Alþýðublaðið - 10.08.1972, Page 5

Alþýðublaðið - 10.08.1972, Page 5
Alþýöublaösútgáfan h.f. Ritstjóri Sighvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórnar Hverfisgötu 8-10. — Simi 86666. Blaðaprent h.f. FURMILEC UMMÆU RAÐUERRA í viðtali við dagblaðið ,,Tímann" s.l. sunnudag lætur fjármálaráðherra, Halldór E. Sigurðsson, m.a. hafa það eftir sér, að hann sé mjög ánægður yfir því, að það eina, sem gagnrýnt sé í sambandi við skattalagabreytingar rikisstjórnarinnar, sé sköttunin á gamla fólkinu. Alþýðublaðið fær í fyrsta lagi ekki séð, hvernig ráð- herrann getur nefnt ánægju í sambandi við skattamál gamla fólksins. Allt öðru visi hugsanir en ánægjulegar vakna í huga a.m.k. flestra manna annara í sambandi við það hneykslimál. í öðru lagi lýsa þessi orð fjármála- ráðherrans, séu þau rétt eftir honum höfð, annað hvort furðulegum þekkingarskorti eða dæmafárri óskammfeilni. Heldur hann virkilega, að ekkert annað hafi verið gagnrýnt í sambandi við skattaráðstafanir ríkis- stjórnarinnar, en hneykslið í gjald- málum gamla fólksins? Hefur hæst- virtur f jármálaráðherra þá hvorki gefið sér tíma til þess að lesa blöð né hlýða á umræður og tal manna undanfarna sjö mánuði? Eða hefur hann e.t.v. svo lítinn áhuga fyrir skattamálunum, að hann nenni ekki að fylgjast rheð því, sem um þau mál er sagt? Auðvitað hefur gagnrýnin á ráð- stafanir ríkisstjórnarinnar í skatta- málum beinzt að fjölmörgu öðru, en framkomunni við gamla fólkið, — þótt hún sé efalaust mesta hneykslið í þessum vanhugsuðu ráðstöfunum öll- um saman. Rekur Halldór E. Sigurösson t.d. ekki minni til þess, að minnst hafi verið á vísitöluránsráðagerðir ríkisstjórnar- innar í sambandi við skattalaga- breytingarnar? Man hann ekki til þess, aö mótmælt hafi verið þeirri stórauknu skattbyrði, sem breytingarnar fela i sérog koma m.a. fram í því, svo dæmi sé nefnt úr Reykjavík, að á sama tíma og tekjur borgarbúa aukast um 25% þá hækka skattarnir, sem á þessar tekjur eru lagðar — þ.e.a.s. útsvar og tekju- skattur samanlegt — um 40 % og fasteignagjöld um meira en 85%? Er gjörsamlega horfið úr huga hans, að hann á enn eftir að svara fyrirspurn, sem dagblaðið ,,Þjóðviljinn" beindi til hans á dögunum og fjallaði um, hvernig það gæti átt sér stað, að eftir skattaráðstafanir rikisstjórnarinnar slyppu stórlaxar tekjuskattsfrjálsir á sama tíma og gjöldin væru margfölduð á gömlu fólki? Þetta eru aðeins nokkur dæmi af mörgum um það, sem harðlega hefur verið gagnrýnt í sambandi við skatta- ráðstafanir ríkisstjórnarinnar. Fjöl- mörg fleiri slík dæmi er hægt að rifja upp fyrir ráðherranum, ef hann vill. En fjármálaraðherrann annað. hvort vill ekki vita af þessari gagnrýni, eðq hefur ekki haft áhuga á að kynna sér hana. Sú afstaða hans gefur ekki góðar vonir um þá endurskoðun á hin- um nýsettu skattalögum ríkisstjórnar- innar sem stjórnarsinnar nota nú sem eilífa afsökun gagnvart þeim, sem um sárt eiga að binda, og biðja fólk að treysta á. Stjórnarandstaðan og almennings- álitið i landinu hafa með sameiginlegu átaki neytt ríkisstjórnina til þess að lofa gamla fólkinu málsbótum í sam- bandi við skattana. Fjármálaráðherra er auðsjáanlega staðráðinn í því, að láta ekki stjórnarandstöðuna og al- menningsálitið neyða sig til þess að lofa leiðréttingu á fleiru. öðru vísi er ekki hægt að skilja ummæli hans í við- talinu við ,,Tímann" og það þekkingarleysi á gagnrýninni á skatta- lögin, sem hann gerir sig þar beran að. HVEB VMII ÚR- RÆDIH OKKAR? Þvi er oft haldið fram um stjórnarandstöðuflokka, að þeir láti sér nægja að gagnrýna, en bendi ekki á úrræði. Þetta átti sannarlega við um núverandi stjórnarflokka, meðan þeir voru i stjórnarandstöðu. Þeir gagn- rýndu bókstaflega alit, sem fyrr- verandi rikisstjórn gerði, en bentu aldrei á nokkur úrræði i staðinn. Þeir hafa á fyrsta valda- ári sinu orðið að gera ýmislegt, sem þeir gagnrýiulu, meðan þeir voru i stjórnarandstöðu. Ef þeir befðu beiðarleika til þess að játa, að i ýmsum tilfellum hafi þeir orðið að gera það, sem þeir höfðu áður verið á móti, væri það sök sér. En ekki ber á sliku. For- heröingin er býsna mikil. Tillögur Alþýðuflokksins Þegar skattafrumvörpin voru til umræðu á Alþingi á siðast liðn- um vetri, taldi Alþýðuflokkurinn það skyldu sina, gagnstætt þvi, sem stjórnarandstaðan hafði áður gert, að benda á þær leiðir, sem fara skyldi. Alþýðu- flokkurinn var sammála þvf, að nauðsynlegt væri að afnema nef- skattana, þ.e. almanna- tryggingagjaldið og sjúkrasam- lagsgjaldið. Hafði ég raunar bent á nauðsyn þessa i greinum hér i blaðinu fyrir nær hálfu öðru ári. Þingmenn Alþýðuflokksins gcrðu sér ljóst, að nauðsyúlegt væri að afla rikissjóði tekna i stað þeirra, sem hann missti við afnám nef- skatlanna. Við lögðum þess vegna til, að lagður yrði á sér- stakur skattur, sem rynni til al- mannatryggingakerfisins i stað nefskattanna, og yrði hann lagður á brúttótekjuur. Ilefði liann þurft að nema um 4%. Að öðru leyti vildum við láta skattalögin vera óbreytt, þangað til vandlcgri endurskoðun skattamálanna allra yrði lokið, en við töldum endurskoðun þeirra á siðasta þingi hljóta að verða flausturs- lega, og yrði hún þvi að biða i eitt ár. Þeir óábyrgu fengu að ráða Mér þætti ekki ósennilegt, að ýmsir stuðningsm enn rikis- stjórnarinnar óskuðu þess nú, að eftir þessum lillögum hefði verið l'arið. Þótt ekki færi hátt, varð ég þess var á siðasta þingi, að ýmsir hyggnir og gætnir stuðningsmenn rikisstjórnarinnar vildu fara að, eins og við lögðum til, en hinir óábyrgari fengu að ráða, þvi miöur. Nú er reynslan fengin. Laun- þegar greiða mun hærri hluta af tekjum sfnum cn þeir gerðu i l'yrra. Fólk sem ekkerl á nema ihúðina, sem það hefur komið sér upp og býr i, grciðir nú skatta eins og stóreignafólk. ()g gamalt fólk, sem engar tekjur hefur Framhald á bls. 4 UM SKATTAMÁLIN 4. GREIN „SUNNU", svo hér er um að ræða eina allra ódýrustu utanlandsferð ársins! Allar upplýsingar um ferðina og ferðakostnað má fá hjá ferða- skrifstofunni „SUNNU", símar 16400, 12070 og 26555, eða á skrifstofu Alþýðuflokksins, símar 15020 og 16724. Att þú eftiraðtaka sumarleyfið að einhverju eða öllu leyti? Hvers vegna þá ekki að geyma tvær vikur þar til í haust og verða sér úti um sumarauka í Kaupmannahöfn í ferð á vegum Alþýðuflokksins? Það tækifæri stendur öllu flokksbundnu Alþýðuflokksfólki um land allt opið. Til Kaupmannahafnar 7. septem- ber í haust í hálfs mánaðar ferð á vegum Alþýðuflokksins! ÞVI EKKI ÞAÐ! Of dýrt? Ert þú nú svo viss um það? Alþýðuflokksfélag Reykja- víkur hefur náð mjög hagstæðum samningum við ferðaskrifstofuna II jj ||| Wm "wá Wl ss |P Fimmtudagur 10. ágúst 1972 5

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.