Alþýðublaðið - 02.08.1972, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 02.08.1972, Blaðsíða 7
LAUS STAÐA Skólastjórastaða við hinn nýja hjúkrunar- skóla i tengslum við Borgarspitalann i Reykjavik, sbr. lög nr. 81/1972, er laus til umsóknar. Laun verða samkvæmt launakerfi rikis- starfsmanna. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar menntamála- ráðuneytinu fyrir 20. ágúst n.k. Menntamálaráðuneytið, 28. júli 1972. Húsafell 72 Fjölbreytt og samfelld skemmtiskrá i 2 daga. Eitthvað fyrir alla, unga og gamla. Dans á þremur pöllum þrjú kvöld, sex hljómsveitir. Sparið áfengiskaupin. Njótið öryggis og ánægju. SUMARHÁTÍÐIN HÚSAFELLSSKÓGI UM SÆNSKA NÁMSSTYRKI Sænsk stjórnvöld bjóða fram námsstyrki að fjárhæð 9.660.00 sænskar krónur á ári. Styrkirnir eru fyrst og fremst ætlaðir er- lendum námsmönnum, sem ekki njóta styrkja i heimalandi sinu og ekki ætla sér að setjast að i Sviþjóð að loknu námi þar i landi. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar til Svenska Institutet, Box 7072, Stockholm, fyrir 30. september n.k., en umsóknar- eyðublöð fást á sama stað. Menntamála ráðuney tið, 28. júli 1972. IO&A VlúrGil\ OGr g^Jj^ÍUVtRAN/ EF FUICFElðCIN ERU EKKI FARGIALDASTRfDI ÞÁ ER STRHUR EUIHVAD ANNAD TIL DÆMISIIM KVNÞUKKA FLUGFREYJAHHA! Samkeppnin á milli hinna stóru, alþjóðlegu flugfélaga, er hin harðvitugasta. Og þó að far- þegarnir virðist yfirleitt vera farnir að þreytast á þvi hvernig mat og drykk er troöiö i þá, allt frá þvi er flugvélin hefur sig frá jörðu og þangað til hún lendir, lit- ur út fyrir aö þeir fái aldrei nægju sina, þegar fegurð kvenna er ann- ars vegar. Flugfreyjurnar eru þvi enn sem fyrrbezti rétturinn, sem flugfélög geta framreitt. Bylting. Árum saman hafa flugfélögin getað framreitt þennan freistandi rétt á þann hátt sem forráða- mönnum þeirra bauð við að horfa. En nú er bylting i lofti. Klugfreyjurnar hafa orðið sér úti um launahækkun, betri starfs- skilyrði og aukin réttindi. En samt sem áður geta þær ekki enn ráðið þvi sjálfar hve þungar þær vilja vera, hvernig fatnaði þær vilja klæðast og hvernig þær vilji haga hárgreiðslu sinni. „Jörðuö". Allt til þessa hefur verið unnt að segja flugfreyju upp stöðu sinni, ef hún giftist eða varð vanfær. Auk þess er hægt aö „jarða” hana þegar hún varð hálffertug. Nú hefur hún aflað sér þeirra rétt- inda að mega giftast, og að henni skuli greitt nokkurt kaup um meðgöngutimann og meðan hún liggur á sæng, og að hún geti haldiö áfram flugfreyjustarfinu þangað til hún verður hálfsextug. En hún á það enn á hættu að vera vegin og of þungvæg fundin: Flest fara hin stóru flugfélög þar eftir töflu þeirri yfir ákjósan- legustu þyngdarhlutföll, sem Metropolitan liftryggingafélagið hefur látið semja og gefið út. SAS ræður flugfreyjur 1,60 - 1,75 m á hæð, og krefst þess að kilóa- tala þeirra sé tug lægri en hæð þeirra i sm yfir 1. m. Sem sagt — ef stúlkan er 1,68 m á hæð, má hún ekki vera þyngri en 58 kg. Yfirflugfreyjan Vivi Holm kemst svo að oröi: — Gerist ein- hver fluftfreyja ivið of þybbin, ræðum við málið við hana — en segjum henni ekki upp starfinu formálalaust. EINS OG STYKKJA- FARMUR Flugfélagið United Airlines er harðast á stallinum i þessum sök- um. Þær 5500 stúlkur, er starfa þar sem flugfreyjur, eiga það stöðugt á hættu að umsjónar- mennirnir gefi þeim bendingu, og setji þær á vogina eins og hvern annan stykkjafarm, hvenær sem eftirlitinu þóknast. Flugfreyjurn- ar hjá United Airlines eru 157 - 183 smá hæð, en jafnvel þær hávöxn- ustu mega ekki vega yfir 71 kg. Og allar eru þær vegnar aö minnsta kosti mánaðarlega. Kynsprengjur. Jafn ströngum kröfum verða flugfreyjurnar hjá þessu félagi að lúta hvað snertir klæðnað og hár- greiðslu. Fram að þessu er þess krafizt að sérhver flugfreyja sé eins konar Doris Day — það er að segja, það mikið af kynsprengju- gerðinni, að þær æsi karlmennina — en um leið svo ljúfar og háttvis- ar, að þær veki ekki afbrýðisemi hjá kvenfarþeganum. Flugfreyjan á sem sagt að vera kynæsandi, en ekki um of. Og hæversk og halda karlmönnum frá sér — en ekki um of! Stutt klipping. Flest krefjast flugfélögin þess af flugfreyjunum, að þær séu stuttklipptar eða með uppsett hárið — af heilbrigðisástæðum, segja þeir hjá SAS. Sitt, laust hár er bannað. Sidd kjólfaldsins er á stöðugu iði, ýmist er hann færður upp á við eða niður á við — en ekki er það flugfreyjan sjálf, sem ákveður það. Brjóstahöldin. Hjá nokkrum hinum stærri og voldugri bandarisku flugfélögum hefur staðið mikill styr um brjóstahöldin að undanförnu. Flugfreyjur, sem ganga hvers- dagslega án brjóstahalda — eins og mikill meirihluti ungra kvenna i Bandarikjunum nú — þegar þær eru sjálfráðar klæða sinna, hafa mótmælt þvi harðlega aö þær skuli vera þvingaöar i slika brynju við starf sitt. Einn af viðkomandi deildar- stjórum hjá SAS lætur svo um mælt: — Það er frá fagurfræöi- legu sjónarmiði, að við krefjumsi þess að allar okkar flugfreyjur beri brjóstahöld. Það prýðir þær ekki allar að ganga án þeirra. — Er ekki unnt að láta hverja einstaka flugfreyju um að ákveða hvort hún gengur meö brjósta- höld eða ekki? — Nei, það teljum við af og frá. Þær eru ekki allar færar aö dæma um það sjálfar hvort fari þeim betur, og auk þess getum við ekki leyft sumum þeirra að varpa brjóstahöldunum fyrir róða, en krafist þess að öörum aö þær beri þau. Yfirleitt kjósum viö það hjá SAS, að flugfreyjurnar hafi nokk- urn hemil á kyntöfrum sinum, og við sækjumst t.d. ekki eftir ljós- myndafyrirsætum, heldur venju- legum þokkalegum stúlkum sem standa föstum fótum i tilverunni. Okkur lizt það léleg pólitik aö ráöa kynsprengjur i þann starfa, með tilliti til kvenfarþega okkar. Að kunna að ávaxta sin pund. En það eru önnur sjónarmið sem þarna ráða viða erlendis — t.d. i Bandarikjunum. 1 áætlunarfluginu þar innan- lands, einkum suövestur-fluginu, Texas - Kaliforniu, eru það ekki neinarhugljúfar gyðjur sem svifa um loftið, heldur fylla þeir það meö kjarnakynorkusprengjum og af öflugustu gerðinni. A þessum innanlands-flugleiðum, þar sem keppnin er hörðust á milli flugfé- laganna, er barizt með flugfreyj- urnar að vopni. Og þar er ekki veriö að fjargviðrast út af nokkr- um grömmum til eða frá — það gildir einu, þótt flugfreyjan hafi nokkrum aukapundum yfir að ráða, eins og segir i augiýsingu frá einu flugfélaganna — það sem allt veltur á, er hún kunni að ávaxta þau! Ástarflug. I þeirri baráttu beita flugfélög- in að sjálfsögðu klæðnaði flug- freyjanna — stutt-stuttbrókum, stutt-stuttpilsum, netsokkum, há- um stigvélum, og nú kemur það allt i einu á daginn að það er ekk- ert athugavert við sitt og slegið hár. „Velkomin um borð i okkar ást- arflug” — þannig hljóðar ein af auglýsingunum. Fljúgið mér! Flugfélagiö National Airlines reynir að laða til sin farþega með risastórum auglýsingamyndum af flugfreyjunum. Og eitt af slag- orðum þeirra með þessum kroppamyndum er þannig: „Ég er Jo — fljúgðu mér!”Og þessi auglýsing hefur maðal annars Virl*t IplKhl délui Ihrui Lathtlm Dmu Au/mrrhumheil im Sarom| Kehmpa umheuhmtn umher rauherl Ihmen da ohee den Himmel an Roed A'greal way to Ity Fm Jo. Staiting 26 May, Fll have daily747’s fiom London to the Sunshine States ofAmerica. Flyme. I’vtr k>»i a hu B>>inis ío» vou (t> Mumi anJ iKc Suiuhiiu Si jit»«•( Anm> a. t»iili Jjily ntmmitip flhcHnt frtun IjtnJon jnJ ourttwn kinjof pmocul iKTvwf. AnJ j lol from Mutni; l’vcitol Krc»l toniKMÍum lojllof FtonJa, Nt-w t Hlrant, Houtron. Cjlifornu; you lumr n. Thf n fly il. Antl Mjrlinti 26Mjy. III h»vf morr; thr nltf ftmvrntcncr uf Jjily 747’» 10 Mumi. PWW ihr Jjy you tvanl «tl (u. AnJ ihr hraulifulluaury uf iht- Kn-ai 747. with mucr f ahin rotun i lun any airiint-r m iHc »k y lojay. AnJ ihr 747 cairav cn roun: hrnrun muvic*.* mullif hannrlk-J auJio mirrtainnu-ni anJ our inlrmjtional nuurmti c uiunr. AnJ a rrfrcxhinK WinJ of pcr »onal x-r\ u r, ptrvm-loprrwtii. Oivc il a ico. tt unT you! Fly myJaity 747’»io ihr Sunvhinr Siaic* oí Amrrif a. Tclfphonc Naiioml Airlinni Jmvt, ur nnK up\tHir i ravrl JKt-ni. Tcll him ju KM ytHi. Elyja ^FlyNational Airlines. orðiö til þess að koma bandarisk- um rauðsokkum i hár saman. Og MAR.ILYN Goldstein, blaðamaður viö Miami Herald kemst svo að orði i sambandi við þá auglýsingu: „Væri það guðs vilji aþ Jo yrði flogiö af karl- mönnum, — þá heföi hann áreiö- anlega þúið hana fjórum hreyfl- um og fárangursrými! ” MYNDIRNAR I.cngst til vinstri: Margaretha Fcttersson er dæmigerö SAS—frcyja. Ekki of mikil kyn- bomba, en þó gædd nægilega miklum þokka til aö SAS laki að minnsta kosti þátt i striöinu. Trans World Airlines láta sinar flugfreyjur iklæöast svonefndu safari-sniði og pinubuxum. Þessi klæönaöur var sérstak- lega hannaöur til þess aö fagrir fótleggir gætu notiö sin, en auö- vitað var yfirskynið það aö þetta væri hentugur vinnu- klæönaöur fyrir stúlkurnar. Stuttbuxur og há stigvél. Þessu vopnaöar þjóna freyjurnar far- þegum véla South-Western Airlines i Bandarikjunum — og SEX-ið leynir sér ckki. Lengst til hægri sjáum við svo þaö sem þýzka flugfélagiö LTU býöur upp á. Þarna er lika fyrst og fremst höföaö til farþega af sterkara kyninu. t grini kallast þessi útbúnaöur „læri i loftinu”. Að neöan sjáum viö svo dæmi- geröar auglýsingar bandariskra flugfélaga. Eins og sú, sem segir i fyrirsögn: „Ég er Jo.. Fljúgðu mér.” Miðvikudagur 2. ágúst 1972. Miðvikudagur 2. ágúst 1972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.