Alþýðublaðið - 21.09.1972, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 21.09.1972, Qupperneq 4
LAIIS STADA Hjá pósti og sima er laus staða vélstjóra að Lóranstöðinni að Gufuskálum. Laun samkvæmt launakerfi rikisins. Umsóknir á eyðublöðum stofnunarinnar sendist póst- og simamálastjórninni fyrir 5. október 1972. Póst- og simamálastjórnin. Jazzballettskoli Báru Dömur, ATHUGIÐ Nýr þriggja vikna kúr i likamsrækt og megrun, nuddi og sauna, hefst mánu- daginn 25. september. Upplýsingar i sima 83730, alla daga kl. 1-5. — Siðasti þriggja vikna kúrinn á sumrinu. Jazzballettskóli Báru FUJ-FÉLAGAR Skrifstofa FUJ i Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu er opin i dag frá kl. 18 til kl. 20. Simi skrifstof- unnar 1-67-24. Stjórn FUJ i Reykjavik. Skólahjukrun Hjúkrunarkona óskast til heilsugæzlu- starfs við Flensborgarskólann. — Áætlað- ur vinnutimi er 6-8 stundir á viku. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf, skulu sendar undirrituð- um fyrir 1. október n.k. Bæjarstjórinn i Hafnarfirði. Vélritun — Bréfaskriftir Viljum ráða vana stúlku til enskra og islenzkra bréfaskrifta og almennra ritarastarfa. Samband — Starfsmannahald. Menntamál aráðuney tið mælist til þess að kennsla falli niður i öllum skólum landsins eftir hádegi föstu- daginn 22. þ.m. vegna jarðarfarar Ásgeirs Ásgeirssonar, fyrrverandi forseta Is- lands. Menntamálaráðuneytið, 20. september 1972. FRAMHOLDFRAMHOLDFRAMHÖLD FRAMHÖLD LR og iðnó 2 breyta lágmarksþátttöku L.R. i rekstri hússins i fast vikugjald, sem aö upphæð til samsvaraði greiðslu fyrir tæplega 6 1/2 sýn- ingu á viku skv. fyrra árs gjaldi fyrirhverja sýningu. Var þá m.a. haft i huga að i mestallan fyrra- vetur voru 7 sýningar á viku i húsinu og að nú myndi L.R. eiga þess kost að fjölga sýningum enn meir án hækkunar á vikugjald- inu. Nú átti sem sagt að gera nýj- an samning byggðan á langtum umfangsmeiri afnotagrundvelli. Samningstiminn er 300 dagar og hugsanlegt að sýningarfjöldi, með eftirmiðdagssýningum eins og sl. leikár, gæti þvi orðið um 400. Verði starfsemi félagsins á næsta leikári i samræmi við yfir- lýsingar forráðamanna þess, er þvi liklegast, að húsnæðiskostn- aður hverrar sýningar geti lækk- að frá þvi sem var á s.l. ári, en þá þurfti aðeins að selja 20—26 að- göngumiðafyrir húsa-,,leigunni”. Þrátt fyrir aukna lágmarks- þátttöku L.R. i rekstri Iðnó er ekki annað sýnna en að einhver halli verði áfram á rekstri húss- ins eins og verið hefur flest und- anfarin ár. Með þvi að sætta sig við slikan rekstur og falla frá arðsvonum svo árum skiptir, hafa eigendur Iðnó lagt sitt af mörkum til þess að L.R. mætti lifa og landsmenn njóta við hóf- legu verði þeirrar listar, sem fé- lagið hefur fram að færa. Fyrir það máttu þeir búast við öðru en brigslum um lögbrot og æsiskrif- um. (Fréttatilkynning frá stjórn Iðnó) Drykkjuskapur 12 100% áfengismagn, en i fyrra var neyzla léttu vinanna 0,29 litrar. Aðeins einu sinni hefur neyzlan verið meiri, það var á árunum 1926—1930, þá varð meðalneyzlan 0,30 litrar. Þær eru ólikt hærri tölurnar um léttu vinin hjá ýmsum öðrum þjóðum, og árið 1970 reyndust ttalir og Portúgalir iðnastir við þau, i hvoru landi drakk hvert mannsbarn 114 litra. Næstir koma svo Frakkar, sem drukku 112 litra. Bjórdálkurinn við tsland i töflu þeirri, sem þessar tölur eru tekn- ar upp úr, er að sjálfsögðu auður. En sú þjóð, sem er duglegust við bjórþambið eru Belgar, en þeir drukku i fyrra 140 litra öls hver. Næstir þeim eru Vestur-Þjóðverj- ar, sem drukku 139 litra hver, sið- an koma Tékkar, sem drukku 135 litrahver árið 1969, en nýrri tölur þaðan eru ekki fyrir hendi. Luxemborgarar drukku 127 litra af bjór hver i fyrra og Astraliubú- ar 123 litra. Minnsta bjórdrykkjuþjóðin, fyrir utan okkur að sjálfsögðu, erú Tyrkir, en þar var ekki drukkinn nema einn litri af bjór á mann i fyrra, og jafn litið var drukkið af veikum vinum. Fordæmt 12 ræða vegna viraklippinga Æg- is, en hann sagðist ekki trúa þvi. „Það getur verið einn og einn maður svo órforskamm- aður að gera svona hluti, en ég trúi ekki, að þetta verði al- gengt, sagði Sveinbjörn. „En það verður náttúrlega eitthvað að gera, þegar þeir sýna svona framkomu”, hélt hann áfram, „þó ekki sé kannski rétt fyrir Landhelgis- gæzluna að gera mikiö af því að erta þá á meðan von er um samningaviðræður. En atvik eins og þetta, þeg- ar togaraskipstjóri reynir að sigla niður islenzkan bát, verða kannski til þess að samningaviðræður verða hafnar. Þetta sýnir, að skipstjórarn- ir geta ekki fiskað undir þess- um kringumstæðum, og þvi grípa þeir til svona öu-þrifa- ráða”, sagði Sveinbjörn að lokum. Sund 9 um þurfa að tilkynna við skrán- ingu hvaða grein þeir syndi án stiga. Keppt verður i Sundhöll Reykjavikur. Þátttaka tilkynnist stjórn SSt fyrir iaugard. 16. sept., n.k. á þar til gerðum tima- varðakortum sem send hafa verið til forustumanna félaganna og skal þar geta um fæiðingarár keppanda og um beztan tima sem náöst hefur á þessu ári. Niðurröðun i riðla fer fram á skrifstofu Sundsambandsins i Laugardal, laugardaginn 16. september kl. 15.00 og eru full- trúar allra félaga, sem keppendur senda, velkomnir þangað. Frjálsar 8 vakningu frjálsiþróttadeildar F.H., en eitt af aðalverkefnum deildarinnar mun verða að vinna að byggingu hlaupabrautar þeirr- ar sem ráðgert er kringum nýja malarknattspyrnuvöllurinn, sem er nú næstum íullgerður i Kapla- krika. Og takmark deildarinnar er að geta æft og keppt allar greinar frjálsiþrótta i Kaplakrika á næsta sumri. Byrja þeir næst_____________1_ ránin og hryðjuverkin, sem fram- in hafa verið að undanförnu víðs vegar um heim. Segir Mr. Rotblot, að aðeins með itrustu varúðarráðstöfunum verði hægt að koma i veg fyrir, að glæpamenn eða ófyrirleitnir hryðjuverkamenn gætu einhvern góðan veðurdag veifað kjarn- orkusprengju framan f heiminn og krafizt hvers sem væri i skjóli hennar. Mr. Rotblot segir ennfremur, að ef hópar á borð við arablska hryðjuverkamenn kæmust yfir kjarnorkusprengju og sprengdu hana einhvers staðar i heiminum, yrði sprengingin að likindum „handahófskennd” og likti henni við atburðinn, þegar Bandarikja- menn vörpuðu kjarnorku- sprengju á Hirosima í Japan á sinum tima. „Það er kannski ósennilegt að þetta eigi eftir að gerast i allra næstu framtið, en mögulegt samt”, segir prófessorinn, og bætir við: ,,A þessu er alvarleg hætta, sé litið lengra fram i tim- ann”. Ráðstefnan (22. Pugwash Conference) leggur til, að þegar verði sett á stofn alþjóðleg eftir- litsstofnun, sem hafi að markmiði að draga út þeirri hættu, að kjarnorkusprengjur lendi i hönd um glæpa- og hryðjuverka- manna, sem sfðan geti í skjóli þeirra ógnað saklausu fólki og krafizt hvers sem er. Staðinn að___________________1 laugardagsmorgun. Þar sem tvisvar hefur verið brotizt inn I fjósið fyrr í sumar, hringdi hann þegar á lögregluna. Þegar hún kom, var maðurinn lagður á flótta, sem fyrr segir. Við athugun kom I ljós, að hann hafði sett fötu á hvolf fyrir aftan eina kúna og var greini- legt að hann hafði átt eitthvað við kynfæri skepnunnar. Samkvæmt upplýsingum bóndans að Laugabóli, var einn- ig átt við kýrnar i bæði fyrri skiptin. Virðist vera að innbr. séu eingöngu framir. í þeim til- gangi, þvi engu er stolið. Ekki er ljóst hvort sami mað- urinn hefur verið að verki i öll skiptin. Sá sem sást til á laugard., virðist þó vera öll- um hnútum kunnugur, þvf hann kom með verkfæri til að brjóta upp hurðina. Málið er enn i rannsókn, þar sem allglögg lýsing fékkst nú á manninum. 1000 1 lestin var löng frá Þjórsárveri þegar ballið var búið, sagði einn lögreglumaðurinn á Selfossi i við- tali við blaðið, en hún var svo löng sem augað eygði, enda skiptu bilarnir hundruðum. Að sögn lögreglunnar á Sel- fossi, hafa þessir dansleikir þó farið friðsamlega fram, enda hafa flestir átt fullt i fangi með að láta ekki troða sig undir, og þvi ekki getað sinnt slagsmálum eða öðrum ólátum. Ofbeldí____________________1_ inn væri farinn út. Þar réðust þeir að kaupmann- inum, sem er kominn nokkuð til ára sinna, tóku hann fantatök- um, hirtu veski hans með sex þúsund krónum og hlupu siðan á brott. Sinfóníumenn_______________12 talsins i vetur auk fjögurra auka- tónleika, skólatónleika og fjöl- skyldutónleika. Sú breyting verð- ur á i vetur, að áskriftartónleik- arnir hefjast klukkan 20.30 i stað kl. 21 áður, og verður þeim þá út- varpað i heild á föstudagskvöld- um i stað þess að fyrri hlutanum var áður útvarpað beint á fimmtudagskvöldum. Ferðafélagsferðir Föstudag 22/9. kl. 20 Landmannalaugar Laugardag 23/9 kl. 8 ÞórsmörkfHaustlitaferð) Sunnudag 24/9. kl. 9,30 Þingveliir /Haustlitaferð) Ferðafélag íslands Oldugötu 3. Sfmar 19533 og 11798 Frá skólum Hafnarfjaröar Vegna jarðarfarar fyrrverandi forseta Islands hr. Ásgeirs Ásgeirssonar fellur niður kennsla eftir hádegi á morgun. Sex ára börn, sem áttu að koma i skólana þann dag, eiga að koma sem hér segir: 1 Lækjarskóla og Viðistaðaskóla þriðjud. 26. sept. kl. 16.00. Sex ára börn, sem eiga að vera i öldutúns- skóla, hafi samband við skólann f.h. mánud. 25. sept. Fræðslustjórinn i Hafnarfirði. o Fimmtudagur 21. september 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.