Alþýðublaðið - 23.04.1972, Page 1

Alþýðublaðið - 23.04.1972, Page 1
GLEOILEGT SUMAH - OG EG MEIKA ÞAD Ekki veit ég við hvern er að sakast, en einhver hlýtur að bera ábyrgðina á þvi að páskar og hvitasunna eru einhverjir leiðinlegustu fridagar sem við fáum. Það er helgislepjan sem grúfir yfir föstudeginum langa, páskadeginum og hvitasunnu- deginum. Og þótt fólk eigi nú virkilega inni fyrir þvi eftir langan veturinn að fá að komast út undir bert loft og draga inn pinulitið súrefni, þá er einhver sifelld viðleitni hjá kerfinu til þess að reyna að spyrna á móti. Á föstudaginn langa var ég að koma eins og tugþúsundir ann- arra Heykvikinga ofan úr skiða- landinu, - það var óslitin bilaröð frá skiðalandinu i Bláfjöllum niður fyrir Artúnsbrekku, enda veðrið á þann veg, að ekkert var hægt að gera heilnæmara fyrir likama og sál en nota útivistina. En við Geitháls lá hin dauða krumla kerfisins i mynd nokk- urra lögregluþjóna, sem sáu til þess að kaupmaður staðarins fengi nú ekki að græða svo mik- ið sem 15 aura a þvi að selja mönnum bensinlögg á tankinn eða pylsu i tómann magann. Ég spurði lögregluþjóninn, sem sat við stýrið, hvort ekki yrði opnað aftur. ,,Allavega ekki fyrr en eftir miðnætti” svaraði hann - og þar með hafði þessu leiðinda fyrirkomulagi á kristnihaldi noröur undir heim- skautsbaug tekizt að eyðileggja fyrstu almennilegu útivistar- helgina fyrir hundruðum ef ekki þúsundum manna, kvenna og barna, sem urðu fyrir vikið að nota siðustu tvo bensinlitrana til að komast heim i bilskúr. En þvi miður, þetta er ekki einu sinni hálf sagan. Og svo við höldum okkur við bensinið, þá er það aftur þessi dauða krumla, sem skrúfar fyrir bensinsölu klukkan kortér fyrir eitthvað á hverju kvöldi, og þótt það sé komið sumar með nátt- leysur og miðnætursólarróman- tik - þá sér reglugerðin fyrir þv þvi að fyrr verði villinn bensin- laus en menn komist á leiðar- enda. Framundan er fyrsta stóra ferðahelgin, hvitasunnan. Þá á þessi furðusaga eftir að endur- taka sig i 1001. sinn. Krumlan á eftir að eyðileggja ánægjuna fyrireinhverjum.hvortsem það er i formi banns við bensinsölu, banns viö saklausum dans- skemmtunum, banns við hinu eða banns við þessu. Hvers vegna tökum við ekki sumrinu fegins hendi og njótum þess. Við fáum sjaldnast nóg af þvi, og þegar við óskum hvert öðru gleðilegs sumars, þá eig- um viðaðmeina það. Niður með bönnin og upp með brosin. Vel á minnst. Sumarstúlkan okkar að þessu sinni heitir Anna Scheving - og það var hirðljós- myndari okkar, Gunnar Heið- dal, sem tók myndina. Sunnudagur 23. apríl 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.