Alþýðublaðið - 10.08.1972, Síða 12

Alþýðublaðið - 10.08.1972, Síða 12
alþýðu ffl Alþýöubankinn hf ykkar hagur/okkar irietnaður KÓPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga milli kl. 1 og 3 ÞEIR GERÐU BÁÐIR • • MISTOK EN SPASSKI ER AD BRAGGAST ,,Þeir gerðu. báðir mistök nokkrum sinnum”, sagði Golombek, blaðamaður og skáksérfræðingur i samtali við blaðamann Alþýðublaðsins i gærkvöldi, um 12. einvigisskák Fischers og Spasskis. Hann sagðist reyndar snemma hafa búizt við jafntefli i skákinni, en sér virtist, sem Fischer hefði ekki áttað sig fyllilega á sumum leikjum Spasskis. ,,Jú, þvi er ekki að neita, að Spasski virðist vera að öðlast aukið sjálfstraust”, sagði Golombek. Hann var ekkert sérlega hrif- inn af þessari tólftu einvigis- skák. ,,Það hafa verið tefldar nokkrar fallegar skákir og þá sérstaklega sú sjötta og ell- efta”, bætti hann við. Skákin endaði sem sagt með jafntefli eftir að kapparnir höfðu leikið 55. leiki og enn skilja tveir vinningar þá að. Fischer hefur hlotiö sjö vinn- inga en Spasski fimm, en litum nú aðeins á skýringar Jóns Pálssonar á skákinni i gær. ISiöleikur Fischers reyndist vera... 41. Dcfi Dc2 Svartur undirbýr að staðsetja Drotlningu sina og hrók á ann- ari reitaröð, og styrkja þar með stiiðu sina. 42. Be5 42. Da8 + 44. Bxffi Hd2 Kh7 llvitur afsalar sér Biskupapar- inu, og vonast til að geta notfært scr þá vcikingu, cr skapast hjá svörtum við þessi uppskipti. 44. ... 45. Df3 4fi. g4 gxffi f5 De4 Gcrir sóknarvonir Fischers að cngu. Kf 45. I)g;i þá BdK og 45. I)xc4 fxc4 slyrkist staða svarts. 47. Kg2 48. Hcl l.oksins kcmur hrókurinn til lciks en er litils megnugur i þcssari stöðu. Aftur á móti er „kollcga” hans á d2 stórveldi! 48. ... Ba3 49. Hal Bb4 50. IIcl Be7 llótar Bbl. 51. gxf5+ exf5 52. Hel ... Spassky á nú kost á laglcgri fléllu, en við þa ð cinfaldast tafl- ið og jafntefli blasir við, vcgna liinna ósainlitu Biskupa. 52. ... Hxf2 + 53. Kxí3 Bh4 + 54. Ke2 Dxf3 + 55. Kxf3 Bxel Samið jafntcfli. Staðan cr nú þannig að Fisclicr licfur 7 vinninga en Spassky 5. 13. skákin verður tefld i dag kl. 17 og hcfur Spassky þá hvitt. Liklegast hefur Fischer ekki gefið sér tima til að sinna þörfum maga sins sökum anna við að rannsaka biðstöð- una i 12. skákinni. Hann sendi nefnilega fylgdarmenn sina á undan sér i Höllina i gær á Kangc-Rovernum mcö girni- legan matarbakka. Cramer hafði það hlutverk þarna aðsitja i aftursætinu og styðja við bakkann, scm var i skottinu. En þcgar átti að opna að aftan og taka matinn út kom babb i bátinn. Aftur- liurðin opnaðist ckki, og það var alveg sama þótt þyngsti maöurinn i lögregluliði borgarinnar væri fenginn til að rcyna við hurðina. Á mcðan liann var að toga og ýta baks- aði C'ramer við það að ná bakkanum yfir aftursætið og tauta: „We’ll take it that way". Síðan afhenti liann lögreglu- þjóninum bakkann, sem sigldi mcð liann matarlcgur á svip inn i Ilöllina, eins og sést á myndinni. 130 MILUDNUM MiNNA NU EN í FYRRA FYRIR SÍLDINA islcn/ku sildvciðiskipin i Norð- ursjónum hafa það, sem af er vcrliðar.scltafla sinn i Danmörku og Þýzkalandi fyrir 1X1,2 milljón- ir króna. og er það 120 milljón krónum minna en i fyrra, sam- kvæmt upplýsingum LiC. Ásama tiina hafa sildvciðiskip- in veitt rúmar 15 þúsund lestir af sild, en i fyrra höföu þau vcitt rúmlega21 þús. lcstir. i sumar hafa 40 skip stundaö veiðarnar, cn voru rúmlega 50 talsins i fyrra. Meðalverðið á vertiðinni i ár er 12,05 krónur fyrir hvert kiló sild- ar. en var i fyrra 14,72 krónur. Munar bér 2,07 krónum á hvert sildarkiló. í ágústbyrjun i fyrra var heild- arsöluverðmæti sildarafla is- lenzku skipanna 211 milljónir króna, og söluverðmæti sildar- innar alla vertiðina i fyrra nam rétt liðlega 400 inilijónuin króna. Eins og fyrr segir, cr heildar- söluverðmætið nú komið i 181 milljón króna. og er ljóst að ver- tiðin i ár verður iniklu mun lakari en vertiðin i fyrra. Að visu eru vciðiskipin nú færri, cn samt veröur vertiðin að teljast slök. Margt hefur stuðlað að lægra markaðsverði á sild i ár. Helzta ástæðan ersú. að sildin hefur ver- ið blönduð i sumar. i lienni hcfur vcrið mikið af smásild og milli- sild. Þá hefur mikill hiti verið rikjandi i Danmörku. og hann licfur dregið úr gcymslu sildar- innar. auk þess sem áta i sildinni dró úr geymsluþoli hennar i byrj- un vcrtiðar. i þriðja lagi voru sumarleyfi i dönskum sildarverksmiðjum i júli, og eftirspurnin var þvi minni en ella hefði orðið. HEFUR Þlí PANTAÐ 5 TOGARA? en gleymt að láta ráðu- neytið vita I norska blaöinu Noregs Hand- els og Sjöfarstidende segir nýlega aö tslendingar hafi pantað fimm nýja skuttogara hjá dönsku skipasmiöastöðinni örskov Stal- skipsværft i Fredrikshavn i Dan- mörku. „Þetta hlýturað vera einhver vitleysa”, sagði Gylfi Þórðarson deildarstjóri hjá sjávarútvegs- málaráðuneytinu, þegar blaðið bar þessa frétt norska blaðsins undir hann i gær. ,,Ég hef ekki heyrt um neina islenzka aðila, sem eiga skuttogara i pöntun i Danmörku, enda er vist búið að skrúfa fyrir öll frekari skuttog- arakaup i bili”. t frétt norska blaðsins, sem höfð er eftir danska blaðinu Ber- linske Tidende, segir, að íslend- ingar ætli sér að auka islenzka fiskveiðiflotann vegna útfærsl- unnar i 50 milur. Þá segir enn- fremur i fréttinni, að á næstu 6—7 árum hyggist tslendingar smiða innanlands 80 nýja skuttogara, sem er að sjálfsögðu alveg út i hött. Talan hefur eitthvað brenglast i meðförum, þvi aðeins er búið að ákveða smiði þriggja litilla skut- togara hjá Stálvik á næstu árum, og skuttogararnir sem bætast við á næstu árum i islenzka flotann, gera ekki meira en að losa töluna 40. Þegar er ákveðin smiði á 6 litl- um togurum i Noregi, 5 litlum og 6 stórum á Spáni, 7 stórum i Pól- landi, 9 litlum i Japan og svo 3 litlum i Stálvik. Þetta gera 36 skip. Tveir notaðir togarar hafa þeg- ar verið keyptir frá Frakklandi, Sólbakur og Karlsefni, og likur eru á þvi að tveir slikir komi til viðbótar, og fara þeir væntanlega til Bolungarvikur og Bildudals. Þá hafa einstaka litlir togarar verið keyptir á undanförnum ár- um, svo togarafjöldinn i allt lósar töluna 40. METDAGUR HIA SLÖKKVIUDINU Eftir klukkan átta i gærkvöldi var slökkviliðið i Reykjavik kvatt út fjórum sinnum, en fyrr um daginn hafði slökkviliðið hlýtt tveimur útköllum i viðbót, báðum smávægilegum. Um hálf niu leytið var tilkynnt um eld I risibúð að Drápuhlið 38. Þar hafði kviknað i tveimur dýnum og brunnu þær auk þess, sem teppi eyðilagðist af bleytu. Aður en slökkviliðið var kvatt á vettvang hafði logað i dýnunum ieina klukkstund að þvi er talið var. Skömmu siðar var svo til- kynnt um mikinn og útbreiddan eld i öskuhaugunum i Gufunesi. Tók langan tima að ráða niður- lögum hans. Þá var tilkynnt um bruna á starfsleikvelli i KópavogL þar sem kveikt hafði verið i, og sumarbústað við Baldurshaga. Hvort tveggja var smávægilegt.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.