Alþýðublaðið - 30.04.1972, Síða 10
HANNIBAL SVARAR
SJÖMENNINGUNUM
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi greinarstúfur frá Hannibal
Valdimarssyni:
Sem andsvar við árás á mig -
sem Alþýðublaðiö hefur komið á
framfæri fyrir 7 húsnæðismála-
stjórnarmenn, óska ég birtingar á
eftirfarandi:
Sjömenningarnir hafa eftir
mér, að leggja beri starfsemi
Húsnæðismálastofnunar rikisins
niöur,- Þetta er alrangt, og allur
pistill þeirra þannig byggður á
rangfærslu.
Ljóst var af ræðu minni, að ég
taldi starfið fullframkvæmanlegt
af einni stofnun i staðinn fyrir
tvær. Og ég er andvigur þvi, aö
Ivær stofnanir annist þau störf,
sem ein getur innt af hendi.
Þá er það tilbúningur einn og
staðlausir stafir, að ég hafi i
framsöguræðu minni veitzt að
þeim sjömenningunum á nokkurn
hátt,- Ég veittist að flokkunum
fyrir að viðhalda þvi kerfi, að
fjölmenn sveit flokkspólitískra
fulltrúa sé til þess sett að annast
afgreiðslu á jafn sjálfsögðu og
ópólitisku verkefni og afgreiðsla
húsnæðislána er.
Útlegging sjömenninganna um
stjórnmálalega rannsóknarstarf-
semi á lánsumsækjendum er
þeirra en ekki min - en þó e.t.v.
ekki alveg út i hött.
Máliö sjálft er ofureinfalt:
Lögin segja nákvæmlega til
um, hve stórar ibúðir geti notið
lánafyrirgreiðslu skv. Húsnæðis-
málalöggjöfinni,- Teikningar
Teiknistofunnar segja i smáatrið-
um hvernig ibúðirnar skuli vera.
Og Veðdeildin annast af-
greiðslu lánanna. Og þvi spyr ég:
Hvers vegna þarf tvær stofnanir
og fjölmenni flokkspólitiskra full-
trúa til að annast þessi einföldu
viðskiptaatriði?
Þetta eru minar skoðanir, og að
þeim tel ég mig jafn frjálsan og
sjömenningarnir eru að sinum,
um að það sé persónuleg árás á
þá að bent sé á, að bragarbót
mætti gera á rikjandi lánakerfi i
húsnæðismálum.
En litum þá á verkefni þessarar
9 manna húsnæðismálastjórnar.
Þvi er rétt lýst i pistli þeirra. Það
er þetta:
Skoða ber, hvort umsóknir
fullnægi gildandi lögum og regl-
um.
Þarf til þess flokkspólitiska
sveit 9 manna? — Ég segi nei.
— Allir þeir, sem sent hafa lög-
lega umsókn, eiga nú að fá lán.
Þarf flokkspólitiska fulltrúa til
að taka ákvörðun um það? — Ég
segi nei.
Lita ber á, hvenær umsóknir
berast og afgreiða þær i réttri
röð.
Þarf útvalda fylkingu flokks-
pólitiskra fulltrúa til þess verks?
— Ég segi nei.
Ganga ber úr skugga um,
hvenær ibúð hafi orðið fokheld
skv. vottorði þar um.
Þarf flokkskjörna 9 manna
sveit tii þessa vandaverks? — Ég
segi nei. Og þetta er það, sem ég
leyfi mér að nefna pólitiskt þukl.
Enn fráleitara en allt þetta,
með enn sterkari flokkspólitisk-
um keim er þó tilnefning 7 aðal-
manna og 7 varamanna, samtals
14 manns, i stjórn verkamanna-
bústaða jafnvel i fámennum
byggðarlögum út um land. Mundi
það íika vera árás á þá sjömenn-
ingana að vilja fækka þvi liði?
Þessar skoðanir minar setti ég
fram nú, i trausti þess, að heil-
brigt almenningsálit mundi skap-
ast i málinu og auðvelda breyt-
ingar siðar. Það held ég lika að
hafi tekizt.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna. llannibal Valdimarsson.
MJOG AUKIN UMSVIF
SAMVINNUBANKANS
Aðalfundur Sam vinnubankans
var haldinn i Sambandshúsinu,
Reykjavfk, fim m tudaginn 27.
april sl. Fundarstjóri var kjörinn
Asgeir Magnússon, frkv.stj., en
fundarritari, Pétur Erlendsson,
skrifstj.
Formaður bankaráðs, Erlend-
ur Einarsson, forstjóri, flutti
skýrslu um starfsemi bankans,
hag hans og afkomu á árinu 1971,
og rakti nokkuð þróun efnahags-
inála almennt. Kom þar fram að
mjög aukin umsvifí eru i allri
starfsemi bankans. Innstæður i
bankanum hafa meir en tvöfald-
ast á sl. 2 árum, þær hafa vaxið úr
501 millj. kr. i 1041 millj. kr., eða
um 540 millj. (108%). Innláns-
aukningin á sl. ári nam 190 miilj.
kr. A árinu var gengið frá kaup-
um bankans á fasteigninni
Hankastræti 7, ásamt lóðarrétt-
indum fyrir nýbyggingu.
Eitt útibú var stofnað á árinu
lláaleitisútibú, sem er 11. útibú
bankans, en það fyrsta i Keykja-
vik.
Kristleifur Jónsson, banka-
stjóri, lagði fram cndurskoðaða
ársreikninga bankans og skýrði
þá. Ileildarinnlán í Samvinnu-
bankanum námu i árslok 1971
1041 m.kr. og nam innlánsaukn-
ingin 190 .millj. kr. á árinu eða
22.:!%. Ileildarútlán bankans juk-
ust um 15(1 millj. kr. á árinu og
námu 827 milij. i árslok.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir —
Vélarlok — Geymslulok.á Volkswagen i
allílestum litum. Skiptum á einum degi
með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar
Skipholti 25, Simar 19099 og 20988.
SINFÓNIUHLJÓMSVEIT
ISLANDS
Aukatónleikar i Háskólabiói
fimmtudaginn 4.mai kl. 21. Stjórnandi
Ragnar Björnsson.
Flutt verður:
Stabat Mater eftir Dvorak.
Flytjendur: Guðrún Á. Simonar, Svala
Nielsen, Magnús Jónsson, Jón Sigur-
björnsson, óratóriukórinn og Karlakór
Reykjavikur.
Aðgöngumiðar seldir i Bókabúð Lárusar
Blöndal, Skólavörðustig 2 og i Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar, Austur-
stræti 18.
MINNINGARSJÓÐUR
VIGDÍSAR KETILSDÓTTUR
OG ÓLAFS ÁSBJARNARSONAR
Ákveðið hefur verið, að sjóðurinn veiti
styrk 2 læknum til framhaldsnáms, kr.
500.000.00 hvorum, sem greiðist á næstu 4
árum kr. 125.000.00 árlega.
Umsóknir ásamt upplýsingum um hvaða
sérgrein væri að ræða og aðrar upplýs-
ingar sendist formanni sjóðsins, Ásbirni
Ólafssyni, Borgartúni 33 fyrir lok
júnimánaðar 1972.
Minningarsjóður Vigdisar Ketilsdóttur
og Ólafs Ásbjarnarsonar.
Verkamannasamband
íslands
sendir meðlimum sinum og verkalýð öll-
um stéttarlegar heillaóskir i tilefni
1. MAÍ
Bifvélavirkjar
Allir til þátttöku i hátíðahöldunum
1. MAÍ
Félag bifvélavirkja.
Sendum öllu starfsfólki og vinnandi fólki til lands og sjávar okkar beztu kveðjur i
tilefni
1. MAÍ N.I. MIDNES
Sandgerði. 1
Sveinafélag húsgagna-
bólstrara, Reykjavík
óskar til hamingju með
1. MAÍ
0
Sunnudagur 30. april 1972