Alþýðublaðið - 01.10.1972, Side 1

Alþýðublaðið - 01.10.1972, Side 1
AÐ TJALDA BAKI í TÍZKU- HEIMINUM I augum áhorfandans er tizkusj'ning fæst annað en stöðugur straumur af fallegum stúlkum i fallegum fötum, sem koma, að þvi er virðist, fyrir- hafnarlaust, hver á fætur annarri úr búningsherberginu. En þar inni, handan við glæsi- braginn og músikina, er likast þvi að verið sé að undirbúa mörg tunglskot á stuttum tima. Þar hendast fyrirsæturnar úr fötunum, sem búið er að sýna, þar er skipt um hárgreiðslu eða kollu með hraða hljóðsins. Þessar myndir eru frá tizku- sýningu i Paris, tvær gefa til kynna asann að tjaldabaki, en stóra myndin visar raunveru- lega á grein á þriðju siðu sunnu- dagsblaðsins, um nýjustu dægurfluguna i tizkuheiminum, perlur. MALNOTKUN, SEM ENN HEFUR SLOPPIÐ VID ALLAR ORDABÆKUR Bandariskur læknir, sem haft hefur til meðferðar fiknilyfja- sjúklinga, var fyrir tveim árum að ræða við sjúkling, unga stúlku, þegar hún notaði orðið „groovy” til að lýsa reynslu sinni af notkun lyfjanna. „Hvað þýðir „groovy”? spurði læknirinn. „Groovy þýðir ... eee ... þú hlýtur að vita hvað groovy þýðir. Það þýðir bara groovy.” „Já, en hvað merkir það raunverulega,” spurði lækn- irinn. „Vá,” sagði aumingja stúlk- an, hallaði sér aftur á bak, i senn hneyksluð á þvi að lækn- irinn skyldi ekki skilja orðið groovy, og um leið veltandi þvi fyrir sér hvað groovy i rauninni þýddi. Svo læknirinn bað hana að skrifa niður lista af slangur- yrðum táninga og reyna að gefa sem ýtarlegasta skýringu á merkingu hvers þeirra. Þannig hófst vinna við ein- hverja sérstæðustu orðabók, sem gefin hefur verið út um langt skeið, „Underground Dictionary”, sem raunar var orðin úrelt jafnskjótt og hún kom út, þvi málfar unglinga i Bandarikjunum, eins og viðast hvar annars staðar, breytist svo skjótt, og sifellt nýrri slangur- yrði og orðtök komast i tizku. En bókin hefur samt að geyma mikinn fróðleik og er mikil söguleg heimild. En merkilegust er hún þó trúlega fyrir þá sök, að þarna hefur i fyrsta sinn verið reynt að skrásetja hluta lifandi tungu- máls, sem ekki kemst alla jafna á prent. Það er að segja orða- forða, sem um skeið er uppi- staða i allri orðanotkun ung- linga, en sem hverfur þó smám saman vegna nýrri orða og orð- taka. Það kemur sennilega fæstum á óvart að uppistaðan i „Under- ground Dictionary” eru nafn- orð, lýsingarorð, sagnir og at- viksorð varðandi kynlif og fikni- lyf og reyndar hefur götumál- lýzkan bandariska auðgast meir á fiknilyfjaorðum en öðrum sið- ustu árin. Hvað viðvikur slangurorða- notkun islenzkra unglinga, þá virðast nokkuð óhætt að áætla að hún sé að meginstofni afbökun enskra orða, svipað og var um, hliðstæða notkun danskra orða hér á landi fyrir einum og hálf- um mannsaldri. En samt sem áður þá er eins og gömul og gegn islenzk orð, sjaldgæf, komist i tizku hjá ung- lingum, og komist inn i hinn út- valda hóp fárra en mikið not- aðra orða þeirra. Þannig er trúlega orðið hallærislcgur. Það varð geysi- vinsælt fyrir um það bil einum og hálfum áratug siðan, máske ofnotað, og siðan tók við stytting halló (með hörðum fram- burði). Loks hefur þetta orð horfið að mestu úr „útvalda hópnum” en önnur orð tekiö sæti þess. Fyrir þrem, fjórum árum siðan komst orðið geggjað i þennan sama flokk. Stelpur sögðu um stráka að þeir væru alveg geggjaðir ef þeim fannst mikið til þeirra koma. „Hann er æðf’ gat þýtt eitt eitthvað svipað. Ég koksaði alveg i gær”, er orðatiltæki, sem notað er af þeim, sem reykti svo mikið hass kvöldið áður, að hann leið út af, sofnaði. Og „að bylta kvenmanni” ætti að vera óþarfi að útskýra nánar. öll þessi orð eiga það sam- eiginlegt að vera notuð, meira og minna sem meginuppistaða i orðaforða stórs hluta ung- menna, og þess vegna er ekki hægtað ganga fram hjá þeim, ef einhver vill fylgjast með og gera tilraun til að skrá hluta þess máls, sem talað er i land- inu. Svo virðist sem engin ástæða sé til að reyna að þegja þessa orðanotkun i hel með þvi að skrá hana ekki, enda dugir það ekki, heldur virðast örlög allra eða vel flestra þeirra vera á sama veg. Þau eru notuð af tilteknum fjölda ungmenna um tiltekið skeið, hverfa siðan smám saman og önnur koma i staðinn. tslenzku máli verður þess vegna seint stór hætta búin af þessari notkun slanguryrða, sú ógnun er hún ekki. legra orðatiltækja. Þau hafa gegnt vissu hlutverki, halda þvi áfram, og eiga þess vegna sæti i islenzkri málsögu. Og það væri óneitanlega gaman að eignast „islenzka götuorðabók.” BJARNI SIGTRYGGSSON: En það væri ómaksins vert, ef reynt er að halda til haga ein- hverri sögu málnotkunar i landinu, að leggja þaöerfiði ásig að skrá þessa notkun sérkenni- UM HELGINA SUNNUDAGUR 1. OKT. 1972-53. ARG.- 220. TBL. 1

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.