Alþýðublaðið - 26.07.1972, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 26.07.1972, Blaðsíða 11
RÓMANTÍSK SMÁSAGA — ANNAR HLUTI Kross- gátu- ■ /NN QrERft s'rpur. ‘j.mt LE/K /N Fljot /2> URGfí CrUÐS ZTRNrt í mfiN Ut)UR /LL &R.ESI ÓLOPP F\r/ HBTl. PUK/ Nh/ HLJ. SlV9 MT! r HtiR L/UJil HOFUÐ '/ VEL N/dURL. 0/?Ð r LEIÐft K/ET/N £ND /NO L V£PS V 'S-E ■ i) • • o •n • I"'- J) ® ~ >1 lö 0) • i'S;0> •«'-5 • r-r--~s<J) *a 5) 5 Cí r-jjSr ■ ÍSCS Iji J>Xi ÁSTARFUNDUR Á MAJORKA lagsskapar hennar. Liklega var hann einmana. Þau gengu inn á barinn þar sem nokkrir ferðafélaganna höfðu þegar safnazt saman, og þar á meðal fáeinar konur i skræpóttum kjólum. Ein þeirra sagði: ,,Mér finnst skemmtileg- ast að virða fólkið fyrir mér þegar ég ferðast. Eg nefni til dæmis gamla, feita manninn — og ekkjuna — og piparmeyna, hana ungfrú Stenberg. 0, hvað hún þráir heitt að komast i ævintýri. Hún er ein þeirra sem gætu tryllzt hérna ef þær lenda á hæfilega miklum þorpurum. Og þeir eru margir hér á Mali- orca. . ." Konan snarþagnaði, er hún sá þau Esther og John Helmer. Hún sótroðnaði, er henni varð ljóst, að þau höfðu heyrt hvert orð hennar. Esther fann hitann stiga sér til höfuðs. Það var eins og gólfið gengi i bylgjum. Þó var næstum verst, að John Helmer hafði heyrt ókunnu konuna segja þetta. Piparmey! Hann hafði sennilega samúð með henni og hafði liklega ekkert þarfara að gera þessa stundina. Hún inátti alls ekki láta spyrjast, að henni hafði fundizt hann aðlaðandi frá þvi að hún sá hann fyrst. Hún vildi ekki láta hafa sig að fifli, er hann sneri við henni baki — þvi að það væri hann vis með að gera. Hann leiddi hana að borði og pantaði hjá þjóninum. ,,Heyrið þér, þér litið út fyrir að vera reið’’, sagði hann. „Nei, það er ég alls ekki. Ég er bara þreytt.” Henni fannst hún stirð i fram- an, og hún vissi, að bros hennar var þvingað. t sama mund sá hún, að hann hafði sléttan hring á fingri. Hann var þá kvæntur! Einn í frii — bjóst líklega við, að hún yrði honum auðveld bráð. Hvað þetta gat verið andstyggi- legt! Hún stóð upp og gekk að barn- um og keypti spænskar sigarett- ur. Á þvi andartaki fékk hún brjálæðislega örvæntingar- kennda hugmynd. Konan sem hafði talaðsvo illa um hana, var búin að drekka nokkur glös og hafði náð sér eftir áfallið. Hún horfði brosandi og yfirlætisfuli á Esther, og þá ákvað hún að láta til skarar skriða. Hún skyldi sýna þeim i tvo heimana. Þau fengju ekki að lita niður á hana. Oghúnsagði hátt og skýrt : ,,Já, hérna erum við að skemmta okkur og varðar ekkert um, hvernig eiginmanni og börnum liður heima. . .’’ Hún fann að hún var blóðrjóð. John Helmer leit undan gramur og sár. Hún hafði aldrei fyrr logið, og sem snöggvast var hún hrædd um, að þau sæju strax, að hún var að ljúga til að ná sér niðri á þeim. „Guð minn góður, eruð þér giftar?” Esther kinkaði kolli. „En þér eruð kallaðar ungfrú Stenberg. . „Nei, það er einhver mis- skilningur”, svaraði hún og á- kvað að leiðrétta það snarlega við fararstjórann, svo að það mál yrði aldrei framar tii umræðu. Hún hélt áfram : „Maðurinn minn er arkitekt, og við eigum tvö yndisleg börn....” „Þér gangið ekki með gift- ingarhring”, sagði konan og var orðin eldrjóð i vöngum. „Nei, guð minn góður — vitið þér ekki, að þaðer alveg komið úr tizku að ganga með giftingar- hring?” Óttinn varð aö sigurvimu, þeg- ar Esther sá, að fólkið trúði henni. Hún leit i kringum sig. John Helmer var farinn frá borð- inu. Hann hafði gengið út, án þess að hún tæki eftir þvi. Er fram liðu stundir varö Esther það ljóst, að John Helmer hreifst af henni. Þetta varð til þess, að hún fór að lita hlutina i nýju ljósi, og þá fyrst og fremst sig sjálfa. Á gönguferðum ræddu þau margt, en þó aldrei eigin hagi. Ósjálfrátt lék hún hlutverk- ið, sem hún hafði skapað — eigin- konu á ferð erlendis, sem varð hrifin af öðrum manni. Það var svo einkennilegt — næstum dásamlegt — að þykjast léttúðug og skaprauna þannig samferðafólkinu. En stundum fann hún til sektar. Hún hafði allt- af áður getað sætt sig við sjálfa sig. Dag einn er hún var á strönd- inni, kom John Helmer til hennar. „Má ég setjast?” spurði hann og leit rannsakandi á hana. Hún brosti. Hún var farin að brosa öðruvisi nú, það var meira sjálfstraust i brosinu. Stundum tókst henni næstum að gleyma, hve einmana hún var. „Haldið þér ekki, að maðurinn yðar sakni yðar?” spurði hann og bauð henni sigarettu. „Jú, þaö vona ég”, svaraði hún og fylitist ánægju, er hún sá, hve sólbrún hún var orðin. Hún vissi, að hún hafði fallegan likamsvöxt, en það var fyrst nú, að aðrir tóku eftir þvi. „Hve lengi hafið þér verið gift- ar?” spurði hann og grandskoð- aði hana sem fyrr. „t tólf ár”. Hún fann hjartað hamast i brjósti sér. „Við vorum kornung, maðurinn minn og ég, þegar við kynntumst. En við hæfðum hvort öðru. Við fórum saman á dansleiki — tvö stór börn". Hún þagði og lagðist út af og skyggði sig fyrir brennandi heitri sólinni með handleggnum. Hún hai'ði óskað sér, að þannig yrði það, er hún fyndi þann rétta, blátt álram og engar spurningar. Aðeins þautvö —aðeilifu. Þannig hlaut lifið og ástin að vera. Þann- ig hafði áslin smám saman orðið i hugarheimi hennar, þvi hún hafði þráð hana svo mjög. t dansskól- anum hafði verið ungur maöur, sem hún hafði haft áhuga á, og hann á henni. En hann hafði orðið leiður á henni, al' þvi aö hún mátti aldrei vera seint á ferli — af þvi að hún mátti aldrei gera neitt. Hann hafði brugðizl henni vegna annarrar stúlku, og hún hafði grátið sig i sveln margar nætur. Ilún hafði aldrei gleymt þessu fyrsta áfalli i ástarmálum, en i endurminningunni hafði hann öðlazt nýtt lif og aldrei svikið hana. Hann hafði verið henni fyrir þá á málum, sem þeir ekki skildu voru bersýnilega þær sömu og þeir voru spurðir á þeim, sem þeir skildu: hverjir voru þeir og hversvegna voru þeir komnir til Buchenwald? Er hinir nýkomnu svöruðu þvi til að þeir væru fallhlifarhermenn, sem teknir hefðu ferið til fanga af Gestapo olli þaö miklu mold- viðri og fregnin af hetjuskap þeirra fór eins og eldur isinuum fangabúðirnar. Úr fjarlægum bragga-hverfum komu skjögr- andi skinhoraðar mannverur til að góna tárvotum augum á þessa fullhuga, sem dirfzt höfðu að gera atlögu að þeirri harð- stjórn, sem átti sök á þeirra eig- in eymd. Bragglegri fangar i röndóttum einkennisbúningum forréttindastettarinnar og með KAPO, VORARBEITER eða LAGERSCHUTZ letrað á ermarnar komu einnig i heim- sókn til þessara kappa og sumir lögðu jafnvel á borð með sér sigarettur sem hinir nýkomnu létu ganga á milli sin og voru fjórir um eina. Þessir fangar höfðu ekki allir rauðan þrihyrning, sumir báru svartan, grænan, gulan, bleikan eða fjólubláan og þeir sem höfðu rauðan skörtuðu oft einnig svörtum bókstaf, F, R, T, P eða S. Frakki að nafni Guignard skýrði fyrir þeim þýðingu þessara merkja: þeir sem höfðu rauða þrihyrninga án bókstafs voru Þjóðverjar, hinir voru Frakkar, Rússar. Tékkar Pól- verjar og Spánverjar. Svarta eða græna þrihyrninga báru þeir, sem sekir höfðu gerzt um venjuleg lögbrot, gula höfðu Gyðingar, bleika höföu kyn- villingar og þeir fjólubláu voru bornir af Vottum Jehova. Guignard staðfesti einnig það sem Bretinn haföi sagt þeim og bætti við ýmsum óhugnanlegum smáatriðum. Hann kvað þá vera stadda i alverstu fanga- búðum i Þýzkalandi, mögu- leikarnir á að komast lifs af væru nánast engir. Ef þeir dæju ekki úr hungri myndu þeir deyja úr þrælkun, og ef þeir dæju ekki úr þrælkun, yrðu þeir teknir af lifi. É hverjum einasta degi létust yfir 300 fangar úr sulti eða af barsmið varöanna á meðan þeir störfuðu i vinnuflokkunum. í hverjum vinnuflokki voru hundrað fangar, sem drógu grjót, fluttu trjáboli eða hreinsuðu kamra undir verk- stjórn KAPO eða VORAR- BEITER. En SS-verðirnir voru einnig til staðar ásamt hundum sinum. Ef ekki var hægt að hafa nóga skemmtun af að berja fangana til óbóta, var alltaf hægt að siga á þá hundunum og láta þá rifa þá á hol. Þeir sáu brátt að þessar frá- - sagnir voru hvergi ýktar. Þeir gengu fram og aftur i sólskininu fyrir innan gaddavirinn og ræddu við aðra fanga blokkar- innar á heimatilbúnu alþjóða- máli og veittu þá eftirtekt hópum SS manna, sem reikuðu um fangabuðirnar. f)eir tóku einnig eftir aö fangarnir reyndu að forðast þá eftir mætti en ef það tókst ekki tóku þeir hæ- versklega ofan húfur sinar. Þó dugði það ekki alltaf til að aftra vörðunum frá að berja hvern þann fanga, sem vakti van- þóknun þeirra með einhverju móti. Þeim var bent á lágan, svartan reykháf rétt fyrir aftan blokkina. — Þetta er lik- brennslan var þeim sagt. Hún er visasta flóttaleiðin, fæstir okkar munu komast úr úr þessum búðum öðruvisi en sem reykur úr reykháfmum þarna. Þar sem blokk númer 17 átti að vera einskonar endur- hæfingar og einangrunarkofi var föngunum þrjátiu og sjö enn um sinn ekki gert að mæta i allsherjartalninguna, sem fram Yeo-Thomas fór á hverjum morgni á aðal- velli fangabúðanna. Hún var framkvæmd sem talning en ekki nafnakall og gat stundum varað i allt að fjórar klukkustundir þegar litt tölvisir SS-menn urðu að telja þessa 80.000 fanga, en á meðan uröu fangarnir að standa berhöfðaðir i réttstööu, hvernig sem viöraði. Er ganga átti tii hvilu um kvöldið. vöktu hinir 37 nýkomnu enn sem fyrr óskipta athygli: þegar þeir höfðu afklæzt ásamt hinum klukkan tiu og látið snyrtilega samanbrotin föt sin á borðin i hinni svokölluðu dag- stofu, þvoðu þeir sér frá hvirfli til ilja, svo jafnvel Vitni Jehova undruðust stórlega. Siðan tritluðu þeir á skyrtunum eins og litlir drengir i rúmin og létu fara eins vel um sig þeir frekast gátu. Morguninn eftir urðu þeir þess visari, aö þeir voru enn á iorréttindalistanum enda þótt þeir vissu ekki, að sú ráðstöfun var aðeins tilþess gerð að tryggja að þeir kæmust ekki hjá þeirri sérstöku tegund aftöku, sem þeim hafði verið búin. Fótaferðatimi hinna fanganna, sem urðu að höggva grjót og aka skit undir svipuhöggum og hundsgelti, var klukkan fjögur að morgni, i blokk númer 17 heyröust engin köll fyrr en klukkan sex. Siðar um daginn var þeim, sem hölöu haft pinkla meðferðis leyft að heimsækja birgða- skemmuna og taka úr þeim ýmsa hluti til eigin nota. Enda þótt þeir yrðu þess fljótt visari, að mörgu hafði verið stolið, endurheimti Robert Benoist þar rakvél sina og fáein rakblöð og Hubble raksápu, peysu, khaki- skyrtu, sem hann gaf Yeo- Thomas, vasaklúta, sem hann Miðvikudagur. 26. júlí 1972 11

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.