Alþýðublaðið - 20.08.1972, Qupperneq 3
Asia og Mið-Austurlönd
eru af skiljanlegum ástæð-
um mjög hátt skrifuð. bað
þykir sannað, að CIA hafi
gert ,,heiðarlega” tilraun
til þess að ráða Nasser
Egyptalandsforseta af
dögum. J.H. Joesten sem
var starfsmaður Central
Intelligence Agency, hefur
gefið út bók, hvar i hann
ritar:
,,— Feillinn við Nasser
var sá, að hann var i raun
og veru elskaður og dáður
af egypsku þjóðinni. Það
i varómögulegt,aðkoma af
stað uppreisn gegn hon-
um, og það var ógjörning-
ur að kaupa hann og skoð-
anir hans. Hann var trúr
skoðunum sinum, og
óhugnanlega sterkur á
sannfæringu sinni. Þvi var
ómögulegt að sannfæra
hann um nokkuð, sem ekki
samrýmdist skoðunum
hans. Það er alveg eins
gott að viðurkenna það, að
hann var of góður til þess
að það væri satt”.
Flestir hafa heyrt að
KGB (það eru Rússarnir)
noti sér hinar furðulegustu
aðferðir i starfi sinu, og
þvi er það almennt álitið
að CIA sé eitthvað mildari
og umburðalyndari i sinu
starfi. betta er ekki rétt.
CIA njósnararnir eru ekk-
ert að vikja úr vegi fyrir
morði eða pyntingum,
þyki ástæða til. Einnig
hafa þeir viðurkennt að
þeir séu KGB ekkert siðri
þegar um hrottaskap og
óþverrabrögð er að ræða.
Það er nóg að lesa
njósnabækurnar til þess
að skilja hvað það þýðir.
Er italia næst?
Um þessar mundir er
það ekki það erfiðasta fyr-
ir CIA, að finna vinnu-
markað erlendis, enda
viðurkenna flestar rikis
stjórnir, að CIA starfsemi
eigi sér stað i löndum
þeirra. Það finnast nægar
staðreyndir i heiminum,
um hverngi fer,ef of mikið
veður er gert út af starf-
semi þessari.
Nei, aðal erfiðleikarnir
eru á heimavigstöðvun-
um, þvi Bandarikjamenn
eru farnir að skilja, að
eitthvað er á seyði, sem
skapar hræðslu og óör-
yggi. Og bandariskir borg-
arar mótmæla.
A meðan eru stjórn-
málamenn i mörgum
löndum orðnir hræddir við
þá þróun mála, sem CIA
njósnakerfið hefur i för
með sér. Fyrrverandi
prestur að nafni, faðir
Mario Borrelli, sem fræg-
ur hefur orðið og virtur,
fyrir það frábæra hjálpar
og liknarstarf sem hann
hefur unnið i fátæktar
hverfum Napoli, sagði
eftirfarandi i viðtali við
brezka blaðið Guardian.
,,— Það er enginn vafi á
þvi, að fasistarnir eru að
ná völdum yfir Suður-ítal-
iu, undir vernd MA-ST
(Mavemento Sociale
Italiano),Þeir bera ábyrgð
á öllum þeim vandræðum
og uppþotum, sem átt hafa
sér stað undanfarið. Atök-
in á milli hægri og vinstri
aflanna harðna dag frá
degi, og ná brátt há
marki. Þegar þvi er náð,
munu það verða CIA og
NATO sem koma til með
að leika aðalhlutverkið.
Hvorug þessara stofnanna
mun liða það, að vinstri
öflin nái völdum. Og i
gegnum allar herstöðvar
sinar á ttaliu á NATO
mjög auðvelt með að
bregðast skjótt við. ttalia
gæti orðið annað Grik-
land...
æfingu strax i mai-júni auk þess
sem ungu skólamennirnir eru
afskiptir svo snemma.
Þrjú siðustu mótin eru fyrir
norðan og á Akranesi, svo að
mikil ferðalög þarf til að ná sér i
stig fyrir þá, sem siðbúnir voru i
þjálfun. Vonandi tekst betur til
næsta leiktimabil með niður-
röðun, þannig að mótin séu til
skiptis á Faxaflóasvæði og úti
um land til að tryggja meiri og
sterkari þátttöku.
Aukaþing G.S.t., sem verður
haldið i Reykjavik i okt. — nóv. i
haust, tekur m.a. þetta mál til
nánari yfirvegunar. Þvi miður
hafa ýmis mótanna verið litt sótt
af kylfingum i fremstu röð og er
leitt til þess að vita, að styrkleik-
inn sé stundum áberandi litill i
einstöku mótum.
Ég býst þó við, að erfitt sé að
koma i veg fyrir slikt, þar eð
menn eiga oft ekki heimangengt
vegna starfa sinna. Hins vegar
teldi ég æskilegt, að athugaðar
verði leiðir til að koma minni
klúbbunum úti á landi til hjálpar
með öðru móti en að láta þá fá
stigamót. Við verðum að nýta
beztu velli okkar betur, hvað
snertir mót, sem skera úr um
hverjir eiga að keppa sem full-
trúar þjóðarinnar i golfi.
G.S.I. verður að setja viss lág-
marksskilyrði fyrir ástandi golf-
valla, sem slik mót eiga að fara
fram á. Þegar við eigum nokkra
velli, sem eru i sæmilegu ástandi,
er óhæfa að láta golfmenn kepna
um sæti i landsliðsúrvali á ný-
ruddum völlum, sem eru eins
fjarri og hugsazt getur þvi vallar-
ástandi, er útilokar nægilega til-
viljunarkenndan árangur i golf-
leik. Við eigum það fáa velli, sem
hæfir eru, að öll jafnvægis-
byggðasjónarmið verður að láta
fyrir róða.
Ég vil þvi að lokum beina þvi til
G.S.I., að framvegis verði kann-
að, hvaða vellir séu raunverulega
hæfir til að taka stigamótin að
sér. Ennfremur er nauðsynlegt að
mótin nái a.m.k. fram yfir miðjan
september, þvi flestir eru i beztri
þjálfun siðla sumars.
E.G.
Nokkrir hinna ungu og efnilegu kylfinga. Björgvin Þorsteinsson GA
fyrrverandi tslandsmeistari lengst til vinstri, þá Loftur Ólafsson NK,
núverandi íslandsmeistari og loks Óskar Sæmundsson GR.
(myndir:SS).
Sunnudagur 20. ágúst 1972
'3