Alþýðublaðið - 12.04.1972, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 12.04.1972, Blaðsíða 5
 I K I I Útgáfufélag Alþýöublaðsins h.f. Ritstjóri Sighvatur Björgvinsson (áb.). Aðsetur ritstjórnar Hverfisgötu 8-10. Blaðaprent h.f. SLEPPT OG HALDIÐ Er ekki rikisstjórnin ábyrg fyrir stjórn landsins? Á hún ekki að bera ábyrgð á eigin gerðum? Á stjórnar- flokkur ekki að vera ábyrgur fyrir gerðum rikisstjórnar á meðan hann situr við stjórn? Það er furðulegt, að svona spurninga þurfi að spyrja. En nú- verandi ríkisstjórn og stjórnarflokkar virðast ekki gera sér svörin alveg ljós. Þeir eru að velta þessum spurn- ingum fyrir sér. Alþýðubandalagið og Framsóknarflokkurinn sátu samfellt i st- jórnarandstöðu nokkuð á annan áratug. Nú eru þeir loks komnir i st- jórn. En það er eins og flokkarnir hafi ekki almennilega áttað sig á þessu. Það er eins og þeir haldi á stundum, að þeir séu enn i st- jórnarandstöðu og þurfi þar af leiðandi enga ábyrgð að bera á stjórn landsins. Yfirlýsing Alþýðubandalags- ráðherranna í sam- bandi við afgreiðslu tilboðs Bandarikja- stjórnar er skýrt dæmi um þetta. Rikisstjórnin afgreiddi málið gegn vilja kommaráð- herranna og þá lýstu þeir þvi einfaldlega yfir, að þeir bæru enga ábyrgð á gerðum rikis- stjórnarinnar i málinu, þótt þeir sætu i st- jórninni áfram. Með öðrum orðum gerðist Alþýðubandalagið stjórnarand- stöðuflokkur i þessu máli, en stjórnara<ðf- stöðuflokkur i öðrum. Stundum ætlar Alþýðu- bandalagið sem sagt að vera með stjórninni og stundum á móti, en ávallt vill hann sitja i henni! Hefur nokkur heyrt aðra eins hringa- vitleysu áður? Nákvæmlega sama aðstaðan kemur fram hjá Framsóknar- flokknum i sambandi við önnur mál. Rikis- stjórnin hamast við að leyfa verðhækkanir á öllum mögulegum og og ómögulegum var- ningi, en samtimis lýsir Framsóknar- flokkurinn þvi yfir, að hvorki hann né stjórnin beri ábyrgð á þessari afgreiðslu? Þetta sé allt saman sök fyrr- verandi rikisstjórnar, sem lét af völdum fyrir mörgum mánuðum. Og siðasta kenning Timans er sú, að allar verðhækkanirnar nú stafi af þvi að fyrr- verandi rikisstjórn setti á verðstöðvun og leyfði engar verð- hækkanir á þvi tima- bili! Það er sem sé orðin sök fyrrverandi rikisstjórnar, að núverandi rikisstjórn hefur gefizt upp á þvi að framlengja verð- stöðvunina, eins og hún þó lýsti yfir að ætti að gera. Langt er nú farið að seilast til þess að koma af sér ábyrgðinni. Aðalfundur Kvenfélagsins FÉLAGIÐ SETUR SÉR Nf LðG Aðalfundur Kvenfélags Alþýðu- flokksins i Reykjavik var haldinn s.l. mánudagskvöld. Fundurinn var ágætlega sóttur, en meðal verkefna hans var að samþykkja ný lög fyrir félagið. Ýmis nýmæli eru i þessum lögum, bæði i sam- bandi við stjórnarkjör og annað, en skv. þeim á nú að kjósa árlega formann félagsins auk tveggja af sjö stjórnarkonum þannig, að kjörtimabil annarra stjórnar- kvenna, en formannsins er þrjú ár. bá gera hin nýju félagslög einnig ráð fyrir þvi, að félaginu verði skipt niður i hverfi og stjórn félagsins velji á fyrsta fundi sin- um eftir aðalfund hverfisstjóra, sem hafi umsjón með innheimtu félagsgjalda i hverfinu og séu i tengslum við félagskonur i hverju hverfi um sig. Einnig eru nú i lögunum ný ákvæði um kosningar til flokksþings Alþýðuflokksins. Kvenfélag Alþýðuflokksins i Reykjavik er eitt af öflugustu og^ athafnasömustu flokksfélögum Alþýðuflokksins á landinu. Vinna konurnar mikið starf bæði við undirbúning kosninga, að fjár- öflun og öðrum flokksmálefnum og á aðalfundinum var kynnt nýtt blað, sem Kvenfélag Alþýðu- flokksins i Reykjavik hefur hafið útgáfu á. Fyrsta tölublaðið er nú komið út og hefur blaðinu verið gefið nafnið „Lofn”. Að loknum skýrsluflutningi og umræðum um félagsstörfin var gengið til stjórnarkjörs. Þrjár konur, sem sæti áttu i fráfarandi stjórn félagsins, þær Aldis Bene- diktsdóttir, Hervör Jónasdóttir og Aslaug Jóhannsdóttir, báðust undan endurkjöri. Formaður félagsins var endur- kjörin Kristin Guðmundsdóttir, FRJALSLYNDIR I UPPNAMI VEGNA AFSTÖÐU MAGNðSAR 1 siðasta tölublaði af Nýju Landi gefur Magnús Torfi Ólafsson, menntamálaráðherra, yfirlýsingu um hvers vegna hann hafi greitt atkvæði með þvi að tekið skyldi tilboði Bandarikja- stjórnar um, að hún kostaði fjár- frekar framkvæmdir á Kefla- vikurflugvelli. Yfirlýsing ráð- herrans er birt á forsiðu blaðsins og gerð þar að aðaluppsláttar- efni. Á Hannibal og hans þátt i málinu er hins vegar ekki minnzt. Hann virðist næsta litinn aðgang eiga að sinu eigin flokksblaði. En hvers vegna gerir Nýtt land afstöðu Menntamálaráðherra, Magnúsar Torfa Ólafssonar, að þviliku stórmáli. Hvers vegna vill blaðið endilega fá hjá honum yfirlýsingu og hvaða þörf var á þvi að matreiða hana með þessum hætti? Ástæða var fyrir þvi. Allir, sem þekkja til Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, vita, að félagið i Reykjavik er meira en litið sér á parti i þeim samtökum. Þvi er stjórnað af hópi fólks, sem er ekki meira en svo gefið um þá Hannibal og Björn, og eru þau Bjarni Guðnason og Inga Birna Jón- sdóttir þar fremst i flokki. Þessi hópur, og þar með Reykjavikur- félagið, lita öðrum augum á mörg mál, er varnarmálið og raunar flest annað viðkomandi Kefla- vikurflugvelli og samskiptunum við Bandarikin. Þegar tilboð Bandarikja- stjórnar um fjármögnun fram- kvæmdanna á Keflavikurflugvelli hafði borizt urðu um það mjög skiptar skoðanir innan Samtaka frjálslyndra og vinstri manna. Flokksforystan og meiri hluti þingflokksins voru þvi meðfylgj- andi, að tilboðinu yrði tekið. Hópurinn, sem stjórnar Reykja- vikurfélaginu, var hins vegar á móti. Vildi hann, að tilboðinu yrði hafnað. Fljótlega eftir að tilboðið hafði borizt og áður en rikisstjórnin hafði afgreitt það var boðað til fundar i félagi frjálslyndra i Reykjavik. Menntamálaráð- herra, Magnús Torfi Ólafsson, sat þann fund, en Hannibal ekki, enda mun hann litinn áhuga hafa á þvi að sitja fundi með félögum sinum I Reykjavik og mun það áhugaleysi um fundaþátttökur Hannibals i þeirri sveit vera gagnkvæmt. Á umræddum fundi gerðist svo það, að félagið samþykkti tillögu um, að tilboði Bandarikjastjórnar skyldi hafnað. Ætluðust for- sprakkar Reykjavikurfélagsins til þess að Magnús Torfi Ólafsson hegðaði sér i rikisstjórninni sam- kvæmt þessari samþykkt, enda væri hann þingmaður frjáls- lyndra I Reykjavik og bæri að fara eftir tilmælum félaga sinna þar. Þegar málið kom til kasta rikis- stjórnarinnar til endanlegrar af- greiðslu greiddu tveir ráð- herranna, Magnús Kjartansson og Lúðvik Jósefsson, strax atk- væði á móti. Fjórir ráðherranna, Ólafur Jóhannesson, Einar Agústsson, Halldór E. Sigurðsson og Hannibal Valdimarsson tjáðu sig hins vegar strax tilboðinu fylgjandi. Magnús Torfi mun hins vegar ekki hafa látið uppi álit sitt á málinu i byrjun. Ólafur Jóhannesson mun þá hafa spurt Hannibal hvort hans jáyrði bæri að taka, sem samþykki þeirra beggja, — Hannibals og Magnúsar Torfa. Svaraði Hannibal þvi til, að Ólafur mætti vel lita svo á kæmi ekki annað fram hjá Magnúsi Torfa. Þá mun Magnús Torfi sjálfur hafa tekið af skarið og lýst þvi yfir, að hann væri þvi fylgjandi að tilboðinu væri tekið. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar varð sem sé sú, að fimm ráð- herranna, þar á meðal Magnús Torfi, greiddu atkvæði með tilboði Bandarikjaátjórnar en tveir ráðherrar Alþýðuband- lágsins á móti. Þegar afstaða Magnúsar Torfa fréttist til Reykjavikur deildar Samtaka frjálslyndra og vinstri manna varð þar mikið irafár uppi. Var talað um, að Magnús Torfi hefði ekki haft leyfi til þess að haga atkvæði sinu i rlkis- stjórninni á þennan hátt og Snið- ganga þar með samþykkt félags- fundar, sem hann hafði sjálfur setið. Stjórnendur blaðsins Nýtt land eru yfirleitt sammála hinni ráðandi kliku i Reykjavikurdeild frjálslyndra, en hafa þó uppi sér- sjónarmið I ýmsum málum, — þ.á .m. i varnarmálunum. Þar eru skoðanir þeirra, sem blaðinu ráða, miklu likari skoðunum þeirra Björns og Hannibals, eins og ljóslega hefur komið fram i skrifum blaðsins. „Blaðklikan” svo nefnda tók þvi afstöðu Magnúsar Torfa með miklum fögnuði. Til þess að sýna fram á, að afstaða Magnúsar nyti stuðnings blaðsins þótt hún væri harðlega gagnrýnd af Reykja- vikurdeildinni, bað ritstjórn Nýs lands Magnús að semja greinar- gerð um afstöðu hans i málinu og gerði þá greinargerð að upp- sláttarefni á forsiðu. Þetta er skýringin á þvi, hvers vegna er gert svona mikið veður út af afstöðu annars ráðherra frjáls- lyndra I vallarmálinu i siðasta tölublaði af Nýju landi, en ekki minnst aukateknu orði á afstöðu hins, likt og hann væri ekki til. Blaðið er að reyna að rétta hlut Magnúsar Torfa i sambandi við þær ásakanir, sem hafðar eru uppi gegn honum i Reykjavikur- deild samtakanna fyrir að hafa „svikið” i vallarmálinu. Hanni- bal lætur blaðið liggja á milli hluta. varaformaður Aldis Kristjáns- dóttir, gjaldkeri Rose Marie Christiansen og ritari Helga Einarsdóttir. t meðstjórn voru kjörnar Halldóra Jónsdóttir, Kristin Guðmundsdóttir Helga Möller og Oddbjörg Kristjánsdóttir. 1 varastjórn félagsins voru kjörnar Álfheiður Bjarnadóttir, Edda Imsland og Guðlaug Elias- dóttir. Þá var .einnig kosið i ýmsar nefndir. Kvenfélag Alþýðuflokks- ins er aðili að margs konar félagsstarfsemi kvenfélaga i Reykjavik og kýs fulltrúa i ýmsar sameiginlegar nefndir. Þannig var kjörið á aðalfundinum i Kvenréttindanefnd, Mæðra- styrksnefnd og fjáröflunarnefnd Hallveigarstaða. Aðalfundurinn kaus einnig nokkrar nefndir, sem fjalla eiga um ýmsa þætti i starfi félagsins sjálfs. Kosið var i basarnefnd. Námskeiðanefnd og Forstöðu- nefnd starfshópa, en þar er um að ræða nýja nefnd, sem ætlað er það hlutverk að veita forstöðu starfsemi starfshópa um ýmis mál innan félagsins. ER ÞA VERÐ STÖÐVUN FORMLEGA LOKIÐ? í leiðara Tlmans i gær er rætt um verðhækkanirnar. M.a. er vitnað i hækkun á blaðagjöldum og auglýsingatöxtum, sem varð um s.l. áramót, og sagt, að um þessa hækkun hafi veriö beðið 23. febrúar 1971, en hún ekki fengizt „meðan verðstöðvunin var i gildi.” Er þá verðstöðvuninni lokið núna? Var ekki einhvern tíina verið að tala um áframhaldandi verðstöðvun, sem I gildi ætti að vera? Eða var ritstjóra Timans falið að gera það með þessari furðulegu yfirlýsingu? Miövikudagur 12. april 1972 0

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.