Alþýðublaðið - 04.11.1971, Qupperneq 1
BHIl
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1971 — 52. ÁRG. — 249. TBL.
SUNNA „TAPAB
NGU”ÁBA
TILLAGA ALÞÝÐUFLOKKSINS í VARNARMÁLUM
fl Þingmenn Alþýðuflokks-
ins hafa lagt inn á Alþingi
þingsályktunartillögu um með
ferðina á athuguninni á örygg
ismálum fslands. Eins og kunn
ugt er hefur sú „leyniráðstöf-
un“ ríkisstlérnarinnar, að fela
slíka athugun i hendur nernd
ar þriggja ráðb.erra, þar sem
tvcir fyrrverandi Þjóðviljarit
stjórar eiga sæti, vakið mik-
inn ugg hjá almenningí um
meðferð má'sins.
í þingsályntunartillögu þing
flokks Alþýðuílokksins er
lagt til, að athugunin verði
eltki einskorðuð við Ieyni-
makk þriggja ráðherra. heldur
fari hún fram fyrir opnuin
tjöldum og á vegum utanríkis
málanefnrtar Aiþingis. Sé ut-
anríkismálanefnd heimilað að
ráða starísli® til að vinna að
athuguninni og senða fulltrúa
til næstu landa til gagnasöfn-
unar. Skuli nefndin svo leggja
skýrslu fram fyrir Alþingi um
athugunina svo íijött. sem
unnt er.
Hér leggur Alþýðuflokkur-
inn til, að fylgt verði mn með
ferð þessa máls fordæmi í'jöl
margra Iöggjafarþinga lýðræð
isþjóða, en þar er þingnefnd-
um iðulega falin rannsókn þýð
ingarmikilla mála og fer þá
rannsóknin fram fyrir opnum
tjöld.um. Er eðlilegt að svo sé
gert hér og nú, því almenning
ur á vissulega heimtingu á að
fá að fylgjast með athugun
málsins á annan veg en þann
éinan, að ráðherrar segi þjóð-
inni undan og ofan af og þá
það eitt, sem þeir vilja um
málið láta vitnast.
í þingsályktunartillögu Al-
þýðuflokksmannaima er sér-
staklega tekið fram, að utan-
ríkismálanefnd skuli einkum
og sér í Iagi athuga átta til-
tekin atriði í sambandi við
öryggismálin, — þar á medal
gildi varnarsamtaka Atlants-
hafsbandalagsins fyrir öryggi
Islands, gildi íslands innan
þeiira varnarsamtaka, viðhorf
næstu nágrannaþjóða til eft-
irlitsstöðvanna á íslandi og
möguleika íslendinga til að
taka ,meiri þátt í eftirlitsstarfi
yfir Atlantshafi, a. m. k. yfir
landgrunninu eða að 100
mílna mengunarlögsögu.
TILLAGAN
SJÁ BLS. 2
ÞINGNEFND ANNIST RANNSÓKNINA
□ Eins og Alþýðublaðið skýrði
frá fyrir skemmslu hefur Guðni
Þórðanson, for.stjóri ferðaskrif-
stofunnar Sunnu höfðað mál á
hendur samgöngumála- og fjár-
mála'ráðuneytinu og krafizt
skaðabóta af þeim að upphæð
liðlega 60 milljónir króna vegna
afturköllunar flugrekstrarleyfis
Sunnu á árinu 1969.
í fyrradag lagði Björn Her-
mannsson, lögfræðingu'r og
deildarstjóri í fjármálaráðuneyt
inu, fram greinargerð í Borgar-
dómi Beykjavikur vegna skaða
bótakröfu þessarar.
Málshöfðunin á hendur ráðu-
neytunum er til komin vegna
þess að Guðni Þórðarson telur
sig og ferðaskrifstofu sína hafa
orðið fyrir mjög miklu fjárhags
legu tjóni og oirðstír fyrirtæk-
is hafi sknða.zt, er þáverandi
samgöngumálaráðlierra, Ingólfur
Jónsison, afturkallaði flugrekstr-
arleyfi ferðaskrifstofunnar
Sunnu.
Þó að 'ráðherrann veitti
Sunnu reyndar flugrekstrarlevfi
á ný u.þ.b. einum mánuði áður
en fyrra Ieyfið átti að renna út,
telur stefnandi, að hann hafi
neyðzt til að hættc, flugrekstri
sínum eftir aftu’rköllun flugleyf-
isins. Hafði hann þá gert víð-
tæka Samninga við erlenda aðila
varðandi rekstur flugvélar sinn-
ar um veturinn, sem í hönd fór,
sem síðan rumra út í sandinn.
Alþýðublaðið hafði í gær sam-
band við Björn Hermannsson,
lögfræðing, og spurðist fyrir um
meginefni greinargerðar ha»s
(þ.e. ráðuneytanna). Sagði
Björn, að aða.lkrafa ráðuneyt-
anna væ!ri sýkna af öllum skaða
bótakröfum Sunnu En til vara,
ef aðalkrafan yrði ekki talin
gild, færu ráðuneytin fram á
mjög stórvægileg Iækkun hugs-
anlegra skaðabóta.
Aðalkrafa stefndu — þ. e. ráðu
neytanna — er að sögn Bjöms
Hermannissonar byggð á því, að
ferðaskrifstofan Sunna Ilafi
ekki sannanlega beðið tjón si
þeim aðgerðum, sem forstjéri
liennar telur, að samgöngumála
ráðlierra hafi beitt hana.
Sagði Björn, að flugrekstrar-
leyfi Sunnu hafi verið háð skil-
Framh. á bls. 11.
BRETAR
GANGA
ÚREFTA
□ Bretland skýrði öðrum lönd
um í EFTA í morgun frá því,
að Bretland mundi yfirgefa
fríverzlunarbandalagið 31. des.
1972 eða daginn áður en Bret
land samkvæmt áætlun gengur
í EBE.
Það var aðalráðgjafi B»et-
lands í samningunum við E B
E, Geoffrey Rippon, sem til-
kynnti ráðherrawefnd EFTA
þetta, þegar nefndin kom Sam-
an til fundar í Genf í morg-
un.
LOFTLEIÐIR í KLEMMU í KEFLAVIK
BRAUT
OFSTU
□ Nokkur röskun hefur orð-
ið á flugstarfsemi Loftleiða að
undanförnu, vegna Þess að hin
ar stóru þotur félagsins, DC-8
-63ð geta ekki með góðu móti
notað nema eina flugbraut á
/ Keflavíkurflugvelli og þessi
eina flugbraut er alls ekki full
nægjandi. Haifði Bandaríkja-
þing samþykkt f járveitingar til
lengingar á flugbrautum og
endurbóta á öryggistækímiii á
Ivcflavíkurflugvelli, en Þegar
Framhald á bls. 5.
i