Alþýðublaðið - 28.06.1972, Page 3

Alþýðublaðið - 28.06.1972, Page 3
FYRST FÓR BÍLLINN - ÞÁ INNBÚIÐ Orlögin hafa heldur betur leikið ung hjón grátt suður i Hafnarfirði á siðustu þremur dögum. Þau hafa tapað nær öll- um eigum sínum og standa nú uppi slypp og snauð. Aðfaranótt sunnudagsins var bifreiC' þeirra gereyðilögð þegai drukkinn ökumaður ók á hana fyrir utan heimili þeirra að Norðurbraut 19,Hafnarfirði. Og um hádegisbilið i gær kom upp eldur i ibúð sem þau leigja og brann og eyðilagðist af vatni mestur hluti innbúsins. t samtali við Alþýðublaðið kváðust þau hjónin reikna með, að tjónið næmi að minnsta kosti hálfri milljón króna. Það gerir sögu þeirra jafnvel raunalegri, að þau voru i þann veginn að flytjast burt úr ibúð inni, þar sem þau höfðu hana ekki á leigu lengur en til mánaðamóta. „Við vorum að fara að pakka niður”, sagði eiginmaðurinn, Olafur Valgeirsson ,,og það, sem verra er, þá höfum við enn ekki fundið aðra ibúð”. Eldsupptök eru ókunn, en eldurinn náði að eyðileggja inn- bú i stofu og svefnherbergi og stóran klæðaskáp. Reyndar hefði getað farið verr, þvi hér var um að ræða timburhús með steyptum kjallara, en eldurinn kom ein- mitt upp þar. Yfir kjallaranum er steypt plata, þannig að hún varnaði þvi, að eldurinn kæmist upp á um öðrum eigum sinum fátækari og meira að segja þar með talinn fatnaður þeirra. fyrstu hæð hússins. En nú standa þau hjónin uppi ibúðarlaus, billaus og nær öll- HÚN ER LÍKA INDÆL FYRIR HEYSKAPINN Áheitum sumardögum, þegar sólin skin á heið^kirum himni með dálitlum norðan andvara, flykkjast Reykvikingar hver sem betur getur út úr húsum sinum til að njóta góða veðurs- ins og fá á sig brúnan lit. Beint fyrir framan gluggana hjá okk- ur hér á Alþýðublaðinu er einn vinsælasti sólbaðsstaðurinn i borginni, Arnarhóllinn, og i góðu veðri sést varla i grænt gras fyrir sóldýrkendum. Við erum stundum að velta þvi fyrir okkur hvort fólkið, sem þarna flatmagar, sé ekki búið að gleyma þvi, að svona veður er nefnt þurrkur, og viti ekki, að viðast hvar á landinu er þannig veðri tekið með öðru hugarfari en þvi, að það sé tilvalið til sól- baðs. Um þessar mundir rannsaka bændur veðurkortið i sjónvarp- inu, fylgjast með lægðum og hæðum og ganga út á hlað til að gá til veðurs með gamla laginu, svona til frekara öryggis. Þeir ganga um slægjurnar at- huga sprettuna og velta þvi fyrir sér hvort þeir ættu ekki að fara að slá. Ef grasið er vel sprottið og veðurútlitið gott er ekki eftir neinu að biða. Ljáirnir eru teknir fram og lagðir á, — og sláttur er hafinn upp á þá von, að þurrkur haldist, hvað sem sjónvarpið segir. Við höfum fréttir af þvi, að bændur i Borgarfirði séu farnir að slá margir hverjir, og á laugardaginn áttum við leið um Flóann, þar sem sömuleiðis var farið að slá á einstaka stað. Það er nokkuð langt siðan fréttir bárust af þvi, að bændur i Eyjafirði væru að búa sig undir slátt, og á mánudagsmorguninn héldu vinnumenn Egilsstaða- bænda meö sláttuvélar út á tún og slógu fyrstu spilduna. Svo góður var þurrkurinn á Héraði þennan dag, að siðdegis mátti snúa i þvi sem fyrst var slegið, og sá atburður varð efni i fyrstu heyskaparmynd sumarsins i Alþýðublaðinu. KRONAN HRESS NEMA PUNDINU HRAKI MEIRA tslenzka krónan fylgir skrán- ingu Bandarikjadals og hefur þvi styrkzt gagnvart sterlingspundi, eftir að það hefur fallið i verði um tæp 4% siðan gengisskráningu var hætt á föstudag i siðustu viku. Um hádegi i gær hóf Seðlabanki Islands skráningu erlends gjald- eyris að nýju. Hefur pundið fallið um nákvæmlega 3,7% sfðan á föstudag. Tiltölulega litlar breytingar hafa orðið á öðrum gjaldmiðli Evrópurikja, en i flest- um tilvikum til litilshá’ttar hækk- unar. Hins vegar hefur italska liran lækkað um 0,4%. Afleiðingar af „floti” sterlings- pundsins eru með öðrum orðum þær, að flestar Evrópumyntir nata heldur styrkzt gagnvart Bandarikjadollar, sem getur, þegar fram i sækir, veikt stöðu hans. Hér á landi veltir fólk eðlilega fyrir sér þessa dagana, hverjar afleiðingar óstöðugleikinn á gjaldeyrismörkuðum kunni að geta haft fyrir islenzku krónuna, vegna hinna miklu viðskipta Islands við sterlingssvæðið. Sú spurning var áleitin viöa i gær i kaffitimunum á ýmsum vinnu stöðum, ekki sízt bankastofnun- um og ráðuneytum, hvort lækkunin á gengi sterlingspunds- ins muni, þegar frá liður, valda gengisfellingu islenzku krón- unnar. Ahyggjur i þessu efni eiga þó að vera óþarfar, meðan lækkun pundsin^ er ekki meiri en orðið er. Verði hins vegar „fallið” meira, má bæði gera ráð fyrir, að það veiki Bandarikjadollar og islenzku krónuna. — ENN ER ALLT VIÐ SAMA í KJARA- DEILU RAFVIRKJA Enn situr við það sama i kjara- deilu rafvirkja við vinnuveit- endur. Siðasti sáttafundur, sem haldinn var á föstudag, stóð I þrjár stundir, og þokaðist ekki i samkomulagsátt. Magnús Geirsson, formaður Félags islenzkra rafvirkja sagði i stuttu samtali við Alþýðublaðið i gær, að nýr sáttafundur hefði enn ekki verið boðaður. Aðspurður um það, sem gerðist á fundinum á föstudag, sagði Magnús: „Viðræðurnar á föstudaginn gengu fremur aftur á bak en hitt”. Verkfall rafvirkja hefur nú staðið i tiu daga. Verkfall, sem rafvirkjar áttu i fyrir tveimur ár- um, stóð i tæpar fimm vikur. Eins og Alþýðublaðið hefur áður skýrt frá, hefur verkfall raf- virkja haft nokkur áhrif i bygg- ingariðnaðinum og jafnvel stöðvað framkvæmdir. En sú krafa rafvirkja, sem helzt stend- ur i vinnuveitendum er einmitt krafan um að störf rafvirkja mið- ist við ákvæöisvinnu eins og störf flestra eða allra annarra, sem i byggingariðnaðinum starfa. — FISCHER: ERLENDIR FRÉTTAMENN RÓMA UNDIRBÚNINGINN FBAMHALD AF FORSIÐU að þú hefur fjóra daga enn til þess að hafa áhyggjur”. Hann kvaðst ekkert hafa heyrt i Fischer i gær, en eins og við skýrðum frá i blaðinu i gær ræddust þeir við i fyrradag. Þá hafði Cramer farið meö Guðmundi G. Þórarinssyni, i skoðunarferð i Das-húsið, „svituna” á Hótel Loftleiðum og Laugardalshöllina. Lýsti Cramer siðan aðstæðum fyrir Fischer og og mun hann hafa verið ánægður. Ákvörðun Fischers um að koma ekki fyrr kemur nokkuð á óvart og þá sérstaklega i herbúðum Skáksambandsins, þar sem ætlunin hafði verið að sýna Fischer aðstæður hér og gefa honum tækifæri til að gagnrýna. Siðan hafði verið meiningin að nota dagana fram að einviginu til þess að lagfæra það, sem Fischer kynni að óska breytinga á. En samkvæmt siðustu fregnum virðist hann samsagt ekki álita þörf á breytingum eða aðlögunar- tima á Islandi. Spasski lýsti þvi hins vegar yfir á fundi með -blaðamönnum i fyrradag, að hann áliti það mikil- vægt að vera kominn hingað nokkru fyrir einvigið. I ensku dagblaði fyrir skömmu var haft eftir honum að hann myndi draga stórlega úr Vodka- neyzlu fyrir einvigið. Það þarf Fischer hins vegar ekki, þar sem hann smakkar ekki áfengi. Hingað til lands eru nú komnir rúmlega 10 erlendir blaðamenn, en búizt er við að samtals eigi þeir eftir að verða milli 80-120. Allur undirbúningur einvigisins hefur gengið mjög vel og i viðtali við Alþýðublaðið i gær sagði Guð- jón Stefánsson, framkvæmda- stjóri Skáksambandisins, að þeir erlendu fréttamenn, sem hér væru, hefðu lýst þvi yfir, að bún- ingurjnn hér væri meiri og betri en þeir hefðu kynnzt áður. © Miðvikudagur 28. júní 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.