Alþýðublaðið - 29.11.1971, Síða 4
Vetrarorlof
Fjölbreytt ferðavai
SÓL, SJÓR OG SNJÓR, EÐA HEILLANDI
STÓRBORGIR
Douglas konungur 8. er kominn til valda á flugleiðinni milli
íslands og Norðurlanda. SUNNA hefur tryggt 5000 farþegum
á þessari leio tækifæri til að ferðast með þessari nýju þotu
Loftleiða, sem býður upp á öll nýtízku þægindi, sem aðeins
nútíma stórþotur geta boðið farþegum sínum'. Okkur er
ánægja að geta boðið farþegum okkar að gista sali
nútíma stórþotur geta boðið farþegum okkar að gista sali
Douglasar 8 á lúxusferð þeirra um loftsins vegu á leið þeirra
tiil fundar við þau ævintýri og þá skemmtun, sem hið fjöl-
breytta úrval vetrarorlofsferða Sunnu býður upp á.
Og síðast en ekki sízt, það er ótrúlega ódýrt að fara í
þessari konungsfylgd með Sunnu til vetrarorlofsirrs.
★
Brottför víkulega til allra staða:
Kanaríeyjar, verð frá kr. 17.890.00
Mallorca, verð frá kr. 17-600,00.
Costa del Sol, verð frá kr. 16.800,00
Skíðaferðir til Austurríkis, verð kr. 16.200,00.
Skíðaferðir í ítölsku Alpana, verð frá kr. 16.500,00.
Kaupmannahafnarferðir, verð frá kr. 14.900,00
Egyptaland, verð frá kr. 25.700,00
Ceylon, verð frá kr. 44.850,00.
Túnis, verð frá kr. 23.800.00.
Róm, verð frá kr. 21.000,00.
★
Flogið með hinni nýju DC8 þotu Loftleiða til Kaupmannahafn-
ar og þaðan áfram til áfangastaða með Super Caravelle þotu
frá Sterling Airways.
★
Vegna lækkaðra hópfargjalda og einstaklega hagstæðra
samninga Sunnu um framhaldsflug, gefst fólki nú færi á
ódýrari og betri vetrarorlofsferðum. Notið því tækifærið, fáið
vetraráætlun Sunnu og pantið snemma meðan úr nógu er
að velia.
Guðrún Benedikts
dóttir - Minning
□ GUÐRTÍN BENEDIKTS-
DÓTTIR andaðist að elliheim-
ilinu Grund i Reykjavík 23.
nóvember, og verður útför henn-
ar gerð í dag frá dómkirkjunni.
Mig langar að kveðja hana fá-
einum orðum, er leiðir skilur.
Guðrún fæddist 20. júlí 1875
að Vestra-íra'gerði á Stoikkseyri,
og var elzta barn hjónanna þar,
Elínar Sæmundsdóttur og Bone-
dikts Benedik'tssonar, en hin
sytkinin, sem upp komust, voru
Guðný sáluga í Vestra-fragerði
og Sæmundur heitinn í' Bald-
urshaga og síðar í VietStmanna-
eyjum. Ólst Guðrún upp í föð-
urgarði, en giftist 1897 He'lga
Halldórssyni, sem ættaður var
úr Hrunamannahreppi og Flóa.
Bjuggu þau fyrst í Stíghúsi á
Stokkseyri, en síðar á Grjóílæk,
og stundaði Helgi sjómennsku
ásamt búskapnum. Fæddust
þeim hjónum fimm börn. Þrjú
þeirra eru látin. Þórunn og
Benedikt dóu með árs millibili,
hún há'lfþrítug og hann rösk-
ÍE'ga tvítugur, en Halldóra ald-
arfjórðungi síðar 1948. Á lífi
eru tveir bræður, Maríus, sím-
stjóri á Akureyri, og Haltldór,
fyrrum fulltrúi ritsímastjóran'J
í' Reykjavík. Guðrún og Helgi
fluttust til Reykjavíkur 1919,
o'g starfaði Helgi jafnan síðan
að smíðum, unz han.n andaðist
1928. Bjó Guðrún eiftir það meði
Halldóru dóttur sinni, meðan
hún lifði, og Halldóri syni sín-
um, unz yfix lauk. Tvö barna-
börn Guðrúnar ólust upp þar
á heimilinu, Þórunn Pálsdóttir,
dóttir Þórunnar, en hún missti
móður sína mánaðargömu'l, og
Bragi Sigurðsson, sonur Hall-
dóru. Heimili Guðrúnar var
lengi að Grundarstíg 2, en frá
1957 að Rauðalæk 9. Hún dvaid-
ist á elliheimilinu Grund þrjú
síðustu æviárin, og varð sjúkra-
lega hennar löng, enda aldur-
inn hár.
Guðrún B en edikts dótt ir var
gerðarkona og skörungur. Táp
hennar og þrek var á orði haft,
en sálarstyr.kurinn taldii-it eigi
síðri. Hún fór sannarlega ekki
varhluta af sorg og mótlæti,
sem ástvinamiíBÍr v'eildur, en
stækkaði af hverri raun ng hélt
gleði sinnj, kjarki og bjantsýni
fram í rauðan dauðann. Barna-
lán Guðrúnar var mikið, og
mun vandfundin isamhentari
fjölskylda en hennar. Var alltaf
hlýtt og bjart í ranni hennar
og indælt þangað að koma. Er
mér í barnbminni, þegar móðir
mín leiddi mig á fund þessarar'
mágkönu sinnar og föðursystur
minnar, en með þeim var ágæt
vinátta. Mér fannst Guðrún
Benedi'ktsdóttir allra kvenna
stærút og röggsömust, er hún
bauð mig hjartaniega velkom-
inn og gerði mér gott. Gestrisn-
in var eins og hún miðlaði af
allsnægtum, og aldnei gleymi
ég smitandi h'látri frænku minn-
ar, þegar henni var skemmt.
Þá skellti hún gjarnan á lærið
og kæ.tti svo f.eiminn og lasinn
stiákhnokka, að hann fór strax
að hlakka til næstu samfunda.
Eigi að síður þekkti hún aivöru
lífsins. Hún drúpti höfði á
raunastund, en leit svo upp
djörf og sterk og hófst handa.
Uppkominn var tég iðulega
g'estur heima hjá Guðrúnu
frænku minni. Rakti hún þá
oft ættir mínar austan fjails,
en rifjaði einnig upp ýmsa at-
burði og minningar um sérvitra
karla og Sikrýtnar kerlingar.
Kímnigáfa hennar var einstök,
og henni var blátt áfram dilLáð,
þegar hún gerði að gamni sínu.
Vænt þótti mér um, að hún
vorkenndi aldrei í áheyrn minni
bágum vesalingi, sem aðrir
Framh. á hls. 11.
Hér sjáið þér hluta af þeim vörumerkj um sem vér höfum á hoðstólum:
BRJÓSTAHALDARAR, CORSELET T í yfirstærðum.
EINNIG SJÚKRACORSELETT. — P ÓSTSENDUM.
SÍMI 15186 — LAUGAVEGI 26
sa
4 Mánudagur 29. nóv. 1971