Alþýðublaðið - 02.08.1972, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 02.08.1972, Qupperneq 9
SUMARHATIÐ HSKAÐ LAUGARVATNI Dagana 4. 5. og 6. ágúst mun Héraftssambandið Skarphéðinn halda sína árlcgu sumarhátið að Laugarvatni. llefur verið lagt i nokkurn kostnað vegna þessarar hátiöar til að bæta verulega þá þjónustu, sem þarna er veitt. Þar eð þessi liátið H.S.K. er jafnframt iþróttamót. verður nú keppt í fjórum greinum frjálsiþrótta auk knattleikja. Er þar um að ræða opið mót i 100 og 400m. hlaupi kvenna og 100 og 3000 m. hlaupi karla. Þátttaka tilkynnist fram- kvæmdastjóra H.S.K. í sima 1189 Setfossi. A fimmta þúsund manns hafa verið á Laugarvatni einstakar helgar i sumar, og gerir H.S.K. þvi ráð fyrir að ein stærsta úti- samkoma landsins um verzlunar- mannahelgina verði þar. H.S.K. hvetur alla til að hlita þeirri lagagrein, sem kveður á um að öll ölvun á almannafæri sé bönnuð. Til að jafn fjölmenn sam- koma og Laugarvatnshátiðin 1972 geti farið vel fram, verður að vera strangt vineftirlit og munu áberandi ölvaðir mótsgestir tekn- ir tafarlaust ur umferð. HÉRAÐSMÚT SKARPHÉÐINS Héraðssambandið Skarphéðinn heldur héraðsmót sitt i frjálsum iþróttum á Selfossi dagana 19. og 20. ágúst og hefst keppni kl. 14.00 báða dagana. Keppt verður i 100, 400, 1500, og 4x100 m hlaupum, langstökki, hástökki, þristökki, sta ngarstökki, kúluvarpi, kringlukasti og spjótkasti karla og 100, 400 og 4x100 m hiaupi, langstiikki, hástökki, kúluvarpi, kringlukasti og spjótkasti kvenna. Þátttaka tilkynnist Úlfi Björns- syni í sima 1189 Selfossi fyrir mið- vikudag 16. ágúst. STÆRSTA STEIKARPANNA SEM GERD HEFIIR VERID? ÞAD SEGJA ÞEIR ALLIR „Fyrstu gullverðlaun leik- anna ættu með réttu að falla i skaut þeirra sem teiknuðu iþróttamannvirkin i Miinch.cn”, stóð i texta sem fylgdi þessari mynd af Ólympiuleikvanginum i Miinchen, en þar eiga 18. sum- arólympiuleikarnir að hefjast innan mánaðar. En það verður ekki iþrótta- fólkið sem mun veita arkitekt- um iþróttamannvirkjanna gull- verðlaun, ef svo fer sem horfir. Það hefur nefnilega komið i Ijós undanfarna daga, að það er allt annað en þægilegt að keppa undir trefjaplastþakinu mikla sem hylur iþróttamannvirkin. Vcstur-þýzkt iþróttafólk hefur undanfarið keppt á nýja leik- vellinum, og það hefur að sjálf- sögðu lagt sig fram, þvi keppt er um sætin i ólympiuliði Þjóð- verja. Mikil hitabylgja hefur gengið yfir Þýzkaland og hitinn hefur þótt alveg óbærilegur. „Stærsta steikarpanna heims- ins”, kallar íþróttafólkið þenn- an rándýra völl sin á milli, en völlurinn og þakið kosta um 6000 milljónir islenzkra króna. Toppmenn i frjálsum íþrótt- um hafa látið i ljósi þá skoöun sina, að útilokað sé að ná topp- árangri við slikar aöstæöur scm fólkiö kallar „eins og aö keppa i gufubaði”. Harald Norpoth langhlaupari sagöi. „Það var hræöilegt að keppa þarna., loft- ið virtist alveg kyrrt. Ég var alveg að gefast upp á timabili”. Þjálfari þýzka frjálsiþrótta- fólksins sagði, að svo virtist sem leikvangurinn nýi væri byggður I lægð, og vindurinn blési allur fyrir ofan þakið mikla. „Þvi endurnýjast loftið litið á vellinum sjálfum.” Ekki eru allir á sama máli um að vindlaust sé á veilinum. Stökkvarar kvarta mjög yfir þvi að vindkviður skelli niöur frá þakinu, og trufli þá i atrennu. Sleggjukastarar eru einnig óá- nægðir, þvi sleggjukastgeirinn liggur mjög nálægt lilaupa- brautinni, og ckkert má útaf bera svo sleggjan fari ckki út á braut. Litlu munaði á leikunum nýverið, að sleggja hitti hiaup- ara á brautinni. Stjórnendur vallarins og leik- anna sjálfra eru hinir bröttustu, og segja að öllu verði kippt i lag. Þá hafa þeir lofað betra vcöri meðan á leikunum stendur, og timinn frá 26. ágúst til 10. scpt- ember hafi einmitt verið valinn með hliðsjón af umsögn veður- Iræðinga, scm alhugað hafa vcðurfar i Miinchen siðustu 100 árin. Það er þó eitt sem þeir scgjast ekki vera vissir um hvað veður- far snertir. Um tvisvar á ári blæs svokallaður fönvindur af l'jöllunum niður til Munchen. Vindur þessi er ákaflega heitur og meðan hann blæs stöövast alll athafnalif svo aö segja, hvað þá hægt sé að stunda iþróttir. Ólympiuncfndin tók á þessu áhættuna, þrátt fyrir að þessir fönvindar blási oft i sept- embermánuði. SS. SPENNAN EYKST í 2. DEILDINNI Keppnin i 2. deild i knattspyrn- unni ætlar að verða miklum mun skemmtilegri og spennandi i ár en i fyrra, en þá tók Vikingur strax forvstuna, og sigraði eins og kunnugt er með fádæma yfir- burðum. Nú er annað uppi á teniugnum hjá Vikingi eins og allir vita. Eins og fram kom hér á sföunni i gær, stendur baráttan á toppn- um milli tvcggja liða eingöngu, Akureyringa og FH-inga. Er hér um mjög ólfk lið að ræða, FH-ing- arnir ungir og reynslulitlir, en Akureyringarnir eru margir meö yfir tug ára að baki i meistara- flokksknattspyrnu. Hinir ungu FH-ingar gefa samt ekkert eftir og öruggt má telja að úrslita- leikur 2. deildar fari fram i Hafnarfiröi 12. ágúst, þegar þessi tvö liö leiða saman hesta sina. Varla kemur til mála að þessi tvö lið tapi stigum til annarra liða. i fallbaráttunni eru tvö lið, isa- fjörður, og Armann. Hefur liði Armanns mjög hrakaö frá i fyrra, þegar þaö var lcngi vel i toppbar- áttunni. Myndin er af Baldvin Baldvins- syni, er hann skoraöi fyrir Völs- ung gegn Þrótti á laugardaginn. Miðvikudagur 2. ágúst T972 9

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.