Alþýðublaðið - 21.05.1972, Síða 1

Alþýðublaðið - 21.05.1972, Síða 1
Hún brosir — eins þótt nokkrar tennur vanti, þvi hvað gerir til þótt skörð sjáist úrþvi maður er á þeim aldri þegar allt grær og verður stöðugt fallegra og fallegra — lika auðvitað tennurn- ar? Og svo er pinulitið af freknum á nefinu sem bara gera nebbann enn sætari. . . . Timabær spurning: Hvers vegna eru fegurðar- drottningar heimsins alltaf um tvitugt? Af hverju eru þær ekki valdar úr hópi fjögurra til átta ára blómarósa? En á þeim árum er kona langfegurst og mest sjarmerandi. Dýragarður eða bifreiðaeftirlit? Þegar engu er skeytt um sár sem ekki grær, getur hæglega farið svo að þar hætti hinn reglu- bundni frumuvöxtur og hin kerfisbundna upp- bygging vefja. Þá er op- inn möguleiki til að nýr vöxtur festi rætur, hömlulaus, óreglubund- inn og óæskilegur vöxtur eins konar andefnis i lik- amanum. Það er krabba- mein, og þannig er Bifreiðaeftirlit rikisins i þjóðarlikamanum. Eiginlega er það merkilegt rannsóknar- efni, að ein stofnun skuli um svo langan tima, eins og . reyndin hefur orðið, hafa getað verið starf- rækt á þann hátt og nán- ast er hægt að likja við öfugmælavisu. Ég minn- ist þess ekki aö hata heyrt einn einasta mann fara fögrum orðum um þessa stofnun, varla nokkrum sæmilegum, jafnvel ekki hlutlausum. Allir hafa haft sömu söguna að segja eftir viðskipti við stofnunina. Kerfisleysið sem kemur manni fyrir sjónir inni i Borgartúni er slikt, að meira að segja Parkinslögmálið gæti ekki hafa verið sniðið eft- ir þvi. Ég átti i gær þess kost að eyða tvisvar sinnum tiu minútum i stofnun- inni, og þá rifjaðist það upp að fyrri viðskipti voru á svipaðan veg. Þarna eru innan við af- greiðsluborð eitthvað á annan tug starfsfólks. Annar eins fjöldi var fyrir utan borðið, engin veru- leg samskipti virtust milli starfsfólksins og við- skiptavinanna. Við- skiptavinirnir húktu flestir fram á afgreiðslu- borðið og tvennt af- greiðslufólksins sat and- spænis þeim og mældi þá út, rétt eins og maður gæti imyndað sér apabúr i dýragarði, og annar hvor hópurinn væri dýrin. Annað fólk rölti fyrir inn- an borð, eins og verur i framúrstefnuleikriti, án sýnilegs takmarks eða tilgangs. Fyrri ferðin var farin inn i eftirlit til að fá Y- númer á bil, sem ný- keyptur var á It-númeri, og hafði viðkomandi þeg- ar fyrir nokkrum dögum lagt þangað öll tilskilin gögn, eins og sölutilkynn- ingu, veðbókarvottorð og annað slfkt. En þetta virt- ist við fyrstu tilraun ekki heyra undir neinn starfs- rhann. Þegar gjaldkeri og fólkið tvennt, semmældiút viðskiptavinina hafði ver- ið spurt án þess að nokkur svör fengjust, var reynt að hafa samband við eitt- hvað af verunum. Loks tókst viðskiptavini, sem var sömu erindagjörða staddur þarna, að krækja sér á eigin spýtur i bók, sem hafði inni að halda skrá yfir laus númer. I þeirri skrá var þó ekkert laust númer, og þegar starfsmanni var bent á það, gat hann ekkert gert annað en staðfesta það. Það var ekkert laust númer. Og fjarrænt augnaráð hans gaf til kynna að honum þótti þetta álika mikil tiðindi og maður hefði fótbrotnað i Vietnam. Kannski um hádegið, svaraði þá stúlka, sem gegndi gjaldkerastörfum, og sú ferð var þess vegna farin. Skemmst er frá þvi að segja að um hádegið var sama fólkið önnum, kafið við sömu hlutina. Þetta tvennt var enn að mæla út viðskiptavinina, og vant- aði nú ekkert nema banana upp i annan hvorn hópinn til að dýragarðs- lýsingin væri fullkomin. Og verurnar fyrir innan borð reikuðú um svip- aðra erindagerða og fyrr. Ég hef heyrt að jafnvel lögregluyfirvöldum þyki nóg um gang þessarar stofnunar, og þá munu ó- teljandi dæmin um sér- kennilegheit sem hljótast af kerfileysinu. Til dæmis er kona nokkur, sem seldi bil fyrir þrem árum sið- an. Allt gekk sinn vana- gang og tók að sjálfsögðu sinn ógnartima, eins og viðskipti við þessa stofn- un gera. En hún á i stöð- ugum útistöðum við lögin, þvi sá sem keypti bilinn virðir umferðarlögin frjálslega. t fyrra sögðum við sögu af viðskiptum ungra manna við þessa stofnun vegna bils sem þeir settu saman. Sú saga endur- speglaði ef til vill einna bezt hvað er að gerast innan þessarar stofnunar. Það kom sem sé i ljós að það sem einn sagði virti annar að vettugi, en aldrei var hægt að fá skýr svör við nokkrum einföld- um spurningum. Dag eft- ir dag máttu þessir ungu menn dvelja i stofnun- inni, þvi alltaf kom eitt- hvað nýtt til, en aldrei var neinn þess umkominn að segja til um hvað þyrfti að gera til að billinn fengi skoðun. En eftir heimsóknina i gær fannst mér tiltölu- lega auðvelt að lýsa þess- ari stofnun. Ég myndi helzt lýsa henni eitthvað á þessa leið: „Séð hef ég köttinn syngja á bók, selinn spinna hör á rokk. Skötuna elta skinn i brók, skúminn prjóna smá- bandssokk.” SUNNUDAGUR 21. MAl 1972 — 53. ARG. 108. TBL. o

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.