Alþýðublaðið - 29.07.1972, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 29.07.1972, Blaðsíða 3
TID BERKLASMIT Á SIGLUFIRÐI s Tveir ungir siglfirzkir sjómenn voru fyrir nokkrum dögum fiuttir á Kristneshæli, en þeir eru taldir vera með smitandi berkla. Berklasmits hefur orðið vart á Siglufirði annað slagið allt siðan i fyrrasumar. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið hefur aflað sér þar nyrðra, munu um 100 Siglfirðingar vera á sérstökum berklalyfjum i varúðarskyni, en augljóst berkla- smit mun ekki hafa komið fram hjá öllu þessu fólki. Alþýðublaðinu hefur ekki tekizt að fá óyggjandi upplýsingar um tölu þeirra, sem smitazt hafa af berklum á Siglufirði, en blaðið hefur spurnir af sjö tilfellum á s.l. fjórum vikum. Varð vart við siðasta tilfellið fyrir aðeins tveimur eða þremur dögum og að þessu sinni hjá ung- um sjómanni. Siglfirðingur, sem blaðið hafði tal af i gær i sambandi við þetta mál, sagði, að vart hefði orðið iskyggilega margra tilfella, þar sem fólk hafi sýnt berklasmit, á undanförnum vikum, en hann kvaðst ekki hafa nákvæma tölu yfir bau. ,,Það er almennt álitið hér, að þau berklasmittilfelli, sem komið hafa upp á siðustu vikum, séu iskyggilega mörg, en berklasmits hefur orðið vart hér á Siglufirði alltaf annað slagið allt frá þvi i fyrrasumar. Siðast varð tilfellis vart fyrir tveimur eða þremur dögum og þá hjá ungum sjó- manni. Þessi berklasmittilfelli virðast yfirleitt hafa komið upp hjá ungu fólki. Liklegt virðist að hægt sé að rekja þessi tilfelli til ákveðinna báta, sem héðan eru gerðir út, og geta menn sér þess til, að berkla- smit hafi upphaflega borizt hingað með einhverjum þeirra frá útlöndum”, sagði Siglfirð- ingurinn i simtali við blaðið i gær- dag. Alþýðublaðið bar þetta mál undir Sigurð Sigurðsson, land- lækni, og staðfesti hann, að nokk- ur tiifelli af berklasmiti hafi kom- ið upp á Siglufirði. Kvaðst hann ekki hafa nákvæmar tölur um þau, en sagði, að þau væru öll undir eftirliti og i meðferð. Landlæknir sagði i samtalinu við Alþýðublaðið: „Læknarnir á Siglufirði hafa haft þetta til nákvæmrar athugunar um skeið, en auk þess fór berkla sérfræð- ingur héðan úr Reykjavik noTður nýlega til að gera frekari athugun ásamt læknunum á Siglufirði á þessu ástandi. Tveir sjúklingar eru nú til með- ferðar á Kristneshæli og nokkur hópur manna er á berklalyfjum i Framhald á bls. 6 SATAN LEIKUR FYRIR DANSINUM Ekki er óliklegt, að næsta vet- ur heyrist i útvarpinu á föstu- dögum og laugardögum tilkynn- ingar á þessa leið: Skóhlióð i Þórskaffi i kvöld. Eða Satan i Glæsibæ. Þessar hljómsveitir ásamt hljómsveitunum Goðgá frá Grimsstöðum á Fjöllum, Ný- rækt og Námsfúsafjólu ætla að reyna að krækja i titilinn „táningahljómsveitin ’72” á 'sumarhátiðinni að Húsafelli um verzlunarmannahelgina. Þessi keppni er orðinn fastur liður á sumarhátiðinni, og ýmsar þekktar hljómsveitir hafa byrjað frægðarferil sinn þar. Meðal þeirra eru Gaddavir, Nafnið frá Borgarnesi og j Tatarar. Tilhögun keppninnar verður með kabaretsniði, og hljóm- sveitin Trúbrot spilar á milli atriða. Hljómsveitirnar fimm i képpninni nota magnara Trúbrots, koma aðeins með eigin hljóðfæri, svo skiptingar eiga að ganga fljótt fyrir sig. Auk titilsins er keppt um 25 þúsund króna verðlaun. HANN HEFÐI BETUR... Enn eitt „öryggisbeltaslysið”, ef svo mætti segja, varö á mótum Hagamels og Furumeis um klukkan hálf fjögur i gær. Þvi köllum við þetta „öryggis- beltaslys”, að þarna hékk ónotað belti i öðrum bilnum, en ökumað- urinn kastaðist á framrúðuna, en siðan á sætið við hlið sér og slas- aðist talsvert. En lögregluþjónn hjá Slysarannsöknardeild, sem Alþýðublaðið hafði samband við i gær, sagði, að liklega hefði mað- urinn sloppið að mestu eða alveg, hefði hann notað öryggisbletið. — Myndina tók SS á slysstað. BILARNIR: NOKKUR BREYT- ING Á VINSÆLDALISTANUM Talsverðar breytingar hafa átt sér stað á sölu nýrra bila frá þvi á miðju ári i fyrra. Bæði hefur röðin á tiu söluhæstu bilunum breytzt og nýjar teg- undir hafa skotið þar upp kollin- um. E i heild hefur sala á nýjum bilum minnkað: um siðustu mánaðamót höfðu selzt 3.144 bilar frá áramótum, en á sama tima i fyrra höfðu selst 3.440. Eflaust er stærsti þátturinn verðhækkunin, sem varð i vor. Volkswagen, Ford og Fiat eru enn söluhæstu bilarnir, eins og i fyrra, af þeim seldust 454, 285 og 245 bilar, Siðan kemur fyrsta breytingin, á fjórða sætinu: þar hefur Sunbeam skotið sér inn með 211 bila i staðinn fyrir Volvo, sem nú er kominn niður i sjötta sæti meðl97 bila. Skoda hefur lika tekizt að komast upp fyrir Volvo, hann er i fimmta sæti með 209 bila. Næst koma tveir bilar, sem eru nýliðar meðal tiu efstu bil- anna. Það eru Toyota með 195 bila (110 i fyrra) og Land-Rover með 168 bila (105 i fyrra). 1 stað- inn féllu af listanum Peugeot og Vauxhall. Tveir þeirra neðstu hafa hrapaö heldur betur i sölu, — Saab i niunda sæti (159 bilar) og Moskwitch i tiunda (153 bilar), en þeir voru áður i fimmta og sjötta sæti. Meðal sendiferðabila hefur orðið sú breyting, að Moskwitch hóf sig úr þriðja sæti i fyrsta (49 bilar), en i staðinn féll Volks- wagen niður i annað og þriðja sæti, sem hann skipar ásamt Ford, með 29 bila sölu. Röðin á vörubilum er sú sama og i fyrra eða Mercedes-Benz (41), Scania (32) og Volvo (26). Athyglisvert er það, sem kemur ennfremur fram i skýrslu Hagstofunnar um bif- reiðainnflutning fyrri helming ársins, að sala á stórum banda- riskum fólksbilum hefur dottið svo til alveg niður. Einu bilarnir, sem einhver sala er i, eru Ford Mercury, en af honum seldust 80 bilar, og Chevrolet, en af öllum gerðum hans seldust 30 bilar. Hinsvegar seldist aðeins einn Buick.þrir Pontiac, og einn af hvorum „smábilnum” Gremlin og Matador. Skrifstofustúlka Rafmagnsveitur rikisins óska eftir að ráða stúlku til skrifstofustarfa hið fyrsta. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Starfsmannadeild Laugavegi 116 Reykjavik (P Sjúkraliðaskóli verður starfræktur á vegum Borgar- spitalans og hefst 17. nóvember n.k. Námstimi er 12 mánuðir. Upplýsingar gefnar og umsóknareyöublöö afhent á skrifstofu forstööukonu. Umsækjendur skulu vera fullra 18 ára og hafa lokiö lokaprófi skyldunáms. Umsóknir skulu hafa borizt forstööukonu spitalans fyr- ir 20. ágúst n.k. Reykjavik, 28. júli 1972. Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar. Framkvæmdastjóri óskast fyrir félagsheimilið i Grindavik. Umsóknir um starfið ásamt kaupkröfu og upplýsingum um fyrri störf sendist for- manni félagsstjórnar, Svavari Árnasyni, Borgarhrauni 2, Grindavik, fyrir 20. ágúst n.k. Ráðning miðast við 1. október 1972. F'élagsheimili Grindavikur. ® Aðstoðarlæknar Stöður tveggja aðstoðarlækna við skurðlækningadeild Borgarspitalans eru lausar til umsóknar. Stöðurnar veitast frá 1. september n.k. til allt að 12 mánaða eftir nánara samkomulagi. Upplýsingar um stöðurnar veitir yfirlæknir deildar- innar. Laun samkvæmt samningi Læknafélags Reykjavlkur við Reykjavikurborg. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist Heilbrigöismálaráöi Reykjavíkurborgar fyrir 15. ágúst n.k. Reykjavik, 28. júli 1972. Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar. H Tilkynning um útsvör ■J~ í Hafnarfirði Þeir sem enn eru i vanskilum með fyrir- framgreiðslu útsvara eru hvattir til að gera nú þegar full skil. Eftir 1. ágúst n.k. verða innheimtir fullir -dráttarvextir á vangoldna fyrirfram- greiðslu og allt álagt útsvar viðkomandi gjaldanda fellur i gjalddaga. Útsvarsinnheimtan i Hafnarfirði. Laugardagur. 29. júlí T972 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.