Alþýðublaðið - 29.08.1972, Side 9

Alþýðublaðið - 29.08.1972, Side 9
LIVERPOOL HEFUR HGAR TEKIÐ HREINA FORYSTU Liverpool hefur nú tekiö örugga forystu i 1. deildinni ensku, eftir sigur gegn West Ham á laugar- daginn. Sigurinn var langt frá þvi að vera auðveldur, og það var eiginlega hæpið sjálfsmark sem færði liðinu bæði stigin. Markið kom i seinni hálfleik, þegar þeir Ferguson markvörður West Ham og Kevin Keegan stukku eftir boltanum. Endalokin urðu þau, aö Ferguson missti boltann i eigið net, og þrátt fyrir áköf mótmæli leikmanna West Ham, var merkið dæmt gilt. Sigurmark Liverpool skoraði Hughes, en „Pop” Robson geröi bæði mörk gestanna. Þá heldur Ipswich strikinu, sigrar hvert liöið á fætur öðru, þvert ofan i spár manna. Annars voru úrslit margra leikja hálf ein- kennileg á laugardaginn, svo sem tap Derby. Liverpool er með tveggja stiga forystu, 9 stig eftir 5 leiki, en á botninum sitja Manchesterliðin öllum á óvart meö 2 stig ásamt West Brom. Við birtum hér úrklippurnar aö vanda, á þeim má sjá úrslit leiks- ins, stöðu i hálfleik, áhorfenda- fjölda og hverjir skora mörkin. Þá má sjá hvort þau eru gerð úr vitaspyrnum eöa ekki (pen). METIN I SUNDI HRUNDU UNNVðRPUM STRAX I UNDANÚRSLITUM I GÆR! Eins og við mátti búast, fuku heimsmctin hvert af öðru þegar byrjað var að keppa i sundi I gær. Byrjuðu þau að falla strax i undankeppninni, og þá féll einn- ig ótölulegur fjöldi ólympíu- meta. (irslit liggja fyrir I þremur sundgreinum og I tveim þeirra vann Bandarikjamaðurinn Mark Spitz til gullverðlauna, og I hinu sundinu vann Shane Gouid frá Ástraliu gullið. Hlutur þessara sundmanna á eflaust eftir að verða stór á leikunum. tlrslitin urðu þessi: 200 metra flugsund karla: 1. Mark Spitz USA 2,20,70 mln. 2. Garry Pall USA 2.02,86 mín. 3. Robin Backhaus USA 2,03,23 min. 200 metra fjórsund kvenna: 1. Shane Gould Astral. 2,23,07 min. • • 2. Kornelia Ender A- Þýzk. 2,23,59 min. 3. Lynn VidaliUSA 2,24,06 min. 4x100 metra skriðsund karla: 1. Sveit USA (Spitz, Edgar, Murphy og Heidenreich) 3,26,42 min. Heimsmet. 2. Sveit Sovétrikjanna 3,29,72 min. 3. Sveit A-Þýzkalands 3,32,43 min. Keppni er ekki lokið i fleiri SEniHSARATHOFNIN VAR STÓRKOSILEG SÝHING! Setningarathöfn 20. Ólympiu- leikanna sem hófust i Munchen á laugardaginn er einhver stór- kostlegasta sýning sem sett hefur verið á svið. Tók hún fram öllum fyrri setningarathöfnum slikra leikja, og var þó um auðugan garð að gresja. Enginn sem viðstaddur var þessa setningarathöfn var ósnortinn hvorki keppendur né gestir, svo stórkostleg var at- höfnin. Þá má heldur ekki gleyma þeim milljörðum sjón- varpsáhorfenda um viða veröld (nema tslandi) sem fylgdust með þessum merka atburði heima i stofunni hjá sér. 84 þúsund áhorfendur höfðu troðfyllt Ólympiuleikvanginn, og þeir horfðu fyrst á fylkingar 8000 iþróttamanna frá 122 löndum ganga fylktu liði inn á völlinn. Grikkir gengu fyrstir aö venju og gestgjafarnir siöastir. Aðeins framan við miðju gengu tslendingarnir og stóöu þeir sig með sóma eins og þeirra var von og visa. Gustaf Heinemann forseti Vestur-Þýzkalands setti leikana með örfáum orðum. ,,Ég lýsi Ólympiuleikana opna, tuttugustu leika nútimans.” Þá flutti Avery Brundage fyrrum formaður Alþjóða Ólympiu- nefndarinnar nokkur orð, og var gamla manninum vel fagnað, enda að kveðja starf sitt. Völlurinn iðaði allur af lifi og litum, og hámarki náði dýrðin þegar 3200 þýzk börn hlupu inn á völlinn með blóm i höndunum og fögnuðu erlendu þátttakendun- um innilega. Ólympiueldurinn kom inn á völlinn, og siöasta spölinn hljóp 18 ára gamall piltur, Gunter Zahn. Hann bar sig karlmann- lega, og vann verk sitt af nákvæmni, enda vel æfður. Þegar Ólympiueldurinn logaði yfir leikvanginum var 5000 dúfum sleppt lausum. Þær áttu að vera tákn leikanna, og hver af annarri hurfu þær á braut, eftir að hafa áttaö sig á stöðunni. Ein vakti meiri athygli en aðrar, hún fann nefnilega ekki leiðina út, og Brasiliumenn tóku hana sem verndargrip sinn. Ekki virðist hún hafa dugað þeim of vel blessunin, ef marka má tapið gegn Dönum i knattspyrnunni. Enn allt getur gerzt þv^enn eru eftir 13 dagar af leikunum. Olympiueiðinn vann Heidi Schuller fyrir hönd keppenda. Ganga þjóðanna inn á völlinn tókst sérlega vel. Lið landanna voru i mislitum búningum, og litadýrðin var þvi mikil. Stærsti flokkurinn var sá sovézki, með yfir 500 þátttakendur, gestgjaf- 666 arnir voru með næst stærsta flokkinn og Bandarikjamenn þann þriðja stærsta. Fánaberi okkar flokks var Geir Hallsteinsson, og bar hann fánann glæsilega sem hans var von og visa, en gaman heföi verið að sjá Guðmund Gislason með fánann, henn tekur nú þátt i sinum fjórðu Ólympiuleikum. -SS. sundgreinum, en keppt var i undanúrslitum nokkurra greina. i 100 metra baksundi karla fékk Bandarikjamaðurinn Mitschell Ivey bezta timann 57,99 sek, sem er nýtt Ólympiu- met, en Austur-Þjóðverjinn Rolan Mathes, sem jafnframt er heimsmethafi i greininni fékk timann 58,44 sek. Má búast við þvl að hann reynist sterkari i úrslitunum I dag. Sömu sögu er að segja úr undanúrslitunum I 100 metra skriðsundi kvenna. Þar hefur bandariska stúlkan Shirley Babashof bezta timann, 59,05 sek, sem er nýtt ólymplumet, en Shane Gould fékk timann 59,20. Búizt er við sigri Shane i úrslitunum. Austur-Þjóðverjar voru sigursælir i kajakróöri I gær. Þeir sigruðu bæði I kappróðri og torfæruróðri. t dýfingum kvenna sigraði bandarisk stúlka, en sænskar stúlkur urðu I 2. 4. og 6. sæti, sem sagt sænsk grein. Mestan „sensation” leikanna til þessa stóð óþekktur 18 ára piltur frá Ástraliu fyrir I gær, Dennis Talbot. Hann gerði sér litið fyrir og rotaði sjálfan heimsmethafann i léttfluguvikt, Rodriques frá Venezuela. Greiddi Dennis honum rot- Framhald á 2. siðu. Danir komu á óvart -unnu Brasilíumenn Frændur vorir Danir komu sannariega á óvart á fyrsta keppnisdegi Ólympiuleikanna, sunnudeginum. Þá mættu þeir Brasiliumönnum, scm taldir voru sigurstranglegir fyrir leikana. Svo fóru leikar, að Danir sigruðu mjög óvænt 3:2, og eru Danir nú að gera sér vonir um að knattspyrnumenn þeirra ætli sér að endurtaka leikinn frá Rómarleikunum 1960, en þá hlutu Danir silfur- verölaun. Danir komust I 2:0 og voru þar að verki þeir Allan Simonsen og Per Röntved. Allan vakti feikna athygli þegar hann kom hér með danska landsliöinu I sumar, þrátt fyrir smæðina skoraði hann tvö mörk. Og hann átti eftir að leika sama leikinn aftur, þvi eftir aö Brassarnir höföu jafnað 2:2, skoraði Allan sigurmarkið og setti alla Danmörku á annan endann, þvi leiknum var sjón- varpað beint. önnur úrslit á sunnudaginn uröu þessi: Ungverjaland — Iran 5:0, USA-Marokkó 0:0, Vestur-Þýzkaland - Malasia 3:0. t gærkvöldi urðu úrslit þessi: Burma - Sovétrikin 0:1, Sudan - Mexico.0:1, Columbia - Pólland 1:5 og Cana - Austur-Þýzkaland 0:4. —SS. 1. deild BIRMÍNSHAM Cl) 1 Francis CHELSEA (1) ......2 Osgood, Houseman LEICESTER (0) ...O LIVERP00L (1) ...3 ToshacK, Ferguson o.g.,Hughes MAN UTD (0) ...O HEWCASTLE (0) ...1 Macdonald 24,250 1N0RWICH (0) ....1 [Gemmíll o.g. S0UTHAMPT0N (1) 1 ,Munro o.g. ST0KE (1) ....1 Ritchie TOTTENHAM (0) ...'O WEST BR0M (0) O 15,693 Í PALACE (lj ...1 Queen-31,066 MAN CITY (0) .....1 Melldr—J0.B45. C0VENTRY (0) ...O 25,894 WEST HAM (2) ...2 Robson 2-50,491 ARSENAL (0) .....Ó 48,108 . ; IPSWICH (2) . .. Lambert, Villoen DERBY (0) ...... 30,075 W0LVES (1) ......1 McCalliog—19,456 EVERT0N (0) .....1 Royle—26,360 , LEEOS (0) ...L....O 41,191 SHEFF UTD (1) ...2 Woodward. CammadK 2. deild BRIGHTON (0) ...2 Murray, Irvine BURNLEY (3) .....4 Collins, Fletcher, Oobson, Casper CARDIFF (1) .....1 Bell (pen)—12,401 HUDDERSFLD (1) 1 Smith D MIDDLESBR0 (0) 1 McMordie—11,410 MILLWALL (0) ...O N0TTM F0R (2) ...2 Lyall, 0'Neill 0RIENT (0) ......O PREST0N (1) .....1 Young 5HEFF WED (2) 4 Sunley, Joicey 2, traig (pen) SWIND0N (1) .....2 Peplow 2 SUNDERLANO (2) 2 Lathan 2—15,906 ASTON VILLA (1) 1 Hamilton—14,804 BLACKP00L (0) ...2 Dyson. Lennard CARLISLE (1) ....1 Bowles—9.483 FULHAM (1) ......2 Cross, Barrett P0RTSM0UTH (1) 2 Lewis 2—12,429 0XF0RD (1) ......1 Skeen—7,591 LUT0N (0) .......1 Busby—6,494 O.Í.R. (0) ......t 0'Rourke—9,242 HULL (2) ........2 Pearson 2—20,153 BRIST0L CITV (1) 1 Spiring—15,304 LEIK VALS OG KR FRESTAÐ Leik Vals og KR sem fram átti aö fara á Laugardalsvellinum i , gærkvöldi varö aö fresta vegna veöurs. Algert slagviðri var i Reykjavik i gær, og dimmt, og þvl var ekki annað að gera en fresta leiknum. Væntanlega verður reynt að leika I kvöld, ef veður veröur skaplegra. ÚR ÖLLUM ÁTTUM Nú má telja nokkuð öruggt aö Akureyringar sigri I 2. deild I ár, og þaö með sérlegum glæsibrag. A laugardaginn sigruðu Akureyr- ingar Völsunga frá Húsavik 8:2 og hafa þar meö tekiö fimm stiga forystu i deildinni. Annar leikur fór fram i 2. deild, Haukar unnu Selfoss 3:2, og I bik- arkeppninni vann FH Isafjörð 3:2. Sföasta stigamót sumarsins i golfi fór fram uppi á Akranesi um helgina, SR keppnin. Sigurvegari varð kornungur piltur, Jóhann Ó. Guðmundsson GR með 156 högg, Hannes Þorsteinsson GL varð annar með 161 högg og Óttar Yngvason GR þriðji með 163 högg. Leikdagarhafa verið ákveðnir i Evrópukeppni unglinga, en Is- land leikur þar gegn Luxemburg. Fer fyrri leikurinn fram i Luxem- burg 22. október, en sá seinni hér heima 25. april næsta ár. Sigur- vegarinn fer beint i úrslitin á Ita- líu. Þriðjudagur 29. ágúst 1972

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.