Alþýðublaðið - 02.10.1971, Blaðsíða 9
íþróttir - íþróttir - íþróttir - íþróttir - íþróttir - iþróttir - i]?róttir
___i
Bikarkeppnin í fultan gang
Aðalhlutinn
að hef jast
□ Um lielgina hefst aðalhlut-i
inn í Bikarkeppni KSÍ. Fer nú
senn að líð'a. að lokujm keppnis-
tímabilsins í knattspyrnu. í að-
alkeppnina komast 12 lið osr hafa
11 lið þegar tryggt sér þátttöku-
rétt, en Þróttur frá Reykjavík og
Þróttur frá Neskaupstað bitast
hins vegar um eina lausa sætið
í aðalkeppninni. Keppnin í ár
verður kannski sögnleg fyrir þær
sakir, að líkur eru á því að ein-
hverjir leikjanna verði leiknir i
fljóðljósum^ en slíkt hefur aldrei
fyrr gerzt hér á landi.
DYNAMO
MEISTARI
□ Dynamo Kiev varð Rúss-
landsmeistari í knattspyrnu í
ár. Sigraði liðið með fádæma
yfirburðum, og tapaði ekkr
leik í allri keppninni.
,□ Það gengur ekki vel hjá
Formósu á íþróttasviðinu frek
ar en stjórnmálasviðinu. Fyrir
stuttu tapaði Formdsa lands-
leik í knattspyrnu fyrir Jap-
önum 5:1. Leikur þessi var
hluti af undankeppni Ólym-
píuleiKanna í Munchen, en þar
ætla Japanir sér stóran hlut.
□ Adam Gnatov frá Sovét-
ríkjunum setti fyrir stuttu nýtt
lyftingaheimsmet í fluguvikt.
Pressaði Gnatov 115,5 kílóum.
sem er gott hjá svo léttum
manni. —
Á morgun verða tiveir ieikir.
Þróttur úr Reykjavík fer til N.es
kaupstaðar og keppir þar við
nafna sinn um lausa sætið í að-
alkepphinni. Þessi leikur verður
eflaust dýr biti fyrir félögin, þvi
Þróttur frá Neskaupstað verður
að senda eftir inokkrum liðs-
ma’nna sinna til Reykjavíkur, og
jafnvel víðar.
Þá fer einnig fram í dag leikur
milli Völsungs og Vals í að'al-
hluta bikarkeppninnar. Leikuxinn
fer fram á Húsavík og ætti hann
að verða Val auðveldur, en var-
legt er þó að vanmeta hina nýju
meistara 3. deildar.
Á morgun fer svo fram einn
leikur í keppnillni, ísafjörður og
Akureyri leika á ísafirði. Ekk?
hefur ennþá verið ákveðið
hvienær leikir ÍBK og Breiðá-
bliks, Fram og KR fara fram.
Reykjavíkurmótið í handknatt
leik heldur áfram á sunnudaginn
kl. 19 í Laugardalshöllinni. Leikn
ir verða 5 leikir, tveir 1 meist-
araflokki kvenna, Ármann.—Vík-
ingur og KR—Frarn, og þrír í
meistaraflokki karla, Víkingur—
ÍR, Ármann — Valur og KR—
Fram.
Dregiö saman í
Evrópukeppninni
□ Búið er að draga saman lið
í Evrópukeppninni, en vegna
þrengsla etr ekki hægt að skýra
frá nema tveimur leikjum, sem
íslendingar hafa kannski mest-
an áhuga á.
Celtic-Sliema Wanderes
Nantes (Frakkl.) - Tottenham.
. m ■■
Sundbo/famenn til Skotlands
□ íslenzkir sundknattleiksmenn
hafa nú brugðið sér til annarra
landa, eða nánar tiltekið til Skot
lands þar sem þeir heyja bæjar-
keppni við Edinborg. Átti þessi
kepprti aff fara fram í gærkvöldi.
Þetta mun vera í fyrsta skipti
síffan 1951 að íslenzkir sund-
knattleiksmenn hleypa heimdrag
anum.
Alls eru 13 leikmenn í förinni,
allir úr Reykjavík. Auk þess
verða. 4 fararstjórar. Liðið mun
leika fleiri leiki ytra. Ekki er
gott að spá um frammistöðuna,
því segja má, að verið sé aff ryðja
nýja braut, en það er ástæða til
að vona að þetta verði aðeins
upphafið aff auknum samskiptum
sundknattleiksmanna við kollega.
þeirra erlendis.
Æskan og golfið
MINNISVERÐ ARTOL
1965 107,580 áhorfendur sáu /
leik milli Skotlands og
Póllands á Hampden
Park í Glasgow. Þetta er
mesti áhorfendafjöldi sem
horft hefur á flóðljósaleik
í Bretlandi.
1965 West Ham vann Evrópu-
keppni bikarmeistara
þetta ár. Félagið vann
Múnich með 2 gegn 0 í
úrslitaleiknum sem fram
fór á Wembley. Áhorfend
ur voru 100 þúsund, —
mesti áhorfendafjöldi sem
séð hefur leik í þessari
keppni.
1965 107,609 sáu leik Rang-
ers og Celtic í skozka
deildarbikarnum, og er
mesti áhorfendafjöldi sem
séð hefur leik í þeirri
keppni.
1965 Arthur Rowley lagði
knattspyrnuskóna á hill-
una, eftir að hafa skorað
fleiri mörk í deildarkeppn
inni en nokkur annar leik
maður, alls 434 mörk.
1965 Knattspyrnufélögin í
Englandl ákváðu með
39 atkvæðum gegn 10 að
leyfa að varamaður mætti
koma inn á fyrir slasaðan
leikmann í deildarleik.
□ Síðan G. R. reið á vaðið og
stofnaði sérstaka unglinga-
deild í félaginu 1966, hafa aðr-
ir klúbbar vaknað af dvalan-
um varðandi unglingamálin.
Nú em flestir klúbbanna farn-
ir að setja upp keppnir, að-
stoða við þjálfun og hvetja
æskufólkið til dáða.
Enda þótt golfíþróttin fé
fyrir fólk á öllum aldri, gildir
sama reglan um endurnýjun
og mótun keppnismanna sem
nýrra áhugamanna og í öðr-
um íþróttum. Æskilegt væri að
fólkr hœfi golfiðkun innan
við 14 ára aldur, þegar líkam-
inn er í mótun og þroska. —
Mýkt og viljastyrkur eru frum
atriði, er golfsveifla mótast.
Ennfremur er á unglingsárun-
um mun auðveldara að koma
við endurbótum og breyt-
ingum á sveiflunni.
Annað meginatriði er að
golf er fyrst og fremst upp-
byggjandi og foreldrum sem
börnum gleðiefni. Þeir for-
eldrar sem ég hef raétt við:,
hafa verið í- sjöunda himni
yfir því að börn þeirra hafa
byrjað golfleik, oft fyrir ein-
iskæra tilviljun.
Drengilegur leikur og heil-
næm útivera eru unglingum
hollari en sjoppuráp og mis-
jafn félagsskapur á götum úti.
Þeim fjármunum sem varið er
til stofnkostnaðar varðandi
gölftæki, er hverfandi, tf
miðað er við óhófleg fatakaup
og annað ámóta fánýti.
Unglingar innan 15 ára í G.
R. greiða nú kr. 500 í ái-gjald
fyrir nærri ótatenörlcuð vall-
arafnot og 15—1® ára greiða
1000 kr. Nú eru um 40—50
unglingar í G. R. og margir
tugir fengjust í viðbót, — ef
hrundið væri af stað t. d. ung-
linganámskeiðum, golfsýning-
um og annarri slíkri starfsemi.
Ég hreyfi hér hugmynd sem
að vísu er frá Akureyringum
komin. Hún er á þá leið, að
Æskulýðsráð Reykjavíkur-
borgar styrki G. R. til kaupa
á 5—10 unglingasettum, sem
yrðu til láns og leigu fyrir ung
linga. Einnig ætti Ferðamála-
ráð eða sjóður að veita
klúbbunum aðstoð til að eiga
nokkur sett til útleigu fyrir
ferðamenn. Hægt er að kaupa
slík unglingasett fyrir um 7—
8 þúsund kr. hvert. Ég er ekki'
í neinum vafa um að slíkum
fjármunum væri vel varið. —
Æskulýðsráð Akureyrar gaf
Golfklúbbi Akureyrar 3 ung-
lingasett 1967, svo að fordæm
ið er þegar til staðar.
Meira um unglingamálin
síðar.
E.G.
Laugardagur 2. október 1971 S