Alþýðublaðið - 16.04.1972, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 16.04.1972, Blaðsíða 1
 FORELDRAR SEM LATA GÖTUNA OG SKÚMASKOTIN UM UPPELDID Bjarni Sigtryggsson: HUGRENNINGAR UM HELGINA Það er engu líkara en við séum að eignast nýja kyn- slóð af foreldrum. — For- eldrum, sem hafa gefizt upp á að veita börnunum sinum uppeldi. Því fréttirnar um inn- brotafaraldur barna og ung- linga hér í höfuðborginni segja nýja sögu um afskipti, eða öllu heldur afskiptaleysi foreldra af afkvæmum sínum — og i fyrstu atrennu verður ekki við börnin ein að sakast. Börn eru af guði gerð hvorki verri né betri en þau voru áður. Hins vegar minnist ég þess ekki, og efast reyndar um, að elztu menn muni eftir þvi, að fréttir hafi áður borizt af óeirðaflokkum unglinga f hverfum borgarinnar, sem brjótast inn hvar sem hægt er með góöu móti, eyðileggja fyrir hundruð þúsunda, og vinna alls kyns tjón á eigum annarra. Og endurtaka þessa iðju sina með fullkomnum stuðningi foreldra sinna, sem vilja frckar svara skætingi þeim mönn- um, sem segja þeim hvað börnin hafa gert, en þurfa að hætta sér út á þann hála is að tala um fyrir börn- unum sinum. Þvi allt er skárra en að þurfa að standa i striði við sin cigin börn. Við sögðum nú i vikunni frá byggingu við Grensásveg, sem orotizt hefur verið inn i hundraö sinnum, siðan framkvæmdir hófust við hana nú i haust. Um siðustu helgi varbrotizt þar inn þrisvar, og það eina sem vakti fyrir innbrots- börnunum var að skemma. Skemma eins mikið og mögulegt væri. Eyðiieggja dýrmæt tæki, brjóta það sem brotið verður, rifa niður, klina málningu á veggi og harðviðarinnréttingar, mölva dýrar veggflísar og brjóta öll ijós i húsinu, 200 talsins. Og þetta tókst. Um siðustu helgi var þarna skemmt og eyöiiagt fyrir a.m.k. 100 þúsund krónur. Þetta tjón fæst ekki bætt, þvi innbrots- þjófarnir eru undir 16 ára aldri og þvi ekki sakhæfir. Og það er ekki langt um liðið siðan fréttir skýrðu frá óeirðalýð i Breiðholti. Þar var sama sagan. Börnin gengu i hópum um hverfið, cinkum þegar kvölda tók, brutust inn i hús i byggingu, skemmdu þar og stálu, og unnu alls kyns speli- virki. Og eflaust eru dæmin fleiri. Allt ber þetta þvi miður að einum brunni. Og þótt við höfum nefnt Breiðholt, þá er eflaust ekki um nein iandamörk að ræða. Einu landamörkin, sem hægt er að draga eru viðhorf foreidranna. Og þar ber okkur að lélegri strönd. Með hverju hafa þessir nýju for- eldrar keypt sér frið frá börnum sinum? Ekki bara bióferðum og sælgætispeningum. Það eru sak- lausir smámunir. Því miður. Þessir nýju foreldrar hafa strax I fyrstu lotu gefizt upp, varpað ábyrgðinni frá sér og falið götunni og skúmaskotum uppeldið. HUNDRAÐ INNBROTI SÖMU BYGGINGUNAll ii «•>» h‘»< *•<••> | *••“•' • ■ • ••■<••» !•■•■ k,l(l >•■»■ Armn »>*«••*••• •!*•• >■*»•,) »•**«• *••,!■ *•••• •*•■» »* »•**!• *••• l ■ ‘ "« »•■■■* '•• •■■ •» Irll. I . lAuli .1» » ' ........... k«»M ■•••••••Irll rr I ••■w ■»*••* ■• IM •)•• r•a»rkr.m>ll * ,kkik»llln»l;rttM»lam •* >»,rn>M»'«« »,!•• »rrl» «■■•» A krrk|r,Bl«|H • ».i ■*»■ lltrar >r**fll.»r ••ram*i.»» • •« *nm |t)ll im ••• •» ►«' H >*ra >M l»M. •«• »11 l)M I • r»mh»ld • bli I EN ÞA KOMU ÞJOFARNIR (FRAMHALD) OG FORELORAR SOKUDOLGANNA SVARA SKÆTINGI ► BLS. 3 UPPELDINU MÁSKE ÁFÁTT? Eru Brnöholt vtoorn E.nn þ«irr» m«nn«. uitog h»l» rkki timi lil «1 |>vi tolhi. rhki vern n rtpm.r bOrn? bórl SUNNUDAGUR 16. APRÍL 1972 — 53. ÁRG. 81. TBL $UNNIJDAG$EIAL 8 NÍI I I

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.