Alþýðublaðið - 23.04.1972, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 23.04.1972, Qupperneq 2
ER EKKI ALLTAF, SEM VITNI HAFA RÉTT FYRIR SÉR ÞEIR URÐU FÚRNAR- tðMB VITNANNA STOLNI BÍLLINN Albert Chapman Koy Roberts Sendiferðabil var stolið í Brad- ford í nóvember 1970. Lögreglu- þjónn sem var á verði í um- ferðinni kom auga á hinn stolna bíl nálægt gatnamótum, en mis- lukkaðist að fá ökumann til að nema staðar. Hann fór þá inní bíl hjá einum vegfaranda og mælti svo fyrir að þeir skyldu elta bíl- þjófinn uppi. Þeir eltu hann um hríð og gátu knúið hann til að stanza. Sáu þeir þá ökumann greinilega. Lögregluþjóninn fór inní bilinn og skipaði ökumanni að aka áleiðis til ráðhússins hafði sjálfur ekki af honum augun og fylgdist með hverri hreyfingu. En skyndilega snarhemlaði öku- maður þaut út og flúði eins hratt og fætur toguðu. Lögregluþjónn- inn elti hann en missti af honum. Seinna brá hann sér i hús Albert nokkurs Chapmans og skildi þar eftir fyrirmæli um að mæta hjá lögreglunni. Albert Chapman kom að vörmu spori, og var þá ákærður fyrir að aka stolnum bíl. Hann hafði ágæta fjarvistar- sönnun, en ekkert stoðaði. Honum var stillt uppí röð einsog vani er þegar bera skal kennsl á óbóta- menn og bæði lögregluþjónninn og bílstjórinn þekktu hann fyrir bílþjófinn fótfráa. Þeir meira að segja þekktu fötin sem hann var i. Seint í febrúar var Albert Chap- man svo dæmdur í níu mánaða fangelsi og sviptur ökuleyfi um hálfs annars árs skeið. En þá er fregn um þetta birtist í blaði daginn eftir að dómur var felldur, var einn af lesendunum Roy nokkur Roberts. Hann sat sjálfur í fangelsi. Fimm dögum seinna játaði hann fyrir lögregl- unni að hann væri sekur um þau afbrot sem Chapman væri dæmd- ur fyrir. Piltur þessi kom fyrir rétt 13. marz. En Albert losnaði ekki fyrren hann var búinn að sitja saklaus í fangelsi i sautján daga. JÁTAÐI Á SIG FRASOGN i blaði um mál Raymonds Boddy hljóðar svo: Healing rannsóknarlögreglumaður fékk lof i Middlesex undirrétti fyrir aö leggja sig fram um að kanna máliö svo hið sanna kæmi fram. bað var forseti réttarins sem bar á hann lofið og bað saksóknara að sjá um að verka lögreglumannsins yrði getið við lögreglustjórann sjálfan. Raymond Boddy 26 ára gamall kola- flutningamaður i Greenford Avenue i Southall var sakaöur um að hafa brotizt inn i hús og stoliö i Park Avenue i Southall. Hann var kallaður fyrir rétt, en daginn eftir réttarhaldið var annar kola- maður Lynn James tekinn fastur fyrir aðrar sakir, en sú vitneskja barst frá Scotland Yard að fingraför hans hefðu fundiztá innbrotsstaðnum i Park Avenue. Enda þótt mál Boddys væri langt á veg komið fannst Healing logreglumanni að nauðsyn bæri til að rannsaka það nánar. Lögreglumaðurinn skrapp þvi að finna Lynn James sem var annarsstaðar i fang- elsi. Hann yfirheyrði James, þótt naum- ast væri það i hans verkahring, og játaði hann innbrotið og þjófnaðinn. Kæran á hendur Raymond Boddy byggðist á fram- burði tveggja kvenna sem völdu hann úr stórum hópi manna sem upp var stillt að venju og töldu sig geta borið um að hann væri sá seki. En allt fór á annan veg, er Lynn James játaði á sig verknaðinn ásamt tveimur öðrum mönnum. Þeir höfðu brotizt inn , stolið og ekið bilnum i leyfisleysi. Lynn fékk 15 mánaða fangelsi, þar af sex mán- uði skilorðsbundna. En til þess að vera sanngjarn i garð kvennanna ber þess að geta að þessir tveir ungu menn voru likir i sjón. TÖSKUÞJÓFURINN NOKKRAR gamlar konur urðu fyrir þvi að ungur piltur kom til þeirra út á stræti og baö um að mega láta þær hafa smámynt fyrir seðla. Þegar svo seðlarnir komu i ljós þreif hann þá af þeim, og hljóp eins og fætur toguðu á burt. Þetta gerðist aftur og aftur. Þetta var i Bradford. Tuttugu ára gamall barþjónn sem heima átti i Clara Street i Leicester heim- sótti iðulega ættingja sem hann átti i Bradford, var handtekinn. Tvær konur bentu á hann i hópi manna sem upp var stillt, og kæra var lögð fram á hendur honum. Alls þekktu hann fyrir þjófinn sex konur sem orðið höfðu fyrir ráni. Nafn ÁRAS Á GÖTU ÚTI mannsins er Patrick Crundall . En Crundall var heppinn. Slátrari nokk- ur i Bradford sá kvöld eitt ungling fara framhjá búðinni, og þar þekkti hann aftur pilt sem hann áður hafði elt en misst af eftir að hafa horft á hann ræna konu. Nú, 'hljóp hann enn á eftir piltinum og náði honum. Hann reyndist vera Jeramiah Delaney 17 ára gamall og atvinnulaus. Hann játaði sök sina. Og vitnin sex töldu sér hafa getað skjátlazt. En Crundall þurfti að biða i nokkra mánuði áður en hann fékk sakleysi sitt. viðurkennt og var látinn laus. Hann kveðst hafa tapað 150 pundum bæði vegna tekjumissis og vegna simtala milli Bradford og Leicestar. Indverji nokkur, Sham Sharma að nafni sem var á leið heim til sin i Handsworth nálægt Birmingham varð fyrir árás þriggja manna frá’ Vestur-Indium (þel- dökkra). Veski hans með 23 pundum var tekið. Hann sneri sér strax til lögreglunnar sem ók honum um nágrennið. A götu einni, ekki langt þar frá sem árásin var gerð, voru þrir dökkir menn á gangi og taldi Indverjinn sig þekkja þar árásar- mennina. Veskið fannst ekki i fórum þeirra og aðeins voru þeir með um 2 pund i peningum auk þess sem ekkert sérstakt benti til að þeir væru hinir seku. Sharma þóttist samt viss i sinni sök. Þessir þrir menn voru siðan kallaðir fyrir rétt og settir i gæzluvarðhald. En þegar þeir höfðu verið nokkra daga i varðhaldi urðu þeir þess áskynja að þrir aðrir menn frá Vestur-Indium voru i fangelsinu og ræddu þeir sin á milli um árás lika þeirri sem þeir sjálfir voru sak- aðir um. Þeir gátu gefið lögreglunni upp gælunöfn hinna kumpánanna og lögreglan fór heim til mannanna og fann þar veskið stolna. Hinir seku voru siðan dæmdir, en þessir þrir menn sem saklausir höfðu fengið að dúsa nærfellt hálfan mánuð i fangelsi látnir lausir og fengu einhverjar bætur. SILFURBÚNAÐI STOLIÐ MAÐUR að nafni Frederick Loveridge var tekinn fastur og sakaður um innbrot og þjófnað á silfurborðbúnaði aö verð- mæti um 500 pund. Hann sat i varðhaldi i þrjár og hálfa viku er hann var látinn laus. Engin sönnun var fyrir þvi að hann hefði drýgt glæpinn. En eitt eða tvö vitni töldu sig þekkja þar hinn seka og völdu hann úr er þeir voru leiddir fram fyrir röð af mönnum. En áður en lengra liði hafði lögreglan hendur i hári tveggja af fimm úr pöru- piltahópi sem stundað höfðu innbrot og þjófnað i London og viða i kring. Fingra- för þeirra fundust i húsinu þar sem silfur- borðbúnaðinum var stolið. Þeir voru seinna sakfelldir fyrir þann verknað. En Frederick Loveridge var i fangelsi og þurfti enn að koma fyrir rétt til þess að vera lýstur sýkn saka. Samt var honum neitað um bætur fyrir óþægindin og van- virðuna sem hann hafði orðið að þoia. STOLIÐ ÚR KIRKJU ÞEGAR Leonard Everington, 41 árs gamall verkamaður i Ipswich, var látinn laus hafði hann setið i fangeísi fjórar vikur. Hann hafði i ágúst verið kærður fyrir að stela helgum gripum úr þremur kirkjum i borginni. Hann játaði á sig glæpinn en lét i það skina eftir á að hann hefði gert það undir nokkurri þvingun af hálfu lögreglunnar. Ekki var stillt upp neinum hópi manna til að láta vitni velja úr. Heldur töldu þau sig þekkja hann a' mynd sem þeim var sýnd. En seinna komst upp að allt annar mað- ur framdi verknaðinn, fingraför hans fundust á einum kirkjugripnum sem stolið var og sá hinn sami var þekktur fyrir að ræna kirkjur. Leonard Everington var látinn laus, en verjandi hans lét þess getið að mál hans væri dæmi um mistök við að þekkja söku- dólg og sýndi enn fremur að sumir játa á sig sök sem alls ekki var þeirra. o Sunnudagur 23. apríl 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.