Alþýðublaðið - 10.09.1972, Page 1

Alþýðublaðið - 10.09.1972, Page 1
MONCHEN-MORÐINGJARNIR SPYRIA SIALDNAST UM ÞJÖDERNIFÖRNARLAMBA beirri spurningu hefur verið varpað fram manna á meðal hvort það hefði verið rétt af fararstjórn islenzka hópsins á Ólympiuleikunum i Munchen ef ákveðið hefði verið að hætta þátttöku og hverfa heim eftir voðaverkin þar i ólympiuþorp- inu og á Furstenfeldbruck flug- velli á þriðjudaginn. Að visu munu islenzku kepp- endurnir ekki hafa átt eftir að keppa i neinum greinum, þar sem þeir höfðu flestir fallið i undanrásum eða forkeppni, en heimkvaðning hópsins kom þó BJARNI SIGTRYGGSSON: UM HELGINA altént til greina, ekki sizt þar sem norsku handknattleiks- mennirnir ákváðu að hætta keppni og vitað var að margir hópar voru mótfallnir þvi fyrsta daginn að halda keppni áfram. En hefði það verið rétt? Skoðanir manna virðast vera mjög skiptar og margir hafa bent á þau rök að eftir þennan atburð, þegar hermdaverka- menn hafa notað Ólympiuleik- ana sem vettvang blóðsúthell- inga, hafa úthellt blóði sak- lausra iþróttamanna til þess eins að auglýsa sjálfa sig og samtök sin, hafa orðið þess vandandi, að fólk af tilteknum kynstofni getur ekki um frjálst höfuð strokið i Ólympiuborg- inni, — þá sé ekki hægt að halda ,,leikum gleðinnar”, eins og þessir 20. Ólympiuleikar hafa verið kallaðir, áfram. Og það er i fljótu bragði ekki erfitt að fallast á þessa rök- semd. En það má ekki gleyma þvi, að það er sitthvað sem mælir á móti þvi að hætta þátttöku. Það væri til að mynda leiðinlegt að þurfa að verða til þess að gleðja þennan fámenna en miskunnar- lausa hóp morðingja með þvi að hætta leikunum, þvi það virðist vera tilgangur þeirra að verða sér úti um auglýsingu, ekki samúð. Þetta er sami hópurinn og stóð að baki morðunum á pila- grimunum á Lod-flugvelli við Tel Aviv — og hefur reyndar oft- ar og viðar ráðist á saklausa borgara, og jafnan varnarlausa. Það er tilgangur þeirra að klekkja á gyðingum, — en i reynd eru það saklaus fórnar- lömb sem heift þessa sjálfs- morðshóps beinist að. Það liggur i augum uppi að þetta fólk er i eins konar sjálfs- morðssveitum. Það er reiðubúið að láta lifið, svo framarlega sem það getur komið illverkum sinum fram. Og það hefur án efa verið einn liður morðanna i Munchen að láta aflýsa glæsi- legustu og stærstu ólympiuleik- um, sem til þessa hafa verið haldnir. Að auki væri það ekki i anda leikanna. Tilgangur leikanna er m.a. drengileg keppni iþrótta- manna allra þjóða án tillits til litarháttar, trúarbragða eða stjórnmálaskoðana. Verknaður hermdarverkamannanna úr glæpaflokknum „Svarta sept- ember” styidur svo algerlega sérá báti, að það virðist hvergi i einu einasta riki að finna stuðn- ing við þá stefnu, sem þeir fýlgja. Hins vegar liggur það i augum uppi að nokkur arabarikjanna styðja þennan hóp óbeint. Með þvi aö láta það liöast að skæru- liðar þessa flokks hafi þar land- vist og aðstöðu. Og ef við hefðum uppburð i okkur, þá tel ég að það væri rétt aðviðtækjum á hvern þann hátt, sem okkur kann að reynast mögulegt, þátt i þvi að beita þau riki refsiaðgerðum, sem veita þessum glæpaflokki aðstöðu til starfsemi sinnar. Þetta er sá hópur skæruliða sem hefur gert farþegaflug hættulegt, — og það væri eðli- legt að flugmenn neituðu að fljúga til þeirra rikja, sem vitað er að veiti þessum flugræningj- um skjól. Við gætum tekið þátt i samvinnu rikja, sem segja við- komandi riki i viðskiptabann. Okkar viðskipti við þessi riki eru að visu svo litið að vart er hægt að tala um nokkur, en sá móralski stuðningur, sem okkar undirskrift gæti veitt er þess virði. bað er ekki aðeins að við höf- um átt sérlega góð samskipti við tsraelsmenn, — þarna er við að eiga geðtruflaða glæpamenn, sem svifast einskis og láta oft- ast saklausa borgara verða fyr- ir höggum sinum. Og það er ekki vist að þeir virði islenzkt vegabréf ef þeir eru á annað borð með byssuna á lofti. SUNNUDAGUR 10. SEPT. 1972 — 53. ARG. —203. TBL 1

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.