Alþýðublaðið - 10.08.1972, Page 2

Alþýðublaðið - 10.08.1972, Page 2
MYNTSAFNARAR VILDU VINNINGS- PENING - EKKI ANNAN MINNISPENING Það var verið að taka niður pantanir á nýju minjapeninga- seriunni um heimsmeistaraein- vigið i allan gærdag, og seinni- partinn i fyrradag, þegar byrjað var að selja þær, og i gær seldust á fimmta hundraö seriur, Allt er þó á huldu um hvert verðgildi peninganna verður, þar sem und- ir kvöld i gær var upplagið ennþá „opið”, þe. ekki var búið að ákveða hvað það skal vera. gefa út vinningspening að einvig- inu loknu i stað þessarar seinni seriu. Þeir tóku þessa uppástungu til athugunar, en ekki tókst blað- inu að fá upplýsingar um það i gær, hvort ákvörðun hafi verið tekin i þvi efni. I fréttatilkynningu, sem Skák sambandið sendi út i gær vegna útgáfu seinni minjapeningaútgáf- unnar, segir m.a., að upplagið hafi ekki verið ákveðið vegna erfiðleika, sem urðu við dreifingu fyrri minjapeninganna. Þegar þeir voru gefnir úUkom- ust á kreik sögur um, að pen- ingarnir hefðu ekki verið seldir á frjálsum markaði, heldur hafi ákveðnir aðilar verið látnir sitja fyrir. Skáksambandið hefur borið j þetta til baka, og Ragnar Borg sagði blaöinu, að eftir því sem hann vissi bezt hefðu menn keypt i mesta lagi tvo gullpeninga, og Félag myntsafnara hafi fengið fimm gullpreninga og 30 silfur- og eirpeninga fyrir félagsmenn sína. Samt sem áður hefur komizt á kreik sú saga, að gullpeningarnir séu komnir upp i 70 þúsund krón- ! ur, en hvergi fengust staðfesting- i ar um veðgildi peninganna. RANN STJORNLAUS NIÐUR KAMBANA Hemlar oliubifreiðar, sem var á leið niður Kambana i gær hættu allt i einu að virka og rann bif- reiðin stjórnlaust á jeppabifreið, sem hafði verið á leið upp Kamba. Okumaður oliubilsins kastaðist út úr honum og slasaðist alvar- lega, en tveir menn, sem höfðu verið i jeppanum rétt náðu að forða sér áður en áreksturinn varð. Oliubillinn hafði runnið stjórn- laus þó nokkurn spöl og sáu mennirnir i jeppanum hvað verða vildi. Forðuðu þeir sér út úr jepp- anum og út fyrir veg — Þetta er skattur á okkur myntsafnara, sagöi einn úr þeirra hópi i viðtali við Alþýðublaðið i gær, þar sem við verðum eigin- lega að kaupa, en vitum ekki hvort seriurnar veröa nokkurn- timan verðmætar. Við bárum þá spurningu undir Ragnar Borg, stjórnamann i Félagi myntsafnara hvort þessi seinni minjapeningaútgáfa komi til með að hafa áhrif á verðgildi þeirrar fyrri. Hann sagði, að þeir hefðu álitið það i fyrstu, en við nánari athugun hafi komið i ljós, að hafi seinni útgáfan einhver áhrif, verði þau sára litil. Hitt sagði hann, að stjórn Mynt- safnarafélagsins hefði sárnað, hversu fyrri serian varillaogfljót- færnislega unnin, sem hann sagði stafa af þvi, að aðili sá, sem tók• að sér gerð peninganna, hefur ekki nægilega góð tæki. — En það er þó bót i máli, sagði Ragnar, að seinni serian getur ekki orðið verri. Ragnar benti á, að minjapen- ingar sem þessir, sem gefnir eru út af svo geysilega góðu tilefni, verði að hafa listrænt gildi og vera unnin af þekktum lista- manni. Þá sagði Ragnar, að stjórn Myntsafnarafélagsins hefði stungið upp á þvi við stjórn Skák- sambands fslands, að þeir ættu að Ný hljómsveit Ný hljómsveit hefur tekiö til við að sjá hólelgestum Loft- leiða fyrir danstónlist, en hljómsveit Karls Lilliendahls, sem leikið hefur i Vikingasal frá þvi hóteliö tók til starfa 1. mai 1966, hefur nýlega hætt. Það verður nú fimm manna sveit undir stjórn Jóns Páls Bjarnasonar, sem kemur i skarðið, en hann er nýkominn heim frá Sviþjóð. Þessi mynd er af nýju hljómsveitinni, og á henni eru, talið frá vinstri: Gunnar Ingólfsson, trommuleikari og söngvari, Jón Páll Bjarnason, gitar,. Kristbjörg Löwe söngvari, Árni Scheving, sem leikur á kontrabassa og saxafón, og Guðmundur Ingólfsson, sem mun leika á pianó og orgel. BJORGIN SKORIN OG DREGIN í BÚ Það var handagangur og flaut blóð á bryggjunni og i fjörunni i Miðvogi i Færeyjum i fyrradag. Á mánudaginn var 140 grinda stóð rekið þar að landi, og þegar grind er á leiðinni, þá vigbúast allir liðtækir. Ur nágrannabyggðinni, þorp- inu Vestmanna, sem er á næstu eyju komu menn i drápið, og að launum fengu þeir 15 grindur með sér. Páll Reynisson, sem tekið hefur myndir fyrir okkur i sum- ar, var staddur þarna, og hann tók myndir af þessum blóðuga atburði, grindadrápinu, sem er ævaforn aðferð Færeyinga til að draga björg i bú. Stóra myndin að ofan sýnir athafnasvæðið þegar grindin hafði öll verið drepin og kjötið var skorið á bryggjunni, en hér til vinstri er svo vigtarmaður- inn. Hans hlutverk er mikið, þvi veiðinni er allri skipt niður, að visu i nokkrum hlutföllum, en þó er séð til þess þegar grind veið- ist, að allir fái eitthvað, og þess ber lika að gæta, að allir leggja sitt af mörkum. Það er enginn aldursmunur, eins og sjá má á myndinni sem er á forsiðu i dag. Hann er ekki gamall, sá, sem þar er að búta i sundur. En hinn, sem á myndinni er hér til hægri, er að reiða burt á hjólinu sinu i strigapoka sinn skerf, hef- ur án efa tekið þátt i fleiri grindadrápum en hann getur rifjað upp i fljótu bragði. 2 Fimmtudagur 10. ágúst 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.