Alþýðublaðið - 16.04.1972, Blaðsíða 6
FINNIÐ ÚT SJÁLF HVORT ÞIÐ ERUÐ VELKOMIN í NÆSTU VEIZLU - EÐA ÆTTUÐ BARA AÐ VERA HEÍMA
Það er sem sé parti eða
heimboð, eða veizia, eða
hvaða nafni það gengur
undir i það og það skiptið, —
en þér dettur allt i einu i hug:
Hvers vegna er verið að
bjóða MÉR?
Er það af þvi að veizlan
eða boðið verði eitthvað
betur heppnað ef þú ert þar
meðal gesta? Eða er það af
einhverri skyldu? Eða
kurteisi? Eða bara til að
fylla upp ákveðinn hóp?
Ert þú kannski hrókur alls
fagnaðar, nauðsynlegur i
hvert hóf, eða ertu kannski
leiðinleg skylda, likt og raf-
magnsreikningurinn?
Auðvitað ættum við ekki að
vera að spyrja okkur sjálf
spurninga sem þessara, en
við gerum það samt, þvi við
erum öll svo yfirþyrmandi
forvitin, og hér er sjálfs-
könnun, sem ætti að geta
fært okkur svarið. Og þegar
við höfum svarið ættum við
að eiga auöveldar með að
ákveða hvort við ætlum i
partiið, vera þar miðpunktur
fjörsins, eða láta skynsem-
ina ráða og liggja heima með
tærnar upp i loft. Og til að fá
heiðarlegt svar þarftu að
sjálfsögðu að svara sjálfur
eða sjálf i fullkominni hrein-
skilni:
1) Hefuröu einhvern tima
haldið boð, þar sem ALLIR
sem boðið var mættu?
a) Já.
b) Nei.
c) Held aldrei veizlur.
2) A hinn bóginn: Ferðu i
allar veizlur, sem þér er
boðið i?
a) Já.
b) Nei.
c) Er aldrei boðið.
3) Hefurðu oft móral eftir
veizlur (óskar þess heitast
að hafa ekki sagt hitt eða
þetta eða gert hitt eða
þetta)?
a) Aldrei.
b) Stundum.
c) Yfírleitt.
4) Auðvitað geturðu, ef þú
reynir vel, búið til lista yfir
fólk, sem þú myndir helzt
ekki vilja bjóða i veizlu til
þin. En gætirðu gert lista yfir
eitthvert fólk, sem þú ert
viss um að myndi aldrei
bjóða þér?
a) Ekkert.
b) Fjögur hjón eða færri.
c) Fimm eða fleiri.
5) Ert þú einn af þeim, eða
ein af þeim, sem hafa komið
sér upp iista af smellnum
sögum eða bröndurum til að
segja i veizlum?
a) Já.
b) Nei.
6) Það er fámennt kvöld-
verðarboð og húsmóðirin
stendur ein i þvi að bera
fram matinn. Býðstu til að
hjálpa til?
a) Já.
b. Nei.
7) Nágrannarnir buðu þér
og nokkrum öðrum vinum
þeirra upp á glas. Sennilega
of mörgum, þvi þér finnst
heil eilifð siðan húsbóndinn
kom til þin og fyllti upp tómt
glasið þitt. Hvað gerir þú:
a) Tekur þvi með brosi og
lætur eins og það skipti engu
máli?
b) Hjálpar þér sjálfur?
c) Biður um meira undir
þvi falska flaggi, að þú sért
að ná i fyrir gömlu konuna i
horninu?
8) Þú ert i helgarboði uppi i
sumarhúsi vina þinna. Sólin
er komin hátt á loft, en hús-
bændurnir sofa svefni hinna
réttlátu. Maginn er farinn að
segja til sin, en það myndi
lika braka i öllu húsinu ef þú
færir sjálfur að ganga fram i
eldhús. Myndir þú:
a) Liggja áfram og telja
kvistina i loftinu?
b) Fara hljóðlega en
ákveðið fram i eldhús?
c) Ganga fram og syngja
einhvern fallegan morgun-
söng fyrir utan herbergi
hjónanna.
9) Ert þú:
a) Grænmetisæta?
b) Aðdáandi hollrar
náttúrulegrar fæðu?
c) Heppilegur til að gera
góðlátlegt grin að?
d) Ein af þeim, sem henta
vel fyrir „kerlingarnar” —
eða góður i karlana?
e) Sérfræðingur á a.m.k.
þrem sviðum?
10) Þú ert nýkominn inn. Þú
sérð strax i einu horninu
glæsilega einmana stúlku
[éða myndarlegan herra) en i
öðru horni þekktan milljóna-
mæring. Hvert ferðu:
a) Til fallega gestsins?
b) Rika karlsins?
c) Hvorugs?
11) Nágranni þinn býður þér
heim til að kynnast nýjum
viðskiptafélaga sinum. Og
þegar þú sérð hann manstu
eítir honum frá þvi i skóla —
og þú hefur aldrei þekkt
meiri ref eða svikahrapp.
Hvað gerirðu:
a) Ferð með nágranna út
i horn og hvislar: ,,Ég verð
að segja þér. . .”
b) Leiðir skúrkinn sjálfan
út i horn og gefur honum
sólarhrings frest til að draga
sig i hlé?
c) Brosir þinu bezta og
ákveður að segja nágrann-
og
ERT ÞU HROKUR ALLS
FAGNAÐAR í PARTÍUM
EBA KANNSKI SÁ SEM
SITUR IÍT í HORNI?
anum alla söguna daginn
eftir?
d) Hugsar sem svo, að
menn geti nú hafa breytzt til
batnaðar á öllum þessum
tima?
12) Það er kominn heim-
ferðartimi. Þú ferð upp i
svefnherbergið uppi, þar
sem þú veizt að yfirhafn-
irnar voru lagðar. Þar inni
eru Herra A. og Frú B. i óða
önn að brjóta eitt boðorð-
anna. Hvað myndir þú gera:
a) Liður yfir þig?
b) Hóstar kurteislega og
skýrir þitt mál?
c) Biður Herra A. og Frú
B. að rétta þér frakkann og
kápuna?
d) Kemst að þeirri niður-
stöðu, að það sé ágætisveður
úti og allt i lagi að ná i yfir-
hafnirnar á morgun?
e) Laumar sannleikanum
til húsbændanna?
13) Við matarborðið, hvort
finnst þér fólkið við hliðina
yfirleitt
a) leiðinlegt?
b) skemmtilegt?
14) Til þess að skilja þig ekki
útundan ákveða húsráð-
endur að bjóða þér annað
hvort i golf eða sem fjórða
mann i bridge, vitandi að þú
kannt ekkert i hvoru. Hvað
gerir þú:
a) Tekur þátt i þvi i grini
og af skyldurækni?
b) Leggur til að þú farir
með hundinn i gönguferð?
OG HVER ER SVO NIÐURSTAÐAN ?
€>+
65 stig eða meira: Þú ert
fágætur persónuleiki. Þú
manst eftir svo mörgu, sem
aðrir gleyma... og þú ert
gæddur þeim góða hæfileika
að geta látið gestgjafana lfka
skemmta sér og finnast þeir
heima hjá sér. En það eru
lika aðrar ástæður fyrir þvi
að þú ættir að fá boðskort úr
gulli. Þú hefur hæfileikana
til að láta fólk finna að þúhaf
ir einungis komið af þvi að
þig langaði til að koma (og
sannarlega hefðirðu annars
ekki komið). Þú getur
skemmt þér konunglega án
þess að það þurfi einhver að
hafa varðstöðu yfir þér, svo
þú verðir ekki þér og öðrum
til skammar.
Þú ert ekki fordómafullur,
og þér tekst vel að leyna þvi,
sem þú kannt að hafa af sér-
vizku. Þú ert næmur fyrir
umhverfinu og átt auðvelt
með að setja þig inn i hvaða
kringumstæður sem er. Þér
veitist létt að bjarga þér
áfram innan um ókunnuga
og þú sérð til þess þótt ekki
sé það áberandi, að þú
skemmtir þér fyrst og
fremst sjálfur. Fólk veit að
þú daðrar pinulitið, og hikar
ekkert við að biðja um höfuð-
verkjartöflu daginn eftir - og
enginn áfellist þig þótt þú
hafir sett svolitið út á við þá
merkilegu og leiðin legu i
partíinu.
En umfram allt, þú þarft
ekkert að burðast við að vera
miðpunktur samkvæmisins.
Þvi þú hefur það nokkurn
veginn á tilfinningunni, og
ert það i rauninni á þinn eig-
in kæruleysislega máta.
Hinn fullkomni gestur er sá,
sem ekki skortir sjálfstraust,
og gestgjafinn getur beint
áhyggjum sinum að öðrum
gcstum.
0-0
64-41 stig: Gestgjafinn er
siður en svo á nálum út af
þér. Þvi þú og þinir líkar eru
burðarliðirnir i hverju sam-
kvæmi. Þú ert eins og flestir
gestanna ástæðan fyrir þvi
að fyrsti sjússinn er nægi-
lega sterkur (svona til að
hrista hátiðleikann af ykk-
ur). I klukkustund eða svo
mætti halda á svipnum á þér
að þú værir i dómkirkju. En
eftir það fara flest ykkar að
geisla, og þægilegri tilfinn-
ing að gripa um sig i veizl-
unni. 1 þinum hóp er fólk,
sem gjarnan vill vera svolit-
ið i horninu og horfa á hitt
fólkið, en flest ykkar taka þó
við sér þótt siðar sé. Og
reyndar eru skemmtilegustu
sögurnar sem verða til eftir
partiin sprottnar úr þinum
hópi. Þvi það eru einmitt
þinir likar, sem gera þessa
litlu smáskandala, sem lifa I
endurminningunni, þótt þeir
séu ef til vill óþægileg. til-
hugsun fyrir viðkomandi
morguninn eftir.
©-T-
40 stig eða minna: Það
hlýtur að hafa verið einhver
ástæða fyrir þvi að þér var
boðið, en hver getur hún
eiginlega veriö? Varla
peningarnir eða áhrifin? Þá
hefur koma þin verið of háu
gjaldi greidd. Og við skulum
vera hreinskilin, það er ein-
hver venja að bjóða þér. Og
þinn hópur mun alltaf vera
til þar sem veizlur cru haldn-
ar. Þvi annars væru þær ekki
eins og þær eru.
o
c) Ertu kannski golfsnill-
ingur og bridgekappi?
15) Þetta kvöld er i sjónvarp-
inu mynd, sem þú varst stað-
ráðinn i að missa alls ekki af.
Nefnirðu það svona lauslega
við gestgjafana?
a) Já?
b) Nei?
16) Byrjarðu
með þessum
hafið kannski
um. . .”?
a) Já.
b) Nei.
c) Segi aldrei
brandara.
oft brandara
orðum: ,,Þið
heyrt þennan
sögur eða
17. Hvað sem annars má
segja ágætt um konu gest-
gjafans, þá finnst þér hún lé-
legur kokkur. Þú ert þess
vegna dauðsvangur svo þú
læðist niður undir miðnættið
til að finna eitthvað að lesa.
Þú heyrir þá að hjónin eru
inni i stofunni að tala um
helgargestina. Þú leggur af
rælni við hlustir og þau eru
komin að þvi að tala um þig.
I hreinskilni sagt, við hverju
býstu viö að þau segi um þig:
a) Eitthvað fallegt.
b) Eitthvað háðskt.
c) Eitthvað fremur ill-
gjarnt.
d) Minnist varla á þig.
18) Svo minnst sé aftur á
hvað húsmóðirin var lélegur
kokkur — og þú færð i mag-
ann. Minnistu kurteislega á
það við þau hvort eitthvað sé
til við þvi i húsinu?
a) Já.
b) Nei.
19) 1 öllum partium er alltaf
einhver einn a.m.k. sem
verður einn eftir úti I horni.
Finnst þér skylda þin að gera
eitthvað i þvi, halda uppi
samræðum við hann eða
jafnvel kynna hann fyrir öðr-
um?
a) Já.
b) Nei.
c) Ert þú kannski sjálfur
einn af þessum „horn-mönn-
um” stundum?
20) Finnst þér betra að vera:
a) Sá, sem heldur veizl-
urnar?
b) Sá, sem sækir veizl-
urnar?
c) Skiptir ekki máli?
d) Helzt hvorugt, ef þú
igætir ráðið?
HVAÐ
FÆRÐ
ÞÚ
MÖRG
STIG?
Athugaðu hvað mörg stig
þú hefur fengið eftir að hafa
krossað við svörin:
1) a:5 / b:2 / c:0.
2) a:2 / b:5 / c:0.
3) a:2 / b:5 / c:0.
4) a:0 / b:5 / c:0.
5) a:0 / b:5
6) a:0 / b:5
7) a:0 / b:4 / c:5.
8) a:2 / b:5 / c:0.
9) Dragðu eitt stig frá fyrir
hvert JÁ. Ef Jáin eru þrjú
eða fleiri, dragðu þá fimm
stig frá til viðbótar.
10) a:5 / b:2 / c:0.
11) a:0 / b:3 / c:5 / d:0.
12) a:0/b:3/c:0/d:4/e:5.
13) a:0 / b:5.
14) a:0 / b:3 / c:5.
15) a:0 / b:5.
16) a:0 / b:5./ c:5.
17) a:5 / b:0 / c:5 / d:l.
18) a:0 / b:5.
19) a:5 / b:0 / c:2.
20) a:3 / b:3 / c:5 / d:0.
Sunnudagur 16. apríl 1972