skyggni, en hvað sem olli, þá
lenti bíllinn á fullri ferð beint
framan á kyrrstæðan vörubíl,
vörubíllinn kastáðist til ogl
skemmdist nokkuð,- en fólksbíll-
inn, sem pilturinn ók, stór
skemmdist ef hann er ekki alveg
ónýtur.
' . *
Tvær stúlkur sem voru far-
þegar í bílnum meiddust lítils-<
háttar og var farið með aðra áj
spítalann til frekari rannsóknar,
en hún fékk fljótlega að fara
Framh. á bJs. 2.
VIÐ ERUM OF LIN
VIÐ AÐ BORGA
UMFERÐARSEKTIR
□ Ef þú leggur bílnum þínum
of lengi í stæði, þar sem stöðu-
mælir er, færðu sektarmiða á bíl
rúðuna. Sektin nemur 50 krónum
cg er viðkomandi gefinn kostnr
á, að greiða uppliæðina innan
viku. Á hverju ári eru Það að
minnsta kosti rúmlega 10 þúsund
manns, sem ekki sinna þessu. Þá
er gripið til Þess ráðs að senda
viðkomandi rukkun í bréfi og þá
taka sumir við sér og borga. En
það eru þó margir, sem ekki gera
það og samkvæ,mt upplýsingum
Sturlu Þórðarsonar eru það sam
tals 7698 stöðumælasektir á tíma
bilinu 1970 til 20. ágúst á þessu
ári, sem þurfti að rukka með
símahringingum til viðkomandi.
Þrátt fýrir þessar aðgerðír voru
í lok ágúst óinnheimtar 3670
stöffumælasektir.
Samsvarandi tölur fyrir sektir
vegna umferðarlagaafbrota . eru
2064 fyrir allt tímabilið, en í lok
þess voru enn óinnheimtar 1410
sektir.
„Menn eru ákafloga óhressir
við að borga þetta“, sagði Sturla,
,,og venjulega er Þetta fólk sem,
er mjög erfitt í svona málum.1*
Hann sagði okkur að þetta fólk
byrjaði á þvi að streitast við að
borga 50 krónu stöðumælasekt-
ina. Síffan tfengi Það bréí' og
Framh. á bls. 8,