Alþýðublaðið - 10.09.1972, Síða 7

Alþýðublaðið - 10.09.1972, Síða 7
1 Þaö var gefið miskunnarlaust i, upp skyldu þeir, og oft tókust bíiarnir á loft. I TORFÆMMKSTRIER AÐEIHS EINN KUNDI UNHR BfLNUM KOMINN 90% ARAHBURSIKS RÆOST SF OKOMtNNINUM Sjö ökumenn mættu til keppni, og farartækin voru mis- jöfn að gæðum og útbúnaði. En það sást fljótlega, að sigurinn var þeim ekki vis, sem mætti á' dýrasta farkostinum, og sannaðist þarna sem sagt hefur verið, að i torfæruakstri er 90% af árangrinum kominn undir sjálfum ökumanninum en aðeins 10% undir ökutækinu. Willysjepparnir stóðu sig áberandi bezt, en ekki þeir dýrustu. Af þeim fimm Willys- jeppum, sem voru i keppninni, voru tveir með átta strokka vél og einn með sex strokka vél. En úrslitin uröu þau.að i fyrsta sæti lenti Willys 1963 með sex strokka vél, númer tvö varð Willys 1965 með átta strokka inn var, þegar torfæruaksturs- keppnin þeirra fór fram undir Hagafelli við Grindavik á sunnudaginn. Að minnsta kosti skein sólin nægilega lengi til þess að um 3000 manns lögðu leið sina þangað suðureftir til þess að fylgjast með keppninni. Reyndar fór að rigna undir lokin, en enginn kippti sér upp við það. Ofan i all stórri kvos, sem þeir Stakksfélagar hafa fengið til þessarar starfsemi sinnar hjá landeigendum þarna i grennd- inni, og i brekkunum þar i kring, komu áhorfendursér fyrir, nema þeir áhugasömustu. Þeir reyndu aö troða sér sem næst athafnasvæðum bilanna, og þrátt fyrir itrekaða beiðni stjórnanda keppninnar og hót- anir um að hún yrði stöðvuö færði fólk sig ekki frá, þrengdi það sér svo nálægt bilunum i brautunum, að mildi var að stórslys hlauzt ekki af. Volkswagen með ýmsum breyt- ingum. Þarna stekkur „litli bróðirinn” i keppninni af fitons- krafti i dekkjagryfjuna, skall I niður — og siðan var hann dreg- inn upp með spili á björgunar-1 sveitarbílnum. vél. en númer þrjú varð Wyllis 1967 með venjulegri Willys vél, fjögurra strokka. Sigurvegarinn hafði það fram yfir hina, aö bill hans var með læst mismunadrif að aftan og framan. Hinn átta strokka Willysinn átti i nokkrum erfiðleikum, sér- staklega framan af, þar sem kveikjulokið var brotið. En þegar það var komiö i lag var greinilegt, að ökumaðurinn hafði ekki fullkomið vald á hinni miklu vélarorku, og oft strand- aði hann einfaldlega vegna þess að hann gaf of mikið inn og bill- inn spólaði. Dýrasti billinn i keppninni var eflaust RangeRover, sem Breti ók, og þar var sama sagan. Hann notaði kraftinn of óspart, en hin mikla þyngd bilsins og lengd hans gerði lika sitt til þess, að hann varð að gefast upp við sumar hindranirnar. Þá er það Volkswagen, 1 sérstaklega útbúinn fyrir torfæruakstur, en ökumaður hans átti við allt aðra erfiðleika ða striða, nefnilega kraftleysi, og billinn var of léttur, auk þess sem hann vantaði framdrifið tilfinnan- lega. Þá er komiö að aldursfor- setanum, Willys af svonefndri „Israelsgerð”. Hann varð oft frá að hverfa, sennilega aðal- lega vegna óheppilegra dekkja. Við sögðum nánar frá úrslit- unum i torfæruaksturskeppn- inni i blaðinu á þriðjudaginn, og nú skulum við láta myndirnar tala. Það verður ekki annað sagt en þeirfélagar i björgunarfélaginu Stakk i Keflavik hafi verið heppnir með veður á sunnudag- Hann notaöi of mikinn kraft i lengstu brekk- unnf á Range-Rovernum, og á stalli I henni miöri tókst hann á loft, en missti við það alla ferð. Með allri sinni átta strokka orku stökk hann þessi út i dekkjagryfjuna. Það var spólað svo við lá, að kviknaði i hrúgunni, en allt kom fyrir ekki. Aðeins tveir komust yfir þessa hindrun. UMSJoN ÞORGRlMUR GESlSsON Sunnudagur 10. september 1972 7

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.