Alþýðublaðið - 29.07.1972, Blaðsíða 12
I alKúj « B ■ I
laipyt
HN
I BPWB* w
[jfj * | \:i "f £ fj W i
|||§||| » i * R w
FYRIR
ÞAU
SEM
ÆTLA
ÚT ÚR
BÆNVJM
Vcgaþjónusta Félags is-
lcnzkra bifrciftaeigcnda helg-
inga 2!».-:iO. júli 1972.
K.t.B. 1. tit frá Reykjavik
(umsjón og upplýsingar.)
F.t.B. 2. Borgarfjörður.
K.t.B. 3. Hellisheiði — Ar-
nessýsla.
K.t.B. 4. Mosfellsheiði —
Þingvellir — Laugarvatn.
K.t.B. 5. Út frá Akranesi.
K.t.B. 6. Út frá Selfossi.
K.t.B. 8. Hvalfjörður.
K.t.B. 12. Út frá Vik i Mýr-
dal.
K.l.B. 13. Út frá Hvolsvelli.
(Rangárvallasýsla.)
K.t.B. 17. Út frá Akureyri.
K.t.B. 20. Út frá Viðigerði i
Húnavatnssýslu.
Eftirtaldar loftskeytastöðv-
ar taka á móti aðstoðarbeiðn-
um og koma þeim á framfæri
við vegaþjónustubifreiðir
K.t.B.:
Gufunes-radio..........22384.
Brúar-radio..........95-1111.
Akureyrar-radio.....96-11004.
Einnig er hægt að koma að-
stoðarbeiðnum á framfæri i
gegnum hinar fjölmörgu tal-
stöðvarbifreiöar, sem um
þjóðvegina fara.
Vegaþjónustan itrekar við
bifreiðaeigendur að muna eft-
ir að taka meö sér helztu vara-
hluti i rafkerfiö og umfram
allt viftureim.
Simsvari K.t.B. er tengdur
við 33614 eftir skrifstofutima.
I [i
AJþýöúbankinn hf
ykkar hagur/okkar metnaOur
KOPAVOGS APOTEK
Opið öll kvöld til kl. 7.
Laugardaga til kl. 2.
Sunnudaga milli kl. í og 3.;
MILLI
Eiginmenn eiga ráð undir rifi
hverju. þegar um það er að
ræða að sleppa frá eiginkonun-
um, eins og Kaninn á Kefla-
vikurflugvelli sannaði um dag-
inn. Hann er að læra að fljúga,
og á laugardaginn, þegar hann
var æfingaflugi, tilkynnti hann
flugturninum skyndilega nýja
flugáætlun — til Akureyrar.
Undir kvöldið, þegar eiginkonan
fór að grennslast fyrir um ferðir
hans, gátu flugumferðarstjór-
arnir ekkert sagt annað en flug-
vélin væri á Akureyri, — og
„Sjallinn” væri ekki á þeirra
flugstjórnarsvæði • • • Eitt-
hvað virðist hafa farið að halla
undan fæti hjá Sjálfstæðis-
flokknum fjárhagslega eftir að
flokkurinn fór úr stjórn. t það
minnsta hefur nauðungarupp-
boðá eign miðstjórnar flokksins
aö Laufásvegi 46 veriö auglýst i
Lögbirtingarblaðinu.
• • •Sumir halda þvi fram, að
það hafi verið of langt gengið i
ljósmyndaáhugamennskunni,
þegar áhugaljósmyndari nokk-
ur lét verða sitt fyrsta verk,
þegar hann var búinn að velta
bilnum sinum, að skriða út með
myndavélina og taka mynd af
flakinu. Siðan sendi hann
myndina til birtingar i Sjón-
varpin. • • • Freðfiskfram-
'ieiðsia Sambandsfrystihúsanna
minnkaði um 6,5% á fyrri helm-
ingi þessa árs, frá þvi sem hún
var á sama tima i fyrra. Sam-
drátturinn var aðallega i þorsk-
og ýsuflökum, en mikil eftir-
spurn hefur verið eftir þeim i
Bandar'ikjunum, og verðið
aldrei hærra • • • Þetta orsak-
ast af lélegri vetrarvertið, en
þorskfiskafli úr bátum og tog-
urum var á þessum tima 14%
minni en á sama tima i fyrra
• • *A fyrirstandandi ári er
gert ráð fyrir, að verði seldar
hér á landi vörur frá Marks &
Spencer fyrir upphæð, sem
svarar þvi, að hvert mannsbarn
á landinu kaupi þesskonar vörur
fyrir 400 krónur • • • Nýlega
tók kona i fyrsta sinn við stöðu
kaupfélagsstjóra. Það er hjá
Kaupfélagi Bitrufjarðar á
Óspakseyri, og konan heitir Sig-
rún Magnúsdóttir og er frá
Þambárvöllum • • • A forsiðu
júliheftis stórblaðsins
Newsweek er litmynd af Bobby
Fischer, sem væri kannski ekki
i frásögur færandi, ef ekki væri
vegna þess, að myndina tók
Kristinn Ben, aðalljósmyndari
Chester Fox á skákeinviginu, og
liklega er þetta i fyrsta sinn,
sem slikt stórblað birtir forsiðu-
mynd eftir islenzkan ljósmynd-
ara • • • Það hringdi til okkar
kona, sem sagðist vera alveg
spól yfir þvi, að eftir að
Fischer fór að mæta til leiks i
skákeinviginu og vinna heims-
meistarann hvað eftir annað,
hafi tslendingar skyndilega
snúið við blaðinu, gleymt öllum
móðgunum og fiflalátum frá
hendi Fischers, en farið að
mæla alla vitleysuna upp i hon-
um.
Allt ilagi, fcg þvæ upp. hann þurrkar.
S6MDIBIL ASTOÐIM Hf
Bandariski húmoristinn Art Buchwald hefur lengi
verið löndum sinum það sem Spegillinn var i eina tíð
hér: samvizkubit þjóðarinnar.
Dálkar hans, sem birtast i ótölulegum fjölda blaða
um allan heim eru eitthvert mest lesna skopið, sem
blöð birta, og auðvitað hefur Buchwald f jallað um mál
málanna í dag:
NIXON HRINGIR
í BOBBY FISCHER
Eftir nokkrar vikur verður
Bandarikjaforseti aö taka eina
mikilvægustu ákvörðun á sinni
stjórnartið. Hann verður að
ákveða hvort hann eigi að
hringja til Bobby Kischers eða
ekki, ef svo skyldi fara, að
Fischer ynni heimsmeistara-
einvigið i skák, sem nú er háð á
tslandi.
Um langt skeið hefur ekki
nokkur ókrýnd hetja hagað sér
likt og Fischer. Um háttalag
hans hefur verið sagt, að hann
væri eini Amerikumaðurinn,
sem gæti fengið alla samlanda
sina til að elska Rússana.
Eftir allt sem á undan er
gengið i sambandi við skákein-
vigið, gæti simtal forsetans og
Fischers orðið eitthvað á þessa
leið:
,,Halló, Bobby, þetta er Nixon
forseti. Mig langaði aðeins til að
hringja til þin og óska þér til
hamingju með sigurinn”.
,,Viltu vera stuttorður, ég er
þreyttur.”
,,Þetta er mikill dagur fyrir
Ameriku, Bobby”.
„Þetta var þó meiri dagur
fyrir mig. Ég vann hundrað og
fimmtiu þúsund dali, um leið og
ég sýndi þessum tslendinga-
peyjum eitt og annað.”
„Þú veizt, Bobby, að ég næst-
um stofnaði skáklið i háskóla?
„Gott hjá þér.”
„En ég sneri mér nú samt að
fótboltanum.”
„Atti þetta samtal að snúast
um það?”
„Biddu nú rólegur, Bobby. Ég
hringi alltaf i þá sem verða
meistarar i einhverri keppni
fyrir Ameriku. Mig langar til að
bjóða þér i kvöldverð i Hvita
Húsinu, þegar þú kemur heim.”
„Hvaö viltu borga mér mikið
fyrir að koma?”
„Borga þér? Ég borga ekki
fólki fyrir að borða kvöldverð i
Hvita Húsinu.”
„Nú, hvað hef ég þá upp úr
þvi?”
„Ég býð rikisstjórninni,
hæstaréttardómurum, þingfor-
setum og öllum rikum skák-
mönnum i flokknum alls staðar
að úr Bandarikjunum. Svo fæ ég
séra Lombardy til að tefla eftir
matinn. Það er það minnsta,
sem ég get nú gert fyrir mann,
sem sigrað hefur heimsmeistar-
ann Spasski.”
„Allt i lagi. Ég skal koma. En
ég set þessi skilyrði: Þú sendir
forsetaflugvélina til að ná i mig
til tslands. Þú kemur sjálfur og
tekur á móti mér við flugvélina,
skaffar mér forsetabifreið,
einkaibúð, einkatennisvöll og
einkasundlaug. Auk þess vil ég
fá tiu leynilögreglumenn svo að
fréttamenn séu ekki alltaf að
ónáða mig.”
„Ég held að ég geti séð um
þetta, Bobby.”
„Og ég vil ekki hafa neinar
sjónvarpsmyndavélar.
„Engar sjónvarpsmynda-
vélar?”
„Ég hata sjónvarpsmynda-
vélar. Þær setja mig úr jafn-
vægi. Ef ég sé eina einustu sjón-
varpsvél, þá er ég farinn.”
„Hafðu engar áhyggjur,
Bobby. Það verða engar
sjónvarpsvélar.”
,Og engan kjaftagang meðan
ég er að borða. Ég get ekki
borðað meðan fólk er að tala
saman.”
„Það er nú anzi erfitt að hafa
fjölda fólks i mat i Hvita Hús-
inu, ef enginn má segja orð.”
„Það er þitt vandamál, góði.
Ef ég heyri ett einasta hljóð, þá
skalt þú bara fá þér annan
heimsmeistara i skák.”
„Ég geri allt eins og þú vilt,
Bobby. Þetta er kvöldmáltið
fyrir þig.”
„Klukkan hvað byrjar svo
þetta át þitt?”
„Mér datt i hug svona um
áttaleytið.”
„Ég kem þá um klukkan niu.
Ég nenni ekki að standa upp á
endann og þurfa að tala við ein-
hverja pólitiska vindbelgi.”
„Ég skil, Bobby.”
’Og ég kem með minn eigin
stól. Mér er ómögulegt að
borða, ef ég sit á stól einhvers
annars. Svo skaltu gera þér
grein fyrir þvi strax, að ég vil
ekki hafa björt ljós, meðan ég
er að borða. Ef ljósin eru of
björt, þá byrja ég sko ekki á
forréttinum.”
Framhald á bls. 4
<S>lG<&fK Vl&GA OGr | 'riLVELRAN/
I n r—. . i ' — s-i 1 r _ \ l1^.. .. i. .4./^ l. rv 1 1. — - 1
V\SSARA &2r SE&\ ÞÉtt VA9 A9
S\G£.A V\Ú-<3A VERÐUR AUV£g-
1RÍVLÓV E.F Þó
LCfUR VIANN
\NG\MUN9 £v(K/
\NN S\<AKVvUR OG 53A6A9UR,
LN S\GGU )?yKiR SAMT A\<Ap-
L9GA V/lN^Ui^WAMM
SEG3A P® SEG3A A© VIÚN VÆRl
ME\RA A9 SLG3A A9 RUGSA JV/
A9 LÁfA SE;
SKAFT
JN ÁNNA9
A0 RA9 Æfr/ m VLVA AIVEG NÓG A0
VARA WA A WMU MLí) SANOPaWYK
OG SMELLA SVO &ARa SKRuFO \
ANN A VIONUM SVO Þ& HANN ÓE\(K/ST