Alþýðublaðið - 16.05.1972, Blaðsíða 3
RUDDUM
í OKKUR
NÆR 8
PUNDUM
SMJÖRS
FÆÐINGARSTAÐUR JÓNS
llúsi Jóns Sigurðssonar i Kaupmannahöfn hafa nýlega borist að
gjöf frá Landmælingum tslands tvö tíkön af llrafnseyri við Arnar-
fjörð, fæðingarstað forsetans. Ennfremur myndir og kort af staðn-
um, sem miða að þvi að gefa scm réttastar upplýsingar um útlit og
húsaskipan á staðnum á þeim tima, er Jón Sigurðsson ólst þar upp.
Bæði likönin, kortin og myndirnar eru hinir merkustu gripir, sem
væntanlegu safni Jóns Sigurðssonar i húsi hans er mikill fengur að.
Hér er mynd af nokkrum hluta af öðru likaninu.
Sérhver islendingur pundaði í
sig nær átta kilóum af smjöri á
siðastliðnu ári, eða mjög svip-
uðu magni og aðrir Norður-
landabúar.
Þetta kom fram á fundi
mjólkursamlagsstjóra á Hótel
Sögu nú fyrir helgina.
Með smjörlikinu varð
feitmetisskamturinn um 20 kiló
á mann.
Til fundarins var boðað af
Osta- og smjörsölunni og Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins.
Óskar H. Gunnarsson, for-
stjóri Osta- og smjörsölunnar,
upplýsti f skýrslu, sem hann gaf
fundinum, að útsöluverð á
smjöri væri svipað hér og i
Noregi og Danmörku, eða 160-
170 krónur pr. kíló.
Þá kom fram i skýrslu hans,
að ostasala jókst nokkuð siðast-
liöiö ár og varð um fimm kiló á
hvern islending.
Þetta er svipuð neyzla og i
Bretlandi, en þremur til fjórum
kílóum minna en á hinum
Norðurlöndunum.
i vetur hefur ostur verið flutt-
ur i tilraunaskyni til Tékkósló-
vakiu og Japan.
GULLSAFN
Á SÝNINGU
Klúbbur Skandinaviusafnara
heldur frimerkjasýningu i Nor-
ræna húsinu dagana 19. 20. og
22. þ.m., sem nefnist „Norden-
72”. Er þetta samnorræn sýning
til að minnast 5 ára afmælis
klúbbsins og þess, að 100 ár eru
liðin frá því að opnuð voru 2
fyrstu pósthúsin á islandi.
Meðal efnis á sýningunni
verður safn Holger Philipsen af
elztu flugbréfum i heimi, frá
1808, þegar brezk herskip lok-
uðu Stóra Belti og Johan Peter
Colding flaug yfir sundið i
Ballón. Eru þetta bréf úr Ríkis-
skjalasafninu danska og hlaut
þetta safn gullverðlaun á al-
þjóðlegri sýningu i Sofia.
Þá sýnir Roger A. Swanson
frá Chicago bezta safn bréfa frá
herpósthúsum á islandi, sem
þekkt er. Hann á auk þess eitt
bezta islenzkt frimerkjasafn i
einkaeigu, sem þekkt er i heim-
inum i dag.
íslenzka deildin er stærst á
sýningunni og verða þar sýnd að
mestu söfn, sem ekki hafa áður
sézt á sýningum hérlendis, en"
mörg hver unnið fjölda verð-
launa viðs vegar um heim.
Klúbbur Skandinaviusafnara
varð 5 ára i águst sl. Er hann
aðili að alþjóðasam tökum slikra
klúbba, en núverandi stjórn
hans skipa: Sigurður II.
Þorsteinsson, formaður, Sigfús
Gunnarsson ritari og Aðalsteinn
Sigurðsson, gjaldkeri.
SKÁKIN í SKOLUNUM
Skákkeppni gagnfræðaskól-
anna i Reykjavík á vegum
Æskulýðsráðs Reykjavikur og
Taflfélags Reykjavikur er ný-
lokið.
Ellefu skólar mættu til leiks,
með 15 sveitir.
Lauk skákmótinu á þann veg,
að i eldri flokki sigraði sveit
Gagnfræðaskóla Austurbæjar
með 12 1/2 vinning. i öðru og
þriðja sæti voru Hagaskóli og
Vogaskóli með 8 vinninga hvor.
i yngri flokki sigraði sveit
Hagaskóla meö 30 vinninga, en
Iivassaleitisskóli var i öðru sæti
með 24 vinninga.
TONLISTIN í
GARÐAHREPPI
Vorhljóm leikar Tónlistar-
skólans i Garðahreppi fóru fram
sunnudaginn 7. mai i Gagn-
fræðaskólanum við Lyngás.
Lauk þar með IX. starfsári
skólans.
Þar koinu fram fjölmargir
nemendur. Einnig lék hljóm-
sveit skólans nokkur lög við
góðar undirtektir.
Hvert sæti var skipað i saln-
um.
Kennarar voru átta i vetur
Skólastjóri er Guðmundur
Norðdahl.
FLUGIÐ
Alþjóðasamband flugumsjón-
armanna, IFALDA, hélt 10. árs-
þing sitt i Róm dagana 24. og 25.
april.
Fulltrúar Félags flugumsjón-
armanna tsland voru Ingimar
Ingimarsson og örn Eiriksson.
TÓK 8000 SMÁBLEIKIUR
UR MEÐALFELLSVATHI
Vegna mikillar samkeppni
smábleikju og urriða um fæðu i
Meðalfellsvatni hefur Veiðimála-
stofnunin neyðzt til að fækka
smábleikjunni I vatninu og siðast
liðinn hálfan mánuð hefur stofn-
unin látið veiða hvorki fleiri né
færri en 8000 stykki i net þar.
i viðtali við Alþýðublaðið i gær
sagði Jón Kristjánsson hjá Veiði-
niálastofnuninni, að hann hefði
kannað vatnið og komizt að þeirri
niðurstöðu, að fækka þyrfti smá-
bleikjunni i vatninu vegna harðn-
andi samkeppni hennar og urrið-
ans.
Urriðinn væri aðalfiskurinn i
Vatninu, en smábleikjan væri
hins vegar tiltöluiega verðlaus
fiskur og þvi hefði þessi leið verið
farin.
Samkvæmt athugunhefði komið
i Ijós, að urriðinn væri mun rýrari
af þessum sökum.
„Þetta hefur staðið urriðanum
fyrir þrifum”, sagði Jón og bætti
þvi viö, að smábleikjan væri litið
veidd og f jölgaöi sér ört og væri á
vissan hátt hindrun fyrir urrið-
ann.
Gizkaði Jón smábleikjumagniö
i vatninu vera að likindum 50-100
þúsund stykki, og væri ráðgert að
gera sams konar aðgerðir i haust.
Um það hvort ástandiö gæti
verið svipaö i öðrum vötnum
sagði Jón, að það væri hugsan-
legt.
200 ÞINGMENN ARITUÐU BÓKINA EN...
SOVÉTLÖGREGLAN
SAT FYRIR FERM-
INGARGJÖFINNI
Brezki þingmaðurinn Greville
Janner skýrði frá þvi á sunnudag-
inn, að sovézk yfirvöld hafi Iagt
hald á cintak af bænabók gyð-
inga, sem send var sem
fermingargjöf til 13 ára gamals
pilts i Sovétríkjunum.
Bók þessi var að ýmsu ieyti
óvenjuleg. Þvi i hana höföu ritað
nöfn sin Edward Heath, forsætis-
ráðherra Breta, Harold Wilson
fyrrum forsætisráðherra og 200
brezkir þingmenn. Bókin var
send llugleiöis til Moskvu fyrir
nokkru, og átti að vera
fermingargjöf til Leonids Slepak,
sonar visindamannsins Vladimirs
Slepak.
Þegar faðir piltsins kom út á
flugvöll að ná i bókina var hann
kallaður inn á skrifstofu toll-
varðarstjórans. Þar var hins veg-
ar komizt að þeirri niðurstööu að
bók þessi fengi ekki að fara inn i
landið.
Janner sagði á blaðamanna-
fundi að hann gæti ekki skiliö að
bænabók, með nöfnum brezkra
þingmanna og helmings skugga-
ráðuneytisins, send sem persónu-
leg gjöf til barns, gæti talizt
liættuleg i menningarlandi.
Hann skýrði einnig frá þvi að
fjölskylda Slepaks væri undir
stöðugu eftirliti sovézku öryggis-
lögreglunnar (KGB) eftir að
Vladimir Slepak var sagt upp
starl'i sem forstöðumanni rann-
sóknarstofu, er hann sótti um
leyfi til að flytja til Israel.
JÖN FÉKK ÁLYKTUN
í „AFMÆLISGJÖF”
„Þctta varbezta afmælisgjöfin,
sem ég gat fengið”, sagði Jón
Sigurðsson forseti Sjómannasam-
bandsins i viðtali við Alþýðublað-
ið i gær um samþykkt, sem full-
trúar frá Alþjóðasambandi flutn-
ingaverkamanna, brezka flutn-
ingaverkamannasambandinu og
þvi þýzka, gerðu um landhelgis-
málið á föstudaginn, en einmitt
þann dag álti Jón sjötugsafmæli.
Viðræður við fulltrúana kvað
Jón hafa verið mjög árangursrik-
ar og samþykktin sjálf væri raun-
verulega það fyrsta jákvæða, sem
gerzt hefði í landhelgismálinu
hingað lil.
i samþykktinni felst viljayfir-
lýsing þess efnis, að allt veröi
gert til þess að koma i veg fyrir
árekstra vegna fyrirhugaðrar út-
færslu landhclginnar.
FuIItrúar félaganna urðu sam-
mála um, „að það sé mjög árið-
andi, að ráðstafanir séu gerðar til
þess að koma i veg fyrir árekstra
1. september 1972 eða siðar. An
þess að taka afstöðu til grundvall-
arviðhorfa þeirra rikisstjórna,
sem hlula eiga að máli, viljum við
leggja mjög rika áherzlu á nauð-
syn þess, að bráðabirgðarráð-
stafanir vcrði gerðar. Samkomu-
lag varð um, að hvert félag fyrir
sig gerði það sem i þess valdi
stæði til að fá rikisstjórn lands
sins til að kalla saman,- svo fljótt,
sem verða mætti - sameiginlega
ráðstefnu fulltrúa þessara
þriggja landa með hagsmunaað-
ilum frá verkalýðsfélögum og
vinnuveitendum i fiskiðnaði, sem
beinna hagsmuna hafa að gæta,
ásamt fulltrúum rikisstjórna, og
viðeigandi visindamönnum og
sérfræðingum, sem ráðgefandi
um hugsanlegar bráðabirgðaráð-
stafanir, sem mundu gilda eftir 1.
sept. 1972.
„HOSS” ER LÁTINN
I)an Blocker, einn aðalleikenda
i s jón v arps my nda i'lok knu m
BONANZA lézt í fyrradag aðeins
43 ára að aldri. Banamein hans
var það að æð stíflaðist i lunga.
Kona hans og börn voru viðstödd
er hann lézt. Hann kenndi óþæg-
inda fyrir brjósti og var þá fluttur
á sjúkrahús, þar sem hann hafði
fáum vikum áður gengið undir
uppskurð af öðrum ástæðum.
Dan Blocker var orðinn heims-
þekktur vegna hlutverks sins sem
Iloss i Bonanza þáttunum.
LOKADAGUR HJÁ AFLAKÓNGI
Binni i Gröf, hinn þjóðkunni aflakóngur lézt á sjúkrahúsinu I Vest-
mannaeyjum daginn fyrir lokadag 68 ára að aldri.
Sem kunnugt er féll Benóný Friðriksson, en það hét hann fullu
nafni, i höfnina i Eyjum þann 30. april og hafði hann legið I sjúkra-
húsinu siðan.
Þriöjudagur 16. maí 1972