Alþýðublaðið - 11.08.1972, Side 5
alþydul Alþýöublaösútgáfan h.f. Ritstjóri Sig-
■rrrJ hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri
Bjarni Sigtryggsson. Aösetur ritstjórn-
ar Hverfisgötu 8-10. — Simi 86666.
Blaðaprent h.f.
6
FYRSTI SIGURINN
Þaö kostar langa og stranga baráttu að hafa áhrif til
góðs á rikisstjórnina, en það er hægt! Það hefur konnið i
Ijós í sambandi við skattamál gamla fólksins. Eftir sjö
mánaða langa, harða baráttu tókst stjórnarand-
stöðunni að hrekja ríkisstjórnina frá fyrirætlunum sín-
um og ‘á hana til þess að lofa að bæta fyrir brot sín
gagnvart öidruðu fólki!
í upphafi þessara átaka voru stjórnarliðar mjög kok-
hraustirog þóttust enga meinbugi sjá á þeim breyting-
um á skattalögunum, sem þeir voru svo staðráðnir i að
keyra i gegn á Alþingi undirbúningslítið. Málgagn
fjármálaráðherra, dagblaðið „Tíminn", tilkynnti þá í
fyrirsögn yfir þvera forsíðu, að skattar myndu lækka á
þorra gjaldenda. Á Alþingi skelltu stjórnarþingmenn
skollaeyrunum viðöllum hinum rökstuddu aðvörunum
þingmanna stjórnarandstöðunnar og því betur, sem
sýntvar framá þá gífurlega auknu skattabyrði, sem
skattalagabreytingar ríkisstjórnarinnar fólu i sér og
þau mistök og beinu rangindi, sem þar var verið að
fremja, þeim mun kærulausari og kjaftagleiðari urðu
stjórnarsinnarnir i umræðum um málið. Það var auð-
séð, að þeir voru staðráðnir i því að láta enga gagnrýni
á sig bíta.
Þannig stóð baráttan milli stjórnar og stjórnarand-
stöðu fyrstu mánuðina. Annars vegar var þung gagn-
rýni stjórnarandstæðinga á skattalagabreytingarnar,
þar sem nefnd voru f jölmörg skýr dæmi um þau mis-
tök, sem væri verið að fremja. Hins vegar var kæru-
leysislegur sjáIfbyrgingsskapur stjórnarsinna, þar sem
ekki vareinu sinni hirt um að hlustaá viðvörunarorð,
en öllum aðvörunum svarað með fullyrðingum og
skætingi.
Þegar líða tók á vorið fóru hins vegar að koma í Ijós
ýmis ummerki þess, að sumír stjórnarsinnar væru
farnir að verða hikandi í afstöðu sinni. Fullyrðingar
þeirra um afleiðingar skattalagabreytinganna voru
ekki studdar alveg sama sannfæringakraftinum og
áður og „Timinn" hætti að minnast á „meginþorra
gjaldenda". Sérstaklega var þó áberandi sá kvíði, sem
farinn var að gera vart við sig meðal Alþýðubanda
lagsmanna og fékk útrás í skrifum Þjóðviljans. Af
þeim mátti merkja að kommúnistar væru farnir að
finna einhverja vonda lykt i nösum af þvi, sem þá var
að gerjast hjá skattanefndunum víðs vegar um land.
Kvíðinn var farinn að naga þá. Stjórnarsinnar voru
farnir að láta undan síga.
Næstu þáttaskilin urðu við útkomu skattskrárinnar.
Þá sást svart á hvítu hvað ríkisstjórnin hafði verið að
gera og allur almenningur reis sár og reiður upp til
mótmæla. Níðþynging skatta á venjulegu launafólki
var nú orðin ómótmælanleg staðreynd og stórkostleg
rangindi í lagasetningunni, eins og t.d. varðandi
skattaálögurnar á gamla fólkið, urðu deginum Ijósari.
Og nú flýðu stjórnarsinnar, — hver sem betur gat. öll
orka stjórnarflokkanna fór nú í það, að hver þeirra
reyndi að bjarga sínu skinni. Kommúnistar og frjáls-
lyndir reyndu það með því að taka upp hatrammar
árásir á fjármálaráðherrann og Framsóknarflokkinn
og kenna þeim um mistökin í skattamálunum, og
Tíminn reyndi að verjast með því að birta leiðara, þar
sem sagt var, að allir stjórnarflokkarnir væru jafn sek-
ir. Síðasti þátturinn i þessari ófögru baráttu „sam-
herjanna" er sú krafa, sem sett er fram í nýútkomnu
tbl. af Nýju landi að fjármálaráðráðherra verði tafar-
laust látinn segja af sér!
A meðan þessar yæringar hafa staðið yfir milli
stjórnarf lokkanna á flóttanum hafa Stjórnarand-
stæðingar haldiö áfram seinni málefnabaráttu og
barizt fyrir því, að hin ranglátu lög verði leíðrett. Bæði
Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn settu fram
kröfur um, að skattamál gamla fólksins yrðu látin
hafa þar algeran forgang og yrðu tafarlaust tekin til
úrbóta. Eftir máttvana viðnám í nokkra daga sá fjár-
málaráðherra þann kost vænstan, að fallast á þá kröfu.
Það hefur þannig tekið sjö mánaða baráttu að fá
ríkisstjórnina til þess að sjá að sér og lofa að lagfæra
litinn hluta af þeim, mistökum, sem hún hefur gert sig
seka um. I baráttunni um sköttun gamla fólksins sigr-
aði stjórnarandstaðan. Þar naut hún eins og á fleiri
sviðum einhuga stuðnings almennings í landinu og
saman munu þessir aðilar vinna enn fleiri og stærri
sigra á stjórninni í framtíðinni til hags fyrir landið og
heilla fyrir þegnana.
ALAGIÐ Á ÚTSVÖR REYKVIK-
INGA OG NIÐURSKURÐURINN fl
OPINBERUM FRAMKVÆMDUM
Eins og fram hefur komið i
fréttum ákvað Reykjavikurborg
að leggja 11% álag á útsvör Reyk-
vikinga og fékk til þess leyfi rikis-
stjórnarinnar. Einnig ákvað
Reykjavikurborg að skera nokk-
uð niður verklegar framkvæmdir
miðað við það, sem ákveðið hafði
verið i fjárhagsáætlun yfirstand-
andi árs. Á siðasta fundi borgar-
stjórnar Reykjavikur urðu all-
miklar umræður um þessar ráð-
stafanir meirihluta borgar-
stjórnar Reykjavikur, Sjálf-
stæðisflokksins. Voru þá til um-
ræðu tvö bréf borgarstjóra, ann-
ars vegar bréf borgarstjóra, þar
sem hann tilkynnir(!)að útsvör á
Reykvikinga verði innheimt með
11% álagi, en hins vegar bréf
borgarstjóra, þar sem hann til-
kynnir (!)að framkvæmdir verði
skornar niður um 122 millj. miðað
við það, sem ákveðið hafði verið i
fjárhagsáætlun.
Loðin svör
Þegar fjárhagsáætlun Reykja-
vikurborgar fyrir yfirstandandi
ár var til meðferðar i borgarráði i
april s.l., eftir að nýju skattalög
rikisstjórnarinnar höfðu verið
samþykkt, inntum við fulltrúar
minnihlutaflokkanna meirihlut-
ann eftir þvi, hvort ætlunin væri
að innheimta útsvör með 11%
álagi. Meirihlutinn svaraði þvi
einu til, að ekki væri enn ljóst,
hvort nýta þyrfti þessa álags-
heimild. Það myndi ekki koma i
ljós fyrr en lokið væri allri vinnu i
skýrsluvélum. Þrátt fyrir þessu
loðnu svör meirihlutans var ljóst
við afgreiðslu borgarráðs og
borgarstjórnar á fjárhagsáætlun-
inni, að ætlun Sjálfstæðisflokksins
var, að leggja 11% álag á útsvör
borgarbúa. Kom þetta glögglega
fram við afgreiðslu borgarráðs
á fjárhagsáætluninni, þar
eð i meðförum borgarráðs
hækkaði endurskoðuð fjárhags-
áætlun um rúmlega 10%, eða sem
svaraði álaginu á útsvörin. Meiri-
hlutinn sagði þá þegar, að hin
nýju skattalög rikisstjórnarinnar
þrengdu mjög fjáröflunarmögu-
leika Reykjavikurborgar. Við
slikar aðstæður hefði mátt ætla,
að fram kæmu tillögur fra meiri
hlutanum um niðurskurð fram-
kvæmda. En svo varð ekki. Þvert
á móti lagði meirihlutinn til i
april s.l., að framlög til fram-
kvæmda yrðu stóraukin!
Kynleg ráðstöfun
Við gerð fjárhagsáætlunar i
desember 1971 var ráðgert að
verja til framkvæmda 503 millj.
kr. eða 22% af tekjum borgar-
sjóðs. 1 endanlegri fjárhags-
áætlun sem afgreidd var i april
s.l., var hins vegar ráðgert að
verja til framkvæmda 588 millj.
kr. eða um 85 millj. kr. hærri upp-
hæð en upphaflega var ráðgert að
ráðstafa og varð framkvæmdaféð
þá rösklega 27% af heildartekjun-
um eöa meira en nokkru sinni
fyrr. Þótti mörgum þetta kynleg
ráðstöfun á sama tima og þrengt
væri að fjárhag borgarsjóðs. En
talsmenn meirihlutans sögðu, að
ekki væri unnt að skera niður
ninar framkvæmdir. Við fulltrúar
minnihlutaflokkanna bentum
hins vegar á, að undirbúningur
allra framkvæmda hefði dregizt
svo mjög vegna þess, hversu fjár-
hagsáætlunin væri seint afgreidd,
að ek-ki væri unnt að framkvæma
á árinu fyrir allt það fram-
kvæmdafé, sem ráðgert væri að
verja til framkvæmda. Það er nú
komið i ljós, að við höfðum á réttu
að standa.
Nú er skoriö niöur
Það reyndist unnt að skera nið-
ur ýmsa framkvæmdaliði.
Borgarstjóri hefur nú tilkynnt !
með bréfi, að framkvæmdir verði
skornar niður um 122 millj. kr. Og
á meðal þeirra röksemda, sem
notaðar eru fyrir þvi að skera
framkvæmdir niður eru þær, að
undirbúningur sé skammt á veg
kominn. Það er t.d. ákveðið að
fresta byrjunarframkvæmdum
við gerð brúar yfir Kringlu-
mýrarbraut og spara með þvi 26
millj. kr. Og frá þvi er skýrt um
leið, að teikningar af mannvirk-
inu séu ekki tilbúnar og verk-
takar, sem helzt gætu unnið að
þessari mannvirkjagerð, verði
ekki tilbúnir það snemma á þessu
ári, að það taki þvi að verja þessu
Björgvin Guðmundsson
borgarfulltrúi.
tjármagni til framkvæmdanna.
Með þessu er algjörlega staðfest,
að það var rétt, sem við sögðum i
bókun okkar i april s.l. að ekki
yrði unnt að nýta allt fram-
kvæmdaféð á árinu.
Hvers vegna beöið?
En hvers vegna lagði meiri-
hlutinn ekki fram sparnaðartil-
lögur sinar þegar i april s.l.?
Svarið er einfalt. Það var efst i
huga Sjálfstæðisflokksins að
leggja 11% álag á útsvör Reyk-
vikinga. Þess vegna var fram-
kvæmdaféð aukið i april s.l. til
þess aö unnt væri að leggja 11% á
útsvör borgarbúa og siðan er
framkvæmdaféð skorið niður aft-
ur nú! Að sjálfsögðu var unnt að
skera niður framkvæmdaliði i
aprilmánuði ekki siður en nú,
heldur miklu fremur, og að sjálf-
sögðu hefði verið unnt að skera þá
niður ennþá meira heldur en
meirihlutinn hefur gerttillögu um
og einnig hefði mátt spara ýmsa
útgjaldaliði á rekstri, en það hef-
ur meirihlutinn ekki lagt til.
Við afgreiðslu fjárhags-
áætlunar i borgarstjórn Reykja-
vikur 13. april s.l. létum við
fulltrúar minnihlutaflokkanna
m.a. bóka eftirfarandi:
„Þá viljum við, að það
komi skýrt fram, aö viö er-
um andvigir þeirri hug-
mynd að bæta álagi á út-
svörin. Komi til þess við
álagningu, að tekjur nægi
ekki fyrir áætluðum gjöld-
um, er það okkar skoðun,
að borgarstjórnin eigi að
fjalla um fjárhagsáætlun-
ina að nýju og ráða fram úr
þeim vanda á annan hátt
en með hækkun útsvara".
Ein tilkynning enn!
Á fundi borgarráðs 11. júli s.l.
erlagtfram bréf frá borgarstjóra
til félagsmálaráðuneytisins, þar
sem óskað er heimildar til þess að
leggja 11% álag á útsvör Reyk-
vikinga. Bréf þetta er ekki borið
undir atkvæði á fundi borgarráðs
heldur er efni þess tilkynnt (!)
borgarráðsmönnum. Ég sat ekki
þennan fund borgarráðs vegna
sumarleyfis en fulltrúar hinna
minnihlutaflokkanna lýstu þvi
yfir á fundinum, að þeir tækju
ekki afstöðu til erindis borgar-
stjóra og visuðu þeir til bókunar
minnihlutaflokkanna i borgar-
stjórn. A fundi borgarráðs viku
siðar var lagt fram annað bréf
borgarstjóra, þar sem skýrt er
frá þvi, að fresta verði fram-
kvæmdum, er nemi 120 millj.
króna. Kom það fram i umræðum
á fundinum, að ekki væri ætlunin
að leggja breytingar á fjárhags-
áætlun formlega fyrir borgar-
stjórn, eins og venja hafði verið á
undanförnum árum, þrátt fyrir
þessar miklu breytingar, heldur
væri ætlunin að tilkynna borgar-
ráði og borgarstjórn breyt-
ingarnar i bréfum borgar-
stjórans. Ég gerði athugasemd
við þessa málsmeðferð og var þá
bréf borgarstjóra um frestun á
framkvæmdum borið undir at-
kvæði i borgarráði.
Ríksistjórnin
átti að neita.
Arið 1971 voru gerðar nokkrar
breytingar á fjárhagsáætlun
Reykjavikurborgar eða sem
svaraði rúmlega 19 millj. króna.
Þessar breytingar á fjárhagsá-
ætlun voru lagðar formlega fyrir
borgarstjórn og afgreiddar þar
eins og venja hafði verið á undan-
farandi árum. Nú var um að ræða
mun meiri breytingar á fjárhags-
áætlun og tel ég, að sjálfsagt hefði
verið og eðlilegt, að leggja þær
formlega fyrir borgarstjórn til af-
greiðslu með sama hætti og áður.
Og einnig átti að sjálfsögðu að
leggja um leið formlega fyrir
borgarstjórn þá breytingu á út-
svörum og innheimta þau með
11% álagi. — A siðasta fundi
borgarstjórnar lýsti ég þvi ákveð-
ið yfir, aö Alþýðuflokkurinn væri
þvi andvigur, að 11% álag væri
lagt á útsvör Reykvikinga. Ég tel,
að skattabyrði borgarbúa hafi
verið orðin ærin, fyrir, þó þessu
aukaálagi væri ekki bætt á. Einn-
ig tei ég að undanþiggja hefði átt'
ibúðarhúsnæði 50% álagi á fast-
eignagjöld. Er þessi afstaða min i
samræmi við ályktun, sem gerð
var á þingi kjördæmisráðs Al-
þýðuflokksins i Reykjavik s.l.
vor. En það undrar mig, að rikis-
stjórnin skuli hafa heimilað Sjálf-
stæðisflokknum að leggja 11% á-
lag á útsvör Reykvikinga. Allir
minnihlutaflokkar Borgarstjórn-
ar Reykjavikur, sem hafa meiri-
hluta kjósenda i Reykjavik á bak
við sig, höfðu lýst sig andviga
þessari ráðagerö. Allir rikis-
stjórnarflokkarnir i borgarstjórn
höfðu þvi lýst sig andviga álagi á
útsvörin, en samt sem áður hefur
rikisstjórnin heimilað þessa
aukaálagningu og hefur haft að
engu álit rikisstjórnarflokkanna
og minnihlutaflokkanna allra i
borgarstjórn. Hlýtur það að vekja
nokkra furðu. .
Ég tel, að rikisstjórnin
hefði átt að neita Reykja-
víkurborg um heimild fyrir
því að leggja 11% álag á út-
svör borgarbúa. Slík af-
greiðsla hefði verið full-
komlega réttlætanlegt og í
algeru samræmi við þau
rök, sem aliir minnihluta-
flokkar borgarstjórriar
Reykjavíkur hafa fl<%t
gegn aukaálagi á útsvörill
Björgvin Guömundsson skrifar um borgarmál
5
Föstudagur ll. ágúst 1972