Alþýðublaðið - 04.10.1972, Blaðsíða 2
Danmörk sagði já. Það er þvi kominn timi til þess að opna aftur
gjaldeyrismarkaðina i Danmörku. Jens Otto Krag tókst sem sagt
að halda i dönsku krónuna, forða henni frá falli og draga hana upp
á stallinn. Fáeinum stundum seinna var Krag búinn að segja af
scr.
Niöurstaða þjóðaratkvæða-
greiðslunnar i Danmörku um
aðildina að Efnahagsbandalagi
Evrópu virðist engum hafa
komið á óvart, enda reyndist
hún ekki ýkja frábrugðin þvi,
sem fyrirfram hafði verið spáð.
Endanlegar tölur i atkvæða-
greiðslunni eru þær, að 1.955.932
Danir sögðu já, en 1.124.106
sögðu nei og kjörsóknin var
meiri og almennari en áður eru
dæmi um i stjórnmálasögu
dönsku þjóðarinnar.
Þegar úrslit þjóðaratkvæða-
greiðslunnar voru kunn seint á
mánudagskvöld, héldu leiðtog-
ar dönsku stjórnmálaflokkanna
blaðamannafund.
Á fundinum sagði Jens Otto
Krag forsætisráðherra, að
danska þjóðin heföi tekiö
ánægjulega ákvörðun, en að
baki henni lægju hörð pólitisk
átök, sem hann kvaöst vona, að
tilheyröu liðinni tið.
,,Við höfum samþykkt tilboð
frá Evrópu”, sagði Krag, og i
þvi samþykki felast ekki aðeins
margir efnahagslegir kostir
fyrirdanska þjóö, heldur einnig
að danska þjóðin ætlar að taka
þátt i þvi samstarfi, sem valið
stóð um”.
Forsætisráðherrann harmaði
i ræðu sinni, að Noregur skyldi
ekki verða aðili að Efnahags-
bandalaginu. ,,En við teljum
okkur nú bera skyldu til aö
stuðla aö hvorutveggja aukinni
evrópskri og norrænni sam-
vinnu. Okkur er færð sú skylda á
herðar innan Efnahagsbanda-
lags Evrópu að vinna þar að
framgangi norrænna málefna.
Við gerum okkur i rikum mæli
grein fyrir þessari skyldu okk-
ar”, sagði forsætisráðherrann.
Leiðtogi danskra ihalds-
manna, E. Ninn-Hansen, sagöi á
þessum sama blaðamanna-
fundi, að úrslit þjóðaratkvæða-
greiðslunnar væri hvorttveggja
i senn ávinningur fyrir Dan-
mörku og fyrir Evrópu.
Hilmar Baunsgaard, fyrrver-
andi forsætisráðherra Dan-
merkur, sagði á blaða-
mannafundinum, að hin mikla
ogalmenna þátttaka i þjóðarat-
kvæðagreiðslunni hefði styrkt
lýðræðið i Danmörku. Lagði
Baunsgaard á það áherzlu, að
nú yrði Danmörk tengiliður
milli Norðurlanda og Evrópu.
Formaður SF, Sósialistiska
þjóðarflokksins, Sigurd Ohman,
þakkaði þeim kjósendum, sem
greitt höfðu atkvæði gegn EBE-
aðildinni. Kvaðst hann harma
þessi úrslit, þvi að i rauninni
hefðu Danir nú slitið sig úr
tengslum við Norðurlönd.
Morten Lange formaður þing-
flokks SF sagði ennfremur i
fyrrakvöld, er úrslitin voru
kunn, að full ástæöa væri til að
óska stuöningsmönnum aðildar
að EBE til hamingju með sigur-
inn, ,,en við eigum eftir að sjá,
hvort þeir standa við öll loforð-
in”, bætti Lange við. Benti hann
á, að þeir stjórnmálaflokkar,
sem opinberlega hefðu snúizt
gegn EBE-aðildinni, hefðu i sið-
ustu kosningum aðeins hlotið
um 15% atkvæða, en stuðning-
urinn við þessa sömu flokka
hefði tvöfaldazt i þjóðarat-
kvæðagreiðslunni.
1 fyrrakvöld var Trygve
Bratteli forsætisráðherra
Noregs einnig spuröur álits á
úrslitunum i Danmörku.
Bratteli sagði: ,,Ég hef lengi
haldið þvi fram, að norrænni
samvinnu væri engin greiði
gerður með þvi, að Danir sam-
þykktu að standa utan Efna-
hagsbandalags Evrópu”.
Bratteli sagði ennfremur, að
nú hefði danska þjóðin lýst yfir
stuðningi við áframhaldandi
Evrópustefnu. ,,En Norðmenn
veröa að finna aðrar leiðir
til úrlausnar vandamálanna
með tilliti til sambandsins við
Evrópu”.
1 viðtalinu sagði norski for-
sætisráðherrann siðan m.a.:
,,Með þvi að hafna aðild að
Efnahagsbandalagi Evrópu
leystu Norðmenn ekkert þess-
ara vandamála. Norræn
samvinna, sem ég hef barizt
fyrir alla ævi, kemur ekki held-
ur til með að leysa þessi vanda-
mál okkar með tilliti til sam-
bands Noregs við Evrópu”.
Leiðtogi þingflokks norska
Verkamannaflokksins sagði i
viðtali við fréttastofu NTB, að
aðild Danmerkur að Efnahags-
bandalagi Evrópu væri augljós
ávinningur fyrir Norðurlönd.
,,Það hefði mikla og alvarlega
erfiðleika i för með sér, ef öll
Norðurlönd stæðu utan Efna-
hagsbandalagsins. Ég hef þá
trú, að Danmörk verði beinn
tengiliður milli Norðurlanda og
Efnahagsbandalagsrikjanna og
nú fá Norðurlönd þó alla vega
einn fulltrúa, sem áhrif getur
haft á ákvarðanir innan Efna-
hagsbandalagsins”, sagði Gutt-
orm Hansen, leiðtogi þingflokks
Verkamannaflokksins.
,,A hinn bóginn leiða úrslitin i
Danmörku til þess, að Danir
munu sitja andspænis okkur
Það hefur liklega farið fram-
hjá fáum jáyrði Dana við
EFTA-aðild á mánudaginn, —
og liklega enn færri neitun
Norðmanna við þvi sama mánu-
daginn þar á undan.
Það var engu likara en Norð-
menn hugsuðu ekki um annað
en þjóðaratkvæðagreiðsluna
siðustu dagana á undan, hvar
sem tveir eða fleiri komu saman
bar hana á góma.
Laugardaginn 23. september
var svo háður endasprettur i
þessari kosningabaráttu, sem
sagt er, að eigi ekki sinn lika i
Noregi, og ,,nei-fólkið”, eða
„Folkebeverelsen” stóð þá fyr
ir siðustu aðgerðum sinum viðs-
vegar um landið.
Blaðamaður Alþýðublaðsins
var staddur i Þrándheimi ein-
mitt um þetta leyti og brá sér i
bæinn með myndavélina með-
ferðis.
Það voru reyndar fleiri en
,,nei-menn”, sem stóðu fyrir að-
gerðum þennan dag, en það
furðulega við þessa kosninga-
Framhald á bls. 4
AFSÚ6N_____________________1
að láta þar fara fram sómasam-
lega kennslu. Þar til náms-
brautarstjórn berst slik tilkynn-
ing frá rektor sér hún sig neydda
til að tilkynna nemendum, að
kennsla geti ekki hafizt nema i
þeim litla hluta (fyrirlestrar á 1.
ári), sem kenna átti annars stað-
ar”.
Samkvæmt þessari ákvörðun er
þeim viðtölum við nemendur á 2.
og 3. ári, sem fram áttu að fara i
Loftskeytastöðinni, frestað unz
umrædd tilkynning berst frá rekt-
or”. .
Þessi ákvörðun táknar raun-
verulega, að 60—70 nemendur i
þjóðfélagsfræðum geta ekki hafið
nám fyrr en eftir óákveðinn tima.
Blaðamaðurog ljósmyndari frá
Alþvðublaðinu fóru i skoðunar-
ferð' um húsið i gær i fylgd nokk-
urra þjóðfélagsfræðinema og
Þorbjarnar Broddasonar, lekt-
ors.
Fljótt á litið virðist húsið i mjög
mikilli niðurniðslu, rúður brotn-
ar, gluggaumbúnaður viða ónýtur
og i kjallaranum mun eitt her-
bergið vera fullt af rottum.
Að visu voru tveir menn að
hreingerningarstörfum i húsinu i
gær, en þeir byrjuðu ekki að
vinna þarna fyrr en þennan sama
dag eða degi áður en húsnæðið
átti að vera tilbúið til notkunar.
1 fyrirlestrarsalnum lá alls kyns
drasl á gólfum og ekki hægt að i-
mynda sér, að þarna hefði átt að
hefjast kennsla eftir nokkra daga.
„Þetta er allavega komið i
gang”, sagði Þorbjörn Brodda-
son” en það er spurning hvort all-
ir sætti sig við árangurinn”.
ÚIGERDIN í
að gera út, gerðu út, en flestir
biðu átekta með báta sina bundna
við bryggju.
Þá hafði blaðið samband við
Gisla Konráðsson framkvæmda-
stjóra Útgerðarfélags Akureyr-
inga i gær. Gisli var þá nýkominn
af stjórnarfundi hjá félaginu, og
sagði að þar hefði verið tekin
ákvörðun um að fresta veiðiferð
eins togara félagsins, sem átti að
fara út klukkan fjögur i gær. Ekki
hefði verið gripið til ráðs að kalla
inn þá togara sem nú eru að veið-
um.
Fulltrúar i Verðlagsráði hafa
verið þögulir sem gröfin um gang
mála i ráðinu. Það er þvi ekki gott
að gera sér grein fyrir þvi hversu
mikið ber enn á milli hjá fulltrú-
um i ráðinu.
Langar fundarsetur undan-
farna daga benda til þess að eitt-
hvað miði i samkomulagsátt, en i
lok vikunnar ætti að liggja ljóst
fyrir hvort samkomulag tekst i
ráðinu, eða hvort verðákvörðun
verður visað til yfirnefndar Verð-
lagsráðsins.
SPEHNA 5
borgarar, sem aðeins nefna
skirnarnöfn sin, hafa þetta að
segja i litilli íd. auglýsingu:
„SPÁNN má gjarna fá okkar
pláss i EFNAHAGSBANDA-
LAGINU. Kær kveðja.”
Allir að fara
1 lesmáli blaðsins þennan
siðasta dag áður en kosið er má
einnig merkja þá spennu, sem
rikir. 1800 verkamenn hyggjast
segja upp störfum vegna þess að
vinnuveitendurnir hafa hvatt þá
til þess að segja já, segir i einni
frétt. Ellefu atvinnufyrirtæki
hyggjast flytja starfsemi sina til
meginlandsins ef nei-ið verður
ofaná, segir i annari. Rithöfundar
deila um EBE, Per Hækkerup
(já) og Frode Jakobsen (nei)
ræða málið saman við blaðamenn
frá „Aktuelt”.
Knginn spámaður
Og hvernig halda menn svo að
fari. Blaðið fær 51 þekkta
kosningaspámenn - stjórnmála-
menn, embættismenn og aðra —
til þess að spá. Og enginn þeirra
reynist spá rétt. Allir spá þeir
andstæðingum aðildarinnar mun
meira fylgis, en þeir fengu. „Þeir
fá 57%”, segir sá bjartsýnasti.
„Þeir fá 40%”, segir sá svart-
sýnasti. Raunin varð 33%.
Sumir hverjir eru þó mjög
nálægt hinu rétta að þvi er lýtur
að fylgi við aðildina.
o
Miðvikudagur 4. október 1972.