Alþýðublaðið - 13.04.1972, Side 5
Utgáfufélag Alþýöublaðsins h.f. Ritstjóri
Sighvatur Björgvinsson Cáb.). Aösetur rit-
• I stjórnar Hverfisgötu 8-10. Símar 86666.
UPPBYGGING BUR
Alveg á næstunni mun borgarstjórn Reykja-
vikur sennilega taka ákvarðanir i sambandi við
eflingu togaraútgerðar i Reykjavik. Vitað er, að
ýmsir einstaklingar i borginni hafa hug á að
verða sér úti um einhverja af þeim nýju skut-
togurum, sem verið er að smiða og munu ein-
hverjir þeirra, eða allir, snúa sér til borgar-
stjórnar með beiðni um fjárhagslega fyrir-
greiðslu.
Vitaskuld er sjálfsagt, að borgarstjórn taki
slíkar umsóknir til alvarlegrar athugunar.
En borgarstjórn Reykjavikur má heldur ekki
gleyma þvi, að borgin á sjálf öflugt útgerðar
fyrirtæki, þar sem Bæjarútgerðin er. Bæjar-
útgerð Reykjavikur hefur um áraraðir verið eitt
af öflugustu útgerðarfyrirtækjum landsins. Hún
hefur gegnt geysi þýðingar miklu
hlutverki i atvinnulifi höfuðstaðarins og þegar
útgerð einstaklinga hefur dregizt saman vegna
þess að þeir hafa ekki talið það fjáhagslega
æskilegt að gera út, þá hefur Bæjarútgerðin i
Reykjavik verið verkafólki i höfuðborginni til
ómetanlegs atvinnuöryggis.
Alþýðuflokkurinn hefur oft gagnrýnt borgar-
stjórnarmeirihlutann harðlega fyrir að skilja
ekki þetta sjónarmið. Þegar Bæjarútgerðin hefur
átt i fjárhagserfiðleikum vegna slæmrar afkomu
útgerðarinnar i landinu, þá hefur það ávallt verið
fyrsta hugsun meirihlutans, að leggja nú út-
gerðina niður. Aldrei hefur meirihlutinn þó vogað
að framkvæma þann vilja sinn, þótt hann hafi oft
verið kominn á fremsta hlunn með það.
Nú eru sennilega i vændum miklir uppgangs-
tímar i togaraútgerð á íslandi. Þá er tækifærið til
þess að byggja Bæjarútgerðina upp. útgerðarráð
hefur óbeint óskað eftir þvi, að borgin heimili
Bæjarútgerðinni kaup á þriðja skuttogaranum og
minnihlutaflokkarnir i borgarstjórn hafa flutt til-
lögu um sama efni. Þessa beiðni á borgar-
stjórnarmeirihlutinn að sjá sóma sinn i að sam-
þykkja áður en hann fer að veita einstökum f jár-
sterkum einstaklingum fjárhagslega fyrir-
greiðslu til togarakaupa.
STIÓRNENDUR i BANBLA-
DESH HAFA 1AFNADAR-
STEFHIl AD LEtOARUÚSI
Kins og fram kemur i frétt
annars staöar á þessari siðu,
styður Alþjóðasamband jaf-
naðarmanna Awami-bandalagið i
Bangla-Desh og hefur gert frá þvi
árið 11)70. Likur benda til, að
innan skamms muni Awami-
bandalagið sækja um aðild að
Alþjóðasambandi jafnaðar-
manna og hefur stjórn Alþjóða-
sainbandsins þegar samþykkt
ályktun um það mál.
BanglaDesh, Awami-banda-
lagið og forystumaður þess og
þjóðhetja i Bangla-Desh, Mujibur
Rahinan, hafa verið mjög i
heimsfréttum undanfarið. Þar
sem Alþýðuflokkurinn er aðili að
A1 þjóða sa m ba nd i jafnaðar-
manna, sem stutt hefur Awami-
bandalagið og stofnun rikis i
Bangla-Desh, er forvitnilegt fyrir
Alþýðuflokksmenn að kynnast
nokkuð sögu Awami-banda-
lagsins, starfsaðferðum þess og
stcfnumiðum. Er stuðst við grein
um það efni, sem birtist i timariti
Alþjóðasa m ba nds jafnaðar-
manna „Socialist affairs” i
febrúarmánuði s.l., en sú grein
birtist hér mjög stytt.
Awami-bandalagið (Awaini
merkir þjóð) á rætur sinar að
rekja allt aftur til ársins 1949.
Fyrsti leiðtogi þess var H.S.
Sahrawardy og upphaflega var
heiti flokksins einnig kennt við
múhameðstrú , en það orð var
siðar fellt niður og nafn flokksins
stytt i Awami-bandalagið.
Foringi bandalagsins,
Sahrawardy, var einn af þeim,
sem mestan þátt áttu i stofnun
Pakistan-rikis árið 1947. Mcð
árunum komsthann þó i andstöðu
við stjórn rikisins m.a. vegna
þeirrar kúgunar, sem hún beitti
Bengali. Með stofnun Awami-
bandalagsins tók Sahrawardy
upp hanzkann fyrir Bengali og
eitt helzta stefnumark flokksins
var, að Bengalir öðluðust sjálf-
stjórn i sinum heimahéruðum.
Fyrst var bandalagið, eins og
áður segir, fyrst og fremst áitlað
múhameðstrúarmönnum, en með
þvi að fella slikt kenniorð burt úr
nafni flokksins var hann opnaður
öllum, án tillits til trúarskoðana.
AWAMi BANDALA6IÐIALÞJOÐA
SAMBANDIJAFNAÐARMANNA?
Alþjóðasamband jafnaðar-
manna, alþjóðleg samtök jaf-
na ða r m a nn a f 1 okka, sem
Alþýðuflokkurinn á m.a. aðild
að, hefur allt frá þvi fyrir kosn-
ingarnar 1970 stutt Awami-
bandalagið i Austur-Pakistan,
nú Bangla-Desh. Fljótlega eftir
að hið nýja Bangla-Désh riki
hafði verið stofnað fór Hans
Janitschek, framkvæmdastjóri
Alþjóðasambands jafnaðar-
manna til Dacca, þar sem hann
átti m.a. tal við Mujibur Rah-
man, formann Awami-banda-
lagsins og æðsta mann Bangla-
Desh. Janitschek flutti stjórn
Alþjóðasambandsins skýrslu
um ferð sina á stjórnarfundi,
semhaldinn var i Luxemburg 17.
jan. s.l. og i framhaldi af þvi
gerði stjórn Alþjóðasambands-
ins ályktun um málið.
Aiyktun Alþjóðasambands
jafnaðarmanna er i mörgum
liðum. t fyrsta lið ályktun-
arinnar fagnar sambandið
stofnun Bangla-Desh rikis og
skorar á aðildafélög sin um
heim allan að vinna að þvi, að
rikisstjórn Bangla-Dcsh hljóti
opinbera viðurkenningu sem
flestra rikja.
t öðru lagi óskar stjórnin eftir
áframhaldandi nánum sam-
skiptum milli Alþjóðasambands
jafnaðarmanna og Awami-
bandalagsins og fagnar þeim
möguleika, sem risið hafi upp,
að efla enn samvinnuna við
bandalagið og þá innan
vébanda Alþjóðasambandsins.
i þriðja lagi lýsir stjórn
Alþjóðasambands jafnaðar
manna stuðningi við tilraunir
Awaimi-bandalagsins til þess að
koma á fót þjóðfélagi jafnaðar-
stefnu i Bangla-Desh og árnar
bandalaginu allra heilla i þvi
starfi.
i fjórða lagi hvetur Alþjóða-
sambandið svo alla aðila til þess
að rétta Bangla-Desh riki
hjálparhönd við að byggja upp
efnahags- og atvinnulíf lands-
ins.
A næstu árum voru fleiri
áþekkir flokkar stofnaðir á
Austur-Pakistan. t febrúar-
inánuði árið 1954 mynduðu þessir
flokkar með sér bandalag,
„Samfylkingu” gegn fylkisstjórn
Múhameðstrúarsambandsins og
foringi samfylkingarinnar var
inaöur að nafni Fazlul Haque.
i kosningunum i Austur-
Hans Janitschek
og Rahman
Mujibur Rahman
Pakistan i marzmánuði árið 1954
barðist Samfylkingin undir slag-
oröinu „Bcngal fyrir Bengali” og
vann mikinn kosningasigur., —
22'.) þingsæti af 257 þingsætum i
Austur-Pakistan og myndaði þar
fylkisstjórn undir forsæti Fazlul
Haque. Stjórnin lýsti þvi þcgar
yfir, að hún^ myndi gera mál
Bengala að opinberu rikismáli,
jafn réttháu öðrum opinberum
mállýzkum i Pakistan.
Sambandsstjórnin i Rawalpindi
tók strax fjandsamlega afstöðu til
fylkisstjórnarinnar i Dacca.
Ymsar tilraunir til þess að koma
af stað klofningi innan fylkis-
stjórnarinnar mistókust og þá brá
sambandsstjórnin i Rawalpindi á
það ráð, að lýsa þvi yfir, að Fazlul
Ilaque stefndi að stofnun sjálf-
stæðs rikis i Austur-Pakistan og
notaði sambandsstjórnin svo það
tækifæri til þess að setja fylkis-
stjórnina af og lýsa Haque
svikara við Pakistan. Mikil up-
plausn fylgdi i kjölfar þessara
aðgerða, afleiðingarnar urðu
efnahagskreppa og afturfarir og
öngþveiti i stjórn landsins.
Samfylkingin i Austur-Pakistan
klofnaði þá aftur i sex flokka og
var Awami-bandalagið einn af
þeim. i júli árið 1957 klofnaði
Awami-bandalagið sjálft, —
annar vængurinn, undir forystu
kommúnistans Bhashani myn-
daði nýjan flokk, — þjóðlega
Awami-bandalagiö, en hinn
vængurinn, sem hélt gamla
flokksnafninu, laut forystu
Sahrawady áfram, en nánasti
samverkamaður hans var
Mujibur Rahman, fursti.
Þrátt fyrir margar tilraunir til
stjórnarmyndana i Pakistan tókst
ekki að tryggja þar stöðugt st-
jórnarfar. Þaö var orsök þess, að
yfirmaður hersins, Ayub Kahn,
hershöfðingi, framkvæmdi
valdarán i október árið 1958.
llann lýsti úr gildi fallna st-
jórnarskrá landsins, rak bæði
sambandsstjórnina og hinar
einstöku fylkisstjórnir frá völdum
og stjórnaði i skjóli herlaga.
Til þess að tryggja sér yfirráð
fangelsaði Ayub Kahn ýmsa
forystumenn i stjórnmálum i
landinu, — þ.á.m. Sahrawardy,
formann Awami-bandalagsins.
Mikil mótmælaalda reis þá upp i
landinu og Ayub Khan tókst ekki
að brjóta þjóðerniskennd Bengala
á bak aftur. Við formennsku
Awami-bandalagsins tók Mujibur
Rahman, nánasti sam-
verkamaður hins fangelsaða
Sahrawady.
Arið 1965 braust svo styrjöldin
við Indland út. Þeir atburðir urðu
til þess að auka mjög fylgi Rah-
mans og Awami-bandalagsins,
sem nú barðist fyrir sjálfstæði
Austur-Pakistan. 1 marzmánuði
kynnti ltahman, sem nú var
óvéfengjanlega orðinn leiðtogi
Austur-Bengala, stefnuskrá i sex
liðum um, hvernig þessari
sjálfstjórn Austur-Pakistan
skyldi fyrir komið. i henni var þó
ekki gcrt ráð fyrir þvi, að Austur-
Pakistan segði sig algerlega úr
lögum við Pakistan-riki, heldur
skyldu Austur-Pakistanir fá
sjálfstjórn i mjög veigamiklum
atriðum, cnda þótt héraðið lyti
formlega yfirstjórn sambands-
stjórnarinnar i Rawalpindi.
Arið 1969 var stjórn Ayubs
Kahn orðin mjög óvinsæl vcgna
hvcrs kyns spillingar og einræðis-
hncigðar. Mujibur Rahman i
austri og Ali Butto, núverandi
æðsti maður Pakistan, i vestri
skipulögðu þá mikinn andróður
gegn stjórninni og urðu endalykt-
irnar þær, að Ayub Kahn var
hrakinn frá völdum en við tók
Yahya Kahn. Sá siðarnefndi
lofaði að efna til almennra
kosninga og var það gert í des-
cmbermánuði árið 1970. i þeim
kosningum vann Awamibanda-
lagið 160 af 162 þingsætum í
Austur-Pakistan og hreinan
meirihluta þingsæta í Pakistan-
riki öllu.
Kftirleikinn þekkja svo allir.
Yahya Kahn neitaði að una úrslit-
unum, lýsti Mujibur Rahman
svikara, sendi her inn i Austur-
Pakistan og hneppti Rahman i
varðhald þar sem liflát vofði yfir
honum. Strið brauzt út milli
Pakinstönsku hersveitanna og
Bengala, Indland gerðist þátttak-
andi í styrjöldinni og sambands-
stjórnin i Rawalpindi varð að láta
i minni pokann, — Yahya Kahn
hrökklaðist frá völdum i
Pakistan, Bangla-Desh riki var
stofnað og Mujibur Rahmann og
Awami-bandalagið tóku þar við
stjórn.
Stefnuskrá Awami-banda-
lagsins byggir á lýðræðislegum
sósialisma. Flokkurinn hyggst
þjóðnýta ýmis náttúruauðæfi
landsins, afnema einokun og
fyrirtækjasamsteypur og leysa
vandamál landsins eftir félags-
legum lciðum. Awami-banda-
lagiö er þvi flokkur jafnaðar-
manna, sem hefur haft náin sam-
skipti við Alþjóðasamband jaf-
naöarmanna og mun að öllum
likindum innan skamms gerast
þar fullgildur aöili.
Það eru þvi jafnaðarmenn, sem
leiða hið nýja Bangla-Desh riki.
Þcir njóta stuðnings allrar þjóð-
arinnar og það erfiða verkefni,
sem við þeim blasir, ætla þeir að
leysa i anda jafnaðarstefnu.
Jafnaðarmenn um heim ailan
árna þeim heilla i þeirri baráttu.
Fimmtudagur 13. april 1972