Alþýðublaðið - 16.05.1972, Page 10

Alþýðublaðið - 16.05.1972, Page 10
Aætlunargerð um hús tannlæknadeildar Háskóla Islands ARKITEKTAR - VERKFRÆÐINGAR í ráði er að hefja á næsta ári byggingu húss fyrir tannlæknakennslu við Háskóla íslands. Undirbúningsnefnd lækna- og tannlækna- kennsluhúss við háskólann hefur fengið sem ráðgjafa brezka arkitektastofu, Llewelyn-Davies Weeks Forestier-Walker & Bor i London. Rýmisáætlun ráðgjafanna gerir ráð fyrir 2038 fm gólffleti nettó á 3 hæðum fyrir tannlæknakennsluna, sem er fyrsti áfangi stærri byggingasamstæðu (alls um 5800 fm), sem rúma á kennsluaðstöðu i grundvallargreinum læknisfræðinnar auk tannlæknakennslunnar. Siðar bætast við fyrirlestrarsalur og bókasafn. 1 samráði við rektors embætti háskólans er með auglýsingu þessari leitað sam- bands við arkitekta og verkfræðinga, sem tekið geta að sér áætlunargerð við ofan- greinda byggingu, þ.e. eftirgreinda þætti i undirbúningsvinnu að verklegri fram- kvæmd, sbr. lög nr. 63/1970 um skipan opinberra framkvæmda: Fullnaðaruppdrættir og tæknileg verk- lýsing, skrá um efnisþörf, nákvæm kostnaðaráætlun um verkið og tima- og greiðsluáætlun um framkvæmd þess. Stefnt er að sem styztum undirbúnings- tima og er þvi nauðsynlegt að ná saman nokkuð stórum samstilltum hópi til lausn- ar verkefninu. Aðilar þurfa að hafa skilað skriflegri greinargerð fyrir 23. mai n.k. og eru nán- ari upplýsingar veittar hjá framkvæmda- deild Innkaupastofnunar rikisins, Hverfisgötu 113, 4. hæð, dagl. kl. 13—14. Framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins Vo I ks wagene i gendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok — Geymslulok á Volkswagen i allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Bilasprautun Garðars Sigmundssonar Skpholti 25. Simar 19099 og 20988. SVANHVÍT SIGMUNDSDÚTTIR THORLACIUS - MINNING Alþýðuflokkurinn hefur átt þvi láni að fagna að njóta starfs- krafta margra manna og kvenna, sem hafa haft svo sterka trú á þeim hugsjónum, er flokkurinn hefur barizt fyrir, að stundirnar, sem varið hefur verið i þágu þeirra, hafa aldrei verið taldar. Ein þeirra kvenna, sem þetta á við um i rikustum mæli, var Svanhvit Thorlacius. Hún var löngum i forystuliði Kvenfélags Alþýðuflokksins og formaður þess um skeið, auk þess sem hún átti sæti i flokksstjórn Alþýöu- flokksins. Svanhvit Thorlacius var að mörgu leyti óvenjuleg kona. Hún var virðuleg og hógvær. Hún lét ekki mikið yfir sér. Hún notaði ekki stór orð eða þung. En engu að siður var alltaf hlustað á það sem hún sagði. Og það var ekki aðeins hlustað, heldur einnig tek- ið tillit til þess. Menn fundu, að hjá henni fylgdi jafnan hugur máli. Hún sagöi aldrei neitt það, sem hún vissi ekki sjálf, að var satt og rétt, hún túlkaði aldrei nema þá skoðun, sem hún trúði á. Einlægni hennar og heilsteyptur hugur reyndust sterkari rök en mörg orð og stór. Þess vegna hafði hún mikil áhrif. Hún hafði þau i skjóli göfugrar lundar og fágaðrar framkomu. Svanhvit Thorlacius var ein þeirra, sem ekki höfðu lært að að- hyllast jafnaðarstefnu og hug- sjónir hennar um betra mannlif og fegurri veröld. Það var eðli hennar, að stefna ætti i þá átt. Kennisetningar og fræðikenning- ar voru henni áreiðanlega ekki hugleiknar. Það var hugur góðr- ar, greindrar og menntaðrar konu, sem visaði henni þann veg, sem hún gekk i félagsmálum. Hún var áhugasöm um málefni kvenna. En mestan áhuga hafði hún á þv-i, að öllum, sem standa höllum fæti, væri rétt hjálpar- hönd, að allir ættu þess kost að njóta sem beztrar menntunar og öðlast sem mesta hamingju. Hún stuðlaði að framgangi margs góðs máls með starfi sinu að fé- lagsmálum á ýmsum sviðum. Hún ætlaðist áreiðanlega aldrei til þakklætis fyrir neitt það, er hún gerði. Hún var ein i hópi þeirra, sem var það nóg að sjá árangur verka sinna. Það var henni sönn gleði. Minning slikra kvenna lifir lengi. Þær eru öðrum fögur fyrir- mynd. Gylfi Þ. Gislason. Það er erfitt að sætta sig við þá staðreynd að frú Svanhvit Thorlacius sé dáin og horfin, þvi hún var þannig gerð, að við sem þekktum hana vel vildum æfin- lega og i öllu hafa hana sem næst okkur. Það er ekki ofmælt að frú Svan- hvit var góð kona i þess orðs fyllstu merkingu.Húnvar háttvis og nærgætin i allri framkomu, sönn og góðviljuð. Auk þess var hún vel gefin og frið sýnum. Ég minnist með þakklæti margra ára samvinnu okkar i Kvenfélagi Alþýðuflokksins i Reykjavik. Ég vissi vel, að frú Svanhvit hafði jafnan stórt heim- ili að annast, en hún bar yfirleitt aldrei fyrir sig annriki, heldur var reiðubúin að leggja fram krafta sina til stuðnings hverju þvi málefni, er félagið beitti sér fyrir. Og það var gott að leita til hennar, þvi hún var samvinnu- þýð, úrræðagóð og lofaði aldrei meiru en hún gat efnt. Frú Svanhvit var mikil Alþýðu- flokkskona og aldrei traustari en þegar á móti blés. Þessi eftir- lætislausa og i eðli sinu hlédræga kona bjó yfir meiri félagslegum þroska og skilningi á vandamál um liðandi stundar en margir þeir, er hafa sig meira iframmi. Æfilangt tel ég mér það ávinn- ing að hafa kynnst slikri konu, sem Svanhvit var. Ég kveð hana meö þökk og söknuði. Hér eftir mun mer pyKja jaín væntum minningu hennar og mér fyrr þótti um hana sjálfa. Soffia Ingvarsdóttir. Mig langar til að skrifa nokkur orð til minningar um hana Svan- hviti frænku. Ég man vel eftir þegar hún fæddist og fylgdist með henni meðan hún var að alast upp, þvi mikill samgangur var milli heimila okkar. Faðir hennar lézt snemma svo það kom i hlut móðurinnar að mestu leyti að ala upp börnin. Þau voru sex talsins systkinin, þar af einn bróðir sem dó ungur. Það var alltaf indælt að koma og heimsækja þessa fjöl- skyldu og móðir Svönu var okkur mjög góð. Alltaf var gott að hitta Svönu vegna þess að hún var svo hýr, maður komst i gott skap jafnvel þó illa hefði legið á manni fyrir. Létta skapið og brosið góða entust henni svo gegn um allar likamlegu þjáningarnar þessa siðustu lifdaga. Þegar ég heim- sótti hana nokkrum dögum fyrir andlátið reyndi hún að bregða upp léttu hjali likt og áður fyrr þegar við hittumst allar frænk- urnar. Fyrir 29 árum giftist Svanhvit eftirlifandi manni sinum, Finni Kristjánssyni rafvirkjameistara, og var þeirra hjónaband það bezta sem ég hef þekkt. Við systkinin sendum Finni og föður hans, börnum Finns og barnabörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur i þessari miklu sorg. En Frelsarinn gaf okkur fyrir- heit um eilift lif, handan landa- mæranna lifir Svana þó hún hafi yfirgefið jarðlifið, og nú kvelst hún ekki lengur. Minningin um hana lifir lika hér, minningin um góða konu sem öllum var hugstæð, minningin um hana Svönu frænku. Fyrir mina hönd og systkina minna Guðný Richter. Kveðja frá Kvenfélagi Alþýðu- flokksins i Reykjavik. Nú, þegar frú Svanhvit Thorlacius er látin, er mér bæði ljúft og skylt að minnast góðs fé- laga okkar og fyrrverandi for- manns fyrir hönd Kvenfélags Al- þýðuflokksins i Reykjavik. Svanhvit unni hugsjónum jafn- aðarstefnunnar frá upphafi og gekk i Kvenfélag Alþýðuflokksins i Reykjavik árið 1950. Hún valdist snemma til trúnaðarstarfa fyrir félagið og Alþýðuflokkinn, var m.a. gjaldkeri kvenfélagsins i mörg ár og formaður frá 1967 til 1971. Hún átti sæti i stjórn Full- trúaráðs Alþýðuflokksins i Reykjavik, var i flokksstjórn A1 þýðuflokksins, sat á mörgum flokksþingum, átti oftar en einu sinni sæti i uppstillinganefnd flokksins við kosningar: var full- trúi á landsfundum Kvenrétt- indafélags Islands, aðalfundum Bandalags kvenna i Reykjavik og á þingum Kvenfélagasambands Islands. Siðast en ekki sizt skipaði Svanhvit verðugan sess sem full- trúi kvenfélagsins á framboðs- listum Alþýðuflokksins við marg- ar borgarstjórnar- og alþingis- kosningar. Með Svanhviti er genginn góður og gegn jafnaðarmaður. Hún var með afbrigðum vel látin innan fé- lagsins, enda var hún einlæg og sönn og framkoma hennar mótuð af meðfæddri ljúfmennsku og jafnaðargeði. Hún hafði til að bera fegurð og hreinleik jafnt innra sem ytra. Við, sem eftir stöndum i Kven- félagi Alþýðuflokksins i Reykja- vik, sjáum nú á bak góðum og gegnum samherja, sem okkur þótti öllum vænt um og bárum virðingu fyrir. Hörmum við frá- fall hennar, enda verður skarð hennar vandfyllt. Ég undirrituð stend persónu- lega i mikilli þakkarskuid fyrir þann stuðning sem hún veitti mér og það, sem hún miðlaði mér að reynslu sinni. Kvenfélag Alþýðuflokksins i Reykjavik færir eftirlifandi eigin- manni, börnum, barnabörnum og öðrum aðstandendum, að ó- gleymdum öldnum tengdaföður hennar, sinar innilegustu sam- úðarkveðjur á sorgarstund. Kristin Guðmundsdóttir. Utvarp ÞRIÐJUDAGUR 16. maí 16.15 Veðurfregnir. Létt lög. 17.00 Fréttir Tónleikar. 17.30 Saga frá Afríku: „Njagwc” eftir Karen Herold Olsen. 18.00 Fréttir á ensku. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Heimsmáiin. 21.15 Lög unga fólksins. 21.05 íþróttir. Jón Asgeirsson sér um þáttinn. 21.30 Útvarpssagan: „Hamingju- skipti” eftir Steinar Sigurjóns- son. 22. Fre'ttir. 22.15 Veöurfregnir. Tækni og vis- indi 22.35 Frá tónlistarhátið i Bratislava s.l. haust. 23.00 A hljóðbergi. ’ ÞRIÐJUDAGUR 16. maí 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Smyglararnir. 21.10 Setið fyrir svörum. Umsjónarmaður Eiður Guðn- ason. 21.45 i lausamennsku. Bandarisk fræðslumynd um lif landbúnað- arverkamanna i Florida. Gerð- ur samanburður á afkomu þeirra og aðbúnaði nú og fyrir tiu árum og leitt i ljós, að hrak- smánarleg lifskjör þessa fólks hafa litið sem ekkert batnað á undanförnum árum. Þýðandi Heba Júliusdóttir. 22.35 Ilagskrárlok. © Þriðjudagur 16. maí 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.