Alþýðublaðið - 10.08.1972, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 10.08.1972, Qupperneq 3
BORGARFULLTRÚARNIR í GRIMSBY: „VIÐ KOMIM Á HÉTTUM TÍMA” „Vift eru öðrum þræðinum komin hingað til þess að biðja ykkur um að eyðileggja ekki efnahagshafkomu fólksins við Humber”, sagði einn borgar- fulltrúanna frá Grimsby, sem eru hér álta talsins i vinar- bæjarheimsókn i boði Reykja- vikurborgar. i gær var haldinn blaða- mannafundur á vegum Reykja- vikurborgar með brezku borgarfulltrúunum, og kom þar glöggt fram, að útfærsla fisk- veiðilandhelginnar er ofarlega i huga ráðamanna i Grimsby. „Við vitum vel, hverjir ykkar erfiðleikar eru”, sögðu borgar- fulltrúarnir”, en við viljum lika gera ykkur grein fyrir þvi, livaða álirif útfærslan hefur fyr- ir fólkið i Grimsby og reyndar höfum við orðiö þess greinilega vör, að islendingar sýna þeim atriðum skilning. Við eigum við verulegt at- vinnuleysi að striða gg ákveðin efnahagsleg vandamál. Um 2.500 manns eru skráðir at- vinnulausir i Grimsby og við liöfum áhyggjur af afkomu og velferð fólksins, ef togarar okk- ar geta ckki lengur stundað fiskveiðar i sama mæli og áöur á islandsmiöum”, sögðu gest- irnir frá Grimsby á blaða- mannafundinum. „Við erum ekki komin hingað til neinna samningaviðræðna við islendinga um landhelgis- málið enda höfum við ekkert umboð til þess og ekkert sam- band er milli borgarstjórnar Grimsby og ríkisstjórnar Bret- lands í sambandi við þetta mál”, sagði einn borgarfulltrú- anna á blaðamannafundinum, og hélt áfram: „Ég tel, að við höfum komiö nákvæmlega á réttum tima i þessa vina- heimsókn til Reykjavíkur, þó að örlitiö hafi verið um hana deilt i borgarstjórninni. Af 56 borgar- fulltrúum voru 4 andvigir þvi, að við tækjumst þessa ánægju- lcgu ferð á hendur, scm hefur gefið okkur kost á þvi að segja, livað okkur býr i brjósti og kannski að leiðrétta ýmis kon- ar miss k ilning”. Upplýst var á blaðamanna- fundinum, aö um 40% af þeim fiski, scm berst á landi i Grimsby er af islandsmiðum, en af þessu niagni veiði islend- ingar 10%. Ennfremur var upp- lýst, að um það bil 21.500 manns bafa atvinnu i Grimsby i sam- bandi við sjávarútveg, þar af eru um 5.000 sjómenn, um 2.000 aöilar sem annast dreifingu á fiski, og um 13.500 manns, sem starfa að fiskvinnslu i einhverri mynd. „Þetta er stór hluti af þvi vinnuafli, sem til er að drcifa i Grimsby en þar eru á vinnu- markaði um 75.000 manns, sem getur átt á hættu að missa at- vinnu sina, og pess v um við sanngjarnt, að einhver inálamiðlun finnist i fiskveiði- deilunni", sagði annar úr hópi hrezku gestanna, en hann upp- lýsti cnnfremur, að um 50% af logaraflotanum frá Grimsby, scm veiðar stunda við island séu 20 ára gamlir eða jafnvel eldri og se reKstrarKosinaour a útgerð togaranna afar mikill. „Við þurfum 5—10 ára aðlög- unartima til að átta okkur á breyttum aðstæðum, en að þeim tima liðnum ættu allir árekstrar vegna fiskveiða á islandsmið- um að vera úr sögunni”, bætli lianii við. — ALDREI MEIRA HEY A fSlANDI „Aö öllu forfallalausu verða til meiri hey i landinu i haust, en nokkurntima áður frá þvi að land byggðist”, sagði Halldór Pálsson húnaðarmálastjóri i samtali við Alþýðublaðið i gær. En einn galli er á gjöf Njarðar að sögn Halldórs, heyin eru miklu lélegri en i fyrra, svo magnið seg- ir ekki alla söguna. Stafar það af ofsprettu á stórum hluta landsins, svo og aö viða hraktist hey á tún- um lengi sumars. i óþurrkunuin scm gengu. yfir landið fyrri hlut- ann i sumar. Halldo'r sagði að þurrkurinn siðustu dagana hefði gjörbrcytt öllum heyskaparhorfum á suður- landi. og heyskapurinn hefði einnig verið vel á veg koininn fyr- ir norðan og austan. Mikið er ennþá úti af heyum, og nokkuð óþurrkað, en meiri hlut- inn er þegar kominn i hlöður. Sagði Halldór að ef þessi vika héldist þurr einnig, myndu bænd- urnámcstu inn af þvi sem þeir ciga enn flatt á túnum. Halldór sagði ennfremur, að hændur myndu cflaust setja fleiri lömb á fóður i haust en siðasta haust, og var þó sett mun meira á fóður siöasta haust en haustin þar á undan. Það er þvi ljóst, að varla •verður kjötskortur næstu árin. VÍSI OG TÍMANUM VEITTAR ÁKÚRUR Bæjarfógetaembættið i Hafnar- firði hefur i hyggju að senda blaöastjórnum Visis og Timans og siðanefnd Blaðamannafélags íslands bréf, þar sem sctt verður harölega út á skrif þessara blaða um ky nferðisaf brot a iná I, sem kom upp i Hafnarfirði i siðast- iiönum mánuði. Málið snýst um tvo menn, scm höfðu haft i frammi ónáttúrulega tilhuröi við sjö ára gamla telpu. Hún er reyndar dóttir konu, sem er gift öðrum manninum. Inn i þctta fléttaðist svo kynlifs- miölunarstarfsemi þeirra hjóna og sitthvað fleira. i fréttum dagblaðanna tvcggja var skýrt nákvæmlega frá þessu og þó öllu nánar i Visi. Að áliti bæjarfógctaembættis- ins i llafnarfiröi var látið lita svo út i báðum blöðunum, að upplýs- ingar þessar væru frá embættinu komnar. sem er alrangt. Þvcrt á móti hafði verið ákveð- ið að þegja algerlega yfir vissum atriðum. þar sem þau kæmu rannsókn málsins ckki beinlinis við og gerðu ekki annað cn að eyðilcggja lif konunnar meira en orðið var. Nýjast i málinu er það, að beöiö er eftir, að unnt verði að láta mcnnina tvo sæta geðrannsókn, en eins og alltaf er það vissum annmörkum háð vegna annrikis geðlækna. Ityndur I iodagaI Grænum Ford Cortina bíl með svörtum toppi árgerð 11164, var stoliö frá bilasölunnj^Höfðatúni 10 30. júli siðastliðinn. Ekki var tilkynnt um stuldinn Ivrr eii sfðastliðinn fimmtudag, en þrátt fyrir eftirgrennslanir lögreglunnar hefur ckkert til bifreiðarinnar spurzt. Bflnúmcrið cr R-24055 og biður rannsóknarlögreglan f Reykjavik þá, sem kunna að hafa orðiö bils- ins varir að gefa sig fram. 200 MILUON KRONA AKVORDUN TEKIN í ALGERU HEIMILDARLEYSI „Undirskriftirnar eru stundum ekki meira en svo þornaðar” kvaðSigurður Z forðum daga um stjórnarathafnir Jónasar frá Hriflu. En ráöherra sá, sem fer með orkumálin i rikisstjórn Ólafs Jóhannessonar er langtum óskammfeilnari en Jónas, þvi liann skrifar ekki einu sinni undir lagaheimildirnar fyrir tilskipun- um siiium fyrr en eftirá! Eins og kunnugt er af blaöa- fréttum, þá tók rikisstjórnin i lok júlimánaðar ákvörðun um bygg- ingu nýrrar vatnsaflsstöðvar viö Mjólká i Arnarfirði, — Mjólkár- virkjun 2. Akvörðunin var m.a. tilkynnt i bréfi iðnaðarráðu- neytisins dags. 25. júli og um svipað leyti var tilkynning um ákvöröunina send blöðum og fréttastofum. Var þá sagt, að framkvæmdir við verk þetta, sein kosta mun citthvað nálægt 200 m.kr., væru liafnar, — en raunin inun vera sú, að vinna hafi hafizt við verkið munCTyrr i sumar, þótt sú vinna væri látin heita annað, en undirbúningsvinna að nýrri virkjun. Réttri viku eftir að umrædd ákvörðun um 200 millj. kr. virkjunarframkvæmd hafði verið tilkynnt mun iðnaðarráðuneytinu hafa borizt fyrirspurn um það vestan af fjörðum á hvaða laga- heimild sú ákvörðun væri byggð. Þegar að var gáð kom i Ijós, AD ENGIN SLÍK LAGAHEIMILD KYRIRFANNST. IÐNAÐAR- R AÐ H E R R A , M A G N Ú S KJARTANSSON, HAFÐI MED TILSKIPUN LATIÐ HEFJA FRAMKVÆMDIR VIÐ 200 MILLJÓN KRÓNA VIRKJUN AN ÞESS AD IIANN HEFÐI NOKKRA HEIMILD i LÖGUM AD STYDJAST! Var þá rokið upp til handa og fóta og röskri viku eftir, að um- rædd virkjunarákvörðun hafði verið tilkvnnt opinberlega af iðnaðarráðherra nánar til tekið þann 3. ágúst, gaf forseti islands út bráðabirgðalög þar sem v i r k j u n a r f r a m k v æ m d i n v a r heimiluö, en i aðfararorðum þeirra laga segir forseti islands m.a„ að bráðabirgðalögin séu sett þar scin iðnaðarmálaráð- herra hafi tjáð honum, að laga- heimildir fyrir virkjuninni skorti. Verður ekki betur séð, en iðna- aðarráðherra liafi ekki tjáð for- seta islands þetta, fyrr en eftir að ráðherrann hafði tilkynnt ákvörð- unina um virkjunina og alla vega er það Ijóst, að þegar sú ákvörðun var tekin og tilkvnnt, þá var engin lagaheimild til fyrir henni! Þá cr rétt að bæta þvi við, að svo óvenjulega vill til, að blöðum hefur aldrei verið skýrt frá um- ræddri hráöahirgðalagasetningu. Um hana hcfur ekkert frétzt fyrr en nú, að bráðabirgðalögin eru birt i stjórnartiöindum. Eitthvað hefur ekki mátt fara hátt i sain- bandi við, hvernig að þessu var staðiö! Þá hefur Alþýöublaöið þaö cinnig cftir öruggum heimildum, að fleiri hafi litið vitað um þetta mál, en hlöðin og almenningur. A.m.k. einn ráðherranna, sem þó mun hafa miklum hagsmunum að gæta i Vcstfjarðakjördæmi, mun ekki hafa haft hugmynd um ákvöröunina um virkjunina, sem rikisstjórnin átti að hafa tekið á fundi sinum þann 24. júli s.L, fyrr en hann las um málið i blöðum og einn af áhrifamestu þingmönn- um stjórnarliösins i Vestfjaröa- kjördæmi mun ekki hafa haft hugmynd um bráðabirgðalaga- sctninguna, sem kom viku siðar, frekar en blöðin og almenningur. Þannig er orkumálaráðherra, Magnús Kjartansson, farinn að stjórna mcð tilskipunum og lætur sér rétt á sama standa hvort lagalegar heimildir fyrir ákvörð- ununum koma á undan þeim cða eftir. Væri Sigurður Z enn á lifi og orti i Spegilinn inyndi hann sjálf- sagt kveða um þennan „Jónas frá Ilriflu" okkar tima: Undirskrift- irnar eru stundum / ekki meira en svo tiðkaðar! EKKI UM AÐ GEFA TILSKIPUNUM SINUM STOD í LÖGUM FYRR EN EFTIRA Fimmtudagur 10. ágúst 1972 3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.